• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Natríum / Sodium / Salt

Skrifað 2010-03-11 · Bætiefni og vítamín

Salt er steinefni sem samanstendur aðallega af natríumklóríð

Salt er steinefni sem samanstendur fyrst og fremst af natríumklóríð sem líkamanum er nauðsynlegt. 

Það stuðlar að heilbrigðri starfsemi tauga og vöðva og hefur áhrif á vökvajafnvægi líkamans.  Natríum er í jónaformi (Na+) utan frumanna og ein af mikilvægustu rafvökum líkamans.   Einnig flytja Na-jónir taugaboð til frumanna. Natríum örvar uppsog aminosýra þar sem þessi efni tengjast natríumjónum í þörmunum. 

Natríum hjálpar til við að halda kalsíum og öðrum steinefnum í blóðinu uppleysanlegum.

Natríum fáum við  úr gulrótum, rauðrófum, skelfiski, salti, nýrum og beikoni.

Skortur á natríum veldur sljóleika, höfuðverk, taugaóstyrk, krömpum, hjartatruflunum, þreytu og nýrnatruflunum, taugapínu og erfiðleikum við kolvetnameltingu.

Í unnar kjötvörur eins og pylsur, skinka, beikon og saltkjöt hefur verið bætt miklu magni af natríum og því þarf að hafa það í huga þegar þess er neytt.

Of mikil neysla getur valdið natríumeitrun sem getur lýst sér í miklum þorsta, lítilli átlyst, krampa, óreglulegum gangi, uppköstum og háum blóðþrýstingi.  Mikil neysla natríums (salts) veldur eyðingu kalíums.

Ef svo er komið er ekki nóg að minnka natríumneysluna, heldur þarf að auka neyslu kalíums sem myndar mótvægi við natríum í líkamanum. 

Í stað venjulegs salts má nota kalíumauðug saltlíki eins og íslenska Eðalsaltið frá Sjóefnum eða Seltin. Einnig er mjög gott að bragðbæta matinn með kryddjurtum á kostnað saltsins og má t.d. benda á Herbamare kryddsalt sem er blanda af hafssalti, kalíumklóríð og lífrænt ræktuðum kryddjurtum.

Konur ættu ekki að borða meira en 6 g af salti
á dag og karlar ekki meira en 7 g.
Það jafngildir 2,5 g af natríum á dag.

Salt til manneldis er framleitt úr mismunandi óhreinsuðu salti.  Salt er til dæmis kristallað sterkbyggt, hvítt, föl bleikt eða ljós grátt að lit, venjulega fengin úr sjó eða klettum inni í landi.

.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).