• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Blöðrubólga.

Skrifað 2008-01-16 · Sjúkdómar

  Blöðrubólga er algengari  meðal kvenna en karla.

Blöðrubólga er fremur algengur kvilli og er mun algengari sjúkdómur meðal kvenna en karla.  Sjúkdómurinn er talinn frekar meinlaus í konum en getur verið mun alvarlegri hjá körlum.  Venjulega er þvagið gerlalaust en það geta verið bakteríur í þvaginu án þess að einkenni komi í ljós.  Orsök blöðrubólgu eru oft bakteríur sem eiga uppruna sinn í ristli og endaþarmi, eins og t.d. E.coli, Klebsiella, Proteus mirabilis og Streptococcus faecalis en ýmsar aðrar bakteríur geta líka valdið sýkingum með því að berast upp þvagrásina og upp í blöðruþekjuna þar sem þær valda bólgum og óþægindum.  

Þar sem blöðrubólgusýking stafar oftast vegna baktería úr meltingarfærum þá er æskilegt að kenna ungum stúlkum að skeina sig aftur frá endaþarmi, en ekki fram á við í átt að þvagrásaropi.  Ástæða þess að konum er tíðara að sýkjast er sú að þvagrásin er mun styttri en hjá körlum og stutt frá endaþarmi.  Ef þær skeina sig í átt að þvagrás, eiga bakteríurnar mun greiðari aðgang upp í blöðruna. 

Algengustu einkenni blöðrubólgu eru skyndileg og aukin þörf fyrir þvaglosun jafnvel þó blaðran sé hálf tóm.  Einnig geta einkenni verið sviði við þvaglát og verkir ofan við lífbeinið, niður í nára eða grind.  Verkir eru ýmist á undan þvagláti, við þvaglát eða í restina þegar blaðran er um það bil að tæmast.  Þvag getur orðið gruggugt og illa lyktandi.  Í sumum tilvikur getur komið blóð með þvaginu.  Ef bakteríur fá kjöraðstæður til að dafna í friði er hætta á að þær nái að komast eftir nýrnaleiðurum og upp í nýru og þá fylgir oft bakverkir og hiti.

Konur á breytingaskeiði geta fengið svipaða tilfinningu eins og um blöðrubólgu sé að ræða.  Mjög tíð þvaglátsþörf og viðkvæmni í blöðrubotni.  Ekki þarf að vera í öllum tilfellum að um blöðrubólgu sé að ræða heldur getur það verið háð minnkandi framleiðslu kvenhormónsins estrógen.  Þegar estrógen minnkar getur myndast þurrkur í slímhúð bæði leggangna og eins í þvagrás.  Þegar svo er þá getur tilfinningin verið svipuð og með blöðrubólgu.  En þar sem slímhúðin ertist meira en áður við þetta ástand er meiri hætta á að fá blöðrubólgu.  Er því æskilegt að konur á breytingaskeiði láti athuga þvagsýni áður en þær taka sýklalyf við þvagfærasýkingu þar sem einkenni geta verið tvíræð.

Drekka skal mikið af vökva til að auka flæðið í gegnum líkamann og minnst 2 lítra á dag meðan á meðferð blöðrubólgu stendur.  Það hjálpar til við að skola þvagrásina og dregur úr fjölgun baktería.   Einnig er mikilvægt að tæma blöðruna reglulega því það dregur einnig úr aðstæðum fyrir bakteríurnar til að fjölga sér og æskilegt að pissa ávalt eftir samfarir.   Því er nauðsynlegt að sýna gott hreinlæti almennt og klæða sig vel því kuldi hefur slæm áhrif á blöðrubólgu

Að drekka vel af sólberjasafar og trönuberjasafar eru gömul og góð húsráð við blöðrubólgu og sem vörn.  Trönuber og sólber geta komið í veg fyrir að bakteríur festi sig við þvagblöðruvegginn.  Gullhrís örvar starfsemi nýrnanna og hreinsar þvagleiðara.  Grape seeds extract hefur verið kallað náttúrulegt sýklalyf sem ræðst gegn bakteríusýkingum.  Ólífulauf er einnig gott og hjálpar líkamanum að vinna á sýkingum.

Hér að neðan er listi yfir nokkrar remedíur sem að hafa reynst vel við blöðrubólgu.  Þar sem einkenni geta verið mismunandi eru ekki sömu remedíur sem henta öllum og upptalningin hér sýnir mismun sem taka þarf til greina þegar remedíurnar eru valdar.   Styrkleiki á remedíum fer einnig eftir hverjum einstakling fyrir sig.  Varðandi blöðrubólgu hefur mér reynst árangursríkast að halda áfram að styðja líkamann þó einkenni séu farin til að varna því að sýkingin verði undirliggjandi og blossi upp á ný.

Stundum er ein remedía ekki nóg fyrir einhvern og er þá blandað saman fleiri en einni remedíu og styrkleiki miðaður við einstaklinginn.  Ef um síendurtekna þvagfærasýkingu er að ræða er gott að eiga remedíur heima til að geta gripið til um leið og einkenni byrja, því þannig nær einstaklingur að vinna fyrr og skilvirkar á vandanum.

Cantharis:  Einkenni geta komið snöggt með miklum óþægindum.  Einnig getur verið um króníska blöðrubólgu eða jafnvel að sýking hefur náð upp í nýru.  Miklir brennandi verkir og sviði undan þvagi við þvaglát.  Verkir í baki og neðarlega í kvið.   Finnst blaðran aldrei tæmast alveg. Stöðug þvaglátsþörf jafnvel þó ekkert komi þvagið, eða þvag komi aðeins í dropatali.  Skerandi verkir bæði á undan, á meðan og eftir þvaglát.  Ef um algera þvagteppu er að ræða getur hjálpað að sitja í heitu baði og losar þá oft um og gerir mögulegt að pissa.

Nux Vomica:   Finnst endalaust þurfa að pissa, en bara í litlu magni í einu.  Krampakenndir verkir í blöðru og hringvöðva.  Verkir á undan og meðan pissar.  Pirringur í hringvöðva blöðrunnar.   Andlega pirraður.  Líður verr við áreynslu, við að rembast, við andlegt álag og kulda.  Best að sleppa alkahóli og kaffi meðan þetta gengur yfir.  Líður betur við hita.

Pulsatilla:    Skyndileg þvaglátsþörf og getur ekki haldið í sér en kemur í litlu magni í einu.  Þörfin byrjar um leið og eitthvað þvag kemur í blöðruna.  Verkir verstir eftir að pissa. Verkir í blöðru, hringvöðva og þvagrás.  Verkir koma óreglulega í kviðum og veru verri við að halda í sér, eða liggja á bakinu.  Líður betur við nudd,  mjúkar hreyfingar og ferskt loft
 
Sarsaparilla:   Góð remedía við blöðrubólgu þegar verkir er verstir í lok bunu.  Mikil þvaglátsþörf með sviðaverkjum í lok bunu þegar síðustu droparnir eru að koma.  Einnig verkir þegar þarf að pissa.  Verkir í blöðru og hringvöðva.  Verkir geta verið upp í hægra nýra.  Blóð getur komið með þvagi.  Líður verr á nóttunni og í kulda.  Líður betur við að standa.

Mercurius corrosivus:   Þvag virðist heitt og kemur í dropatali, lítið í einu.  Miklir brennandi verkir.   Blóð í þvagi.  Þvag getur verið grænleitt.  Vond lykt af þvagi.  Líður verr á nóttunni, við hitabreytingar og við að svitna.

Staphysagria:  Verkir verstir meðan og eftir þvaglát en einkenni eru viðvarandi stanslausir brennandi verkir.  Finnst eins og stöðugt leki dropar.  Líður verr við þrýsting á blöðruna og að drekka ekki nógan vökva.   Líður betur við að liggja í hnipri á hliðinni.

Natrum carboncum:   Krónísk blöðrubólga.  Lykt af þvaginu er mjög sterk (líkt hestahlandi) og er dökk gult.  Brennandi verkir á meðan og eftir að pissa. 

Apis:   Mikil þvaglátsþörf með brennandi, stingandi verkjum.  Verkirnir versna áður en byrjað er að pissa og einnig um leið og byrjað er að pissa.   Þvag getur verið gruggugt með sterkri lykt og í litlu magni.  Líður verr við hita og snertingu, en betur við ferskt loft, kulda og hreyfingu.  

Aconite:   einkenni koma snöggt með miklum særindum og sviða.  Þvag er heitt og veldur brunatilfinningu. Byrjar oft eftir að hafa orðið kalt eða orðið hræddur.  Þessu fylgir eirðarleysi, kvíði og jafnvel hræðsla  um að deyja.  Líður verr á nóttunni,  við kulda og tilfinningasveiflur.   Líður betur við ferskt loft og hita.

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).