• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Samvinna vítamína og bætiefna

Skrifað 2011-03-02 · Bætiefni og vítamín

Jafnvægi bætiefnabúskapsins þarf að vera í lagi til þess að fá rétta virkni.

Þegar við fyllumst áhuga við að takast á við heilsuna liggur leiðin oft út í heilsubúð og kaupum fleiri glös af vítamínum og bætiefnum.  Þá kaupum við jafnvel sitt lítið af hverju en höfum ekki í huga að sum efni kalla á önnur til þess að halda jafnvægi í líkamanum. 

Bætiefnabúskapurinn þarf að vera í jafnvægi til þess að fá sem besta samvirkni og nýtingu allra þessara efna.  Hvort sem er vítamín, steinefni eða snefilefni hafa öll vissan tilgang varðandi viðhald og uppbyggingu líkamans.

Hægt er að mæla mörg þessara efna með blóðprufum og gerir það mikið gagn þegar grunur leikur á skorti á einhverjum vítamínum, steinefnum eða snefilefnum.  Skortur á einu getur valdið ójafnvægi á öðru og sama er að segja að ofgnótt á einu getur valdið truflun hjá öðru.

-------

Hér á eftir ætla ég að minnast á nokkur dæmi hvernig samvinna og jafnvægi milli nokkurra efna getur haft áhrif á virkni hvers annars:

Til dæmis þarf jafnvægi að vera á milli kalks og magnesíum í líkamanum.  Æskilegt er að hafa 1 hluta af magnesíum á móti 2 hlutum af kalki þar sem líkaminn á erfiðar með að frásoga kalkið inn í líkamann.  Gott er að hafa í huga að annað þessara efna kallar á hitt í hæfilegu magni.  Hægt er að kaupa kalk og magnesíum í réttri blöndu.

En til þess að eðlileg upptaka kalks geti átt sér stað má líkamann ekki skorta D-vítamín.

Kalk í samvinnu við C-vítamín vinnur að myndun kollagens og  með öðrum næringarefnum heldur húðinni mjúkri, sterkri og heilbrigðri. 

Magnesíum samhliða B6-vítamíni getur hjálpað til að losa nýrnasteina og myndun þeirra.  Of mikil neysla kalks getur valdið nýrnasteinum

Mangan vinnur með 8 mismunandi vítamínum til að stuðla að heilbrigðu taugakerfi, tilfinningalegu jafnvægi og vellíðan.  Einnig vinnur mangan vel með K-vítamíni vegna blóðstorknunar.

Sink virðist bæta virkni A-vítamíns sem næringarefni við að stuðla að heilbrigði augna og hefur mikilvægt hlutverk í starfsemi sjónhimnu.  Sink ásamt karótín, C-vítamíni og E-vítamíni geta dregið úr öldrun.

Sé C-vítamín tekið samhliða járni eykst frásog þess frá þörmum um 30%.  Þess vegna er gott að taka C-vítamín með járni.

Kísill vinnur best með D-vítamíni, Bór, Kalsíum, Magnesíum, Mangan og Kalíum.

Kopar í samvirkni með Sinki og C-vítamíni mynda elastín sem stýrir myndun bandvefs
Kóbalt er nauðsynlegt snefilefni fyrir góða heilsu.  Þó það hafi ekki mikla virkni eitt og sér þá er það grundvallaratriði fyrir B-12.  Án Kóbalt þá væri B-12 ekki til staðar.  Líkaminn notar B-12 í mörgum tilvikum, eins og til dæmis fyrir eðlilega frumumyndun og þá sérstaklega rauðu blóðkornin. 
B-12 hjálpar C-vítamíni til að sinna sínu hlutverki og ótal margt annað.
Of mikið magn af Mólýbden getur valdið koparskorti og blóðleysi.  

Samkvæmt rannsóknum vinna nikkel og C-vítamín vel saman og gætu haft góð áhrif á skorpulifur  eða  bætt insúlínframleiðslu.
Tin er í tengslum við Joð á sama hátt og Kalk er tengt við Magnesíum. 
Vanadíum í samvinnu með krómi hefur reynst mjög hagstætt til að aðstoða vegna sykursýki og blóðsykurseklu.
Sulphur (brennisteinn) spilar einnig stórt hlutverk í umbroti nokkurra B-vítamína (B1, B5 og Biotin) 
D-vítamín, A-vítamín ásamt járni, mangan, próteinum og ómettaðri fitusýru auka skilvirkni Forfórs.  Fosfór er í lykilhlutverki við að viðhalda sýru / basa jafnvægi í líkamanum.  Það virkjar einnig mörg B-vítamín  (B-Complex vítamín), þannig að þau virka eins og hjálparhvatar í ýmsum efnaskiptaferlum.
Klóríð hefur áhrif varðandi meltingarörvandi ensím sem brýtur niður prótein, frásogar önnur steinefni, B-12 vítamín og fleira.  
Magnesíum aðstoðar við frásog kalks og kalíums og tekur þátt í efnaskiptum vítamína og steinefna

Ef kalk og magnesíum eru ekki í jafnvægi getur líkaminn orðið fyrir magnesíumskorti,  sem getur þá leitt til ýmissa óæskilegra einkenna af uppsöfnuðu ónýttu kalki.

Kalk getur skolað út önnur steinefni svo best er að taka fjölvítamín samhliða kalkinntöku.  Hafa skal í huga ef um skelfiskióþol er að ræða skal ekki nota kalk unnið úr  ostruskeljum.

-----

Þessi einföldu dæmi sýna að ef við fáum ekki nægilega mikið af bætiefnum úr fæðunni er oft er gott að taka blöndur frá viðurkenndum framleiðendum.  Þar er yfirleitt haft í huga viðurkennd viðmið við æskilegt magn bæði magni fyrir líkamann og einnig viðmið milli ýmissa efna.

Ef við ætlum að taka inn stök efni væri ekki úr vegi að fara vandlega yfir samvirkni þeirra efna við önnur efni eða ræða þetta jafnvel við lækni eða fagaðila. Oft þarf einnig að hafa í huga ef um inntökur lyfja er að ræða, því mörg lyf draga úr virkni eða frásogi ýmissa vítamína, steinefna eða snefilefna

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).