• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Acidophilus

Skrifað 2011-04-07 · Heilsa

Acidophilus / Lactobacillus Acidophilus / Sýrukær

 

Acidophilusinn er tegund "góðra" baktería eða gerla sem finnast í meltingarvegi okkar og leggöngum kvenna, og hjálpa til við að byggja upp heilbrigðan og vel starfandi gerlagróður í meltinarfærunum.  Gerlarnir aðstoðar við meltingu próteina, fyrirbyggja offjölgun óæskilegra örvera, til dæmis lífvera sem valda sveppasýkingu, aðstoðar við minnkun kólesteróls í blóði, styður við meltingu og eykur upptöku næringarefna.  L. acidophilus er í hópi “vinveittra” gerla, og er skyldur L. bulgaricus, L. thermophilus, L. reuteri, S. bulgaricus S. faecium og B. bifidus.

Gerlaflóran í heilbrigðum ristli ætti að innihalda um 85% lactobacilli geril en hins vegar sýna rannsóknir að algengast er að hlutfall hans sé ekki nema um 15 - 20 %.  Þetta getur leitt til vindgangs, uppþembu, harðlífis og vannýtingu næringarefna.  Þetta umhverfi leiðir til ofvaxtar á candida gersveppnum og öðrum óæskilegum bakteríum sem eru ávallt til staðar í þörmunum.  Þessar bakteríur eru líkamanum nauðsynlegar við ýmsa starfsemi í meltingarvegi, en heilbrigð þarmaflóra heldur þessum óæskilegu bakteríum í skefjum.  Um leið og heilbrigður gerlagróður verður fyrir áfalli, aukast skilyrði þessara óæskilegu baktería sem geta farið að gera okkur mikinn óskunda.

Þarmaflóran er mun merkilegri en margir gera sér grein fyrir.   Þar er til dæmis allt að 80% af ónæmiskerfi líkamans.  Acidophilus ræðst ekki á vandamál sem herja á líkamann, heldur styður við þarmaflóruna þannig að hún verður heilbrigð og fær um að verja líkamann og bæla niður lífverur og bakteríur sem leita á hann.   Þessar óæskilegu lífverur eru ekki staðbundnar við meltingarveginn, heldur eru þær einnig að finna í leggöngum og jafnvel í þvagrás. 

Margt getur sett meltinguna úr jafnvægi, t. d. lélegt mataræði, sælgætisát, neysla lyfja, einkum sýklalyfja, því neysla þeirra eyðileggur ekki bara óvinveittar bakteríur heldur einnig  nauðsynlegum vinveittum örverum. 

Gott er að taka Acidophilus ef fólk þarf að taka sýklalyf eða fúkkalyfi.  Hann ætti ekki að taka á sama tíma og fúkkalyfið heldur að gæta þess að láta tvær klukkustundir líða á milli þess að taka inn fúkkalyfið og Acidophilusinn.   Einnig er gott að ef einstaklingur er í geislameðferð að taka Acidophilus þar sem geislar eyða einnig vinveittu gerlunum og þannig getur orðið röskun á hinu viðkvæma jafnvægi sem ríkja þarf í gerlaflóru líkamans.

Acidophilus lagar sýrustig meltingarfæranna, bætir upptöku járns, eykur nýtingu B-5 vítamíns, getur hjálpað gegn exemi, auk þess sem það getur stuðlað að bata alls konar kvilla sem orsakast af því að meltingarfærin eru ólagi.

Ef Pectin er notað með Acidophilus, er talið að það geti aðstoða við losun óæskilegra málma og eiturefna, auk þess aðstoðað við  losun kólesteróls. Rannsóknir benda til þess að það geti dregið úr hættu á hjartasjúkdómum og gallsteinum.

Gott að nota Acidophilus með öðrum efnum til að laga harðlífi, og jafnframt er oft árangursríkt við að losna við þrálátan niðurgang.  Fæðubótarefni með Acidophilus gæti komið í veg fyrir niðurgang ferðalanga, bætt meltingu og dregið úr hættu á ristilkrabbameini, minnkað kólesteról í blóði , haldið frunsum í skefjum, ráðið bót á mjólkursykuróþoli og afeitrað skaðleg efni.   Sumstaðar er fáanleg blanda gegn niðurgangi, sem inniheldur þurrkaða mjólkursýrugerla af tegundunum Lactobacillus acidophilus og Lactobacillur bulgaricus.

Vegna sveppasýkingar sakar ekki að taka olívulauf, hvítlauk og oregano-oil samhliða Acidophilus, ásamt því að endurskoða mataræði meðan verið er að byggja upp slímhúðina til þess að hún sé fær um að  halda Candida sveppnum í skefjum.

Hægt er að kaupa Acidophilus í hylkjum, vökva, dufti eða töflum.  Acidophilus er stundum blandað saman við aðra hagstæða gerla eins og Bacillur-gerlum og bætt þeim út í mjólkurvöru (AB-mjólk og jógúrt).  Hægt er að fá mjólkurlausan Acidophilus ef einstaklingur hefur mjólkuróþol.

Þegar keyptur er Acidophilus skal vanda vel valið og kaupa það sem talað er um að innihaldi lífvænlegra gerla sé sem mest og betra að kaupa það í fljótandi formi eða hylkjum en síður í sýruhúðuðum pillum.  Sem dæmi má nefna að Acidophilusinn Multidophylus 12, frá Solary inniheldur 20 biljón probiotic organisms á hvert gramm.  Solgar bíður upp á fleiri en eina tegund af Acidophilus allt frá 3 biljón probiotic organisms á hvert gramm.  Hjá Heilsu fæst frá vörumerkinu Udo’s Choice Probiotic  og er þar gefið upp  30 billjón gerlar og svo mætti telja.

FOS (fructo-oligosaccharides) eru ákveðin kolvetni sem unnin eru úr ávöxtum. En það nærir Acidophilus-gerlana og skapar þeim vænlegt umhverfi til að dafna í.  Það eykur áhrifin og tryggir þau.

Gerlarnir þola illa hátt hitastig.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).