• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Króm / Chromium

Skrifað 2010-03-17 · Bætiefni og vítamín

Króm er nauðsynlegt snefilefni.

Króm er nauðsynlegt snefilefni (steinefni) fyrir orkubúskap líkamans.  Króm nýtist líkamanun best í forminu krómíum pikkólínat.  

Það er mikilvægt vegna efnaskipta glúkósa og einnig mikilvægt í efnahvörfum kólesteróls, fitu og próteina. 

Króm er ómissandi snefilefni sem stuðlar að stöðugu blóðsykurmagni með því örva virkni insúlíns í líkamanum.   Ójafnvægi blóðsykurs og insúlíns getur valdið sykursýki og blóðsykurskorti.  Við umbrot sykurs fá vefir og frumur þá orku sem þörf er á við uppbyggingu vöðva og virkni taugakerfisins.

Króm hefur verið notað til að hækka góða kólestrólið (HDL), lækka vonda kólesterólið (LDL) og lækka blóðsykur í blóði.  Talið að geti  dregið úr hættu á slagæðastíflum og hjartasjúkdómum. Aðstoðar við blóðstorknun, vöðva samdrátt og taugaboð, ásamt því að auka virkni ónæmiskerfisins.

Rannsókn leiddi í ljós að gat hjálpað einstaklingum með unglingabólur ef þeir gátu ekki unnið fullnægjandi úr sykri.

Króm í formi króm pikkólínats, hvetur til þyngdartaps og uppbyggingar vöðva.  Of lítið magn króms er sögð ástæða fjölgandi tilfella offitu, blóðsykurskorts, forstigs blóðsykurskorts og sykursýki.  Í bókinni ,,Hættum að eldast” er þeirri kenningu varpað fram  að króm stuðli að langlífi og hægi á öldrun.

Króm er helst að finna í bjór, ölgeri, hýðishrísgrjónum, skelfiski, osti, kjöti, heilu korni, hnetum, þurrkuðum baunum, kálfalifur, kjúklingi, maís og maísolíu, mjólkurafurðum, eggjum, sveppum, eplum, bönunum og kartöflum.

Því miður inniheldur fæðan ekki alltaf það króm sem eðlilegt mætti teljast, vegna krómskorts í jarðvegi.

Krómskortur er mjög sjaldgæfur en einkenni geta verið gláka, kvíði, þreyta, sykuróþol, óeðlileg efnaskipti amínosýra og aukin hætta á beingisnun.

Á meðgöngu og við óhóflega neyslu áfengis eru þeir tveir þættir sem geta valdið því að einstaklingur þrói með sér króm skort. Þegar svo er komið, eru einkennin tíð þvaglát, blóðsykurslækkandi einkenni svo sem óslökkvandi þorsti, taugaveiklun og vanhæfni til að þola áfengi.

Ráðlagðir dagsskammtar eru:

Ungbörn 0-6 mánaða: 10-40 mg
Ungbörn 6-12 mánaða: 20-60 mg
Börn 1-3 ára: 20-80 mg
Börn 4-6 ára: 30-120 mg
Bæði kyn 7 ára og eldri: 50-200 mg

Hvítur sykur, hvítt hveiti, hreyfingarleysi og sjoppufæði eru gagnvirk krómi.

Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).