• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Kopar / Copper

Skrifað 2010-03-25 · Bætiefni og vítamín

Kopar /  Copper  / Koparglúkonat / Cuprum  -  er mikilvægt snefilefni

Kopar er rauðleitur málmur með mikla raf- og varmaleiðni. Ef kopar er blandaður með sínki kallast blandan messing, en ef hann er blandaður með tini þá nefnist það brons.  Koparsúlfat sem er blanda úr kopar og brennisteinssýru, var á árum áður notað gegn bakteríu- og sveppasýkingum í húð og augum.  Einnig notað til að framkalla uppköst.

Sýnt hefur verið fram á að sínk er einhvers konar andefni kopars. Ýmis önnur efni draga úr frásogi kopars úr meltingarvegi, eins og til dæmis járn, C-vítamín, ávaxtasykur og trefjar.

Í fullvöxnum manni er um 80 mg af kopar aðallega í lifrinni og heilanum.  Kopar er sérlega mikill í lifur hjá fóstrum og nýburum, sem talið er að sé forði meðan á brjóstagjöf stendur þar sem koparupptaka er lítil.

Kopar er mikilvægt snefilefni við myndun beina, blóðrauða og rauðra blóðkorna.  Í samvirkni með sinki og C-vítamíni mynda þau elastín sem stýrir myndun bandvefs. 

Kopar er í vissum ensímum sem verja líkamann gegn sindurefnum sem eru skaðleg úrgangsefni úr frumum.  Of mikill kopar getur aftur á móti myndað skaðleg sindurefni með oxun.

Kopar er í vissum ensímum sem eru mikilvæg fyrir myndum adrenalíns og boðefnanna dópamíns og noradrenalíns í heila og nýrnahettum.  Þessi efni hafa áhrif sem boðefni frá taugafrumum þegar sléttu vöðvarnir í æðaveggjunum dragast saman við blóðþrýstingsjöfnun.  Einnig hafa þau áhrif þegar hárin rísa á handleggjunum vegna kulda.

Kopar er nauðsynlegur vegna myndunar og eðlilegrar starfsemi hemóglóbíns sem flytur súrefni með blóðinu.  Einnig gegnir hann stóru hlutverki við myndun bandvefs.  Hann er mjög virkur sindurvari í blóði og kemur í veg fyrir oxunarskemmdir af völdum járns í líkamanum

Kopar stuðlar að heilbrigði heila, tauga og beina.  Hann er nauðsynlegur til að nýta járn, fyrir orkuframleiðslu líkamans, bragðskynið, eðlileg bataferli og eðlilegan lit bæði hárs og húðar. 

Kopar er talinn hafa áhrif á liðagigt, sár á húð og blóðleysi.  Talið að kopar geti dregið úr bólgum í liðum og því dregið úr liðverkjum.

Kopar finnst víða eins og til dæmis í möndlum, hnetum, baunum, sojabaunum, linsum, byggi, höfrum, mólassa, spergilkáli, grænu laufguðu grænmeti, radísum, hvítlauk, sveppum, avakadó, appelsínum, sveskjum, rúsínum, laxi, skelfiski, sjávarfangi, og innmat (lifur og nýrum).

Skortur er fremur sjaldgæfur þar sem hann er í fjölmörgum fæðutegundum.  Helst hefur koparskorts orðið vart hjá sjúklingum sem fá eingöngu næringu í æð. 

Skortur getur valdið dvergkornablóðleysi (mycrocytik anemia) sem er blóðskortur af smækkun rauðra blóðkorna meðal annars af járnskorti, en það getur valdið beinþynningu og aukinni sýkingarhættu.  Einnig getur hann valdið daufkyrningafæð (neutropenia) sem stafar af of fáum hvítum blóðkornum af vissri gerð og getur valdið hita, tannholdssýkingum eða sýkingu í slímhimnu munnhols.  

Skortur getur verið einn af stærri áhættuþáttum varðandi hækkun blóðfitu, fituhrörnun æða og ýmsum hjarta og æðasjúkdómum.  En skortseinkenni lýsa sér í blóðleysi, bjúgur, beinþynning, hárlos, meltingartruflanir, niðurgangur, slappleiki, sáramyndun á húð, lækkun á HDL góða kólesterólinu og hækkun á LDL slæma kólesterólinu, auk áður nefndra hjarta- og æðasjúkdóma.   Einnig hefur orðið vart við að fólk með glúteinóþol mælist með lítil magn kopars.

Menkes-veiki stafar af koparskorti vegna slæmrar koparupptöku í meltingarvegi.

Of mikill Kopar getur valdið oxun í líkamanum. Einnig geta koparjónir verið ertandi fyrir slímhimnu þarmanna og valdið uppsölum og niðurgangi.  Aftur á móti hjá einstaklingum með Wilsonsjúkdóminn, sem er sjaldgæfur erfðasjúkdómur getur kopar safnast fyrir í lifur og heila og þá valdið skemmdum.

Ef of mikill kopar mælist í blóði hjá sjúklingum sem þjást af sjúkdómum sem herja á ónæmiskerfið geta einkenni til dæmis verið veirusýking, liðagigt eða rauðir úlfar, en ástæða þessa er ókunn.    Einnig eru einkenni til dæmis frá nýrum sem geta lýst sér sem þvagþurrð, frá lifur sem veldur gulu og frá blóðrás sem lýsir sér sem blóðþrýstingslækkun, skorti á rauðum blóðkornum eða jafnvel dauða.

Kranavatn sem er mjög koparmengað úr koparrörum, getur valdið niðurgangi hjá smábörnum.  Erfitt getur verið að eyða kopar úr líkamanum.


Ráðlagðir dagsskammtar eru:

Ungbörn 0-6 mánaða    0,4-0,6 mg
Ungbörn 6-12 mánaða  0,6-0,7 mg
Börn 1-3 ára                     0,7-1,0 mg
Börn 4-6 ára                    1,0-1,5 mg
Börn 7-10 ára                  1,5-2,5 mg
Bæði kyn 11 ára +eldri  1,5-3,0 mg

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).