28 Svefntruflanir
Kæfisvefn er meðal algengari heilsufarsvandamála hjá miðaldra fólki
Kæfisvefn og öndunartruflanir

Á síðustu tveim áratugum hefur verið vitað um öndunartruflanir í svefni. Algengast er öndunarhlé sem varir í tíu sekúndur eða lengur. Ef þetta gerist oftar en 30 sinnum yfir nóttina samhliða óværum svefni, hrotum og dagsyfju, er ástandið kallað kæfisvefn (sleep apnea syndrome).
Kæfisvefn er meðal algengari heilsufarsvandamála hjá miðaldra fólki en það getur hrjáð fólk á öllum aldri. Börn geta einnig verið með kæfisvefn og yfir 2% barna þjást af öndunarerfiðleikum í svefni.
Háværar hrotur er einnig algengt vandamál marga. Samkvæmt rannsóknum bendir til þess að 1 af hverjum 7 körlum og 1 af herjum 10 konum, eigi við hrotuvandamál að stríða. Börn geta einnig verið með kæfisvefn og yfir 2% barna þjást af öndunarerfiðleikum í svefni af ýmsum ástæðum.
Ýmislegt getur valdið kæfisvefni en fyrst og fremst eru það þrengsli innan í efri loftveg, sem stuðla að kæfisvefni. Þetta á sér stað flestar nætur, en er mun verra ef einstaklingur er mjög þreyttur, eftir langvarandi vansvefn, áfengisneyslu eða við notkun svefnlyfja.
Afleiðingar eru misjafnar en það fer eftir hve alvarlegur kæfisvefninn er. Þær geta verið allt frá þreytu og dagsyfju, upp í háan blóðþrýsting og sjúkdóma í hjarta og æðakerfi. Viðkomandi ætti þá að fara í rannsókn, þar sem fylgst er með öndun og súrefnismettun yfir heila nótt. Samkvæmt niðurstöðum sem koma úr þeirri rannsókn, er framhaldið ákveðið.
Í einstöku tilfella getur verið ástæða til að leita háls- nef- og eyrnalæknis, en algengt er að í framhaldi þessara rannsókna fái einstaklingur öndunarbúnað þegar þeir sofa. Þetta er vél sem með aðstoð loftblásara eykur þrýsting á innöndunarlofti. Sjúklingur sefur með grímu sem tengd er við öndunarvélina. Meðferð og eftirlit fer fram á vegum lungnadeildar Landspítalans.
Ef einstaklingur hrýtur en á ekki vanda til öndunarstoppa, eða þjáist af dagsyfju, þá er yfirleitt ekki ástæða til að leita læknis. Þó getur verið ástæða til að ráðfæra sig við lækni, ef hávaðinn truflar svefnfrið annarra heimilismeðlima.
Yfirleitt tengist dagsyfja einhverskonar vansvefni. Svefnþörfin er mjög einstaklingsbundin, en flestir þurfa 8 tíma svefn á hverri nóttu. Erlendar rannsóknir benda til þess að allt að 86% yngra fólks sofi að jafnaði of lítið. Ekki þarf mikið til þess að áhrif svefnleysis geri vart við sig. Það getur haft áhrif á skaplyndi, árvekni og viðbragðsflýti. Helst gætir áhrifanna við löng einhæf verkefni eða langa keyrslu. Ekki þarf að dotta nema í örfáar sekúndur til þess að valda alvarlegu slysi.

Svefntruflanir og slæmar svefnvenjur.
Svefn hefur verið tekinn sem sjálfsagður hlutur, og svefnmagn hefur verið jafnað við svefngæði, en það er ekki alveg það sama. Helstu svefntruflanir eru svefnleysi, svefnsýki, kæfisvefn, fótaóeirð og svefngöngur. Hitakóf valda konum oft svefnerfiðleikum á tímabili tíðahvarfa, ásamt verkjum, næturþvaglátum, andþyngslum o.fl. Einnig aukast svefntruflanir oft með aldrinum og eiga þá margir erfiðara með að sofna og vakna oftar upp á nóttunni.
Slæmar svefnvenjur geta valdið dagsyfju. Fólk sefur eðlilega, en fer seint að sofa og þarf að vakna til vinnu eða skóla. Ef það leggur sig á daginn, veldur það því að viðkomandi er ekki syfjaður á eðlilegum svefntíma. Of stuttur eða óendurnærandi svefn er mun algengari en fólk gerir sér grein fyrir .
Svefnleysi hrjáir marga ýmist til skamms eða til lengri tíma. Þeir berjast við að festa svefn, bylta sér í lengri tíma og ná ekki að sofna. Við þetta skapast vítahringur þar sem áhyggjur af því að geta ekki sofnað valda því að erfiðara er að sofna. Margir eiga í erfiðleikum með að fá endurnærandi svefn, því streita eða aðrar ástæður geta valdið því að fólk nær ekki djúpum svefni og góðri hvíld.
Einnig er hægt að sofa óendurnærandi svefni í níu klukkutíma. Því veldur t.d. kæfisvefn, þar sem einstaklingur rumskar sífellt og nær sjaldnar djúpum svefni og hvílist síður. Það eina sem þeir vita er að þeir lögðust á koddann og sofnuðu fljótt, en vöknuðu þreyttir. Það eina sem þeir frétta af sínum svefni er að makinn kvartar undan háværum hrotum. Síendurtekin öndunarhlé draga úr hlutfalli súrefnis í blóðinu og hafa rannsóknir tengt ýmsa hjarta- og æðasjúkdóma við kæfisvefninn ef ekkert er aðhafst.
Hvað gæti hjálpað?

Best er að hafa fastar svefnvenjur og fara helst alltaf að sofa á sama tíma (líka um helgar ef hægt er). Drekka ekki koffíndrykki eftir kvöldmat og borða ekki kvöldmat of seint. Gott að fá sér heitt að drekka fyrir svefninn (ekki koffíndrykki né alkahól). Hafa hæfilegt hitastig í herberginu og nota eyrnatappa ef þörf er á. Rúm þarf að vera þægilegt. Ekki rembast við að sofna, heldur einbeittu þér að slaka á og andaðu djúpt og reglulega og einbeittu huganum að önduninni. Ef þú heldur huganum við öndunina og finnur hvernig loftið fyllir lungun, dregur það úr því að hugsanir þvælist fyrir þér. Ekki taka vinnuna með þér í rúmið og ef þú hefur áhyggjur, ljúktu við að fara yfir þau mál og skrifa niður það sem þú þarft, áður en þú ferð í rúmið. Þú leysir engan vanda í rúminu. Ef þú vaknar upp á nóttunni og getur ekki sofnað aftur, útbúðu þér heitt að drekka og fáðu þér leiðinlega bók að lesa.
Ekki má gleyma að minnast á remedíurnar sem sagt var frá í síðasta pistli F-25. Svefnvandamál. Hómópatar eru svo ávallt tilbúnir til að aðstoða við að finna út remedíur og styrkleika fyrir hvern og einn.
Bestu kveðjur
Sigrún Árnadóttir og Sigríður Bjarnadóttir
Hómópatar LCPH.