Hálsbólga
Hálskirtlar eru tveir litlir pokar sitt hvoru megin við tungurót. Þeir eru búnir til úr eitlavef og starfa við að byggja upp ónæmiskerfið og til að verja hálsinn og lungun gegn sýkingum. Þeir eru virkastir á æskuárum þegar líkaminn er að kynnast ýmsum sýkingum í fyrsta sinn. Hálskirtlarnir ná fullri stærð þegar barnið er um 6 – 7 ára.
Það er ekki óalgengt að börn og fullorðnir fái hálsbólgu eða eymsli í hálsi yfir vetrartímann. Hálskirtlarnir verða bólgnir, rauðir og mikil eymsli í hálsinum. Oftast sér ónæmiskerfið sjálft um að laga þessi einkenni og þau hverfa á innan við viku.
Oftast er hálsbólgan af völdum veirusýkinga og við því er engin venjuleg læknismeðferð. En hvort sem ástæðan er veirusýking eða bakteríusýking, með einkennum eins og bólgnum kirtlum, hita og sljóleika, er oft gripið til sýklalyfja eða pensillin, með öllum þeim fylgikvillum sem þeim fylgja, en það geta verið: sveppasýking, niðurgangur, uppköst o.s.frv.
Hómópatía hefur reynst vel vegna hálsbólgu hvort sem er vegna bakteríusýkingar jafnt sem veirusýkingar. Oft hefur mátt koma í veg fyrir hálskirtlatöku með því að nota hómópatíu. Fólk er oft fljótt til og fær sýklalyf, og oft vegna hræðslu eða jafnvel í von um að þetta gangi fyrr yfir, þar sem veikindadagar frá vinnu eru af skornum.
Ef börn hafa verið mikið á sýklalyfjum má búast við því að það taki lengri tíma fyrir þau að sýna viðbrögð við remedíum en yfirleitt eru þau fljót að ná bata. En á sama tíma hjálpar hómópatían börnunum að byggja upp þeirra eigið þol gegn veikindum.
Ýmsar remedíur, eru taldar upp hér á eftir sem virka við hálsbólgu. Í sumum tilvikum taka hómópatar fleiri en eina remedíu og blanda saman ef það hentar einstaklingnum betur en að fá aðeins eina tegund. En þá þarf þekkingu, varðandi hvaða remedíur mega nýta saman án þess að draga úr virkni annarrar remedía.
Eins og við flensu, kvefi hálsbólgu og fl. er, ásamt þessum remedíum, áhrifaríkasta meðferðin hvíld og nóg af vökva. Til að auka vökvann, reynið heitt vatn með sítrónusafa og smávegis af hunangi en það er gott til að fá viðbót af C vítamíni. Létt mataræði er betra t.d. súpur, ferskir ávextir, grænmeti og nóg af fersku lofti. Síendurteknar sýkingar bæði hjá fullorðnum og börnum þarfnast sérhæfðrar meðferðar hjá Hómópata.
Hér fyrir neðan er tafla með nokkrum af helstu remedíunum sem gagnast vel þegar um hálsbólgu er að ræða. Vonum að þið hafið gagn af.
Aconite: Aðaleinkennin birtast skyndilega, oft eftir að hafa orðið kalt. þessu fylgir oft hár hiti með óróleika. Hálsinn rauður og þurr með brennandi sviða. Sjúklingur þyrstur og vill kalda drykki. Þurr hósti. Vatnskennt nefrennsli, gæti fengið blóðnasir og ef það gerist er blóðið ljósrautt.
Líður betur við að fá ferskt loft og svefn. Líður verr Í heitu herbergi þar sem er þungt loft. Á kvöldin og nóttunni. Að liggja á verri hliðinni.
Allium Cepa: Aðaðeinkenni er mikill glær og vatnskenndur útskilnaður oft með hæsi og kvefi. Heitur og þyrstur.
Líður betur Í fersku lofti en líður verr innandyra, í heitu herbergi og á kvöldin.
Apis: Aðaleinkennin eru bólgnir kirtlar með stingandi sársauka. Ef ekki eru til staðar hálskirtlar, getur hálsinn verið bleikur með stingandi sársauka með hálsbólgutilfinningu. Sjúklingur er ekki þyrstur.
Líður betur við að drekka kalt vatn en líður verr við að drekka heita drykki
Arg Nit.: Aðaleinkennin eru barkabólga eftir að syngja, tala, halda ræðu eða öskra mikið. Eirðarlaus með kvíðatilfinningu og alltaf á hreyfingu.
Líður betur við að fá ferskt loft. Þéttan þrýsting. Hreyfingu Líður verr við hita. Líður verr vinstra megin. Við tilfinningarót.
Belladonna: Einkennin koma skyndilega. Hár hiti og rjótt andlit en kaldir útlimir. Sláandi verkir. Hitinn geislar af sjúklingnum. Sjúklingur mjög þyrstur eða alls ekkert þyrstur. Þarf oft að kyngja en það er mjög vont. Skjótandi verkir út í eyra þegar kyngt er. Sár háls aðallega hægra megin. Kitlingur í hálsinum. Ljósið meiðir augun. Augun glansandi og ljósopin þanin. Óráð með miklum hita. Þurr barkahósti. Finnst gott að fá sítrónu eða sítrónusafa.
Líður betur við að sitja uppréttur eða standa og að vera í heitu herbergi. Líður verr við hristing, hreyfingu, hávaða og dragsúg. Einnig líður verr við að liggja útaf og eftir kl. 12 á hádegi og kl. 15
Bryonia: Einkennin eru þurr háls og munnur. Hæsi. Mjög pirraður og vill vera einn. Þorsti. Einkenni frekar hægra megin. Erfitt að tala vegna þurrks í hálsinum og vont að kyngja.
Líður betur við að vera kyrr og í þögn. Við að setja ákveðinn kaldan þrýsting á höfuð og brjóst. Líður betur í köldu umhverfi.
Líður verr við hreyfingu. Skær ljós. Að borða, hávaða og snertingu. Kl. 9 fyrir hádegi og 15 eftir hádegi
Chamomilla: Aðaleinkennin eru sár háls eftir kulda eða raka. Bólgnir kirtlar og kitlingur í hálsinum. Hæsi og harður hósti
Börn oft önug og pirruð og vilja láta halda á sér.
Hepar Sulph: Einkennin eru mikið hæsi með geltandi hósta. Kemur eftir að vera úti í hita eða kulda. Tilfinning eins og eitthvað sé fast í hálsinum, flís eða fiskibein. Eins og tappi í hálsinum. Kverkabólga . Einnig hálsbólga sem leiðir út í eyru þegar kyngt er. Hæsi og raddmissir.
Líður betur við að drekka heitt og við hvíld. Líður verr á nóttunni og morgnana. Hreyfingu
Lachesis: Aðaleinkennin eru purpuralitur, bláleitur háls. Mjög bólgnir hálskirtlar – kæfandi. Þarf stöðugt að kyngja. Þurrkur í hálsi. Byrjar vinstra megin. Krónískur sár háls með miklum ræskingum. Sérstök viðkvæmni gagnvart snertingu. Hvítir eða gráir blettir á hálskirtlunum, sérstaklega þegar einkenni byrja vinstra megin.
Líður betur í fersku lofti, við kalda drykki. Líður verr á kvöldin og alltaf eftir svefn. Hita. Kyngja vökva
Mercurius: Einkennin eru sár fleiðraður, verkjaður og brennandi sviði í hálsi. Sár háls eftir að verða kalt. Sláttur í hálsinum og hálskirtlum sem leiðir upp í eyru, sérstaklega þegar kyngt er. Vont bragð í hálsinum. Mikið munnvatnsrennsli.
Sáramyndun og gröftur í hálsinum. Þegar sár eru verkjalítil og koma smám saman. Merc.Iod.Flavum = hægri hliðar, Merc Iod.Rubrum = vinstri hliðar.
Líður betur við hvíld og hóflegt hitastig en líður verr á nóttunni við að svitna og við áreynslu
Nux Vom.: Einkennin eru eins og fleiður sé í hálsinum. Eins og bólgan sé eins og tappi eða kökkur í hálsinum, sérstaklega þegar kyngt er. Verkir frekar þrýstandi en skjótandi. Úfurinn er stundum bólginn og rauður.
Líður betur á kvöldin við hvíld og í heitu herbergi. Líður verr við að kyngja munnvatni. Andlegt álag.
Phytolacca: Aðaleinkennin eru bólgnir kirtlar
Líður verr við heita drykki
Pulsatilla: Einkennin eru að sárt er að kyngja eins og hálsinn sé of þröngur vegna bólgunnar. Roði og eins og það sé fleiður í hálsinum. Þurr háls án þorsta. Sár háls og verkur kemur og fer. Píluverkir í hálsinum við að kyngja, en verri þegar ekki er verið að kyngja. Finnur spennu í hálsinum. Hálsinn eins og blárauður að innan. Gul/grænn útskilnaður.
Líður betur við huggun, samúð í hreinu lofti og við létta hreyfingu. Líður verr á kvöldin, við hvíld í hita og í þungu lofti
Rhus Tox: Aðaleinkennin eru stíflað nef og kláði í hálsinum. Stífleiki og óróleiki. Þráir kalda mjólk. Getur ekki verið kyrr, verður að hreyfa sig. Þykkt gul/grænt nefrennsli með rauðum hálsi sem klæjar í, þurr hósti, kitlingur, hæsi. Hósti kemur í veg fyrir svefn.
Líður betur við hita, heit böð. Við hreyfingu. Við að breyta um stellingu. Hóstinn er verri í köldu herbergi. Líður verr í kulda, bleytu, rigningar veðri og á meðan hann sefur..
Sulphur: Einkennin eru sí endurtekinn sár hálsbólga. Bólgnir kirtlar. Yfirborðs roði. Eins og bolti sem kemur upp í kokið og lokar því. Útskilnaður grænleitur
Líður betur Í fersku lofti, hreyfing og liggja á hægri hlið. Líður verr við að hitna, tala, liggja á vinstri hlið við hvíld og að standa.