Svefnvandamál
Góður svefn veitir þreyttum manni hvíld, frið og endurnæringu.
Svefn er afar mikilvægur og endurnærir allan líkamann, andlega og líkamlega. Hann er nauðsynlegur til að halda líkamlegu og andlegu jafnvægi. Mikil endurnýjun og lækning fer fram meðan við sofum. Virkni lungna
og hjarta er í lágmarki, líkamshiti og blóðþrýstingur lækka, vöðvar slaka á. Þetta gefur frumum líkamans frið til að vinna að viðhaldi, endurnýjun og vexti. Húðfrumur til dæmis skipta sér og vaxa tvisvar sinnum hraðar meðan við sofum.
Meðal annars er vitað að vaxtarhormón myndast í djúpum svefni fyrri hluta nætur. Vaxtarhormónin stýra vexti þeirra sem ungir eru en einnig hraða endurnýjun á frumum í líkama þeirra sem eldri eru og geta hægt á ellikerlingu.
Algeng orsök streitu er sú að fólk vanrækir þörf líkamans fyrir svefn. Í Hávamálum kemur fram að ekki sé viturlegt að vaka yfir vandamálum á nóttunni.
Meðalsvefnþörf manna er um 7 ½ klst., en svefnþörf getur verið mis mikil og getur numið 1-2 klst. Gæði svefnsins skipta einnig máli. Ef þú vaknar úthvíldur og líður vel yfir daginn þá er það vísbending um að þú fáir góðan svefn, en dagsyfja þýðir meiri svefnþörf. Börn og unglingar þurfa meiri svefn en fullorðnir. En margt glepur, sem stelur gjarnan svefntíma þannig að nemendur koma oft óhvíldir í skólann hafa skerta námsgetu.
Svefnskortur skaðar heilsuna
Fáir gera sér grein fyrir heilsufarslegum áhrifum þess að spara við sig svefn. En það er skaðlegt heilsunni að svipta fólk svefni. Athygli og einbeiting skerðist, líkamleg streitueinkenni koma í ljós, einbeiting, hugsun og tímaskyn brenglast. Langvarandi svefnleysi getur jafnvel valdið dauða.
Þreytan safnast smám saman upp og fer að birtast sem líkamleg einkenni, eins og til dæmis; krónísk þreyta, vöðvaspenna, verkir, meltingartruflanir, hjartsláttarónot og hækkaður blóðþrýstingur. Þau einkenni trufla svefn enn frekar og úr verður vítahringur. Langvarandi streita veikir ónæmiskerfið, og aukast þá líkur á sýkingum og fleiri sjúkdómum, sem og ótímabærri elli.
Gefum okkur því tíma til að njóta nægrar hvíldar. Háttum snemma því friðsæll svefn er ekki síður nauðsynlegur og líkamsþjálfun eða heilbrigt mataræði.
Svefnörðugleikar af ýmsum toga:
Það er fátt ömurlegra en að liggja andvaka og vita að vekjaraklukkan hringir, að manni finnst, rétt eftir að hafa fest svefn. Illa hvíldur, þreyttur og geðvondur. Ýmsar mismunandi ástæður geta valdið svefntruflunum og nefnum örfá dæmi hér að neðan:
Þegar um skammtíma svefnleysi er að ræða sem er mjög algengt, þá er sem betur fer hægt að bæta það upp með góðri hvíld og lengri svefni í kjölfarið. En oft eru vandamálin komin í verra horf en svo að það dugi.
Ýmsir ná yfirleitt ekki djúpum svefni, eru alltaf á vaktinni og rumska við hvað sem lítið sem er. Það er mjög algengt og ástæður svo ótal margar. Örfá dæmi má nefna er streita, áhyggjur, fylgjast með börnum eða sjúklingum, ofþreyta, verkir eða pirringur í líkama, mataræði, veikindi, umhverfisáhrif, hugsanir, tilfinningar og svo margt mætti telja.
Vökur vegna sjúklinga geta haft langvarandi svefnvandamál í för með sér. Áhyggjur vegna sjúklingsins og langvarandi þreyta getur haft slæmar afleiðingar og oft á tíðum endar það sem veikindi þess sem sá um umönnunina í upphafi.
Áhyggjur eru mjög algeng ástæða svefntruflana. Sumir eru svo þreyttir að þeir sofna samstundis við að leggja höfuðið á koddann, en vakna aftur upp við áhyggjurnar sem valda streitu og varna svefni mikinn hluta nætur. Aðrir ná ekki að sofna því hugsanirnar virðast fara á flug bara við að leggjast út af. Þeir hugsa og bylta sér og ná ekki að festa svefn fyrr en seint um síðir.
Vaktavinna getur verið erfið þar sem svefnfriður eftir næturvaktir er ekki alltaf til staðar. En líkamsklukkan er svo vanaföst að ýmsir eiga erfitt með að aðlagast svona ruglingi. Einstaklingur verður viðkvæmari fyrir truflunum.
Fólk með króníska þreytu myndar með sér truflað svefnmunstur sem erfitt er að breyta. Það eykur enn meira á þreytuna og myndar vítahring. Það skapar streitu að geta ekki sofið og streitan varnar því að geta sofið.
Rannsóknir hafa staðfest að sumum er eðlilegra að vera morgunfólk (A-fólk) sem sofa á nóttunni, en öðrum er eðlilegra að vera upprifnir og hressir á nóttunni (B-fólk) en þurfa að sofa á daginn. Þetta er rétt í sumum tilfellum, en það eru ótrúlega margir sem nota þetta sem afsökun til að taka ekki á sínum svefnvanda, því það er meiri friður að sinna sínum hugðarefnum þegar aðrir eru farnir að sofa. Þegar á hefur þurft að taka þá kemur í ljós að svefnmunstrið var ekki vegna þess að einstaklingurinn var B-manneskja, heldur var það sjálfvalið munstur. Það þarf að gefa sér smá tíma til að taka á vandanum og þá hafa B-típur orðið að A-típum.
Eftir andvökunótt hentar sumum að fá sér smá blund að degi til, endurnærast og klára daginn í fínu formi, og geta komið reglu á svefninn. Öðrum er smá blundur að degi til ávísun að andvökunótt í kjölfarið. Það getur smám saman breytt svefnmynstrinu og svefninn færst yfir á daginn en vökur á nóttunni.

Hómópatía hjálpar mörgum.
Gott væri ef til væri ein remedía sem hjálpaði við svefnleysi í öllum tilvikum. En þar sem ástæður fyrir svefnleysi er svo margþættar, einstaklingar svo ólíkir og remedíur svo einkenna og orsakatengdar, þá ætlum við að gefa ykkur smá innsýn í þær remedíur sem gætu komið til greina til að hjálpa vegna andvöku og svefntruflana.
Passiflora og Valeriana: Eru slakandi remedíur sem gott er að taka bæði ef erfitt er að festa svefn og einnig ef vaknar að nóttu til og á erfitt með að sofna aftur.
Aconitum napellus: Svefnleysi eftir að fá slæmar fréttir, eftir áfall og eða sorg. Einnig vegna ótta, kvíða og óróleika. Vaknar upp af martröðum. Spennist upp yfir hugsuninni um að sofa lítið eða illa. Hræðsla eða geðshræring verður skyndilega, þegar hann er að falla í svefn og jafnvel getur glaðvaknað upp við þessa tilfinningu.
Arnica: Svefnleysi þegar rúmið er óþægilegt. Ýmis óþægindi í líkamanum t,d, vegna of mikillar áreynslu. Byltir sér í rúminu og finnur enga góða stellingu til að slaka á.
Arsen album: ef einstaklingur er kvíðafullur og upptekinn af smáatriðum og getur því ekki sofnað ef honum finnst eitthvað sé ekki eins og það á að vera. Áhyggjur vegna eigin heilsu. Oft er hann mjög þreyttur en samt eirðarlaus bæði andlega og líkamlega og getur ekki sofið. Dreymir mikið og er kvíðinn,hræddur og óöruggur í svefni. Of heitt undir sænginni.
Avena sativa: Langvarandi (Krónískt) svefnleysi. Eftir miklar áhyggjur, eða andlegt álag. Andleg uppgjöf og innri skjálfti. Svefnleysi aldraðra. Doðatilfinning, höfuðverkur og einbeitingaleysi.
Calcarea phosphorica: Oft eftir veikindi. Börn vegna verkja af tanntöku. Börn með vaxtarverki og fullorðnir með bein- og liðverki, stífleika í hálsi og herðum sem veldur erfiðleikum að sofna. Vaknar fyrir miðnætti og á erfitt með að sofna aftur. Liggur vakandi tímunum saman, verður uppstökkur og pirraður. Þreyttur og erfitt að vakna morguninn eftir, óánægður, tuðandi og kvörtunargjarn. Svefnleysi vegna ákafa, gremju, óróleika eða eftir að hafa móðgast.
Chamomilla: Bráðlynt barn sem neitar að róast. Svefnleysi vegna tanntöku, reiði eða magakrampa. Stynur í svefni og sefur með hálfopin augu. Svefnleysi vegna pirrings og eirðarleysis. Svefnleysi vegna kaffidrykkju. Sefur verr fyrri hluta nætur. Fær oft ógnvekjandi drauma.
Causicum: Barn vaknar fyrri hluta nætur eftir að hafa pissað undir. Viðkvæmt barn vaknar grátandi. Myrkfælinn. Svefnleysi eftir að finnast hafa verið beittur ranglæti.
China: Vökvatap veldur svefntruflunum (svitna mikið, niðurgangur, uppköst eða jafnvel brjóstagjöf). Órólegur svefn. Þreyttur, pirraður, viðkvæmari en venjulega gagnvart hávaða eða hljóðum.
Cocculus: Of þreyttur til að geta sofnað eða sofið. Svefnleysi vegna umönnunar sjúkra. Brjóstagjöf. Eftir langt ferðalag. O.s.frv. Eirðarlaus svefn og vaknar óhvíldur. Erfiðir draumar. Áhyggjufullur (sérlega vegna annarra eða sjúklings). Langvarandi svefnleysi yfirleitt meið svima, máttleysi, erfitt að hugsa skýrt, syfjaður, pirraður og tárast auðveldlega.
Coffea: Erfitt að sofna því hugurinn er vakandi og vinnur á fullu. Getur ekki slakað á vegna tilhlökkunar eða hugmynda. Andlega uppveðraður eða taugatrekktur, spenna í taugakerfi. Léttur svefn sem truflast auðveldlega af umgengni og hljóðum. Líflegir draumar. Óróleiki. Svefnleysi vegna kaffidrykkju eða annarrar koffínneyslu.
Gelsemium: Svefntruflanir eftir slæmar fréttir. Vegna eftirvæntingar. Prófkvíða. Sviðskrekkur. Vegna kvíða eða af áhyggjum. Þreyttur en getur ekki sofið.
Ignatia: Svefnleysi af tilfinningalegu uppnámi t.d. áfalli, eftir rifrildi, tilfinningalegri streitu eða sorg. Vegna vonbrigða eða heimþrár. Viðvæmur og taugatrekktur, andvarpar og geispar yfir daginn en á erfitt að slaka á yfir nóttina. Sefur grunnt með kippum í útlimum. Útlimir á iði og klæjar á meðan reynir að sofna. Erfiðir draumar ganga út á reiði og spennu, martraðir.
Kali phos: Andleg streita eða að hafa unnið yfir sig. Eftir mikil veikindi. Bregður auðveldlega og hrekkur upp af svefni. Máttfarinn og viðkvæmur fyrir öllu áreiti ( hljóði, ljósi, snertingu og verkjum). Einnig vegna kvíða, pirrings eða vöðvapirrings af streitu eða álagi. Martraðir.
Lycopodium: man sjaldnast eftir draumum og efast jafnvel um að hafa sofið. Sefur illa vegna vindgangs og meltingatruflana. Þreyttur eftir máltíðir, en á erfitt með að sofna að nóttu til. Svangur á nóttunni.
Nitric acid: Slitróttur svefn sérlega vegna vaktavinnu eða við að hjúkra sjúkum. Svefnleysi fram eftir nóttu og vaknar þreyttur. Áhyggjufullir draumar.
Lachesis: Svefnvandamál við tíðahvörf.. Nætursviti og hitakóf. Vaknar með áhyggjur og vanlíðan. Vaknar með köfnunartilfinningu.
Nux vomica: Svefnleysi vegna reiði eða andlegs álags. Ef hann er útkeyrður andlega eða líkamlega. Dormar léttum svefni en vaknar eldsnemma, oft um kl. 3 og liggur vakandi. Spenntur, óþolinmóður og pirraður þegar vaknar og finnst ósofinn. Afleiðingar vegna róandi lyfja, áfengisneyslu eða fæðu sem fer illa í viðkomandi. Vegna ofáts og þá sérstaklega eftir sterkan mat.
Phosphoric acid: Svefnleysi vegna streitu vegna of mikillar vinnu, náms, prófa o.fl. Eftir veikindi. Af vökvatapi. Vegna vonbrigða. Vaknar oft og á erfitt með að sofna aftur.
Pulsatilla: Vaknar snemma morguns og getur ekki sofnað aftur vegna þess að hugurinn er á fullu. Svitnar á nóttunni. Órólegur svefn fyrri hluta nætur. Ýmist of heitt eða of kalt. Verri svefn eftir sterka fæðu.
Silica: taugaveiklaður og kemur sér illa að verki. Þreyttur en á erfitt með að sofna. Vaknar skyndilega upp, er heitt á höfðinu og á erfitt með að sofna aftur. Dreymir kvíðaflla drauma og gengur oft í svefni.
Staphysagria: Gremja og reiði heldur viðkomandi vakandi. Svefnleysi eftir skurðaðgerð eða eftir meiðsli. Syfjaður allan daginn en getur ekki sofið á nóttinni. Verkjar allsstaðar sem veldur svefnleysi. Eftir að verða sár eða reiður án þess að geta tjáð sig en hugurinn á fullu.
Sulphur: Vaknar við minnsta hávaða og erfitt með að sofna aftur. Flæði hugmynda varnar svefni. Líflegar martraðir, vaknar snemma, þreyttur þegar vaknar. Kláði um líkamann, er of heitt sérstaklega á fótunum. Pirraður, kvíðinn og vill henda af sér sænginni. Andvaka milli 2 og 5.
Sumbul: Móðursýki og taugaveiklun. Hjartsláttartruflanir. Asmi og finnst vera að kafna.
Thuja: Vaknar snemma en óúthvíldur og oft með höfuðverk og stirðleika. Streita eftir ákafa drauma. Talar í svefni.
Zincum metallicum: Andlegt álag vegna mikillar vinnu, náms eða vegna prófa. Sefur létt og vaknar þreyttur. Mikið hugarflug sem veldur svefnleysi. Erfitt að slaka á v/ streitu. Fótapirringur með kippum um það bil sem er að festa svefn og vekur mann upp í hvert sinn. Er oft og mikið á iði.
Viðkvæmur gagnvart hávaða og hljóðum.

. Þar sem svefn er bæðir mjög mikilvægur fyrir heilsuna og efni varðandi svefn virðist nær óþrjótandi, munum við skipta efninu í 2 pistla og þetta verður sá fyrri. Ýmsum hefur nægt að kaupa sér remedíur í heilsubúðum eða Skipholtsapóteki, en ef það dugar ekki er alveg þess virði að leita til hómópata, sem hefur tök að hafa breyttan styrkleika, eða útbúa blöndu sem gæti unnið betur.
Ekki er úr vegi að nefna að af þessum remedíum vaknar maður ekki þungur eða sljór eins og af ýmsum svefnlyfjum.