• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Kalk / Kalsíum / Calcium

Skrifað 2010-03-11 · Bætiefni og vítamín

Kalk er það steinefni sem mest er af í líkamanum.

Kalk, eða öðru nafni kalsíum (Calcium) er það steinefni sem mest er af í líkamanum. Það er um 1,5 til 2% af líkamsþyngd, þar af 99% í beinum og tönnum, en um 1% dreifist á mjúka vefi og millifrumuvökva.

Kalsíum karbonat (Calcium carbonate) er algengasta form kalks en það þarf að taka inn með mat.  Kalsíum sítrat (Calcium citrate) betra að því leiti að það frásogast mun betur í líkamanum en kalsíum karbonat, fer betur í maga og þarf ekki að takast inn með mat.  Þetta hafa rannsóknir sem framkvæmdar voru við UK Southwestern Medical Center í Dallas í Texas sýnt ótvírætt.

Kalk er nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi taugakerfisins, samdráttarhæfni vöðva, stjórnun hjartsláttar, sendingu rafboða, storknun blóðs og eðlilegan blóðþrýsting.  Það er meira af kalki í líkamanum en nokkru öðru efni. Það er undirstaða beina og tanna og vinnur vel með fosfór við að fyrirbyggja beinþynningu og gisnun beinanna.  En til þess að eðlileg upptaka kalks geti átt sér stað má líkamann ekki skorta D vítamín.

Kalk er einni nauðsynlegt vegna samdráttarhæfni vöðvanna.  Það hefur því miklu hlutverki að gegna varðandi jafnvægi hjartsláttar, dregur úr hjarta- og æðasjúkdómum og styrki æðakerfið.  Kalk er einnig nauðsynlegt fyrir eðlilega blóðstorknun og tekur þátt í sáragræðslu.  Það er nauðsynlegt ensímum og hormónum sem hafa áhrif á meltingu, orku og efnaskipti líkamans og er einnig talið draga úr líkum á að krabbamein myndist í ristli.

Kalk og magnesíum styrkja hjarta og æðakerfi.  Talið að geti lækkað kólesteról í blóði og þar af leiðandi minnkað líkur á kransæðastíflu.  Það er áríðandi að hafa í huga að magnesíum verður að vera nokkrum veginn í réttum hlutföllum (æskilgt hlutfall er að hafa 1 hluta af magnesíum á móti 2 hlutum af kalki, þar sem líkaminn á erfiðara með að frásoga kalkið inn í líkamann), vegna þess að mikil kalkinntaka ein og sér getur aukið hættu á kransæðastíflu. Efnin stuðla sameiginlega að sjálfvirkum samdrætti vöðva og ekki má þá undanskilja hjartsláttinn.

Kalk í samvinnu við C-vítamín vinnur að myndun kollagens og  með öðrum næringarefnum heldur húðinni mjúkri, sterkri og heilbrigðri.  Gott til að róa stressaða húð.  Kalk getur einnig dregið úr tannholdssjúkdómum.

Kalk eykur gæði svefns og hvíldar ef það er tekið að kvöldi og er einnig gott við tíðarspennu.  Það eykur upptöku járns og styrkir taugakerfið.

Nauðsynlegt að neyta kalks alla ævina.  Kalk tapast úr líkamanum með þvagi, saur og gegnum húð. Þó beinagrindin sé fullvaxin og vöxtur hafi stöðvast þarf stöðugt að bæta upp þetta tap. Með aldrinum dregur úr hæfileika líkamans til að nýta kalk úr meltingarvegi.  Eftir tíðahvörf hjá konum eykst kalktapið úr beinum vegna skorts á estrógeni.  Nauðsynlegt fyrir  börn, ófrískar konum, konur með börn á brjósti og fullorðið fólk að gæta þess að fá nægilegt kalk fyrir beinin.

Fáist ekki nóg kalk úr fæðunni fellur magn kalksins í blóði.  Þá samstundis gengið á kalkforðabúr líkamans í beinum til að styrkur í blóði verði eðlilegur.

Kalkskortur getur orsakað beinkröm hjá börnum og leitt til óeðlilegs beinvaxtar eða að beinin bogna.  Hjá fullorðnum getur kalkskortur orsakað beinmeyru, en beinin verða þá mjúk og geta bognað.  Einnig getur kalkskortur leitt til beinþynningar (beingisnunar), sérstaklega meðan kvenna eftir breytingaskeið og virðist þá jafnvel tengjast hormónaskorti.

Skortseinkenni geta einnig verið stökkar neglur, exem, minnkuð kyngeta, tannskemmdir og  tannagníst.  Einnig þunglyndi, ofvirkni, svefnleysi, taugaveiklun, almennur slappleiki, hækkað kólesteról, háþrýstingur, vöðvakrampar og dofi í útlimum.

Kalkþörfinni er hægt að fullnægja með því að borða fjölbreytt fæði og neyta mjólkurafurða daglega. Þeir sem taka fæðubótarefni ættu að gæta vel að kalkmagninu í þeim og hafa í huga að í flestum fjölvítamíntöflum er ekkert kalk.

Kalk er helst að finna í flestum tegundum hrás grænmetis, sérstaklega í dökkgrænu grænmeti, sesamfræjum, sólblómafræjum, höfrum, hirsi, sojabaunum, einnig sardínum, fiski, laxi, þara, hnetum og þurrkuðum baunum. Þekktasta uppspretta kalks og sú vinsælasta eru mjólkurvörur. Mjólkurafurðir, til dæmis ostur, eru afar kalkríkar fæðutegundir og auðvelt er að fullnægja kalkþörf með neyslu þessara vara. Hámarksupptaka kalks fæst sé þess neytt samhliða D-vítamíni, ómega-3 fitusýrum (EPA) sem er til dæmis í lýsi og ómega-6 fitusýrum (GLA), sem er að finna í náttljósarolíu.

Kalktöflur fást í margskonar formi og er kalsíum karbonat sennilega eitt algengasta form kalks. Hins vegar er kalsíum sítrat sennilega betra kalk, því rannsóknir sem framkvæmdar voru við UK Southwestern Medical Center í Dallas í Texas sýna ótvírætt að kalsíum sítrat frásogast mun betur í líkamanum en
kalsíum karbonat.

Fæðutegundir sem innihalda oxalsýru svo sem rabarbari, kakó og spínat vinna á móti kalki. Einnig áfengi, kaffi, sjoppufæði, mikið salt, hvítt hveiti og mikil fita.

Ráðlagðir dagsskammtar eru:

• Börn 0-6 mánaða:    360 mg
• Börn  6-12 mánaða:    540 mg
• Börn 1-10 ára:    800 mg
• Karlar 11-18 ára:  1200 mg
• Karlar eldri en 18 ára:   800 mg
• Konur 11-18 ára:   1200 mg
• Konur eldri en 18 ára:   800 mg
• Þungaðar konur:   1200 mg
• Konur með barn á brjósti  1200 mg

Frásog kalks úr meltingarvegi minnkar með aldrinum og eldra fólk dregur líka oft úr neyslu kalkríkrar fæðu. Þá er þýðingarmikið að taka daglega inn kalk. Fólk með ofnæmi fyrir mjólkursykri þarf líka að gæta þess að neyta nægilegs magns af kalkviðbæti.

Við of mikla kalkneyslu bregst líkaminn við með því að minnka upptöku kalks úr meltingarveginum og að einhverju leyti með því að auka losun kalks með þvagi.

Það er sjaldgæft að kalkneyslan fari upp fyrir efri neyslumörk ef aðeins er borðað venjulegt fæði. Þetta getur hins vegar breyst ef borðað er mikið kalkbættum matvælum eða með töku fæðubótarefna sem eru auðug af kalki.

Langtímaofneysla getur valdið hækkun á kalki í blóði, kristallamyndun í þvagi (eða nýrnasteinum) og að lokum getur það leitt til nýrnaskaða, sérstaklega ef samhliða er mikil D-vítamínneysla.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).