Kalíum / Potassium
Kalíum er mjög mikilvægt steinefni til að tryggja rétta virkni allra frumna, vefja og líffæra í mannslíkamanum. Kalíum starfar ekki eitt og sér í líkamanum, heldur í samvinnu við natríum, kalk og magnesíum. Það þarf að vera jafnvægi á milli þessara fjögurra steinefna til að þau starfi rétt. Of mikið af einu þessara efna getur leitt til of lítils magns af öðru. Æskilegt er að fá þessi steinefni í gegnum fæðuna, en ef þau eru tekin inn sem bætiefni skal gæta þess að taka þau inn í hæfilegu magni, því það er hægt að taka inn of mikið af þeim.
Steinefnið kalíum gegnir nokkrum mikilvægum hlutverkum í líkama okkar. Sífellt fleiri rannsóknir benda til jákvæðra áhrifa kalíums og magnesíums gegn háþrýstingi og ýmis konar hjartasjúkdómum. Það heldur blóðþrýstingnum og vökvamagni í jafnvægi, stuðlar að réttri virkni vöðva og að frumur líkamans starfi rétt.
Yfir 95% af Kalíum líkamans er innan frumanna. Kalíum er mikilvægt í efnahvörfum í frumum og flutning
rafboða hjá frumum. Og flutningi næringarefna í gegnum frumuhimnur.
Það gegnir stóru hlutverki í samdrætti sléttra vöðva og því mikilvægt fyrir eðlilega meltingarstarfsemi. Það hefur mikilvægu hlutverki að gegna í vökvajafnvægi líkamans, stjórnun sýrustigs, starfsemi vöðva- og taugafrumna, starfsemi hjartans og nýrna starfsemi.
Nægileg neysla á kalíum er mikilvægt fyrir reglulegan hjartslátt og getur unnið gegn hjartasjúkdómum, hjartaáföllum, blóðsykurskorti og offitu.
Kalíum er mikilvægt fyrir heilbrigt taugakerfi. Rannsókn á fólki með síþreytu leiddi í ljós að neysla kalíums og magnesíums dró úr einkennum þeirra.
Skortur á kalíum (hypokalemia) er fremur óalgengur því flestir fá allt það kalíum sem þeir þurfa úr hollu mataræði. Skortur er því yfirleitt af völdum þvagræsilyfja sem auka útskilnað á Kalíum, eða öðrum lyfjum sem draga úr kalíummagni líkamans, svo sem laxerandi lyf, cortesone, asprín, hjartalyf, sterar og sum lyf við lifrarsjúkdómum.
Þeir sem eru á slíkum lyfjum þurfa að taka kalíum til að fyrirbyggja skort. Fleiri ástæður geta einnig valdið skorti eins og nýrnasjúkdómar, uppköst, niðurgangur, óhófleg svitamyndun, vannæring, vanfrásog syndromes (eins og sjúkdómur Crohn's) og fleiri sjúkdómar.
Hafa ber í huga að kaffi, tóbak, sykur og áfengi eru gagnvirk kalíumi.
Hypokalemia getur verið lífshættuleg og ætti alltaf að meðhöndla í samráði við lækni.
Kalíumskortur getur leitt til truflana á starfsemi taugakerfis og valdið ruglingi, kvíða, pirring, reiði, svefnleysi , þreytu og þunglyndi. Hann getur líka valdið, harðlífi, nýrnasteinum og of háu sýrustigi líkamans. Einnig getur hann valdið bjúgmyndun og þar af leiðandi höfuðverk, sársauka í augum, mikilli streitu og þyngdaraukningu hjá þeim sem eru með skjaldkirtilssjúkdóma.
Þar sem kalíum er geymt í vöðvunum og vinnur með þeim, getur skorturinn leitt til máttleysis í vöðvum, sinadráttar eða vöðvakrampa, stirðleika, vöðvaþreytu, óróleika í vöðvum og hjartsláttartruflana .
Einkenni skorts lýsa sér einnig sem, blóðsykurskortur, háþrýstingur, lágþrýstingur og þrálátir höfuðverkir. Einnig sem slen, vöðvaverkir, húðþurrkur, niðurgangur, harðlífi, skert starfsemi ósjálfráða taugakerfisins, taugaveiklun, þrálátur þorsti, og sykuróþol. Andleg og líkamleg streita eykur kalíumþörf líkamans.
Besta leiðin til að innbyrgða kalíum er í gegnum fæðu, en einnig má taka það inn sem bætiefni.
Nokkrar fæðutegundir eru ríkar af kalíum eins og bananar, kartöflur með hýði, avókadó, sveskjur, appelsínur, ferskjur, tómatar, rúsínur, ætiþistlar, spínat, cantaloupe melónur, lax og kjúklingur.
Einnig í grænmeti, sérstaklega grænu blaðgrænmeti, ávöxtum, fræjum, hnetum, möndlum og korni, öllu kjöti, sumum tegundum af fiski (laxi, þorski, fliðru) og mjólkurafurðir eru einnig góð uppspretta af kalíum.
Nokkur atriði geta ýtt undir of mikið kalíummagn, ein og til dæmis hátt aldosteron hormón sem kemur fram við streitu eða reiði, eitraðar málmtegundir, sink- og magnesíum skortur, auk saltneyslu.
Eldra fólk er í meiri hættu á of miklu kalíummagni (hyperkalemia) því með hækkandi aldri eru nýrun ekki eins duglegur að eyða kalíum. Eldra fólk ætti því að fara varlega þegar taka þarf lyf sem geta haft áhrif á þéttni kalíums, eins nonsteroidal bólgueyðandi lyf (NSAID) og ACE-hemla.
Hver sem aldur þinn er skal tala við lækni áður en þú tekur kalíumuppbót.
Of mikið magn á Kalíum getur meðal annars haft eftirtalin einkenni: niðurgangur, meltingaróregla og ógleði, vöðvaslappleiki, hægir á hjartslætti eða hjartsláttaróregla. Hafðu aðgát gefur ef þú færð alvarlega kviðverki, óreglulegur hjartsláttur, brjóstverkur, eða önnur einkenni.
Fólk með hyperkalemia eða nýrnasjúkdóm ætti ekki að taka kalíum fæðubótarefni.
Ráðlagðir dagsskammtar:
• Ungbörn til 3 ára: 800 mg
• Börn 3 til 6 ára: 1100 mg
• Börn 7-10 ára: 2000 mg
• Karlar frá 11 ára aldri: 3500 mg
• Konur frá 11 ára aldri: 3100 mg
• Konur á meðgöngu 3100 mg
• Kona með barn á brjósti: 3100 mg