Fosfór / Phosphorus
Fosfór er frumefni sem er fjölgildur málmleysingi í niturflokkni. Það finnst oftast nær í ólífrænum fosfatsteinum og í öllum lifandi frumum en ekki í hreinu formi í náttúrunni.
Fosfór er annað algengasta steinefni í líkamanum en um 80 – 90 % af því er að finna í beinum og tönnum.
Restina er að finna í blóði, eða sem vökvi umhverfis og í frumum. Það er í ýmsum líffærum eins og hjarta, nýrum, heila og vöðvum, þar sem það sinnir mörgum mikilvægum hlutverkum.
Fosfór er þáttur í nánast öllum lífeðlisfræðilegum viðbrögðum efna í líkamanum. D-vítamín, A-vítamín ásamt járni, mangan, próteinum og ómettaðri fitusýru auka skilvirkni forfórs. Fosfór er í lykilhlutverki við að viðhalda sýru / basa jafnvægi í líkamanum. Það virkjar einnig mörg B-vítamín (B-Complex vítamín), þannig að þau virka eins og hjálparhvatar í ýmsum efnaskiptaferlum.
Þetta steinefni verndar og styrkir slímhúðina, hvetur önnur næringarefni og hormón í líkamlegu ferli sínum. Fosfór er nauðsynlegt fyrir heilbrigða hvata taugakerfisins, starfsemi tauga og heila, samdrátt hjartavöðva
og eðlilega nýrnastarfsemi. Einnig nauðsynlegt fyrir nýtingu kolvetna, fitu og próteina fyrir vöxt, endurnýjun og viðhald á frumum og til framleiðslu orku. Fosfór er hluti af DNA og RNA og þjónar undirbúningi glúkósa til orkumyndunar.
Fosfór hjálpa líkamanum til að nýta vítamín úr fæðunni og umbreyta fæðunni í orku. Getur dregið úr sársauka til dæmis vegna liðagigtar. Gæti styrkt ónæmiskerfið og gefið vörn gegn krabbameini.
Fosfór, kalk og magnesíum þurfa að vera í réttum hlutföllum, því of mikið eða of lítið af einhverju þeirra getur haft slæm áhrif. Gosdrykkir með kolsýru innihalda fosfór en mikil neysla gosdrykkja getur raskað því jafnvægi sem þarf að vera milli fosfórs, kalks og magnesíum.
Fosfór er að finna í kjöti, fiski, eggjum, heilkorni, núðlum, hrísgrjónum, kartöflum, grænmeti, mjólkurafurðum, þurrkuðum ávöxtum, hnetum, fræum og gosdrykkjum með kolsýru.
Skortur á fosfór er fátíður þar sem það er að finna víða í fæðunni. Einkenni skorts eru þreyta, beinverkir, kvíði, minnkuð matarlyst, slappleiki, skjálfti, beinkröm, rotnun tanna, einbeitingarleysi, minnkuð kyngeta og ígerð í tannvegi. Óreglulegur andardráttur, hræðsla, doði, húðnæmi og breytt líkamsþyngd. Skortur getur aukið hættu á háum blóðþrýstingi og krabbameini í þörmum.
Sýrubindandi lyf, ál, magnesíum og of mikið af járni eru gagnvirkt fosfór. Of mikið af gosdrykkjum getur truflað upptöku kalsíum.
Ráðlagðir dagsskammtar eru:
Ungbörn að 6 mánaða aldri: 280 mg
Börn 6 - 12 mánaða: 420 mg
Börn 1 - 10 ára: 600 mg
Piltar 11-18 ára: 900 mg
Karlar 19 ára og eldri: 600 mg
Stúlkur 11-18 ára: 900 mg
Konur 19 ára og eldri: 600 mg
Þungaðar konur: 900 mg
Konur með barn á brjósti: 900 mg