Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
Eldra fólk getur átt yndisleg ár eftir að starfsævinni líkur
Eldra fólk getur átt yndisleg ár eftir að starfsævinni líkur og nauðsynlegt að hlúa að heilsunni eins og kostur er. Við hreyfingu og gott mataræði, styrkist ónæmiskerfið og einstaklingar efla sjálfstæði sitt og lífsánægjuna. Þó þú hafir ekki hugleitt þessi atriði hingað til og komin(n) á efri þá er ,,aldrei of seint að byrja”
Hreyfing:
Hreyfing er mjög nauðsynleg og ekki síst fyrir eldra fólk. Teygjanleiki vefja minnkar með aldrinum en dagleg hreyfing og þjálfun getur hægt verulega á eðlilegum aldursbreytingum. Hreyfing eykur vöðvastyrk, viðbragðsflýti, liðkar liðamót, styrkir allar hreyfingar og eykur úthald til daglegra athafna. Bætir starfsemi hjarta og lungna, bætir blóðstreymi og jafnar blóðþrýsting. Jafnvægi eykst og getur dregið úr hættu á að detta, en byltur geta haft alvarlegar afleiðingar. Hreyfing bætir meltingu og minnkar hættu á hægðatregðu, dregur úr hrörnun og hægir á beinþynningu. Ekki má gleyma því sem miklu máli skiptir en það er aukið sjálfstraust, betri andleg líðan og betri nætursvefn.
Hreyfingarleysi er afar slæmt og getur valdið því að einstaklingur leggst í kör fyrr en nauðsyn ber. Æskilegt er að velja hreyfingar miðað við hvað hentar hverjum og einum en það getur verið mjög breytilegt. Dagleg hreyfing er æskileg en getur þó verið breytilegt frá degi til dags.
Margir lasburða einstaklingar sem eiga erfitt með að hreyfa sig hefðu gott af því að fara til sjúkraþjálfara. Með kerfisbundinni þjálfun og endurhæfingu er oft hægt að gera fólki kleift að verða sjálfbjarga með daglegt líf á ný. En ekki er árangur af endurhæfingu alltaf fljótur að koma í ljós, heldur getur þetta stundum verið þolinmæðisvinna. En það er þess virði að reyna og gefa því tækifæri.
Þjálfun og daglegar hreyfingar geta verið mjög breytilegar allt frá því að mjög veikburða einstaklingi nægir jafnvel að ganga fram og til baka innan íbúðar allt upp í að þjálfa í líkamsræktarstöð. Göngur geta verið mis átakamiklar ýmist innandyra eða utan, en það fer eftir getu hvers og eins. Gönguhópar eru víða vinsælir og það gefur ánægju að ganga með öðrum. Einnig er æskilegt að ganga upp og niður stagana í stað þess að taka alltaf lyftu. Æfingar er til dæmis hægt að gera heima fyrir og má benda á morgunleikfimina í ríkisútvarpinu á virkum morgnum klukkan 9:50. Aukist hefur töluvert að eldra fólk sæki almennar líkamsræktarstöðvar til æfinga, en sund og sundleikfimi eru einnig sérlega góð líkamsrækt. Dans hefur jú alla tíð verið talinn styrkjandi og gleðigefandi. En hver og einn þarf að hlusta á sinn eigin líkama til að finna það sem hentar best og gefur þann árangur sem óskað er eftir.
Stundum er gott að ræða við sinn lækni ef byrjað er að stunda líkamsþjálfun, en ávallt er gott að fara rólega af stað og smá bæta við álagið. Aldrei er of seint að byrja og þó það virðist erfitt átak þá er það miklu auðveldara þegar átakið er hafið.
Það er ómetanlegt þegar hægt er að njóta lífsins og geta haldið þeirri færni að stunda áhugamál sin og verið sjálfbjarga með flestar athafnir fram eftir háum aldri. Að eiga þess kost að geta heilsunnar vegna hitt annað fólk er mjög gefandi því félagsskapur getur dregið úr einmanaleik og þunglyndi.
Margir lasburða einstaklingar sem eiga erfitt með að hreyfa sig hefðu gott af því að fara til sjúkraþjálfara. Með kerfisbundinni þjálfun og endurhæfingu er oft hægt að gera fólki kleift að verða sjálfbjarga með daglegt líf og aukið lífsgæði þess. Rannsóknir sýna að eldra fólk getur náð miklum framförum ekki síður en unga fólkið.
Það þarf sjálfsaga til að drífa sig í æfingarnar, en það skilar sér margfalt til baka.
Mataræði:
Mataræði getur einnig haft mikið að segja. Matarlyst minnkar oft með aldrinum og ef fæða er ólystug þá borðar einstaklingur jafnvel ekki nauðsynlegt magn næringarefna. Vöðvarnir rýrna með aldrinum og orkuleysi hrjáir marga. Mataræði skyldi því vandað sem best þannig að eldra fólk geti notið fæðunnar með ánægju samhliða því að fá góða og fjölbreytta næringu.
Viðmið fæðuþátta fyrir eldra fólk þurfa að vera frábrugðin þeim viðmiðum sem ætluð eru börnum og ungu fólki. Færni líkamans til næringarupptöku er til dæmis ekki eins mikil þegar árin færast yfir og þörf fyrir næringarefni breytist einnig miðað við aldur, lífsstíl og líkamsástand. Fita, kolvetni og prótein eru miklir orkugjafar. Þannig að feitt kjöt, rjómi og sykur er oft æskilegt í fæðu eldra fólks á sama tíma og það er talið óæskilegt fyrir yngri einstaklinga.
Ekki er hægt að alhæfa fæðuráðgjöf fyrir neina aldurshópa nema að takmörkuðu leiti þar sem hver einstaklingur er sérstakur og hans þarfir þyrfti að miðast við líkamsástand, heilsu og lífsmáta. Til dæmis ef einstaklingur á við hægðatregðu að stríða þá getur hveiti og heilhveiti verið algert eitur í meltinguna og dregur þá meira úr orku en að gefa orku. Aftur á móti ef einstaklingur hefur niðurgang flesta daga eins og títt er með fólk á efri árum, þá getur rúgur og önnur meltingarörvandi fæða ýtt undir meltingarvandann.
Fjölvítamín og steinefni er æskilegt að taka til að bæta upp skerta næringarupptöku, því lélegt næringarástand getur haft alvarlega fylgikvilla í för með sér eins og minni hreyfigetur, minnistap og skertan lífsvilja.
Hómópatía
Hómópatískar remedíur hafa oft getað létt undir með eldra fólki þegar ýmsir kvillar herja á í daglegu lífi. Þessar remedíur eru aukaverkanalausar og hafa ekki áhrif á það sem læknar eru að gera fyrir viðkomandi einstakling.
Hægt er að fá ýmsar remedíur keypta í apótekum eða heilsubúðum en þá er styrkleikinn aðeins í 30c, en einstaklingur þarf jafnvel annan styrkleika. Þá er hægt að fá hjá hómópötum remedíur í mismunandi styrkleikum og blöndum sem henta viðkomandi einstaklingum.
Sem dæmi hefur blandan Rhus tox + Ruta + Arnica gert daglega líðan mun auðveldari þegar hreyfingar fara að stirðna og ýmsar skrokkskjóður koma í kjölfar efri ára.
Secale cor + Cuprum met + Calc carb hjálpar mörgum vegna sinadráttar.
Calc carb + Calc phos + Calc fluor er blanda sem gott er að taka um tíma þegar beinin verða brothætt.
Hér á eftir mun ég telja upp nokkrar af þeim remedíum sem hafa komið að góðu gagni fyrir fólk á efri árum, en mun fleiri remedíur geta hjálpað á mismunandi hátt.
Alumina: Ef einstaklingur er orðinn hægur í öllum athöfnum og hugsun. Hann er dapur, viðutan, gleyminn og hálf ruglaður. Gæti einnig orðið áttavilltur.
Þróttlítill með dálítinn skjálfta. Húðin hefur þornað. Meltingin er farin að verða erfið og erfiðleikar við að losna við hægðir. Blaðran er einnig farin að verða þróttlítil og þarf að bíða eftir losun. Þurr hóstakjöltur.
Ambra grisea: Óstöðugur og uppburðarlítill og fer auðveldlega úr jafnvægi. Gleyminn og ráðvilltur. Einstæðingur, ber sig ekki eftir félagsskap annarra. Kýs fremur að vera út af fyrir sig og fer auðveldlega úr jafnvægi innan um ókunnuga. Talar í belg og biðu en hlustar lítið eftir svörum.
Harðlífi og á erfitt með að losna bæði við þvag og hægðir. Þurr hóstakjöltur sem eru verri þegar hann er að tala. Ropar dálítið. Á erfitt með að sofna á kvöldin og finnur meira fyrir óþægindum þegar liggur útaf.
Arnica montana: Þegar eldra fólk fer að verða óstöðugt fer það að detta mun oftar. Ekki er óalgengt að sjá ljóta marbletti og mikil eymsli. Arnica er ein besta fyrstu hjálpar remedían og skyldi vera það fyrsta sem gefið er eftir slys. Það dregur úr blæðingum, bólgum og verkjum svo um munar.
Arsenicum album: Eirðarlaus, kvíðin og smámunasöm nöldurskjóða. Veikindahræddur og hræðist dauðann. Líður ekki vel að vera einn og veltir sér þá upp úr kvíðvænlegum hlutum. Reglufastur og allt þarf að vera á réttum stað.
Svefnleysi með óróleika. Hjartsláttartruflanir vegna kvíða. Meltingartruflanir með sviðaverkjum og niðurgangi sem er verri á morgnana. Ósjálfráð þvaglát. Lystarleysi og þyngdartap. Húðkláði. Einkenni eru mest áberandi frá miðnætti og fram yfir kl. 3.
Baryta carbonica: Getur orðið smásálarlegur, barnalegur og hefur áhyggjur af smámunum. Gleyminn, viðutan. Á erfitt með að taka ákvarðanir. Upplifir gamla tímann. Hefur áhyggjur af baktali frá öðrum.
Svimar þegar stendur upp. Höfuðverkur og svimi við að beygja sig fram. Meltingartruflanir og slappleiki eftir máltíðir. Erfitt að losa við hægðir en hefur oft þörf. Þvagleki og þarf oft að pissa á nóttunni. Blautur hósti en erfitt að losa upp slímið. Svefntruflanir vegna óróleika og finnst vera of heitt.
Carbo vegetabilis: Seinfær líkamlega sem og áhugalaus og tilfinningadaufur. Skyndilegur einbeitingaskortur og mynnisleysi. Pirraður og jafnvel dónalegur, sérstaklega við sína nánustu.
Meltingartruflanir með niðurgangi og töluverðum vindgangi, en líður betur við að ropa. Hrygluhósti með öndunarerfiðleikum. Líður illa af feitum og mikið krydduðum mat. Líður illa í miklum hita og finnst gott að vera úti í fersku lofti.
Conium maculatum: Hægar hreyfingar, hægar hugsanir og svarar hægt. Hlédrægur og svimagjarn. Viðutan, gleyminn og ráðvilltur. Erfitt að einbeita sér og skilja ritað mál. Lífsleiður, hjátrúarfullur og vill helst vera látinn í friði.
Melting er hæg, andar hægt og sár gróa hægt. Svimar meira þegar liggur útaf og snýr sér í rúminu. Þurr kitlandi hósti sem er verri á nóttunni. Sífelldur þvagleki.
Ignatia amara: Vegna sorgar þegar einstaklingur missir ástvin. Einnig ef einstaklingur verður fyrir miklum vonbrigðum. Vill enga huggun og vill fremur vera látinn í friði með sorg sína. Grætur ekki mikið en snöktir, andvarpar og líður eins og sé með kökk í hálsinum. Þróttleysi og svefntruflanir vegna sorgar.
Höfuðverkur, meltingartruflanir með niðurgangi. Hjartsláttartruflanir. Kippir, spasmi og óskiljanlegur doði í líkamanum. Ýmis mótsagnakennd einkenni (t.d hósti sem versnar við að hósta).
Lycopodium: Sjálfstraust ósköp lítið. Viðutan og gleyminn. Depurð og áhyggjur af öllu mögulegu. Þolir illa breytingar eða að taka ábyrgð á einhverju. Pirraður og snöggur upp á lagið en getur verið ósköp viðkvæmur.
Lítil matarlist. Slæm melting og mikill vindgangur. Sækir í sætindi og súkkulaði.
Phosphoric acid: Mikil sorg vegna ástvinamissis eða mikil vonbrigði sem geta haft áhrif á heilsuna. Geta valdið minnistapi, sinnuleysi og þróttleysi. Einnig valdið verkjalausum niðurgangi, hjartsláttartruflunum og höfuðverk.
Rhus toxicodendron: Stirðleiki með verkjum í liðum og baki, sérstaklega við fyrstu hreyfingu. Órólegur, áhyggjufullur og gleyminn.