Sojavörur
Heilsu um allan heim fer hrakandi þrátt fyrir aukna þekkingu og möguleika til að bæta heilbrigði. Af hverju ? Við sem erum svo dugleg að fara í líkamsrækt og borða allan holla matinn sem er auglýstur og kynntur sem frábær næring og heilsubót.
Margir hafa skrifað um sojavörur og þýtt greinar sem birst hafa í tímaritum og víða á vefnum þannig að ekki er vert að skrifa eina greinina í viðbót, en rétt að minnast á nokkur atriði og síðan vísa í skrif annarra.
Útbreidd kenning er að fólk frá Asíu hafi lengri lífaldur en Bandaríkjamenn vegna hefðbundinnar sojaneyslu. Þess vegna ættu sojavörur að vera svo heilnæmar. Hvers vegna erum við þá að mæla gegn sojavörum hér í vestrænum heimi ef þær eru svona hollar.
Ástæðan er sú að Asíubúar neyta fyrst og fremst soya sem hefur verið gerjað eða sýrt og ekki mikils magns í einu. Bandaríkjamenn einangra sojapróteinið og nota það ógerjað í sína fæðu. Það eitt og sér er mjög mikill mismunur. En við nánari rannsóknir hefur vaknað upp sú kenning að ástæða fyrir lengri lífdaga Asíubúa sé frekar sú að þeir neyta svo miklu meira af omega 3 fitusýrum.
Einu sojavörurnar sem mælt er með til neyslu eru lífrækt ræktaðar og vel gerjaðar. Eftir langt gerjunarferli sojabaunanna, hætta þær að bindast efnum í meltingarvegi sem getur þá frásogað næringarefni á eðlilegan.
Ógerjaðar sojavörur innihalda jurtasýru sem binst sérstökum næringarefnum (eins og járni) og hamlar upptöku þeirra. Þær hafa bein áhrif í meltingarvegi þannig að þær geta valdið næringarskorti. Einnig innihalda þær viss efni ásamt jurtaestrógen sem geta haft skaðleg áhrif á skjaldkirtilinn.
Jurta-estrógenið í sojavörunum getur valdið því að hormónamagn í börnum sem drekka sojamjólkurblöndur verður óeðlilega hátt. Talið er að ef sveinbörn hafa verið á sojavörum sé meiri hætta á ófrjósemi þar sem soya getur dregið úr framleiðslu testósteróns og aukið magn kvenhormónsins estrogen.
Í grein eftir Jim Ruts er meðal annars sagt að sojavörur ýtir undir kvenleika karla og getur úr framleiðslu testósteróns, dregið úr stærð á tippi karlmanna, valdið truflun á meðvitund kynferðis og ýtt undir samkynhneigð.
Einnig kemur þar fram að stúlkubörn geti aftur á móti orðið kynþroska mun fyrr, móðurlíf þeirra getur orðið óeðlilega stórt en samt sem áður dregur úr frjósemi. Þegar þær síðan gifta sig og óska eftir því að eignast börn, þá er of seint að takast á við vanda ófrjóseminnar.
Helstu vandamál samhliða sojaneyslu er vannæring og meltingarvandamál, vanstarfsemi skjaldkirtils, vitsmuna hnignun, æxlunarvandamál, skert ónæmiskerfi og ýmis fleiri vandamál.
Sojamjólkurblöndur eru afar slæmar fyrir pelabörn, ekki eingöngu vegna hormónanna heldur einnig vegna þess að það inniheldur mikið magn af mangan sem getur valdið truflun á heilastarfsemi og orsakað ofvirkni, athyglisbrest og hegðunarvandamál.
Rannsóknir hafa sýnt að fæða úr sojabaunum valdi minnistapi á efri árum. Breskir vísindamenn könnuðu eldri borgara á Indónesíu og þar kom fram að minnisstöðvar heilans höfðu allt að fimmtungi minni virkni hjá þeim sem borðuðu mikið tófu en hjá þeim sem ekki borðuðu af tófu.
Mikið hefur verið skrifað af góðum greinum varðandi sojavörur þannig að ekki er vert að margendurtaka góðar ábendingar, en í tímaritinu Heilsuhringnum eru góðar greinar og ábendingar sem vert er að lesa. Tímaritið Heilsuhringurinn hefur verið gefið út síðan 1978 af hópi áhugafólks um hollustu og heilbrigða lífshætti. Nú er hægt að fara inn á heimasíðu þeirra og sjá mikið af góðu efni bæði nýtt og úr gömlum árgöngum. http://www.heilsuhringurinn.is
Þar slær maður inn leitarorði í leitargluggann og því auðvelt að finna efni sem óskað er eftir.
Þar á meðal eru tvær greinar eftir Ingibjörgu Gunnlaugsdóttur sem birtar voru í tímaritinu Heilsuhringurinn á árunum 2007 og 2008. Ingibjörg er mjög virkur fróðleiksmiðlari og áhugavert að fylgjast með skrifum hennar bæði á http://www.alvaran.com og einnig http://www.agny.blog.com