Kartöflur af náttskuggaætt
Kartöflur eru ein af þeim fæðutegundum sem mest er borðað af hér á Íslandi og víðar. Mörgum finnst þær ómissandi með nær hverju sem er og þær eru jafnvel góðar einar og sér. Fjöldi matreiðslubóka fjalla eingöngu um kartöflur ótal breytilega möguleika á matreiðslu þeirra.
Kartafla er rótargrænmeti sem þroskast í fimm stigum. Á fyrsta stigi myndast sprotar og rótarkerfið myndast. Á öðru stigi byrjar plantan að mynda stilka og laufgast. Á þriðja stigi fara að myndast ný rótarhnýði sem dafna vel á Íslandi þar sem jörðin verður ekki mjög heit. Á fjórða stigi fjölga og stækka rótarhnýðin við söfnun forða úr jarðveginum. Á lokastigi þroskast rótarhnýðin þannig að hýðið styrkist og á sama tíma breytist sykur yfir í sterkju.
Þær eru mjög næringarríkar og innihalda vítamín og steinefni ásamt ýmsum öðrum bætiefnum. Næringin er þó talin að mestu milli hýðis og kartöflumassans. Kolvetni eru í miklu mæli en elsta form þessa kolvetnis er sterkja sem í meginatriðum er talin virkar á líkamann sem trefjar. Matreiðsla á kartöflum getur haft áhrif á sterkjumagnið og við að sjóða þær og að kæla á eftir eykst sterkjumagnið til muna. Soðin kartafla getur innihaldið um 7% sterkju sem eykst um allt að 13% við að kæla hana á eftir.
Kartöflur eru þó ekki taldar með í NHS skala þar sem er ráðlagður fimm tegunda skammtur af grænmeti og ávöxtum. Þær eru flokkaðar ofarlega í GI skala sem er mataræði sem hefur áhrif á blóðsykur. Kartöflur geta verið mismunandi eftir gerð, en á mælikvarða blóðsykursvísitölu (blóðsykursálag) GI-matvæla eru kartöflur mjög ofarlega. Gi-fæða hefur áhrif á losun glúkósa sem hefur áhrif á blóðsykursmagn líkamans og þarf að hafa í það í huga bæði varðandi sykursýki, offitu, lífsstíl og ýmislegt fleira.
• Gi-gildi eru almennt túlkuð sem hér segir:
• Í flokki með lágum GI-gildum eða undir 55 má nefna ávexti og ýmislegt grænmeti (ekki kartöflur), belgjurtir, korn, kjöt, fisk, egg, mjólk, hnetur, ávaxtasykur og vörur með lágt kolvetnismagn.
• Í flokki með miðlungs GI-gildi eða 56-69 má nefna kornvörur, basmati hrísgrjón, súkrósi og sætar kartöflur.
• En með hátt GI-gildi eða 70 og yfir má nefna kartöflur, hvítt brauð, hvít hrísgrjón, kornflögur og pressað morgunkorn
Við vitum að grænmeti þarf að vera hluti af heilbrigðu mataræði, en hvað með náttskuggagrænmeti. Kartöflur eru rótargrænmeti sem teljast til náttskuggajurta. Margir hafa aldrei heyrt um náttskuggajurtir og því síður hvaða áhrif þær geta haft á líkamann. Náttskuggajurtir er fjölbreyttur hópur matvæla, jurta, runna og trjáa sem hafa vakið athygli vísindamanna, lækna og næringarfræðinga um aldir. Náttskuggajurtir eru í raun samheiti til að lýsa um 2800 tegundum plantna sem eru þó með mismunandi eiginleika og innihaldsefni.
Aðrar dæmigerðar náttskuggajurtir eru til dæmis tómatar, cayenepipar, grænn og rauður pipar, paprika, eggaldin og tóbaksjurtin. Náttskuggajurtir nefnast svo, þar sem þær draga ekki í sig ljós. Kartöflur þroskast til dæmis í myrkri og þegar rótarhnýði birtast upp við jarðvegsskorpuna þyrfti að þekja þau betur þar sem birtan hefur neikvæð áhrif. Við birtu veldur blaðgræna samruna sem veldur sjáanlegri litabreytingu (grænar eða fjólubláar) sem gæti verið vísbending um eiturmyndun í kartöflum.
Í náttskuggajurtum eru ákveðin beiskjuefni (alkaloid) sem eru þó í mis miklu mæli milli tegunda. Orðið alkaloid hefur verið þýtt sem lýtingur á íslensku, en einnig eru notuð orðin alkalóíði, beiskjuefni og plöntubasi. Þetta er flokkur basískra, lífrænna köfnunarefnissambanda sem myndast í plöntum. Þessi efni eru oftast sem sölt lífrænna sýra sem flest eru óleysanleg í vatni og hafa reynst hafa margvísleg áhrif á mannslíkamann. Ýmsir þessara lýtinga eru notuð sem lyf eins og kínín, morfín, ópíum, striknín, koffín og nikótín. LSD er búið til úr lýsergsýru, sem er lýtingur.
Rannsóknir hafa beinst að efninu alkaloid sem getur haft áhrif á taugar, vöðva og meltingarkerfi bæði manna og dýra. En þar sem alkaloid er í litlu magni í mörgum þessara jurta þá valda þau aðeins heilsuvandmálum hjá þeim sem eru viðkvæmir fyrir þessum efnum. Og því miður eru það fleiri en almennt er vitað um þar sem fáir hérlendis hafa heyrt um þessar náttskuggajurtir og áhrif þeirra.
Með því að sjóða jurtirnar við hita yfir 170°C dregur úr alkaloidmagninu, en þó aðeins um 40-50% sem dugar ekki fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir þessum áhrifum. Einnig þó reynt sé að skera jurtina í sneiðar og skola sterkjuna burtu fyrir suðu, þá dugar það ekki fyllilega. Þannig að ef um er að ræða slitgigt, liðagigt, vefjagigt eða þvagsýrugigt þá er ráðlegt að taka þessar náttskuggajurtir algerlega út úr fæðuneyslu. Það sama gildir um vöðvataugavandamál eins og til dæmis fótaóeirð.
Áhrif alkalóíða á heilsu fólks.
Áhrif alkaloid í kartöflum – (aðallega solanine og chanonine) – hafa verið rannsakaðir á tveim þáttum varðandi heilsu fólks.
Ensímið cholinesterase í taugafrumum í líkamanum sem hafa áhrif í heilanum þar sem stjórnar sveigjanleika vöðvahreyfinga. Eitruð efnasambönd sem kallast glycoalkaloid sem eru solanine og chanonine, en solanine er algengt í kartöflum. Áhrif alkaloid í kartöflum – aðallega solanine og chanonine – sem hafa verið rannsakaðir varðandi heilsu fólks og hafa sýnt að þeir getað lokað fyrir virkni þessa ensíma í taugafrumunum. Þessi beiskjuefni sem finnast í náttskuggajurtunum og hafa þessi áhrif á taugakerfið kallast cholinesterase hamlarar. Ef of miklar hömlur verða á þessum þætti, truflast starfsemi taugakerfisins í vöðvunum. Einnig hafa þessi efni áhrif á meltingarkerfi manna og dýra. Alkaloid virðist einnig hafa áhrif á kalkbúskap líkamans.
En aðal vandamálið sem rekja má til náttskuggajurta er liðagigt og langvarandi bólgur í liðum sem geta valdið skemmdum. Til margra ára hafa margir læknar og sjúklingar einnig haldið því fram að margskonar gigtareinkenni og ekki síst vefjagigt og síþreyta geti stafað af náttskuggajurtum. Í grein eftir Dr. Smith kom einnig fram að efni úr náttskuggajurtum getur valdið slitgigt hjá ýmsum spendýrum. Af þeim sökum hafa vísindamenn mælt með brotthvarfi náttskuggajurta úr máltíðum þeirra sem þjást af slitgigt, yktsýki eða öðrum gigtarvandamálum.
En vísindalegar rannsóknir hafa þó ekki allar sýnt með óyggjandi niðurstöðum tenginu þar á milli, en sýnt hefur verið fram á að það fást ekki öll svör með slíkum rannsóknum. Það er heldur ekki þar með sagt að þetta sé algild regla að náttskuggajurtir séu slæmar fyrir alla. Sem betur fer eru margir sem þola vel kartöflur og aðrir sem hafa óþol að litlu leiti og geta látið eftir sér að borða náttskuggajurtir í litlu magni án þess að það hái þeim.
Margir hafa þó upplifað þetta á eigin líkama og fundið þær breytingar sem verða þegar náttskuggajurtir eru algerlega teknar út af fæðulista. Þetta geta verið verkir í hvaða liðum sem er jafnt baki sem öðrum liðum. Það tekur þó nokkurn tíma að hreinsast út úr líkamanum, en árangur getur orðið ótrúlegur.
Þess vegna, ef um einhver stoðkerfisvandamál er að ræða, þá er ekki úr vegi að taka algerlega út kartöflur, tómata, paprikur, chilipipar, rauðan og grænan pipar í um það bil 6-8 vikur. Þegar sá tími er liðinn skal borða sérlega vel af kartöflum og tómötum í að minnsta kosti 1-2 vikur og á sama tíma að vera vel vakandi fyrir breytingum eins og stirðleika eða liðverkjum.
Þeir sem upplifa þetta og taka þetta út af fæðulista, verða varir við að þegar svindlað er í einhverja daga í senn og þá byrjar stirðleikinn og verkirnir að færast smám saman í sama gamla horfið.