Klór / Klóríð
Klóríð er nauðsynlegt steinefni sem hefur fyrst og fremst áhrif á vökvajafnvægi líkamans. Klóríð tengist natríum sem eitt af sameiginlegu klórsamböndum sem er salt NaCl.
Klór er einn af mikilvægustu rafvökum líkamans eins og natríum og hefur áhrif á vökvajafnvægi í líkamanum. Einnig hefur klór áhrif á pH jafnvægi (sýrustig) í líkamanum og meltingarvegi.
Þar sem það stjórnar jafnvægi á vökva- og sýrubasa, hefur það áhrif á meltingarsafa og eðlilega meltingarstarfsemi. Klóríð hefur áhrif varðandi meltingarörvandi ensím sem brýtur niður prótein, frásogar önnur steinefni, B-12 vítamín og fleira.
Í maganum er klóríð í formi saltsýru, sem hjálpar til við að brjóta matvæli niður þannig að þau frásogast í smáþörmum. Hefur einnig áhrif á starfsemi lifrar og fyrir heilbrigði liðamóta og sina. Í lifur getur það til dæmis hjálpað til við að fjarlægja úrgang.
Án klóríðs gæti mannslíkaminn ekki viðhaldið blóðvökva í æðum, sent taugaboð,
hreyft vöðva eða viðhaldið eðlilegri nýrnastarfsemi.
Skortur er í meginatriðum óheyrður í þróuðu ríkjum heimsins, en alvarlegur niðurgangur, uppköst, óhófleg notkun þvagræsilyfja eða hverskonar vökvatap getur orsakað skort. Eitrunareinkenni eru aftur á móti, máttleysi, rugl og falla í dá. Klóríð fáum við úr þangi, jónískum snefil steinefnum, ólífum, rúgi, tómötum, káli, sellerí og vatni. Einnig fengið með inntöku salts og kalíum klóríð. Þess þarf að gæta, að við ofneyslu getur vökvasöfnun orðið mikil sem getur stuðlað að of háum blóðþrýsting.
Ef skortur á sér stað geta afleiðingar verið lífshættulegar. Það kallast alkalosis, þar sem blóð verður óhóflega basískt. Einkenni geta lýst sér sem mikil svitamyndun við áreynslu, langvarandi uppköst og niðurgangur, bráðasýruvandamál sem geta leitt til meltingarvandamála, vöðvaslappleika, vöðvakrampa, sljóleika, mikils drunga og listaleysis. Einnig raskað vökvajafnvægi, hárlos, tannmissir, máttleysi, pirringur, rugl og jafnvel að falla í dá.