Flensa
Flensa getur verið af ýmsum stofnum, þó aðallega veirusýking.
Inflúensa getur verið margskonar, af ýmsum stofnum og er aðallega um veirusýkingu að ræða. Vírusarnir eru af þrem stofnum A, B og C, en A stofninn er þeirra algengastur. Læknar gefa iðulega lyf vegna einkenna eins og t.d. hitastillandi, verkjastillandi eða vegna nefrennslis og hósta og einnig lyf gegn afleiðingum flensunnar, eins og t.d. lungnabólgu, en eiginleg lyf gegn veirusýkingu eru ekki til.
Bólusetningar gegn flensu hafa borði misgóðan árangur og komið hefur fyrir að bólusett hefur verið fyrir flensuvírus sem
hefur svo ekki verið af þeim stofni sem borist hefur til landsins. Bóluefni eru aldrei eingöngu það efni sem ræktað er til varnar viðkomandi veikindum, því til þess að vekja varnarkerfi líkamans til að verða móttækileg fyrir bóluefninu, þarf að blanda það aukaefnum sem eru líkamanum oft ekki æskileg. Ólíkar skoðanir eru varðandi bólusetningar, en heilbrigður einstaklingur ætti að geta komist af sjálfsdáðum gegnum flensu á örfáum dögum.
Einkenni eru ákafari en af venjulegu kvefi, með beinverkjum í baki og útlimum, hita, kuldahrolli. Einnig getur verið um höfuðverk að ræða, pirring, særindi í hálsi og þurrum hósta sem getur varað í nokkrar vikur. Þróttleysi og dapurleiki er algengur samhliða þessum einkennum og geta varað í einhvern tíma eftir vírussýkingu.
Góð ráð.
Þegar flensa byrjar að ganga í kringum mann, er gott að eiga remedíurnar Influenzinum, Tuberculinum, Bacillinum og Oscillococcinum í styrkleika 30c og taka 1 sinni á dag til að komast hjá smiti.
Taka inn Ólífulaufsþykkni ásamt Grapesheed oil er mjög gott til að fyrirbyggja kvef, flensur og streptókokkasýkingu. Þetta er sérlega gott til að styrkja ónæmiskerfið.
Hvítlaukur hefur ávallt verið viðurkenndur sem styrkjandi fyrir ónæmiskerfið. Hann hefur mikið verið notaður gegn allavega sýkingum og einnig talinn hafa vírusdrepandi eiginleika.
Sólhattur hefur reynst vel sem fyrirbyggjandi fyrir þá sem ekki hafa óþol fyrir sólhatti. Sólhattur styrkir einnig ónæmiskerfið og vinnur gegn sýkingum.
Engiferrót er frábær jurt og gott að útbúa engiferte strax á byrjunarstigi. Einnig má rífa hana niður og setja út í heita súpu eða jafnvel í fótabaðið. Hún er sérlega góð við kvefi og hósta.
Ef einstaklingur hefur orðið veikur þarf hann að hafa hægt um sig, hvílast vel og drekka vel af vatni, þá gengur þetta yfir á um 5-10 dögum. Margir telja að líkaminn nái bestum árangri við að vinna á veikindum og endurbæta heilsuna í því ástandi þegar við sofum og slökum á. Einnig er þá síður hætta á að slá niður og verða enn veikari. Því miður er sjaldan tími til að draga sig til hlés svo lengi og því eru afleiðingarnar verri og langvinnari.
Hómópatía
Hómópatía hefur upp á að bjóða ýmsar remedíur sem geta flýtt fyrir bata og aðstoðað við betri líðan meðan líkaminn er að vinna á þessum vágesti. Ef við notum hómópatíu þarf að hafa einstaklingsbundin einkenni í huga, því þó sjúkdómur hafi ákveðið heiti þá getur birtingarmynd hans verið mismunandi hjá hverjum þeim sem veikist. Þá er gott að taka viðkomandi remedíu í styrkleika 200c á 30-60 mínútna fresti þar til einkenni fara að réna. Þá smám saman fækkar skiptunum samhliða bata.
Því fyrr sem byrjað er að taka viðeigandi remedíu því betri árangur næst. Þá hefur flensan ekki náð eins góðri bólfestu og auðveldara fyrir líkamann að ná yfirhöndinni.
Hér á eftir munum við telja upp nokkrar af þeim remedíum sem við höfum tiltækar og þeim flensueinkennum sem tilheyrir hverri og einni.
Flensubaninn: það er blandan “ABEEG” sem gott væri að eiga á öllum eimilum. Því fyrr sem hægt er að byrja að taka hana því betra og ef hún er til staðar þá þarf ekki að bíða eftir því að ná í hómópata og sækja remedíurnar. Þessa blöndu má byrja að taka strax og einkenna verður vart og má taka hana á allt að 15-30 mín fresti. Verður einstaklingur þá mun fljótari að komast yfir veikindin, jafnvel ekki nema sólarhringinn.
Oscillococcinum: Mjög góð sem forvörn og einnig í upphafi flensu til að varna því að hún nái bólfestu. Inflúensa af öllum tegundum á byrjunarstigi í 200c á klukkustunda fresti.
Influenzinum: Oft tekin einu sinni á dag þegar flensutímabilið hefst, til að fyrirbyggja veikindi. Einnig góð ef sjúklingur er lengi að jafna sig eftir flensu.
Aconite: Er góð til að taka strax og vart verður einkenna og síðan fyrsta sólarhringinn. Hiti kemur snögglega með kuldahrolli. Þörf fyrir að breiða vel ofaná sig í rúminu vegna kuldahrollsins. Hraður, harður púls og andlit annaðhvort rjótt eða til skiptis fölt og rautt.
Arsenicum: Meltingatengd einkenni. Skyndilegur hár hiti samhliða máttleysi en samt eirðarleysi. Höfuðverkur, kvef, hálsbólga, meltingarvandamál og þá iðulega samhliða niðurgangi. Útskilnaður er þunnur og vatnskenndur sem brennir húðina. Mikill þorsti sækir á sjúkling en hann vill bara smásopa af vatni í einu. Sjúklingi er mjög kalt, eirðarlaus og kvíðinn. Verkir yfirleitt verri á nóttunni milli klukkan 1-3. Líður betur við hita.
Baptisia: Alvarleg veikindi, með háum sótthita, óráði og rugli. Hitinn kemur skyndilega. Vöðvaverkir og á erfitt með hreyfingar. Öndunarerfiðleikar.
Pyrogenum: Mjög alvarlega veikt fólk. Hár sótthiti með óráði og rugli og hægum púls. Mjög miklir taugaverkir og beinverkir. Eirðarleysi og líður betur við hreyfingu. Vond lykt af öllum útskilnaði.
Belladonna: Einkenni eru rjótt andlit og varir, slímhúðin í gómi verður rauð. Veikist snögglega með háum hita. Höfuð verður heitt og útlimir kaldir. Hitinn streymir frá höfðinu. Sjúklingur er þurr og heitur, svitnar ekki og er með sterkan púls. Fær oft óráð við að loka augunum. Svefn getur verið órólegur og sjúklingur fær iðulega martraðir. Þrátt fyrir háan hita er sjúklingur ekki þyrstur. Hnerrar og nefrennsli.
Bryonia: Hiti hækkar hægt í upphafi, með köldu og líkaminn er undirlagður af verkjum. Hver hreyfing veldur óþægindum. Þessu fylgir þurr hósti og verða að halda um brjóstið þegar hóstar. Munnur er þurr og sjúklingur er þyrstur og vill hafa drykkinn kaldan. Rauð, tárvot augu. Þolir illa heitt herbergi og hita almennt. Líður verst á morgnana og um kl.21.00 á kvöldin. Sjúklingi líður best í köldu herbergi með fersku lofti, ef hann liggur kyrr og hvílir sig. Höfuðverkur er framan til í höfðinu og versnar við minnstu hreyfingu. Pirraður, vill ekki fá samúð og vill helst fá að vera í friði.
Gelseminum: Er algengasta flensuremedían. Einkenni byrja rólega og sjúklingur er mjög máttfarinn og honum finnst allur líkaminn þungur. Augun opnast jafnvel aðeins til hálfs sökum máttleysis. Verkir eru alls staðar og höfuðverkur aftan til í höfðinu (hnakka). Roðnar og svíður undan nefrennsli. Brennandi útskilnaður úr nefi og líður illa við hreyfingu og áreynslu. Kulvís. Ekki þyrstur en þá helst gos eða kaldan ávaxtasafa. Líður betur eftir að pissa.
Ferrum phos: gagnast vel gegn flensu sem enn er á byrjunarstigi en getur þó hafa verið að þróast á nokkrum dögum. Þróttleysi og sljóleiki ásamt roða í andliti. Bronkítis eða áhrif á öndunarveg.
Rhus. Tox.: Ef um er að ræða verki með stífleika. Stirðnar upp við hvíld og eru fyrstu hreyfingar oft erfiðar, en liðkast við áframhaldandi hreyfingu. Eirðarlaus. Verkir og hiti sem veldur meiri vanlíðan á nóttunni og að liggja í rúminu. Fær stirðleika í bak og háls með beinverkjum. Fær þurran hósta, hnerrar og líður verr í kulda. Sótthiti með kuldahrolli. Tungubroddur oft með rauðum þríhyrningi.
Eupatorium-per.: Hár hiti með miklum beinverkjum og líður verr við hreyfingu. Fær kuldahroll og oft líður honum verst um kl. 7.00-9.00 á morgnanna. Sækir á hann þorsti. Verkir eru sérstaklega í bakinu og útlimum. Höfuðverkur með hnerra miklu nefrennsli eða stífluðu þurru nefi. Verkir í augum og augntóftum. Þurr hósti fylgir þessu og oft niðurgangur. Þrátt fyrir að sjúklingi sé kalt, vill hann samt hafa drykkina kalda og sækist jafnvel í ís. Sjúklingur er þreyttur og veikburða og vill liggja, en er eirðarlaus. Honum líður betur við að svitna.
Nux vomica: Meltingartengd flensueinkenni sem koma hratt. Kuldahrollur með skjálfta, svita og háum sótthita. Þorsti í heita drykki fylgir veikindunum. Pirringur og viðkvæmni fyrir hljóðum og lykt.
Nat Sulph: Lungu með hrygglandi slími. Mikill gulur og vatnskenndur útskilnaður eða gulgrænn, þykkur og graftarkenndur. Líður betur í fersku lofti, að sitja uppi og breyta oft um stellingar. Líður verr á kvöldin og fyrst á morgnana.
Ef erfitt er að ná sér eftir flensu:
Phosphorus 30C – er góð remedía til að taka eftir flensu þegar einstaklingur finnur fyrir þreytu og vandar alla orku. Hann er þyrstur. Hjálpar við að hreinsa þrálátan hósta og eykur orku.
China 30C – þegar einstaklingar eru þróttlausir og kulsælir eftir
Arsenicum Iodatum 30C – þrálátur hósti og slappleiki eftir flensu. Styrkir ónæmiskerfið og hreinsar þrálátt slím.
Cyprepedium og Scuttelaria (blanda) 30c 3-4sinnum á dag ef síþreyta eða fjölvefjagigt eru eftirköst flensu.