• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Eyrnabólga

Skrifað 2007-10-15 · Börn

    Eyrnabólga er eitt af helstu vandamálum barna.

  Eyrnabólga er eitt af helstu vandamálum varðandi börn á Íslandi.  Helsta ráðið hefur veriðað gefa börnum endalaust penselín, en með misgóðum árangri.  Sumir foreldrar þekkja það þegar barnið virðist rétt hafa lokið einum lyfjaskammti þegar sá næsti hefst með.  Barnið verður pirrað, ergilegt og listalaust.  Sumir einstaklingar hafa síðan fengið sveppasýkingar og magavandamál, og jafnvel orðið ónæmir fyrir sýklalyfjunum. 

Eyrnabólga getur stafað af ýmsum ástæðum.  Sýklar í andrúmsloftinu sem valda kvefi og hálsbólgu eru algengasta orsök eyrnabólgu.  En ótrúlega oft hefur óþol fyrir mjólkurvörum orsakað langvarandi eyrnabólgur, slímmyndun og nefrennsli.

Hómópatalyf eða remedíur hafa í flestum tilvikum reynst afar vel og jafnvel virkar á örfáum klukkustundum.  Það er afar mild meðferð,  án allra aukaverkana og það sem gott er við hómópalyfin  er að á sama tíma virðist líkaminn byggja sig upp og verður sterkari gegn þessum sýkingum og eyrnabólgan verður ekki sífellt að koma aftur.  Komið hefur fyrir að barn sem átti að fara í röraaðgerð innan viku, slapp við það og hefur aðeins þurft að fá remedíur einu sinni eftir það nokkrum mánuðum síðar.

Hómópatískar remedíur (remedíur er heiti hómópatískra lyfja) eru margar.  Þær eru þannig að þær hafa áhrif á mismunandi einkenni eyrnabólgu og oft á tíðum er gott að blanda saman fleiri en einni til að ná sem bestri virkni.   Einnig er oft um mismunandi styrkleika að ræða þannig að auðveldast er að leita til hómópata til að fá það sem hentar best í hverju tilviki fyrir sig til að ná sem bestum árangri.  

Þegar notuð er hómópatía strax þegar vart verður við fyrstu einkenni á eyrnabólgu og hálsbólgu er oft hægt að koma í veg fyrir að sýkingarnar þróist yfir á alvarlegri stig. Þegar remedíur eru notaðar mildar það einkennin og veikindin vara oft í skemmri tíma og þróast síður í önnur jafnvel alvarlegri veikindi.

Einnig hafa remedíur mismunandi virkni á einstaklinga miðað við persónuleika.  Barn sem er orkumikið, heitfengt með góða matarlyst fengi til dæmis ekki sömu remedíu og barn sem er fínlegt, hæglátt og kulsækið, jafnvel þó einkenni eyrnabólgunnar séu svipuð.

Með þessari upptalningu sést að eyrnabólga getur verið margvísleg og orsök af margskonar ástæðum og þarfnast mismunandi meðferða og ekki bara notuð ein remedía fyrir alla einstaklinga.   

Hér að neðan munum við nefna smá dæmi um breytileika nokkurra remedía:

Ferrum Phos  ásamt Kali Mur er mjög gott að nota á fyrsta stigi bólgu um leið og einkenni byrja og gefið á 2-3 klukkustunda fresti.  Ferrum Phos er ekki ósvipað Aconite og Belledonnu nema að einkenni koma hægar og eru vægari. Verkir og bólga oftast í vinstra eyra.   Viðkvæmni í stikilsbeini er algeng.  Ef útskilnaður kemur úr eyranu er hann oft blóðlitaður.   Barnið hefur oft fölar eða rauða kinnar, svitnar og vill drekka mikið.
 
Pulsatilla  er ein algengasta remedían við eyrnabólgu.  Byrjar yfirleitt með kvefi sem leiðir til eyrnabólgu.      Hún virkar vel þegar nefrennslið verður fljótlega litað (gul- eða grænleitt) og þykkt en brennir ekki húðina.  Ytra eyrað getur orðið heitt og rautt.  Barninu líður verr á nóttunni og verður vælið, viðkvæmt og vill kúra í fangi foreldra.  Barnið er þyrst, og vill hafa drykkinn kaldan.   

Belladonna  barnið fær háan hita og samhliða er hálsbólga algeng.  Verkur kemur oft snögglega og oft eftir kaldan vind.  Eyrað getur verið rautt og heitt og andlitið er einnig rjótt og heitt.  Hægra eyra er oft verra en það vinstra.  Verkurinn er oft sláttarverkur sem leiðir niður í háls eða sár stingur í eyranu. Líður verr um klukkan  21 og líka á nóttunni.  Finnst verra að vera á hreyfingu og vill bara liggja kyrr. Belladonna er þó venjulega ekki notuð ef eyrnabólga hefur verið meira en 3 daga. 

Mercurius  gefið við síendurteknum tilvikum eða eftir inntöku sýklalyfja.  Oft gefið á eftir Balladonnu. Virkar vel þegar vond lykt er úr eyranu,  eyrnamergur er graftarkenndur, gulur, grænn eða brúnleitur og jafnvel eins og blóðlitaður vessi komi úr eyranu.  Útskilnaður getur verið límkenndur og brennandi.  Svitnar mikið, er andfúll með mikla munnvatnsframleiðslu.    Vanlíðan meiri að nóttu til en líður betur við að snýta sér.  Oft er hálsbólga samhliða og eins og hella sé fyrir eyrum, veikburða og skelfur.   Mercurius Iodatur flavus virkar betur á eyrnabólgu hægra megin, en Mercurius iodatus ruber ef eyrnabólgan er vinstra megin.

Chamomilla hefur áhrif á óþolandi verki, sem eru verri í vindi,  verri eftir sund,  kemur oft við tanntökur. Verkir geta verið miklir, barnið pirrað og erfitt að gera því til hæfis.  Það svitnar og grætur oft hátt en líður oft betur við að láta halda á sér.  Suð fyrir eyra og eins og stíflað.   Einkenni verri milli klukkan 21-24, verri við kulda en betri við hita.

Calc Carb er þegar börn fá eyrnabólgu við hæga tanntöku.  Þessi börn eru kulsæl og viðkvæm fyrir kulda, en þrátt fyrir það er þeim oft heitt á höfðinu og svitna súrum svita á höfðinu. Bólgnir eitlar eru oft samhliða.  Eyrnamergur er þykkur, gulur, lyktar ekki vel.  Verkir verða verri í köldum vindi.  Hægðir eru oft súrar og oft harðar, sem erfitt er að losna við.

Hepar Sulph oft notað vegna stingandi verkja og lyktandi útskilnaðar. Eyrað viðkvæmt fyrir snertingu, vindi, kulda og hávaða.  Bráða eyrnabólgu og einnig langvarandi eyrnabólgu,  með stingandi verkjum og illa lyktandi útskilnaði.  Barnið er pirrað og mjög viðkvæmt bæði tilfinningalega og líkamlega fyrir snertingu.  Samhliða er oft þurr hósti.  Ef eyrnabólga kemur í kjölfar hálsbólgu getur þessi remedía dregið úr hálsbólgunni og komið í veg fyrir að eyrnabólga þróist.  Líður betur í hita og við heita bakstra. 

Aconite  nýtist oft vel ef mögulegt er að nota hana um leið og vart verður við kvef eða eyrnaverk, sérstaklega eftir kulda.  Einnig ef eyrnaverkur kemur mjög snögglega eftir að barnið hefur verið í köldum þurrum vindi. Barnið verður þá órólegt, fær mikla verki og er mjög þyrstur.  Eyrað yfirleitt heitt og aumt með sláttaverkjum.  Líður verr við hávaða.  Hár hiti og því fylgir oft stíflað nef og þurr hósti. 

Allium Cepa virkar á verki sem leiða í hálsinn og með kvef samhliða eyrnabólgunni.  Horið er þunnt, og veldur roða og særindum, í og umhverfis nefið.  Einnig ef nefrennsli og eyrnabólga getur stafað af  ofnæmi.  Hálsbólga með verkjum sem leiða út í eyrun.  Líður betur á kvöldin og úti við en illa í heitu herbergi.   

Lycopodium   byrjar oft og er verra í hægra eyra en fer síðan yfir í vinstra eyra.  Útskilnaður er þykkur, gulur og oft brennandi.  Eins og eyrað sé stíflað og stundum er suð eða hringing í eyranu.  Sjúklingur er kvíðinn, óöruggur og vill hafa einhvern hjá sér. Oft með meltingarvandamál. Er hræddur við allt nýtt og hefur miklar áhyggjur af áliti annarra. Líður verr milli  klukkan 16-20 og við kalt loft, en einnig við að liggja á hægri hlið.

Silica þegar eyrnaverkir koma hægt en eru síendurteknir.  Bólga í stikilsbeini (beinið á bak við eyra), með vatnskenndum, daunillum útskilnaði.  Einstaklingur er veikburða og viðkvæmur fyrir hávaða.

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).