Aspartam - sætuefni
Aspartam er framleitt undir ýmsum nöfnum eins og Equal, Nutrasweet, Spoonful, Indulge, Equal-Measure og fleiri nöfnum.
Aspartam er útbreiddasta sætuefni sem framleitt er og hefur um 50% af heimsmarkaði frá því það var kynnt árið 1981. Það fæst í 90 löndum í yfir 5000 framleiðsluvörum.
Aspartam er verksmiðjuframleitt, næringarlaust sætuefni sem hefur verið markaðssett undir mismunandi heitum eins og Equal, Nutrasweet, Spoonful, Indulge, Equal-Measure og fleiri nöfnum. Þetta efni er notað í fjölda fæðutegunda, tyggigúmmí og jafnvel í vítamín fyrir börn.
Aspartam var uppgötvað árið 1965, þegar James Schlatter, efnafræðingur frá G.D. Searle Company var að vinna að þróun sáralyfs. Óvart sleikti hann fingurinn og kemst þá að því að þetta efni er verulega sætt á bragðið.
Þetta var sko frábært, að finna efni sem er 180 sinnum sætara en sykur en inniheldur engar hitaeiningar.
Orðrómur um markaðssetningu.
Fyrirtækið leggur nú í rannsóknir á Aspartam til að leggja fram sönnun fyrir bandaríska Matvæla- og Lyfjaeftirlitið (FDA) um öryggi þess til neyslu. 1973 er síðan óskað eftir leyfi til að markaðssetja Aspartam. Niðurstöður fjölda rannsókna varðandi öryggi þess voru lagðar fram með umsókninni og ári síðar fær
Searle markaðsleyfi. En ekki leið nema ár þegar ábendingar koma fram sem valda því að FDA setur á stofn nefnd til að rannsaka Searle vegna gruns um óheiðarleg vinnubrögð og þá sérstaklega á rannsóknum Aspartams. Nefndin leggur fram skýrslu sem staðfestir þessi svikulu vinnubrögð lyfjafyrirtækisins og að vísvitandi hafði verið haldið eftir niðurstöðum sem sýndu fram á skaðsemi efnisins. Til dæmis, eins og síðar kom í ljós höfðu ekki verið lögð fram gögn um þau dýr sem fengu flogaveiki, skemmdir í heila eða dóu svo dæmi sé nefnt.
FDA fer fram á rannsókn fyrirtækisins vegna glæpsamlegs athæfis og önnur nefnd er sett á fót til rannsóknar á Aspartam. Sú nefnd komst að sömu niðurstöðu og sú fyrri um að lagðar hafi verið fram falsaðar niðurstöður vegna öryggis til neyslu.
En þá gerist það að G.D. Searle Company leitar til Donalds Runsfelds (fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna) til að taka að sér stjórn fyrirtækisins. Fljótlega tekur Samuel Skinner ríkissaksóknari málið að sér, en segir nokkru síðar starfi sínu lausu og fer að vinna hjá lögfræðifyrirtæki (Sidley & Austin) sem tekur að sér að verja G.D. Searle Company varðandi ákæru FDA. Undirmaður Samuels, Willian Conlon tók við starfi hans hjá G.D. Searle Company og tefur málið eins og hann getur þar til FDA hefur tapað málinu. Stuttu síðar fer William Conlon að vinna við hlið vinar síns hjá Sidley & Austin.
September 1980 gefur FDA einróma niðurstöðu um að Aspartam fái ekki leyfi til markaðssetningar nema að sýna fram á öryggi þess. Donald Rumsfeld lýsti því yfir á sölufundi. að hann muni innleysa greiða sem hann eigi inni og muni fá leyfi fyrir Aspartam innan árs. Eitt af fyrstu verkum nýs forseta Ronalds Regan er að taka þáverandi yfirmann FDA úr embætti sínu og setja sinn mann Arthur Hull Hayes í staðinn. Eftir sorglegt og óheiðarlegt ferli fær Aspartam viðurkenningu. Árið 1987 unnu 10 opinberir lykilmenn við að fá Aspartam samþykkt, hjá fyrirtækjum tengdum Aspartamiðnaðinum. Allt bendir til þess að Aspartam hafi frekar komist á markað vegna pólitískra áhrifa fremur en af vísindalegum niðurstöðum.
Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar af fjölda virtra rannsóknaraðila, sem sýna niðurstöður hættulegra áhrifa Aspartams. En allar niðurstöður varðandi þetta efni eins og allt annað þar sem um fjárhagslegan ávinning er að ræða, þá er fjármagnið og pólitíkin áhrifaríkari til auglýsingaherferða og til að telja fólki trú um að þessar rannsóknir séu ómarktækar.
Þetta fæðubótarefi gefur framleiðendum sínum til dæmis það mikla fjármuni, að vert er að berjast fyrir þeim með kjafti og klóm. Peningar valda því að ekki er hirt um þó milljónir manna verða fyrir heilsutjóni af völdum þess. En peningar eru nægir til að efla allar þær auglýsinga- og söluherferðir sem þarf til þess að sannfæra heilbrigðis- og matvælafræðinga um ágæti þessa efnis.
Aspartam og innihaldsefni.
Aspartam (C14H1805:-L-Aspartyl-L-Phenylalanine Methyl Ester) inniheldur 3 efni. Þau eru 1: Aspartic acid / Aspartiksýra 2: Phenyllalanine / Fenalalanín 3: Methanol / Tréspíritus.
Af niðurbrotsefnum þessara efna eru til dæmis Formaldehyde / formalehýð - Formic acid / maurasýra -
Diketopiperazine (krabbameinsvaldandi efni).
Öll þessi efni fyrirfinnast reyndar á náttúrunni og á sannfærandi hátt reyna fylgismenn Aspartams að líkja því við afurðir eins og mjólk og tómatsafa. En ef þeir væru heiðarlegir myndu þeir einnig segja að samsetning Aspartams er í engu náttúrulegt form.
Fenalalanín (50% af innihaldi) er amínósýra sem er reyndar uppbyggingarefni próteins, en þeir sem hafa sjúkdóminn PKU mega ekki neyta þessa efnis þar sem þau geta ekki unnið úr því. Það safnast saman í líkamanum og veldur skemmdum á taugakerfinu. Fenalalanín getur einnig hindrað myndun hormónsins seratónín, sem er nauðsynlegt fyrir gleðitilfinningar og við lækkun þess er hætta á þunglyndi og geðrænum vandamálum.
Aspartiksýra (40% af innihaldi) er einnig amínósýra. Aspartiksýra og glútamiksýra hafa samskonar hlutverk í líkamanum að vera taugaboðefni. Aðal innihals glútamiksýru er MSG þriðja kryddið. Þegar þess er neytt aukast viss taugaboðefni og við það örfast taugafrumur sem geta eyðilagst í kjölfarið. Þess vegna tilheyra aspartiksýra og glútamiksýra til excitotoxina sem er eitur og hefur eyðileggjandi áhrif á taugavefi.
Reynt er að telja fólki trú um þessar amínósýrur séu í fæðu sem við neytum eins og til dæmis mjólk og kjöti. Ekki er tekið með í dæmið að í fæðunni eru Fenalalanín og aspartiksýra eru bundnar öðrum amínósýrum í löngum próteinkeðjum sem losna mjög hægt inn í líkamann til að nýtast líkamsstarfseminni á eðlilegan máta. Þegar Aspartams er neytt fara þessar amínósýrur óbundnar út í blóðrásina í miklu magni og það er mjög ólíkt.
Tréspíri / metanól (10% af innihaldi) er það efni sem viðurkennt er mjög skaðlegt efni og jafnvel banvænt í of miklu magni. Metanól breytist í formalín í líkamanum og síðan í maurasýru. Þetta eru þekkt eiturefni sem skemma taugakerfið, frumur og eru krabbameinsvaldandi. Þeir sem tala fyrir Aspartami segja að tréspírinn safnist ekki fyrir í líkamanum og benda á að 6 sinnum meira magna af metanóli sé í sambærilegu magni af diet gosi og því ætti þetta ekki valda nokkrum skaða. Það er rétt að tómatsafi inniheldur 6 sinnum meira
magn af tréspíritus en diet gos, en þeir segja ekki frá því að í tómatsafa er einnig ethanós sem hlutleysir metanólið eins og basi hlutleysir sýru. Einnig er talið að pektín sem er í tómatsafanum hjálpi til við að binda metanól, þannig að skaði hljótist ekki af því. Tréspírinn í Aspartam er óbundinn og uppsogast hratt inn í líkamann og binst vefjum líkamans. Samanburður er því ekki réttlætanlegur og ekki raunhæfur.
Merkilegt er að hér á landi eru fjöldi náttúrulegra efna bönnuð vegna möguleika á aukaverkunum (en ekki tekið með í dæmið að neyta þarf þess í svo miklu magni að enginn getur nokkru sinni innibirgt slíkt magn), á meðan önnur efni sem fjölda rannsóknir hafa sýnt fram á að séu mjög varasöm til neyslu eru leyfð og jafnvel hvatt til neyslu þeirra.
Aspartam og afleiðingar.
Rannsóknir á Aspartam hafa sýnt fram á að eituráhrifin geta verið fjölbreytt en þau alvarlegustu eru talin vera, raskað hormónajafnvægi, taugaskemmdir og krabbamein. Einnig eru til rannsóknir sem styðja tilvist aukaverkana af völdum Aspartams sem eru meðal annars: höfuðverkir, hækkun blóðþrýstings, hjartsláttartruflanir, svimi og jafnvægisskerðing, þreyta og almennur slappleiki, svefntruflanir, skapgerðarbreytingar, þunglyndi og minnistap. Einnig krampar og flog, vöðvaslappleiki, vöðva- og
liðamótaverkir, staðbundnar bólgur, magaverkir og magakrampar, flökurleiki og uppköst, niðurgangur, sjóntruflanir, sjónbreytingar og sjónskerðing. Einnig doði, misst bragðskin, heyrnaskerðing, eyrnasuð, kvíðaröskun, öndunarerfiðleikar, málerfiðleikar og útbrot. .
Ein af aukaverkunum sem fólk á erfitt með að átta sig á er þyngdaraukning. Það hafa bæði rannsóknir á mönnum og dýrum sýnt.
Greinar birtust í vísindatímaritunum The Journal of Neuropathology og Experimental Neurology eftir Dr. John W. Olney þar sem sýnt er fram á niðurstöður rannsókna sem sýna samband milli beinnar aukningar á neyslu Aspartams og aukningu á sjaldgæfum heilakrabbameinum. Þetta sýndi þann möguleika á að Aspartam geti valdið heilakrabbameini. Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á tengsl geti verið við ýmsa sjúkdóma eins og flogaveiki, Parkinson´s, Alzheimer, MS-sjúkdómsins, síþreytu og vefjagigtar.
Sætuefnin fjölga fyrirburum
Neysla á svokölluðum diet-drykkjum á meðgöngu getur aukið líkur á fyrirburafæðingum um 78 prósent samkvæmt nýrri rannsókn sem birt er í læknatímaritinu American Journal of Clinical Nutrition. Rannsóknin var unnin sem samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Statens Serum Institut í Danmörku og Harvard-háskóla. Um 60 þúsund konur tóku þátt.
Rannsókn Victoriu Inness-Brown
Hægt væri að skrifa fjölda síðna um Aspartam en niðurstöður rannsókna og greinar eru óteljandi, þar sem hægt er að fá nánari upplýsingar. Því ætla ég ekki að hafa þetta mikið lengra, en að lokum ætla ég aðeins að minnast á rannsókn sem gerð var af Victoriu Inness-Brown.

Hún gerði rannsókn á 108 rottum í 2 ár og 8 mánuði. Rotturnar voru fengnar af viðurkenndum afbrigðum fyrir tilraunastofur. Af þeim ræktaði hún rottur af kostgæfni til að forðast skyldleika og einnig til að fá fleiri afbrigði. Þetta gerði hún til að forðast hættu á veikleika dýranna og fá sem heilbrigðustu einstaklinga. Daglega gaf hún rottunum visst magn af Aspartam miðað við líkamsþyngd og tveir þriðju þess magns af Aspartam var í formi Diet-gosdrykkja. Magnið af Aspartam var minna en ef maður drykki eina flösku af diet kók á dag. Því var ekki blandað saman við matinn heldur eingöngu blandað hreinu Aspartam saman við drykkjarvatnið til að auðvelda eftirlit þess magns sem þær fengju.
37% rottanna fengu mismunandi krabbameinsæxli. En það sem er mikilvægt er að þeir hópar sem fengu ekkert Aspartam fengu engin einkenni. Við mennirnir viljum alltaf hafa sjáanleg og áþreifanleg einkenni til að trúa því sem okkur er sagt og eftirfarandi myndir gerir þetta nokkuð vel sjáanlegt.

Meðal einkenna sýndi tölfræðilega niðurstöðu á aukningu á brjóstakrabbameini og hvítblæði í kvenrottum.
Einnig var áberandi krabbamein í andliti, augum.
Taugaskemmdir sem ullu lömunum á útlimum var mjög algengt. Einnig spasmi af tegundinni Torticollis sem er sársaukafull lamandi taugatruflun sem orsakast af starfstruflun heilans.

Mörg dýranna þjáðust af mikilli offitu og húð og feldir sýndu áberandi sáramyndanir og sjúkleika.
Afkvæmi fóru að koma undan sýktum einstaklingum þar sem ýmis líkamlegur vanskapnaður fór að koma í ljós. Þessi vanskapnaður var ekki tengdur stöku dýri heldur virtist einkennin verða genatísk.
Hugsi svo hver sem vill um afleiðingar Aspartams og taki eigin afstöðu.