• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Stjórnun barneigna án hormóna

Skrifað 2011-03-02 · Börn

Getnaðarvörn / eða /  Frjósemi 

Nú er komin frábær lausn til að hafa stjórn á barneignum án hormónanotkunar. 
Þetta er hjálpartæki sem bæði getur nýst sem getnaðarvörn en einnig nýtist þetta tæki til að auðvelda konum að verða þungaðar.

 er tæki sem framleitt er í Þýskalandi og hefur sýnt fram á mjög góða reynslu.  Það er nokkuð kostnaðarsamt, en með hliðsjón af notkun getnaðarvarnarpilla þá borgar það sig upp á um það bil 3 árum. 

Lady-Comp er 99,3 % örugg getnaðarvörn án allra aukaverkana og mjög auðveld í notkun.  Tækið fæst í 2 stærðum sem eru mjög auðveld í notkun.  Það minna er um 7 x 10 cm og er nægilega lítið til að geta haft það í veski og henta vel ef konur eru mikið á ferðalögum.  Þeim fylgir endurhlaðanlegar rafhlöður.

Tæki þetta nýtist þó ekki til varnar kynlífssjúkdómum, þannig að ef ekki eru um öruggt kynlíf að ræða, þá þarf að hafa aðrar ráðstafanir í huga. 

Lady-Comp veldur engum óþægindum eins og hormónapillur eða hormónalykkjur en aukaverkanir samhliða hormónameðferðum geta verið mjög breytilegar.  Þar má nefna: skapgerðarbresti, kynlífskulda, geðdeyfð, augnþurrk, þrymlabólgur, ógleði o.fl. 

Tækið byggir niðurstöður á hitastigi líkamans á morgnana til að ákvarða frjósemi.  Það fylgist með daglegri stöðu þinni varðandi egglos og geymir upplýsingar um tíðahring þinn.  Það gefur síðan upplýsingar um þá daga þegar samfarir geta leitt til meðgöngu.

Það virkar þannig að við egglos hækkar líkamshitinn lítilsháttar en þó áberandi mikið.  Ef þú mælir hitastig munnlega með sérstökum hitaskynjara í 50-60 sekúndur á hverjum morgni áður en þú ferð á fætur, mun tækið meta niðurstöðurnar fljótt og ber saman við einstök frjósemismynstur.  Ef þú ert á frjósömu tímabili, sýnir tækið rautt ljós en ef þú ert á öruggu tímabili sýnir tækið grænt ljós.  Skjárinn á tækinu er áreiðanlegur og gildir fyrir næstu 24 klukkustundirnar.  Ef farið er eftir þessu þá er tækið jafn öruggt og pillan. 

Í upphafi ættir þú að vakna á svipuðum tíma og mögulegt er og mæla þig áður en þú ferð fram úr.  Því meiri upplýsingar sem tölvan safnar, því auðveldara er að byggja upp öruggar upplýsingar.  Samhliða mikilvægum grunnupplýsingum sem byggðar eru á 25 ára rannsóknum, eru þetta mikilvægar upplýsingar til að skapa það öryggi sem ætlast er til.

1. taktu hitastigið á hverjum morgni um leið og þú vaknar með því að setja
hitamælinn undir tunguna í 50-60 sekúndur – liggðu róleg og afslöppuð á
meðan.  Þetta er nauðsynlegt til að byggja upp sínar grunnupplýsingar

2. ef þú ert á blæðingum skaltu ýta á   takkann, en annars skaltu ýta á  .

3. Samkvæmt innbyggðu líffræðilegum upplýsingunum ásamt upplýsingum um daglegan líkamshita þinn getur tækið gefið þér áreiðanlegar upplýsingar næstu 24 klukkustundirnar.


   Grænn punktur     =    þýðir "ófrjó
   Rauður punktur    =    þýðir "frjósöm"
   Gulur punktur       =     þýðir að tölvan er enn að safna upplýsingum

http://www.youtube.com/watch?v=7SIkGs_w7y4    = tenging við ágætis myndband.

http://www.lady-comp.de/   =  tenging við heimasíðu þeirra,

frjosemistolva@gmail.com   =  tenging á Íslandi.


Ef þú vilt hins vegar verða barnshafandi þá getur þetta tæki einnig gagnast til að fylgjast með þeim dögum sem þú ert frjósöm.  Það byggist einnig upp á hitastigi að morgni og lætur vita hvenær þú hefur egglos og þá daga sem þú ert frjó.  Baby-Comp getur jafnvel með tölfræðilegri aðferð greint mismunandi orsakir ófrjósemi og þannig hjálpað til við að leysa einstök vandamál getnaðar.
Í byrjun ættirðu að taka hitann þegar þú vaknar eins reglulega og mögulegt er því það gerir auðveldara að mæla frjósemisdaga (rauða daga).


 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).