• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Brennisteinn / Sulphur

Skrifað 2010-03-12 · Bætiefni og vítamín

Brennisteinn / Sulphur er steinefni sem er að finna við hveri og á eldfjallasvæðum.

Brennisteinn / Sulphur er steinefni sem er að finna við hveri og á eldfjallasvæðum.  Hann er bragðlaus, lyktarlaus, fjölgildur málmleysingi og best þekktur í formi gulra kristalla.  Einnig finnst það sem súlfat og súlfíð. 

Sulphur er steinefni sem er að finna í öllum líkamsvefjum einkum þeim sem innihalda mikið prótein eins og  hári, húð, vöðvum og í insúlíni sem er hormón  sem stjórnar blóðsykrinum.

Sulphur á einnig þátt í frumu öndun, sem í einföldum hugtökum þýðir að hjálpar frumum til að nýta súrefni á skilvirkan hátt og stuðlar að betri virkni líkama og heila.

Hefur áhrif á að umbreyta próteinum, kolvetnum og fitu í orku,  og nauðsynlegt til myndunar mikilvægra andoxunarensíma.  Sulphur gefur  próteinfrumum sinn sérstaka eiginleika eins og að fá hrokkið hár, hefur áhrif við meltingu á fitu, og hefur áhrif á blóðstorknun og hjálpar til við að sár gróa betur.    

Það er efnisþáttur í kollagen sem er aðalstuðningspróteinið í húð, sem til dæmis heldur henni mjúkri.    Er efnisþáttur í sinum, beinum, brjóski og stoðvefjum.  

Sulphur spilar einnig stórt hlutverk í umbroti nokkurra B-vítamína (B1, B5 og Biotin)

Efnið vinnur á móti öldrun og hjálpar við að draga úr einkennum sem tengjast öldrun eins og gigt.  Hefur verið notað til að draga úr einkennum eins og exemi, psoriasis, gyllinæð, þurrum hársverði og unglingabólum.  Í rauninni eru óteljandi smyrsl og krem sem innihalda Sulphur.

Hjálpar til við útskilnað eiturefna úr líkamanum, en það er mikilvægt vegna þess að með tímanum geta eiturefnin veikt ónæmiskerfið.

Litlar sem engar líkur eru taldar á því að líkaminn fá ekki nægilegan brennistein og skortseinkenni eru óþekkt.   En ef svo bæri við geta skortseinkenni verið: ringulreið,  truflun í taugakerfi, blóðrásarvandamál, vöðvaverkir, húð vandamál, liðagigt, bólgur, tjón vegna sindurefna, streita, sýkinga, hægðatregða og hrukkumyndun.

Efnið er að finna í próteinum þannig að próteinríkt fæði tryggir líkamanum nægilegt magn. Það er til dæmis auðugt í mjólkurafurðum, eggjum, kjöti og fiski, lauk, alfalfa, hvítkáli, brokkolí og karse. 

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).