Kvef
Kvef er eitthvað sem allir hafa kynnst. Algengt er að börn fái kvef frá 6 upp í 10 sinnum á ári, en fullorðnir um að bil 2 til 4 sinnum á ári. 200
mismunandi vírusar geta valdið kvefi en Rhinuvirusinn er þeirra algengastur og veldur um 30-50% allra kveftilfella. Þessi vírus er virkur allt árið en verður líkastur faraldri á vorin og haustin og herjar hann aðallega á efri öndunarveg. Vírusar eru mismunandi skæðir og geta sumir hverjir valdið skemmdum í slímhúðinni en aðrir valda aðeins óþægindum meðan kvefið gengur yfir en skilur ekki eftir sig nein varanleg óþægindi.
Kvef er mjög smitandi og getur bæði smitast við snertingu og eins við að draga að sér andann, þar sem vírusinn getur verið einhvern tíma í andrúmsloftinu eftir að sjúklingur hefur verið þar inni. Kvef gengur yfirleitt yfir á 5-10 dögum og er þá gott að hafa hægt um sig og reyna að drekka vel af vatni. Veikindi eru ekki alltaf neikvæð og eðlilegt er að veikjast 1-2 svar á ári. Líta má svo á, að ónæmiskerfið sé í góðum leikfimistíma, þar sem nauðsynlegt er fyrir ónæmiskerfið að fá áreiti til að halda sér í formi.
Fólk er mismunandi viðkvæmt fyrir að fá kvef og hefur ónæmiskerfið töluvert um það að segja. Álag og svefnleysi getur haft töluverð áhrif á að veikja ónæmiskerfið. Börn fá oftar kvef þar sem þau eru mikið innan um önnur börn í skólum og leikskólum og smitleiðir þar eru afar auðveldar.
Hér á eftir munum við lýsa nokkrum einkennum kvefs og hvaða remedíur gætu hentað við hvaða tilfelli.
Ef kvef kemur skyndilega með þurrum hósta og verkjum. Því fylgja hnerrar og mikið vatnskennt nefrennsli. Einnig gæti þessu fylgt höfuðverkur, hiti og þorsti. Í upphafi þessara einkenna er Aconite afar góð.
Ef kvef kemur skyndilega og með því fylgir hár hiti, augun verða glansandi og jafnvel roði í andliti. Sláandi höfuðverkur, særindi í hálsi (aðallega hægra megin), og jafnvel kitlingur í hálsinum. Nefið getur stíflast með þurrum barkahósta. Belladonna er ein af okkar bestu remedíum þegar mikill hiti er annars vegar.
Gelsemium er aftur á móti notuð þegar kvefið versnar smám saman. Því fylgir þróttleysi, vöðvaverkir, sinnuleysi. Höfuðverkurinn byrjar í hnakkanum og leiðir fram höfuðið. Byrjar með kitling í nefinu sem verður að vatnskenndu og ertandi nefrennsli.
Með nefrennsli á nóttunni með vatnskenndum útskilnaði, en stíflað nef á daginn. Hnerrar og sár háls. Þá er Nux Vomica kjörin remedía. Einnig getur hún verið góð ef snörlar í nefi nýbura.
Aftur á móti ef snörlar í nefi nýbura með þykku glæru eða gul/grænu slími, þá er Pulsatilla mun betri. Algeng einkenni eru; stífla í nefi er verra á nóttunni, verra við að liggja útaf og getur verið til skiptis í vinstri eða hægri nös. Sjúklingur andar með munninum í svefni. Rennsli úr nefi á daginn er þykkt gul-grænt slím. Hósti laus á morgnana, þurr á kvöldin og á nóttunni. Líður betur í fersku lofti. Börn eru oft viðkvæm, grátgjörn og vilja gjarnan vera í fangi foreldranna.
Rhus Tox er einnig með þykkt gul-grænt refrennsli en samhliða því er oft þurr hósti, hæsi og kitlingur og kláði í hálsi. Hóstinn kemur oft í veg fyrir svefn. Oft fylgir þessu stífleiki og óróleiki.
Með veðrabreytingum á sumrin og hitabreytingum þar sem loftkælingar eru í húsnæði (t.d. á hótelum erlendis), er algengt að fá svokallað sumarkvef með hæsi og nefrennsli alveg aftur í kok. Sumarkvefsremedían okkar er Dulcamara.
Þegar lekur úr nefi þunnum útskilnaði sem svíður undan og maður verður rauður í og umhverfis nasirnar, samhliða rennsli úr augum sem geta orðið rauð þá kemur Allium Cepa sér oft vel. Þegar þessu kvefi fylgir höfuðverkur þá er hann iðulega í fremri hluta höfuðs.
Ef rennur mikið úr augum en brennir ekki umhverfis nefið er Euphrasia æskilegri en Allium cepa. Augun geta orðið rauð ásamt roða í kinnum. Hnerraköst, hósti og líður betur við að liggja útaf. Eftir ca. 2 daga geta einkenni breyst í harðan hósta og hæsi.
Með síendurteknu kvefi og hálsbólgu, þykkum gulum útskilnaði með lausu slími í hálsi og fyrir brjósti, hefur Calc Carb. iðulega reynst vel. Þessu fylgir oft mikill súr sviti og súrar hægðir. Hálsbólgunni fylgir oft bólgnir hálseitlar. Nasir geta verið þurrar, aumar, með sárum.
Ýmsar aðrar remedíur hafa reynst vel við kvefi eins og t.d.:
Arsenicum, Slím vatnskennt, brennandi, myndar fleiður. Nef stíflað.
Bryonia, Lítið slím, hnerrar oft, þurr hósti, mikill pirringur.
Ferrum Phos., Höfuðkvef með blóðnösum. Blóðlitað útskilnaður.
Hepar Sulph., Þykkt gult slím, Hnerri við minnstu hitabreytingu
Kali bic., Seigt, þykkt, gult slím. Sífelld þörf að snýta sér. Stundum hálsbólga og hósti. Nat. Mur, Slím eins og eggjahvíta. Öflugt rennandi nefkvef, stendur yfir í 1-3 daga, þá stíflast nefið og þá er erfitt að anda.
Ýmsar fleiri remedíur, en taldar eru upp hér, virka við kvefi með öðrum einkennum. Í sumum tilvikum taka hómópatar fleiri en eina remedíu og blanda saman ef það hentaði einstaklingnum betur en að fá aðeins eina tegund. En þá þarf þekkingu, varðandi hvaða remedíur mega nýta saman án þess að draga úr virkni annarrar remedía.
Ath. Ofnæmi getur valdið kvefeinkennum og afholubólgum. Stundum er erfitt að gera sér grein fyrir þeim ofnæmisvöldum sem valda einkennunum. Til dæmis getur óþol fyrir MSG (E-621) sem er mikið í matvælum og kryddvörum valdið töluverðum kvefeinkennum með miklu nefrennsli og jafnvel astma.
Ásamt þessum remedíum er áhrifaríkasta meðferðin hvíld og nóg af vökva. Til að auka vökvann, reynið heitt vatn með sítrónusafa og smávegis af hunangi en það er gott til að fá viðbót af c vítamíni. Létt mataræði er betra t.d. súpur, ferskir ávextir, grænmeti og nóg af fersku lofti. Ef vart verður mikillar slímmyndunar er æskilegt að sleppa mjólkurvörum á meðan kvefið gengur yfir. Síendurtekið kvef í fullorðnum og börnum þarfnast sérhæfðrar meðferðar hjá Hómópata.
Við höfum hér aðeins stiklað á stóru en vonum að þið hafið haft gagn og gaman af.
Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH