• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Fótasveppur og Naglasveppur

Skrifað 2011-03-03 · Sjúkdómar

- Sveppur á fótum (Tinea pedis) og Naglasveppur (Tinea unguium)

 

 

Fótasveppur - Sveppur á fótum (Tinea pedis)

Tinea (húðsjúkdómar af völdum sveppa eða hringorma)  er mjög smitandi, sem einkennist af kláða, roða, litabreytingum eða hrúðri á húð á viðkvæmum svæðum.  Sveppasýking læknast ekki án íhlutunar.  Hómópatía hefur ýmis ráð við slíkum vandamálum í samvinnu við einstaklinginn.

Hvað er fótasveppur?   Fótasveppur eru vegna sýkinga af völdum örvera sem nefnast sveppir.  Sveppir sem algengast er að valdi fótsveppasýkingum eru þeir sem kallast dermatophytar en einnig sjást sýkingar af völdum candidasveppsins.  Sveppirnir lifa á dauðum húðfrumum, hári og nöglum.  Læknisheitið yfir fótasveppi er tinea pedis, dermatophytosis, eða athlete's foot.

Orsökin?    Fótasveppir eru mjög algengur sjúkdómur.  Undir venjulegum kringumstæðum eru ýmsar örverur á húðinni, bæði bakteríur og sveppir og eru þær nauðsynlegar líkamanum.  Sveppirnir lifa á dauðum húðfrumum, hári og nöglum og eru yfirleitt skaðlausir.  Við viss skilyrði getur þeim fjölgað of mikið og myndast þá sýking, sem ýmist geta verið af völdum einnar sveppategundar eða tengdar öðrum húðsjúkdómum.   Raki og hlýja eru kjöraðstæður sveppa.  Einstaklingum sem ganga langtímum í lokuðum skóm og þeim sem þrífa og þurrka illa fæturna þannig að húðin helst rök eiga því oftar við þessi vandamál að stríða.  Einnig gera smásár á húð og nöglum sveppunum auðveldara að dafna.  Fótasveppir eru smitandi og smitast bæði við beina og óbeina snertingu t.d. með handklæðum, skóm, sokkum og af gólfum, einnig berst smit með vatni s.s. í heitum pottum og sundlaugum.  Fótasveppir eru ýmist tímabundið vandamál eða geta komið aftur og aftur og orðið þannig langtímavandamál.

Einkenni?

• Sýkingin byrjar á milli tánna og getur svo færst undir ilina, en fer sjaldnast upp á ristina.
• Kláði og jafnvel sviði verður á sýktu húðsvæði.
• Útbrot.  Roði og bólga.
• Blöðrumyndanir, sem vessi getur lekið úr og skorpa myndast yfir.
• Húðin verður þurr og sprungur myndast.
• Neglur verða þykkar, hrufóttar og gulleitar að lit.

Íþróttaskór halda raka og hlýju að fótum og mynda kjöraðstæður fyrir fótasveppi  
 
Ráð til varnar fótasveppum.

• Nauðsynlegt er að gæta hreinlætis en gæta þess jafnframt að óhóflegur  þvottur getur einnig raskað eðlilegum hlutföllum örvera      á húðinni, og aukið líkur á sveppasýkingu.  Sumir einstaklingar eru móttækilegri en aðrir og fái sveppasýkingar mun oftar þar sem   hvorki  er hægt að kenna um sóðaskap   eða heilsuleysi.
• Fótrakir einstaklingar skulu skipta reglulega um sokka   þannig að fætur séu ávallt svo þurrir sem mögulegt er.     Notið bómullar- eða ullarsokka en forðist sokka úr   gerviefnum, þeir halda raka að  fætinum. Skiptið um sokka a.m.k. tvisvar á dag og oftar ef þarf.
• Gangið í sandölum eða leðurskóm og forðist skó úr gerviefnum.     Gott er að skipta um skó eftir hvern dag þannig að þeir nái að þorna vel á milli.
• Þvoið ykkur reglulega og þurrkið ykkur vel á eftir. Notið svo lítið af sápu sem mögulegt er.  Ef viðkomandi er í frjálslega vaxinn, er mikilvægt að þurrka vel allar húðfellingar.
• Forðist að nota annarra manna handklæði.
Þvoið ykkur vel um hendurnar ef þið hafið snert sýkt svæði, einnig ef þið hafið borið á ykkur sveppakrem stuttu áður.

Ráð til að vinna á fótasvepp.

Hvítlaukur:   Skerið þunna sneið af hvítlauksgeira og leggið á sýkta svæðið.  Hægt er að setja plástur yfir og leyfa hvítlaukssneiðinni að liggja við góða stund.  Endurtakið 4 sinnum í viku.  Einnig er hægt að skera hvítlaukgeira til helminga og nudda varleg yfir sýkta svæðið.  Hvítlaukur inniheldur sveppadrepandi efni og hafa rannsóknir sýnt að hann gefi góða raun gegn fótasveppum.   Einnig má strá hvítlauksdufti í sokkana áður en farið er í þá.  Gæti þó ert húðina ef notað óhóflega.

Eplaedik:  Setjið 100ml af hreinu eplaediki í fat með volgu vatni og hafið fæturna í fótabaði í 10-20 mínútur.  Þurrka fæturna vel á eftir.  Endurtaka þar til árangur næst.

Kjarnaolíur:   Tea tree olía (borin útvortis getur dregið úr einkennum (sérstaklega kláðanum). En það vinnur ekki á undirliggjandi svepp sem veldur sýkingunni) og ýmsar aðrar kjarnaolíur geta allar hjálpað vegna fótasveppasýkingu.

Mentóláburður  borinn á fæturna,  en fara þarf sérlega varlega þar sem blöðrur geta myndast eða roði.  Ef svæðið er viðkvæmt gæti áburðurinn valdið sviða.

Vitamin C  samhliða inntöku að leggja C vítamín duft á svæðið getur í sumum tilfellum drepið sveppinn.


 

Naglasveppur (Tinea unguium)

Hvað er naglasveppur?   Naglasveppur orsakast af húðsveppasýkingu. Til eru þrjár tegundir húðsveppa sem leggjast annað hvort á jörðina (geofile), dýr (zoofile) eða fólk (antropofile). Þeir sveppir sem orsaka fóta-og naglasveppasýkingu leggjast eingöngu á fólk. Algengustu tegundirnar eru kyrnisveppir (trichophyton mentagrophytes og trichophyton rubrum).

Orsökin?    Naglasveppir geta herjað á neglurnar eða komið í kjölfar illa meðhöndlaðra fótasveppa. Fótasveppir geta dreift sér um allan líkamann og vaxið inn í nöglina.

Einkenni? 
• Hvít skán á nöglinni.
• Þykknuð, mislit nögl.

Hvað er til ráða?   Ganga ekki mikið í lokuðum skóm (t.d.  íþrótta og gúmískóm).   Þvo sér daglega um fæturna og leyf þeim að þorna vel áður en farið er í sokka og skó.   Nota einungis bómullar- eða ullarsokka og forðist að nota skó úr gerviefnum og nota helst leðurskó eða sandala. 
Mjög erfitt getur verið að eiga við naglasveppi, sem geta verið þrálátir og komið aftur þrátt fyrir meðhöndlun, en helsta aðferðin sem gefur einhverja raun er hvítlaukur

Hvítlaukur:   Skerið þunna sneið af hvítlauksgeira og leggið á sýkta svæðið.  Hægt er að setja plástur yfir og leyfa hvítlaukssneiðinni að liggja við yfir nótt.  Þetta er gott að endurtaka 3 sinnum í viku.  Hvítlaukur inniheldur sveppadrepandi efni og hafa rannsóknir sýnt að hann gefi góða raun gegn fótasveppum.   Einnig má strá hvítlauksdufti í sokkana áður en farið er í þá.

Teetreeolía og grapekjarnaolía   borið reglulega á neglurnar.

Eplaedik óblandað borið á eða sett út í fótabað.


 

Hómópatísk meðferð:

Samhliða hvítlauksmeðferð eins og ráðlagt er hér að ofan og/eða samhliða öðrum ofangreindum ráðum, eru til ýmsar remedíur eins og til dæmis:  Antimonium crudum,  Graphitis,  Zink,  Thuja og fleiri remedíur sem vinna á grunnvandanum innanfrá og gætu hjálpað til varðandi þessa hvimleiðu kvilla.

Meðferð getur tekið tíma og misjafnt milli einstaklinga hve langur sá tími er.

Þetta eru aukaverkanalausar meðferðir og því tilvalið að reyna áður en farið er út í lyfjameðferðir sem geta valdið óþægilegum meltingarvandamálum.


 

Hefðbundnar meðferðir:

Hægt er að taka sýni til ræktunar en yfirleitt er hægt að byggja sjúkdómsgreininguna á einkennum.  Ef fyrirbyggjandi aðferðir duga ekki má reyna sveppadrepandi lyf sem fást í lyfjaverslunum.  Í slæmum tilfellum er einnig hægt að fá sterk sveppadrepandi lyf ávísuð af lækni, en þá þarf að hafa í huga að styðja þarmaflóruna því þessum lyfjum fylgir oft meltingarvandamál.

Helstu fylgikvillar eru bakteríusýkingar, sem geta dreift sér og aukaverkanir lyfja þegar lyfjainntaka er notuð við meðferð.


 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).