Hveiti
Ferli hveitis frá fræi til geymslu
Ferli hveitis frá fræi til geymslu:
Hveitiplanta er harðgerð, límkennd og þétt í sér, sem gerir hana hagnýta fyrir mismunandi fæðugerð, eins og kökur, brauð, pasta, kex, saltstangir og
margt fleira. Þetta korn getur raunverulega verið mjög næringarríkt þegar það vex og er meðhöndlað á viðeigandi hátt. Því miður er glapræði í nútíma ræktunaraðferðum og vinnsluferli sem hefur dregið gífurlega úr gæðum þess hveitis sem nú er notað.
Hveiti er eitt þekktasta korn sem ræktað hefur verið um aldir og þegar fornleifafræðingar opnuðu grafhýsi í Egiptalandi komu í ljós stór leirker full af hveiti sem átti að framfleyta faraóum í framhaldslífi.
Grasafræðingar hafa fundið næstum 30.000 mismunandi tegundir af hveiti sem greinast í mismunandi flokka miðað við plöntunartíma, næringarinnihald, og þéttleika kjarnans. Þétt hveiti inniheldur minni sterkju en meira prótein.
Þegar það er ræktað í frjósömum jarðvegi og hlúð að því verður heilhveitið ríkt af E vítamínum og B-complex ásamt mörgum steinefnum eins og kalki, járni og ómega-3 fitusýrum. Góð ræktun og mölunaraðferðir eru nauðsynlegar til að varðveita þessi næringarefni og forðast þráa.
Val útsæðis:
Með tilkomu nútíma ræktunar hefur fjölbreytileiki hveititegunda dregist saman og aðeins fáar tegundir nýttar til ræktunar.
Fremur en að einbeita sé að frjósemi jarðvegsins og vandlegt val á fræjum sem henta hverju landsvæði fyrir sig, stunda nútíma ræktendur hátækni
aðferðir við framleiðslu eins og efnafræðilega frjóvgun og til að vinna á plágum og sjúkdómum, sem byggja á efnafræði og öðrum óæskilegum efnum.
Þó undarlegt sé nota kornbændur sérstöku efni til að hraða vaxtaferli sem hefur áhrif á eiginleika plöntunnar. Eitt af þeim efnum er Cycocel sem er tilbúið gervihormón, sem algengt er að sé notað við hveitiræktun til að geta stjórnað spírun, styrk stilksins og jafnvel aukið færni plöntunnar til að geta vaxið í kaldara loftslagi.
Því miður vegna ógætilegra aðferða vegna framleiðsluhagsmuna nútíma ræktunar og vinnslu á nútíma hveiti hefur fólk fengið óþol og ofnæmi fyrir þessu næringarríka fræi. Þessi ógætni felst í gjörnýtingu jarðvegsins, tilbúnum áburði, notkun á efnafræðilegum frjóvgunum, notkun á meindýraeitri og öðrum efnafræðilegum efnum, mölun við háan hita, hreinsun og óæskilegur undirbúningur.
Geymsla útsæðis:
Jafnvel áður en fræjunum er plantað í jörðina, eru þau úðuð með sveppaeyði og skordýraeitri. Sveppaeyðir er notaður til að varna sjúkdómum á fræjum og kímplöntum. Skordýraeitrið er notað til að eyða skordýrum.
Fræ-fyrirtækin nota oft blöndu af mismunandi sveppaeyðandi efnum og skordýraeitrum. Sum af aðal efnunum (skordýraeitur, illgresiseyðir og sveppaeyðir) notað á uppskeru eru disulfoton (Di-syston), methyl parathion, chlorpyrifos, dimethoate, diamba and glyphosate.
Þó þessi efni sér viðurkennd til notkunar og sögð örugg, eru neytendur það skinsamir að upplýsa sig og aðra eins vel og mögulegt er. Þá kemur í ljós að þessi efni auka næmleika gagnvart taugaeiturs-sjúkdómum, krabbameini og fleiri sjúkdómum.
Geymsla uppskeru:
Ekki hættir þetta eftir ræktunarferlið. Hin langa geymsla uppskerunnar gerir hana viðkvæma og áður en það er komið fyrir í geymslum þá er það vandlega úðað með skordýraeitri. Þessi svokölluðu varnarefni síast síðan inn í hveitigrjónin og verja þau gegn náttfiðrildum og öðrum skordýrum. Listinn af mismunandi efnum sem notuð eru, innihalda; chlorpyrifos-methyl, diatomaceous earth, bacillus thuringiensis, cy-fluthrin, malathion and pyrethrins.
Taka þarf reglulega sýni af uppskerunni sem komið hefur verið í geymslu þar til hún er unnin og sett á markað. Ef sýnið inniheldur eitt lifandi skordýr á quart sýnis, er skordýraeitri úðað á allt upp á nýtt.
Þurrkun uppskeru:
Hitaskemmdir er alvarlegt vandamál sem fylgir oft þurrkun á rökum hveitigrjónum við háan hita. Yfirhitun veldur umbreytingu á próteinum og getur einnig að hluta til matreitt grjónin. Með því eyðileggst næringargildið og bökunareiginleikarnir. Ed Lysenko, sem hefur fylgist með þróun og vinnsluaðferðum á hveitinu segir að hægt er að þurrka hveitið án þess að skemma það, með því að nota þurrkara sem heldur hveitigrjónunum á hreyfingu meðan það er að þorna og hagstæðast er að nota ekki hærri hita en 60° Celsius.
Nútíma verkun og vinnsla:
Skemmdir á hveitinu enda ekki við geymslu á uppskeru, en heldur áfram gegnum mölun og vinnsluferli. Hvert korn er samansett úr þrem lögum. Yst er hveitihýði sem er ríkt af trefjum. Síðan er kjarni sem inniheldur aðallega kolvetni (sterkju eða mjölva), glúten og vatn. Innsti kjarninn er hveitikím sem inniheldur prótín, kalíum, járn, fitusýrur, ríbóflavín, kalsíum, sink, magnesíum og ýmis vítamín og bætiefni. Í heilu hveitikorni eru um það bil 11,1% prótein, 57% sterkja, 10,4% vatn, 16,9% trefjar, 2% fita og 2,3% steinefni.
Þetta mikla næringargildi heldur sér aðeins þegar þessir 3 þættir eru óskemmdir. Hugtakið heilhveiti er þegar hveitigrjóni hafa ekki verið möluð og heilmalað hveiti er því ákjósanleg uppspretta trefjaefna og ýmissa bætiefna.
Þar sem hveitikímið inniheldur olíur sem oxast styttist geymsluþol hveitisins verulega. Í dag er hýðið og kímið oft hreinsað frá því hvítt hveiti er léttara í sér og baksturseiginleikar þess batna, en næringargildið er ekki það sama. Það var þó ekki fyrr en seint á nítjándu öld að hvítt brauð, kex og kökur var búið til úr hvítu hveiti og sykri varð hluti af undirstöðu mataræðis iðnvæddra ríkja. Þessi framleiðsla var ekki framkvæmanleg nema með hraðvirkum mölunarvélum. Dr. Price rannsakaði óvéfengjanlegar afleiðingar af þessu breytta mataræði og skráði sambærilegar niðurstöður um breytt heilsufar manna. Þessar breytingar hafa áhrif á tennur, andlega heilsu, ófrjósemi, og aukningu ýmissa sjúkdóma eins og til dæmis gigt, hægðavandamál, fósturlát, höfuðverki og fæðuóþol.
Hveiti var upphaflega framleitt með mölun grjónanna milli stórra steina og innihélt allt sem hveitigrjón hafði upp á að bjóða (hveitihýði, hveitikjarnann og hveitikímið). Án frystingar eða efnafræðilegra rotvarnarefna, skemmist kornið mjög fljótt. Það þránar fljótt rétt eins og mjólk súrnar þannig að kæling heilhveitis er nauðsynleg. Tæknilegt svar við þessu er að nota hraðvirkari og heitari meðferð sem veldur afkastameiri vinnslu.
Til þess að geta afkastað nægilega miklu fyrir fjöldaframleiðslu, notar atvinnugreinin hraðvirkar mölunarvélar sem aðskilja hýðið frá þannig að hluti af næringunni er ekki notað. Jafnvel þó allt væri notað þá er notað allt að 204° gráðu hiti á Celsius við mölunina, sem skemmir lífsnauðsynleg næringarefni, það þránar og E-vítamínið í korninu er eyðilagt.