• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Styrkleiki remedía

Skrifað 2007-12-14 · Remedíur

6. pistill.  Styrkleiki remedía

Pótensíur = Styrkleiki remedía

Þegar þú hefur valið réttu remedíuna, hvað þarftu þá að hafa í huga?
Já það er hvaða pótensía kemur að mestu gagni.  Og þá er það næsta spurningin hvað er pótensía?

Pótensía má segja að sé heiti á styrkleika orku í remedíum. 
Orkan verður til þegar unnið er með efnið frá grunnefni og þar til remedían er tilbúin í þeim styrkleika sem óskað er eftir.
Notaðir eru rómverskir stafir sem tákna hvað 1 dropi af grunnefni er blandaður í marga dropa af vatni.  Meira útþynnt efni, virkar dýpra og er því oft kallað sterkara þar sem orkan er sterkari (eðlisfræði) , en ekki efnið (efnafræði).
Mest eru notaðir rómversku stafirnir  X (10), C (100)  og M (1000).

Það er mjög mismunandi hvaða pótensía á best við.  Það fer eftir ástandi einstaklingsins, hvort hann er orkumikill eða orkulítill, hvort er um líkamlega eða andlega kvilla að ræða og hvort veikindin eru mjög áköf (intense).
Það er ágæt þumalputtaregla að gefa í x-um og undir 30c ef um líkamleg veikindi og eða langvarandi er að ræða, yfir 30c og upp í M ef um tilfinningaleg eða andleg veikindi er að ræða.  Nákvæmlega 30c getur átt við bæði líkamlegt og andlegt/tilfinningalegt.  Ef svo veikindi eru mjög áköf, eða verkir miklir getur átt betur við að gefa í hærra en 30c þó svo að það sé um mjög líkamlega kvilla að ræða.
Síðan er það næsta þumalputtaregla að það þarf að taka oftar inn þær remedíur sem eru í x-um eða undir 30c og sjaldnar þær sem eru í yfir 30c og í M-um, nema þegar um skyndihjálp er að ræða þá getur átt við að taka 10M mjög þétt. 

Þetta er alltaf svolítill línudans á meðan fólk er að fá tilfinningu fyrir þessu, þannig að ekki hika við að leita upplýsinga hjá okkur eða öðrum hómópötum varðandi val á pótensíu og hversu oft þarf að taka hana inn. 

Það var kona sem keypti Aconite 30c vegna kvefpestar sem átti mjög vel við lýsinguna sem við sendum.  Hún tók remedíuna samviskusamlega, en fannst virknin heldur hægvirk og ekki eins og hún hafði væntingar til.  Þar sem nefrennslið var mjög mikið og ákafir verkir hefði verið betra að nota 200c og henni hefði liðið betur fyrr. 

Þær remedíur sem eru seldar í lausasölu í heilsubúðum og fleiri stöðum eru háðar leyfi lyfjaeftirlitsins sem eingöngu leyfir innflutning á takmörkuðum fjölda tegunda af remedíum og eingöngu í pótensíu 30c. 
Ef þú átt bara remedíu í 30c og það er um mjög áköf veikindi (t.d. mjög mikið nefrennsli) taktu hana þá þéttar inn. 

Ekki hika við að senda frekari fyrirspurnir ef einhverjar frekari spurningar koma upp.
 

Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH

 

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).