• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Hómópatía fyrir dýr

Skrifað 2010-03-28 · Dýr

Þegar dýr eru meðhöndluð með hómópatíu gilda sömu grundvallarreglur og fyrir fólk.

Þó hómópatía hafi aðallega verið orðuð við smáskammtalækningar fyrir fólk, þá er hún ekki síður góð fyrir dýrin okkar.  Í Frakklandi og Belgíu eru til dæmis hómópataskólar sem eru sérstaklega fyrir dýralækna.  Þar nota sumir dýralæknar hómópatíuna samhliða hefðbundnum lækningum.

Hómópatía eða smáskammtalækningar, er rúmlega 200 ára grein sem byggir á kenningum og rannsóknum Christians Hahnemann, en hann starfaði í Þýskalandi á síðari hluta 18. aldar og fram á 19. öld. (1755 - 1843.)  Hann var þýskur læknir og efnafræðingur, en starfaði lengst af við rannsóknir.

Grunnefnin sem notuð eru í hómópatíu eru rúmlega 5.000 talsins, ýmist úr jurta, steina eða dýraríkinu, og styrkleikar miðast við þarfir hvers einstaklings fyrir sig.  Þetta er því afar milt meðferðarform, og er bæði notuð varðandi bráðatilfelli og krónísk tilfelli.

Þegar dýr eru meðhöndluð með hómópatíu gilda sömu grundvallarreglur og fyrir fólk.  En dýrin geta ekki talað og samkvæmt uppeldi hvers og eins geta tjáningarform verið breytilegt.   Þess vegna reynir á eigendur dýranna, að útskýra sem best fyrir hómópatanum, hvað er um að vera, hvernig einkennin lýsa sér, geðslag dýrsins, niðurstöður úr rannsóknum ef þær eru til staðar, reyna að útskýra þær breytingar sem hafa orðið á dýrinu, líðan og ýmislegt fleira.

Þetta er nauðsynlegt, því segja má að hver meðferð er eins og klæðskerasniðin fyrir hvern einstakling.  Til dæmis má nefna að einkenni hjá dýrum með eyrnasýkingu geta verið margbreytileg sem þurfa mismunandi meðhöndlun.  Dýrið getur verið með hita eða verið hitalaust, það getur verið vond lykt úr eyra eða engin lykt.  Sýking getur verið í ytra eða innra eyra, útskilnaður getur verið ýmist ljós eða dökkur.  Vill dýrið liggja og forðast kjass, eða vælir það og vill hafa einhvern hjá sér.  Og allt getur skiptir máli varðandi hvað dýrinu er gefið.

Remedíurnar hafa engar aukaverkanir, sem sljóvga eða trufla einstaklinginn, og hafa fremur uppbyggjandi áhrif á ónæmiskerfið, heldur en að brjóta það niður.

Það er einnig mikilvægt að gera sér grein fyrir, að hómópatísk meðferð hefur ekki neikvæð áhrif á lyf eða lækningu hefðbundinna læknismeðferða.  Við höfum líka, svo sannarlega í huga, að dýralæknar eru ómissandi og við ætlum ekki að grípa fram fyrir hendurnar á þeim.   Það er svo margt sem þeir geta gert og rannsakað, sem við hómópatar getum ekki.  En við getum létt mikið undir, með líðan og aðra minni kvilla.

Ekki eru bara smærri dýr sem hafa notið góðs af þessu meðferðarformi.  Sumir hómópatar hafa til dæmis stundað hesta með góðum árangri.

Sumir halda, að með því að leita til hómópata, ættu einkenni að hverfa á örfáum klukkustundum.  Í sumum tilvikum geta einkenni horfið á stuttum tíma, en í öðrum tilfellum, til dæmis þegar um langvarandi sjúkdóma er að ræða, getur tekið lengri tíma áður en sjáanlegar breytingar verða.  Og því miður eru sum tilfelli þar sem enginn árangur næst.

Eins og hjá mönnunum þarf ekki að vera um alvarlega sjúkdóma að ræða til að draga úr lífsgæðum dýranna.  Margir hundar hafa til dæmis þjáðst af gigt og stirðleika.  Þeir eiga sumir erfitt með að hreyfa sig og hvað þá að hoppa upp í bíl.  En margir hafa orðið mun hressari og liðið betur við hómópatíska meðhöndlun.

Forvarnir og aðhlynning.

En það er fleira sem þarf að hafa í huga þegar heimilisdýr virðast í auknu mæli þjást af ýmsum kvillum og sjúkdómum, auk þess að offita er oft stórt vandamál.  Húðvandamál og ofnæmi eru til dæmis algeng vandamál í dag.  Það getur lýst sér sem kláði, rauðir flekkir, litlaust hár, flasa eða hármissir.  Sorglegt að mörg af þessum tilfellum má tengja fóðrinu og í sumum tilfellum lyfjanotkun.  Það þarf að taka alvarlega því þetta geta verið merki um ójafnvægi í líkamanum  varðandi þau næringarefni sem dýrin þarfnast til að viðhalda heilbrigði, eða annað ójafnvægi.

Bæði til að bæta það sem aflaga hefur farið og einnig sem forvörn mætti hugleiða að í dýrafóðri eru stundum skaðleg efni sem alls ekki ættu að vera í matnum.  Þarf því sérstaklega að vanda valið.  Þessi efni geta valdið ýmsum kvillum og veikindum sem valda því svo að við leitum til dýralækna sem gefa þeim lyf sem einnig hafa áhrif á dýrin með ýmsum aukaverkunum.   Einnig skal forðast að gefa dýrum sykur því hann er algert eitur fyrir þau.

Ráðlagt hefur verið, að gott þurrfóður sé það besta fyrir dýrin okkar auk þess að vera auðveldasti mátinn við að gefa þeim að éta.  En ef við hugum að því hvernig náttúran ætlar þeim að nærast þá er það ekki með þurrfóðri.  Ferskt grænmeti og ávextir eru til dæmis eitthvað sem margir átta sig ekki á að dýrin okkar kunni að meta.  Krydd og olíur á fisk og kjöt, er ekki holt né ætlað dýrum úr náttúrunni.  Það sama gildir um heimilisdýrin og því eru ekki allir matarafgangar æskilegir.  Kjöt og fiskur ætti því að vera ómengað af öllum auka efnum.

Hægt er að fá náttúrulegar steinefna- og vítamínblöndur en eins er með dýrin og mennina að of mikið magn getur einnig verið skaðlegt á sama hátt og skortur því við þurfum rétt magn og jafnvægi.

Í byrjun á breyttu mataræði getur feldurinn breyst og verður oft fitugur í smá tíma og þau geta jafnvel alveg skipt um feld.  Þetta er oft gott merki um að þau eru að losa sig við eiturefni og ónæmiskerfið er að byggjast upp.

Þetta vissi ég til dæmis ekki þegar ég keypti fóður handa hundinum mínum, það sem ég hélt að væri besta dýrafóðrið á markaðnum.  Feldurinn var alltaf mattur og úfinn og þar sem þetta var blendingur þá stóðu allir í þeirri trú að þetta væri bara hennar eðlilegi feldur.  Svo breytti ég um mataræði og viti menn,  feldurinn varð mjúkur, fór að glansa og hætti að vera eins og á rollu með tvennskonar reifi.

Inntaka hómópatalyfja

Hómópatalyf eru yfirleitt seld í töfluformi, en einnig er hægt að fá þau í litlum kornum eða í vökvaformi í dropateljaraglösum.  Gott er að  setja lyfin í vör eða kinn utan við tanngarðinn eða leysa þau upp í drykkjarvatni dýrsins.  Einnig hafa þau virkað þó þau séu bara sett upp í dýrið.

Batinn tekur mislangan tíma, allt eftir eðli vandans, lífskrafti og aldri.  Einkenni, eins og til dæmis gröftur,  geta virst versna rétt í upphafi, en það sýnir að hreinsunarferli líkamans er byrjað og ástandið lagast fljótlega aftur.  Yfirleitt er ekki ástæða til að hafa áhyggjur, en fylgjast þarf mjög vel með dýrinu og ekki sýna andvaraleysi gagnvart því ef fara þarf með það til dýralæknis.

Einföld dæmi og hómópatalyf.

En eins og ég nefndi hér áðan, að með hómópatískum meðferðum er svo gott að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því hvort einhverjar aukaverkanir valdi neikvæðu álagi á líffæri eða ónæmiskerfi.  Og svo vinnur það ekki gegn hefðbundnum meðferðum.  

Í raun og veru er hægt að gefa hómópatalyf við næstum öllu mögulegu. Hér á eftir verða bara talin upp örfá einföld dæmi og hómópatalyf sem gætu komið að gagni.  En alltaf að skal hafa í fyrirrúmi að fara með sjúk og slösuð dýr til dýralæknis.    Einnig getur verið gott að leita ráða hjá reyndum hómópata til að auka líkur á að rétt remedía sé valin.

• Arnica:    Áföll líkamleg, slys eða lost (aðal skyndihjálparremedían sem allir ættu að vera með í vasanum).
• Silica:    Aðskotahlutir (t.d. flísar eða óhreinindi í sári).
• Pulsatilla, Hyoscyamus, Lachesis :  Afbrýðisemi.
• Euphrasia:    Augnsýkingar og áverkar á augum.
• Belladonna:   Árásargirni án ástæðu. 
• Stramonium:    Árásargirni á menn og hunda og bítur.
• Staphysagria:   Áföll og hræðsla eftir slæma meðferð eða barsmíðar.
• Symphytum:   Beinbrot sem gróa illa, en þurfa að vera í réttum skorðum.
• Cocculus:   Bílveiki.
• Apis:     Bjúgur eða óeðlileg vökvasöfnun.
• Arnica, Phosphorus:  Blæðingar.
• Belladonna, Apis, Ferrum phosphoricum eða Mercurius:  Bólgur.
• Belladona:    Bráðatilfelli eins og til dæmis = háan hita,  hitakrampa, og einkenni eftir bólusetningar ef hiti fylgir með.
• Thuja:     Einkenni eftir bólusetningar. Vörtur.  Sveppasýking.
• Arsenicum:   Eirðarleysi með kvíða.
• Apis:     Flugnabit og sviði
• Calendula:    Grunn, hrein sár.
• Hepar sulphuris eða Silica :    Gröftur og kýli.
• Nux vomica eða Silica:     Harðlífi.
• Aconite eða Phosphorus:  Hræðsla (vegna flugelda, þrumuveðurs, einveru, ferðalaga, lóðarí,  áföll eftir slys).
• Belladonna, Silica, Phytolacca eða Lac caninum:   Júgurbólga.
• Gelsemium:    Máttleysi, skjálfti eða lamandi ótti.
• Mercurius Solubilis, Apis, Cantharis og Berberis:     Nýrnasjúkdómar
• Sepia:     Sinnuleysi móður um ungviði.
• Staphysagria:    Skurðsár eftir glerbrot, eftir skurðaðgerð og ljót fleiður.
• Ignatia:    Sorg eða missir.
• Belladonna eða Pyrogen:     Sótthiti.
• Rhus-t. eða Bryonia:     Stirðleiki. 
• Ledum eða Hypericum:     Stungusár eftir nagla, flísar, gaddavír, nálastungur og skordýrastungur.
• Hypericum:     Taugaáverki,  til dæmis þegar skottið klemmist eða loppurnar.
• Staphysagria:     Tilhneiging til að fá flær og mýbit.
• Rhus-t.:     Tognun í liðum eða sinum.
• Nux vomica, Arsenicum, China:  Uppköst og niðurgangur.
• Nux Vomica:     Uppþemba eftir eitrun í mat eða af lyfjum.
• Arnica:     Vöðvaverkir og áverkar eins og mar og strengir eftir ofreynslu.
• Pulsatilla, Ignatia:     Viðkvæmni og kvíði (til dæmis aðskilnaðarkvíði).
• Silica:     Örvefur.

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).