• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Kvíði og Áhyggjur.

Skrifað 2008-10-09 · Andlegt

14. pistill  Óvissan um framgang mála er mörgum mikið kvíðaefni.

Þessa dagana eru margir að glíma við kvíða og áhyggjur vegna fjármála ástandsins.  Á okkur dynja misvísandi og frekar óskýrar fréttir af aðgerðum stjórnvalda og banka.  Óvissan um framgang mála er mörgum mikið kvíðaefni. 
Til að taka af toppinn af áhyggjunum er gott að taka bæði remedíur og blómadropa.  Þá erum við betur í stakk búin að taka raunhæfari ákvarðanir og látum síður áhyggjur og kvíða yfirtaka okkar daglega líf.

Hér á eftir eru taldar upp nokkrar algengar remedíur sem eru gefnar við kvíða:

Ambra Grisea:    Kvíði, þunglyndi, hysteria, vill ekki félagsskap, sérstaklega ekki ókunnugra.

Anacardium:   Lítið sjálfstraust.  Þarf að sanna sig.  Lélegt minni. Hræddur um að mistakast. Óákveðinn.

Argentum Nitricum:  Hvatvísi.  Kvíði um heilsuna.  Kvíði þegar viðkomandi er einn, betri þegar hann hefur félagsskap.  Kvíðir fyrir prófum og skuldbindingum,  Kvíðir fyrirfram fyrir hlutunum.  Lélegt minni. Reynir að forðast sérhverja þrekraun.  Kvíði á morgnana þegar hann vaknar, finnst hann ekki geta litið fram á daginn.
 
Arsenicum Album:   Kvíðinn, spenntur.  Ofsalegur kvíði, oft með miklum óróleika.  Kvíði varðandi heilsuna.  Mikill óróleiki, eirðarleysi, gengur um gólf.  Kvíði vegna vellíðan fjölskyldu eða vina sem tryggja öryggi sjúklingsins.

Gelsemium:    Sviðsótti.  Hjálpar strax til að losna við skelfingu fyrir sýningu.  Kvartar mikið þegar viðkomandi kvíðir fyrir atburðum.  Prófkvíði.

Calcarea Carbonica:  Kvíði varðandi heilsuna.  Vinna of mikið, ofkeyrðir, ofþjakaðir einstaklingar.  Sterk tilfinning fyrir skyldu og ábyrgð.  Þrjóska.

Bryonia:   Vill ekki vera truflaður, verður að fá að vera í friði og ró.  Pirringur.  Upptekin við viðskiptamál.  Kvíði vegna framtíðarinnar..

Kali Carbonicum:   Kvíði og áhyggjur.  Finnur fyrir kvíðanum í uppmagálssvæðinu (solar-plexus).  Pirringur.  Þörf fyrir að rífast.  Vill ekki að neinn snerti sig.

Lycopodium:   Vandamál vegna lágs sjálfstrausts og sjálfsmats.  Kvíði varðandi heilsuna, um ágreining, um starfsframa.  Sviðsótti.

Sulphur:   Kvíði varðandi heilsuna.  Kvíði vegna fjölskyldu eða barna, slysa, sjúkdóma.  Lélegt sjálfstraust, þarf að fá hrós.

Við gefum mjög oft blöndu af 3-4 remedíum sem við nefnum AAAG eða AAAAG og hafa gefið mjög góða raun gegn kvíða og áhyggjum.  Þær eru blandaðar með hvern einstakling í huga og því þarf að vitja hómópata til að fá rétta blöndu með réttum styrkleika.  Ekki er hægt að fá þessar blöndur í heilsubúðum eða apótekum, en þar er hægt að kaupa ýmsar stakar remedíur, en þá eingöngu í styrkleika 30c, og kosta t.d.  1.220.- krónur í Skipholtsapóteki, um kr.  1.390.-  í Maður lifandi og svipað í öðrum heilsubúðum.

Ef þú hefur orðið fyrir áfalli, hvort sem er vegna fjárhagsmála eða annars þá eru blómadropar Bachs mjög góðir og þá mælum við sérstaklega með Rescue remedy (Five Flower Remedy) sem skyndihjálp.

Ef kvíðinn er mikill er um að gera að leita sér hjálpar sem fyrst, hvort sem er til hómópata eða annarra meðferðaraðila.  Langvarandi kvíði og áhyggjur leiðir mjög oft til líkamlegra veikinda, sem erfiðara getur verið að meðhöndla.

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).