B-17 / Laetrile vítamín
Vítamín B-17 / Laetrile (nitriloside, amygdaline) er vatnsleysanlegt vítamín, en ekki neitt eiturefni og því merkilegt hve fáir þekkja það. Það safnast ekki upp í líkamanum heldur hreinsast út með þvagi. Í því eru efnasambönd sem finnast í yfir 800 plöntum sem margar hverjar eru ætar. Þessi efnasambönd eru sameiginlega þekkt sem Beta-cyanophoric glycosides.
Sumir heilbrigðisstarfsmenn og óhefðbundnir meðferðaraðilar hafa bent á að Vítamín B-17 geti verið náttúruleg lækning fyrir krabbamein sem inniheldur krabbameins-hamlandi efni. Þetta hefur verið vitað og eru Apríkósukjarnar sérstaklega þekktir fyrir þessa virkni.
En það var tekið út af markaðnum vegna þess að sum efnasambönd eins og Cianide gætu verið heilsuskaðandi. Formlegar vísindalegar rannsóknir hafa ekki staðfest vítamínið B-17 og jafnvel bannað að benda á það sem heilsubætandi efni, en jafnframt hefur ekki heldur verið vilji fyrir frekari rannsóknum.
Í Navajo á Indlandi og Hunzas á Abkhasian og fleiri stöðum þar sem þessar fæðutegundir hafa verið mikið notaðar, hefur þó vakið athygli að ekki hafa verið tilkynnt um nein krabbameinstilfelli. Læknar og vísindamenn sem búa meðal þessara þjóðflokka eru nú að rannsaka þessa einstaklinga.
Mest áberandi áhrifin af þessu vítamíni er þó lækkandi blóðþrýstingur, styrking ónæmiskerfisins, öflugra almennt heilbrigði og vellíðan. Einnig hefur þetta verið lausn fyrir suma langvarandi efnaskiptasjúkdóma.
Jafnvel þó Vítamín B-17 sé ekki fáanlegt sem bætiefni, er hægt að finna það í daglegri fæðu.
Þó það sé ekki viðurkennt sem heilsubætandi, hvorki fyrir krabbamein né önnur heilsuröskun, eru margir sem hafa áhuga á óhefðbundnum forvörnum og meðferðum hafa bent á apríkósukjarna og fræ flestra ávaxta sem innihalda mikið magn af nitrilosides. Það finnst einnig í fæðutegundum eins og til dæmis möndlum, hnetum, valhnetum, pecanhnetum, grænmeti, fræjum, ferskjukjörnum, bambussprotum og alfalfa spírum. Einnig finnst það sumum ávöxtum, jarðarberjum, brómberjum, trönuberjum, kúrenum, bóghveiti, linsubaunum, hirsi, vætukarsa, kínverskum kartöflum. 
Þessar vörur innihalda einnig fleiri nauðsinleg næringarefni, steinefni og prótein sem styðja við líkamlegt heilbrigði. Við höfum lagt það í vana okkar að henda fræjum og kjörnum þegar við borðum ávaxtina, en það skyldum við ekki gera heldur reyna að finna aðferð til að neyta þeirra.
Ekki er mikil hætta á að borða of mikið af þessu vítamíni úr fæðunni þar sem mest er af því í fræjum og kjörnum. Þú myndir til dæmis ekki borða eplakjarna úr 50 eplum daglega.