Lichen planus / Flatskæningur
Lichen húðsjúkdómar
Orðið “lichen” vísar til jurtar af fléttutegund sem vex á yfirborði steina og trjáa (skóf). Erfitt getur verið að skilgreina á milli tegunda þar sem þessi bóluútbrot eru svo margþætt en virðast samt svo lík að erfitt er að aðgreina þau almennilega.
Aðgreiningin er aðallega í 2 flokka.
1. áhrif frá hita (í andrúmslofti eða frá tækjum o.fl.)
2. áhrif vegna meltingarvegs (ójafnvægi í meltingarvegi eða óheilbrigt fæði og lífsstíll)
Greining byggist oft á útliti og sögu um langvarandi kláða. Erfitt getur verið að aðgreina lichen einkenni frá exemeinkennum. En þó það sé erfitt þarf að reyna að greina á milli þar sem meðferðir eru mismunandi og þá þarf oft að fá staðfestingu með sýnatöku.
Helstu tegundir eru:
Lichen planus (LP) er nokkuð algengur húðsjúkdómur og á íslensku nefnist hann ,,Flatskæningur”. Orðið “lichen” vísar til jurtar af fléttutegund sem vex á yfirborði steins og trjáa (skóf) en orðið “planus” er eitthvað sem er flatt.
Lichen ruber er með útbrot sem líkjast Lichen planus nema að því leiti að bólurnar eru ekki flatar heldur upphleyptar og raða sér ekki út frá einhverri miðju.
Lichen pilaris eða lichen planopilaris leggst á hársekki og veldur bólgubreytingum í hársverði og víðar.
Lichen simplex chronicus (LSC), einnig þekktur sem circumscripta neurodermatitis. Algengt að sé á ökklasvæði, úlnliðum, hálsi, hárssverði, nára, endaþarmssvæði, framhandleggjum, lærum, fótleggjum, hnésbótum og olnbogabótum.
Lichen sclerosus eru útbrot sem geta valdið miklum kláða og eru algengast á kynfæra- og endaþarmssvæðum.
Lichen circumscriptus er dreift án nokkurs fyrirkomulags né ákveðins útlits
Lichen urticatus samanstendur af stórum rauðum bólum sem er aðallega að vori og sumartíma og þá á hálsi og handleggjum ungs fólks, aðallega með viðkvæma húð.
Lichen lividus dökk fjólulitar bólur sem dreifa sér í litlum blettum, aðallega á fæturna.
Lichen agrius er með alvarlegustu einkennum þessa sjúkdóms og oft erfitt að aðgreina frá exemi.
Lichen tropicus er algengastur í suðrænum heitum löndum.
Lichen:
Nauðsynlegt er að vita að lichen húðsjúkdómar eru ekki smitandi sjúkdómur. Það er ómögulegt að smitast af öðrum eða að smita aðra. Þetta erfist ekki og tengist ekki næringu.
Sumar húðtegundir eru viðkvæmari en aðrar til að mynda flatskæning. Þessi vandamál komi einkum upp hjá einstaklingum sem þjást af:
• Exemi (frumu húðbólgu)
• Psoriasis
• Taugaveiklun, áhyggjum, kvíða eða öðrum andlegum vandamálum.
• Það er algengt að börn sem geta ekki hætt að klóra sér vegna skordýrabits eða önnur kláðavandamál í húð.
Mögulegir fylgikvillar:
• Bakteríu húðsýking eftir klór.
• Þykknun á húð.
• Varanleg breyting á húðlit.
• Lítil sár geta myndast og orðið að varanlegum örum.
Örfá ráð:
Fyrsta ráðlegging er að hætta að klóra húðina til að brjóta upp vítahringinn sem verður við að klóra sér. Nota kláðastillandi og græðandi krem á viðkomandi svæði.
Róandi og kláðastillandi remedíur geta einnig verið nauðsynlegar til að draga úr óþægindunum. Einnig ef þú dregur úr streitu og að klóra þér þá dregur úr einkennum og ástandið getur batnað.
Ef Lichen er á afmörkuðu svæði líkamans eins og kynfærum getur hjálpapað nota rjóma og leggja við sem bakstra. Einnig hefur verið mælt með því að útbúa bakstra úr möndlumjólk til að leggja við útbrotin.
Misjafnt er hvað getur hjálpað hverjum og einum en böð hafa oft róað húðina. Sumir kjósa volg böð á meðan aðrir kjósa köld böð og þarf því hver og einn að meta það hvað er best fyrir hann sjálfan.
Einnig skal hafa í huga að heilbrigð melting getur haft mikil áhrif. Sleppa áfengi og tóbaksnotkun sem getur valdið alvarlegum afleiðingum. Halda sig frá mikið krydduðum mat, sítrusávöxtum og söfum, tómatvörum, kaffi, kóladrykkjum og stökkum fæðutegundum því þær geta ert og valdið óþægindum í munni.
Eftirfarandi atriði geta pirrað húðina:
• Þvottaefni sem innihalda ensím.
• Fabric mýkingarefni og þurrkara blöð.
• Baðsápu, baðgels og húðkrem.
• Freyðibað, olíur, baðsölt, húð mýkingarefni.
• Blautþurrkur.
• Svitalyktareyðir, túrtappar og dömubindi.
• Getnaðarvarnarkrem, hlaup, froður og svampar
• Smokkar í neytendaumbúðum með rakagefandi olíu eða sæðiseyði.
• Litaður, ilmandi klósettpappír
• Fatnaður úr næloni eins og til dæmis sokkabuxur
---------------
Hér á eftir mun verða fjallað nánar um nokkra Lichen sjúkdóma:
Lichen planus / Flatskæningur
Lichen planus (LP) er nokkuð algengur húðsjúkdómur og á íslensku nefnist hann ,,Flatskæningur”. Orðið “lichen” vísar til jurtar af fléttutegund sem vex á yfirborði steins og trjáa (skóf) en orðið “planus” er eitthvað sem er flatt.
Ekki er vitað hvað veldur þessum sjúkdómi og ýmsar getgátur um orsakir og í flestum tilfellum finnst engin skýring. Hann vaknar oft hjá fullfrískum einstaklingum og hverfur svo af sjálfu sér.
Meginástæðan er talin vera breytingar á húðfrumum eða slímhúðarfrumum af völdum sýkinga (veiru- eða bakteríusýkingar), afleiðing lyfja, sjálfsofnæmi eða ofnæmi fyrir tannviðgerðarefnum. Ónæmisfrumur líkamans ráðast á þessar húðfrumur og geta þá valdið bólgu í húð, þykknun og tímabundnum frumuskemmdum. Yfir 70% þeirra sem eru með sjúkdóminn hafa einnig breytingar í slímhúð og þó nokkrir hafa eingöngu breytingar í slímhúð.
Ónæmiskerfis sjúkdómur. Það segir að hvítu blóðkornin sem venjulega ráðast á bakteríur byrja að ráðast á heilbrigðar hluta húðar, slímhúðar, hárs og nagla. Einnig eru tilfelli af lichen planus útbrotum sem eiga sér stað sem ofnæmisviðbrögð gagnvart lyfjum fyrir háum blóðþrýstingi, hjartasjúkdómum og gigtarlyfjum. Þegar svo er þá hjálpar að hætta á viðkomandi lyfjum og ástandið lagast á nokkrum vikum. Þó fólk geti fengið lichen planus á öllum aldri, er það algengast hjá miðaldra fólki.
Hve lengi varir Lichen planus:
Þetta er nokkuð misjafnt en lichen planus getur verið til staðar í mörg ár.
Í venjulegum tilfellum af lichen planus á húð eru töluverður hluti einstaklinga lausir við sjúkdóminn innan árs. En flestir sem hafa lichen planus í munnholi geta reiknað með að hann sé viðvarandi í 5 ár.
Þegar lichen planus lagast skilur hann oft eftir sig brúna bletti á húðinni. Þessir blettir geta dofnað með tímanum án nokkrar meðhöndlunar.
Lichen planus getur tekið sig upp aftur hjá fimmta hverjum einstakling sem hefur haft sjúkdóminn.
Lichen planus á húð:
Hann lýsir sér sem litlar flatar bólur, eða litlir upphleyptir glansandi blettir flatir að ofan og fylgir því oft kláði sem getur orðið nokkuð mikill. Útbrotin eru oftast rauð eða fjólublá og stærð þeirra fer eftir því hve margar litlar bólur raða sér saman í þyrpingu. Þau geta verið allt frá nokkrum millimetrum og upp í margra sentimetra í þvermáli. Oft eru útbrot samhverf, þannig að útbrot eru á svipuðum stað beggja megin líkamans, en það er langt frá því að vera algilt.
Útbrotin geta verið hvar sem er á líkamanum, en algengast innan á ungliðum og á ökklum, framhandlegg og leggjum. Einnig algengt á, mjóbaki, á neðri hluta kviðs, mjöðmum, hálsi, kynfærum en sjaldnar á höfuðleðri og nöglum. Á leggjum eru útbrotin yfirleitt dekkri á litin. Geta verið þykkir blettir, sérstaklega á sköflungum.
Ef einstaklingur með lichen planus rispar húðina þá geta myndast dæmigerð útbrot í rispunni (Köbner einkenni). Þar sem lichen planus getur skemmt húðina er ástæða til að reyna að varna rispum eða meiðslum.
Blöðrur eru sjaldgæfar nema í einstaka tilfellum sem kallast “bullous lichen planus”
Þó auðvelt sé að greina algenga birtingarmynd lichen planus, þá er skynsamlegt að læknir taki vefjasýni til greiningar.

Flatskæningur á unglið Flatskæningur á ökklum
Lichen planus í munni.
Lichen planus í munni er algengur innan á kinnum, en getur einnig komið á tungu, varir og góma. Erfiðara er að meðhöndla þegar þetta er í munni og er lengur viðvarandi heldur en ef það er á húð. En sem betur fer veldur lichen planus í munni yfirleitt ekki miklum vandamálum. Tilfelli þegar einkenni eru eins og hvítt net eða hvítar rákir þá er það kallað Wickham´s Striae
Um það bil einn af hverjum fimm einstaklingum sem er með lichen planus í munni hefur það einnig á húð.
Þegar lichen planus birtist sem fínar hvítar línur, blettir eða eins og net, veldur það oft engum vandamálum og finnst oft ekki nema við tékk hjá tannlækni. Þá þarf að kanna hvort þetta er lichen planus eða candida (gersveppaóþol).
Alvarlegra er þegar lichen planus veldur verkjum eða sárum í munni. Þá er nauðsynlegt að læknir kanni hvort gæti verið um sýkingu er að ræða, átusár eða aðrir munnsjúkdómar.
Sum tilfelli hafa stafað af óþoli fyrir fyllingum á tannlæknastofum eða við tannréttingar. Ef svo er þá er ráðlegt að fjarlægja viðkomandi efni.
Lichen planus á kynfærum.
Lichen planus er ekki eins algengt á karlmönnum eins og konum, en það getur verið algengt bæði á kvensköpum og leggöngum. Ef það er vægt getur það verið á nokkurra vandræða, en ef myndast roði eða sár getur það valdið óþægindum sérstaklega við samfarir.
Lichen planus á nöglum.
Lichen planus getur einnig valdið breytingum á nöglum en oftast leggst þetta ekki á allar neglurnar. Við rannsóknir hefur komið í ljós að breyting getur orðið á nöglum, naglaböndum og naglrótum. Breyting á nöglum getur átt sér stað án þess að hafa áhrif á húðina. Breytingarnar geta orðið þannig að þær geta orðið hrjúfar, þunnar og klofnað og jafnvel losnað. Í alvarlegum tilfellum getur skemmdin orðið varanleg.
Hómópatísk meðferð :
Meðferð sjúkdómsins getur oft stöðvað ferlið eða dregið verulega úr einkennum. Það er þó alltaf einstaklingsbundið hvernig meðhöndlun er best fyrir sérhvern einstakling og miðast það við almennt ástand einstaklingsins, staðsetningu útbrota, útbreiðslu, einkennum og fleira.
Hómópatískar remedíur eru aukaverkanalausar og því frábær lausn í flestum tilfellum, en meðferð þarf að miða við heildarástand einstaklings:
Meðal þeirra hómópatísku remedía sem hafa hjálpað verulega til að vinna á lichen planus:
Agaricus muscarius,
Antimonium crudum,
Arsen. album,
Chin arsenicosum,
Iodium,
Kali bichromicum,
Ledum palustre,
Juglans cinerea,
Potassium iodide,
Sarsaparilla,
Staphisagria,
Sulphur iodide.
Hefðbundin meðferð:
Læknir getur staðfest hvort um lichen planus er að ræða með því að taka vefjasýni eð blóðprufur.
Mismunandi er hvaða meðferð hentar hverjum einstakling, en ástæða er til þess að hver einstaklingur sé meðvitaður um ef aukaverkanir geta verið af lyfjunum. Ef um sterk krem er að ræða skal forðast að bera það til langs tíma á andlit eða undir hendur.
A vítamín afleiður (Neotigason)
Antimalaríu lyf (td Plaquenil)
Calcineurin blokkarar (Protopic, Elidel)
Kortisón krem og vökvar
Kortisón í töfluformi
Ljósameðferð (UVB og PUVA)
Ónæmisbælandi lyf (Methotrexat, Ciclosporin A)
Sýklalyf, sveppalyf eru stundum reynd
Lichen ruber
Lichen ruber hefur útbrot sem líkjast Lichen planus nema að því leiti að bólurnar eru ekki flatar heldur upphleyptar, breytast ekki í blöðrur eða graftarbólur og raða sér ekki út frá einhverri miðju. Bólurnar eru yfirleitt rauðar og líkjast hreistruðum svitabólum og yfirleitt svipaðar að stærð.
Einkenni geta komið við aðstæður eins og hita eða annað og þeim fylgir mikill kláði og erfitt getur verið að greina það.
Thuja og Arsen Eru helstu remedíurnar sem geta hjálpað Lichen ruber.
Lichen simplex
Lichen simplex chronicus (LSC), einnig þekktur sem circumscripta neurodermatitis. Lichen simplex chronicus er helst á húðsvæðum sem eru aðgengileg til að klóra sér en það veitir tímabundna lausn frá kláða. Þetta eru yfirleitt samhangandi bólur með töluverðum kláða. Varðandi lichen simplex er algengt að myndist vítahringur. Kláði myndast í húð einstaklings og hann byrjar að klóra sér. Við sífellt nudd og klór veldur þykknun í húð og meiri kláði sem aftur eykur á þörf fyrir að klóra sér og það veldur enn meiri þykknun á húð sem getur orðið leðurkennd og brúnleit á viðkomandi svæði.
Þetta ástand getur aukist við streitu. Lichen simplex er mjög algengt og getur taugaveiklun, kvíði, þunglyndi og aðrar tilfinningalegar raskanir haft töluverð áhrif á ferli þessa sjúkdóms.
Mjög greinilega afmörkuð svæði og getur verið sem þroti í húð, þykknun og litabreyting, sár eða jafnvel eins og hreistrað.
Einkenni eru litlar, upphleyptar og rauðar bólur, ekki flatar að ofan heldur langyddar. Þær innihalda engan vökva og eru massífar og ógagnsæar. Þær koma helst fram á andliti, baki og höndum, ytri hluta handleggja og læra. Útbrotunum getur fylgt ekki ósvipað náladoða sem er sérstaklega óþægilegt við aukinn hita eins og á nóttunni undir sæng eða þegar hitnar við leikfimisæfingar.
Í bráðatilfellum geta útbrotin orðið mjög rauð og bólgin með miklum kláða, og jafnvel hita í útbrotum. Útbrotin eru þá oftast á andliti eða búk, en einnig á ökklasvæði, úlnliðum, hálsi, hárssverði, nára, endaþarmssvæði, framhandleggjum, lærum, fótleggjum, hnésbótum og olnbogabótum.
Eftir þrjá til fjóra daga dofnar roðinn og hrúðrið dettur af og útbrotin hverfa, en þau koma yfirleitt jafnóðum aftur. Vessar stundum úr útbrotum og oft getur verið erfitt að aðgreina milli exems og lichen simplex. Í stöku tilfellum getur verið erfitt að aðgreina lichen simplex frá psoriasis.
Krónísk einkenni eru yfirleitt ekki með miklum bólgueinkennum og kláðinn sem er einkennandi þegar útbrotin koma, er smávægilegur en þreytandi. Krónísku einkennin eru oft á útlimum. Ef húðin er með lit verður maður ekki alltaf var við útbrotin nema að strjúka yfir húðina og þá finnur maður fyrir mismuninum. Þó hver útbrot vari ekki nema 7-14 daga í senn þá geta önnur komið hafnhraðan aftur og þannig getur ástandið varað mánuðum saman.
Lichen simplex chronicus getur þróast út frá lichen sclerosus og tekur sér bólfestu kringum kvensköp og hluta af leggöngum. Mikill kláði í kringum kvensköp og húðin verður dökk eða rauð. Lítil sár geta myndast og orðið að varanlegum örum. Húðin þykknar við mikið klór vegna stöðugs kláða.
Lichen circumscriptus
Lichen circumscriptus er dreift án nokkurs fyrirkomulags né ákveðins útlits. Í fyrstu gætu bólurnar virst ofan á rauðum hring en þegar gáð er nánar þá er þetta eins og mjölkenndur útbrot sem myndast af fjölda lítilla aðskilinna bóla á kúptum bletti. Blettirnir verða yfirleitt ekki stærri en smápeningur en hefur þann eiginleika að mynda alltaf nýja bletti sem eru ekki upprættir á skömmum tíma. Komið hefur fyrir að lichen circumscriptus hefur verið greint sem psoriasis.
Lichen planopilaris í höfuðleðri.
Lichen planopilaris (Lichen pilaris) í höfuðleðri. Sjaldgæft er að sjúkdómurinn leggist á höfuðleður en getur valdið roða og pirring í hársverði. Í nokkrum tilfellum getur einstaklingur alveg misst hárið. Það sem aðgreinir lichen pilaris frá lichen simplex er að lichen pilaris myndast yfirleitt í hársekkjum. Það veldur miklum pirring í húðinni og tengist oft meltingartruflunum.
Lichen urticatus.
Lichen urticatus samanstendur af stórum rauðum bólum svipað eins og eftir netlustungu. Þetta er aðallega að vori og sumartíma og þá á hálsi og handleggjum ungs fólks, aðallega með viðkvæma húð. Þetta hverfur eins og það flagni af en kemur í nokkur skipti áður en það endanlega gengur yfir. Þetta getur verið nokkuð pirrandi og þá sérstaklega á nóttunni.
Lichen lividus
Lichen lividus hefur dökk fjólulitar bólur sem dreifa sér í litlum blettum, aðallega á fæturna.
Lichen agrius
Lichen agrius er með alvarlegustu einkennum þessa sjúkdóms og mjög oft erfitt að aðgreina frá exemi. Þá er nauðsynlegt að hafa í huga hvernig byrjaði og einkennandi ferli útbrota. Getur verið hvar sem er á andliti, útlimum eða bol. Í sumum tilfellum er þetta þróun út frá lichen simplex. Útbrotin eru samtengdar bólur á djúprauðum, bólgnum helluroða. Töluverður hiti er í útbrotunum með óþolandi bruna-kláða. Þörf fyrir að klóra sér veldur mun meiri kláða, meiri bólgu og framkallar ný útbrot. Lítur stundum út sem exem ef úr því vessar og bólur verða að hrúðri. Getur varað í margar vikur og orðið að krónísku ástandi, en þá dregur verulega úr bólgum og kláðanum.
Útbrotin þorna upp og verða eins og mjölkennd flögnun efstu húðlaga. Eftir alvarleg tilfelli getur húðin borið þess merki í langan tíma áður en hún nær sér að fullu. Lichen agrius er stundum tekinn í misgripum fyrir kossageit, en mismunurinn er aðallega að kossageit er mun grófgerðari en lichen einkennin sem eru mun þynnri og ekki eins grófgerð.
Lichen tropicus
Lichen tropicus hefur einnig kláða svipað hinum lichen tegundunum og algengastur í suðrænum heitum löndum. Þetta er ólýsanleg tilfinning með kitlandi kláða. Þessu fylgja útbrot með rauðum bólum, varla stærri er títiprjónshaus. Útbrotin breiða úr sér yfirleitt á brjósti, handleggjum, lærum, hálsi og stundum á enni næst hárssverði. Útbrotin aukast til muna ef einstaklingur hitnar og svitnar, og jafnvel við að drekka heita drykki. Líður best við að sitja kyrr þegar húðin er svöl. Þó útbrotin aukist við hita þá er jafnvel verra að fara í kalt bað.
Lichen sclerosus
Lichen sclerosus eru útbrot sem geta valdið miklum kláða. Þetta er algengast á kynfæra- og endaþarmssvæðum en getur einnig verið annarsstaðar á líkamanum. Það er algengast hjá konum eftir tíðahvörf en það getur einnig átt sér stað hjá körlum og börnum.
Ráðleggingar:
Klæðast ekki þröngum nærfötum á daginn og ekkert á nóttunni
Ekki vera í þröngum sokkabuxum.
Forðast ilmvötn sem geta valdið ertingu.
Nota væg húðhreinsiefni fyrir viðkvæma húð.
Forðast mýkingarefni.
Einkenni lichen sclerosus:
Mjúkir glansandi hvítir blettir á húðinni.
Þunn húð og hrukkótt.
Hreistruð húð eins og rauð eða marin.
Blæðingar eða blöðrur á viðkomandi svæði
Kláði, verkir eða óþægindi á viðkomandi svæði.
Sársaukafullt þvaglát
Sársauki við kynlíf
Sársaukafull að hafa hægðir ef einkenni eru á endaþarmssvæði.
Nauðsynlegt er að meðhöndla þetta sem fyrst. Þetta getur leitt til slæmrar bakteríusýkingar ef kláðinn veldur endurteknu klóri. Einnig getur ástandið valdið tilfinningalegum vandamálum. Ástandið getur einnig valdið krabbameini.