Járn / Iron / Ferrum / Ferrous sulphate
Járn er málmur sem unninn er úr járngrýti en finnst yfirleitt aldrei í sinni náttúrulegu mynd. Járn er algengasti málmurinn og talið vera tíunda algengasta frumefnið í alheiminum.
Járn er snefilefni og lífsnauðsynlegt fyrir líkamann. Í líkamaun eru 3 til 5 grömm af járni og u.þ.b. 70% þess er bundið í efnasambandinu hemóglóbíni sem finnst í rauðum blóðkornum. Afganginn er að finna í ýmsum frumum víðs vegar í líkamanum.
Meira er af járni en öðrum snefilefnum í blóðinu og mikilvægasta hlutverk þess er framleiðsla blóðrauða og vöðvarauða ásamt súrefnisupptöku líkamans og súrefnisbindingu rauðra blóðkorna. Þau flytja síðan súrefnið og kolsýru um blóðrásina til vefja líkamans og koldíoxíð frá frumum líkamans.
Járn er nauðsynlegt fyrir vöxt og þroska heila barna og unglinga. Það er nauðsynlegt fyrir virkni margra ensíma eða efnahvata til þess að þeir starfi eðlilega. Járn er nauðsynlegt fyrir sum boðefni eins og til dæmis dópamín sem er nauðsynlegt fyrir taugakerfið. Einnig nauðsynlegt fyrir heilbrigt ónæmiskerfi, orku, þrek og verndar líkamann fyrir áhrifum streitu.
Ekki nýtist allt járn jafn vel.
Járn er fáanlegt í tvennu formi, sem hembundið járn og óhembundið járn.
Hem-járn er bundið súrefnisbindandi prótínunum hemóglóbín og mýóglóbín.
Þetta form af járni frásogast best. Besta form hembundins járns er
ferrus sukksínat. Það frásogast um þriðjungi betur en annað járn og
hefur auk þess þann kost að valda ekki sömu óþægindum í meltingarfærum
og önnur járnmeðul gera. Sé C-vítamín tekið samhliða járni eykst frásog þess frá þörmum um 30%. Þess vegna er gott að taka C-vítamín með járni.
Ekki er ráðlegt að taka inn járn á meðan einhvers konar sýking
stendur yfir þar sem bakteríur nota það til vaxtar. Inntaka þess getur
því lengt líf bakteríanna.
Upptaka járns úr fæðu er mjög misjöfn og afar einstaklingsbundin. Hún fer eftir því hversu mikið járn er í líkamanum, magni og tegund járns í fæðunni og samsetningu hennar. Talið er að einungis 8% af heildarinntöku járns komist í blóðið.
Járn er helst að finna í blóðmör, innmat svo sem hjörtum og lifur, rauðu kjöti og nýtir líkaminn járnið best úr því. Einnig finnst járn í fuglakjöti, eggjarauðum, fiski, ostrum, hnetum, sesamfræum, ólífum, hýðishrísgrjónum, þistilhjörtum, sojabaunum og öðrum baunum (t.d. kjúklingabaunum og grænum baunum). Einnig í grænblaða grænmeti, steinselju, spínati brokkólí, spergilkáli, haframjöli, hirsi, quinoa, þurrkuðum ávöxtum, sírópi og þara.
Með því að neyta C-vítamínríkra ávaxta, ásamt korni og járnríku grænmeti er hægt að bæta járnupptöku líkamans.
Járnskortur veldur blóðleysi sem lýsir sér í þreytu, máttleysi, svima, andþyngslum, örum eða þungum hjartslætti, minna þoli, skertu viðnámi við veikindum, húðfölva, stökku hári, hárlosi, höfuðverk, kyndeyfð ásamt hand og fótkulda.
Einkenni um langvarandi járnskort eru t.d. brunatilfinning í tungu, þurrkur í munni og kverkum, sár í munnvikum og veiklaðar neglur. Fíkn í ákveðna fæðu, einkum sykur getur orsakast af járnskorti.
Á Íslandi er járn algengasti skortur snefilefna og sennilega það næringarefni sem oftast vantar í fæðu, gamals fólks, kvenna og barna. Skortur hjá unglingsstúlkum og konum stafar iðulega vegna mikilla tíðablæðinga. Hinsvegar verður ekki vart járnskorts hjá karlmönnum nema vegna sjúklegs ástands eins og til dæmis blæðinga í þörmum. Algengt er að járnskortur verði hjá konum á meðgöngu því þær fullnægja ekki aukinni járnþörf með venjulegu fæði. Þörf mjólkandi mæðra eykst ekki verulega fyrir járn en gott þykir að taka járn í nokkurn tíma eftir barnsburð.
Börn sem fá of einhæfa fæðu og of mikla kúamjólk (tæplega ½ lítra eða meira á dag) eru í hættu á járnskorti, en mjólkin dregur úr fjölbreyttu mataræði sem inniheldur meira járn.
Járn er nauðsynlegt fyrir sum boðefna til dæmis dópamín, sem aftur getur verið orsökin á taugaröskunum. Það bendir til að skortur á járni geti aukið taugalíffræðileg vandamál hjá börnum með ADHD. Einnig geta þar verið tengsl við lærdómserfiðleika. Því er æskilegt að ef grunum leikur á að einstaklingur, á hvaða aldri sem er séu með ADHD, þá er skinsamlegt að leita læknis og láta rannsaka blóðið til að kanna járnmagn.
Milliverkanir Sýrubindandi lyf geta dregið úr frásogi járns, þess vegna þurfa að líða 1-2 klst. milli inntöku járns og sýrubindandi lyfja. - Asetýlsalisýlsýra (Magnýl®) getur haft áhrif á frásog járns. Einnig getur járn bundist við tetrasýklínsambönd (sýklalyf) og þannig hamið frásog þeirra. 1-2 klst. verða því að líða milli inntöku járns og tetrasýklínsambanda.
Kaffi, te, trefjaefni, og fosfórprótín í eggjum minnka nýtingu járns.
Aukaverkanir geta lýst sér sem hægðatregða, svartar hægðir, niðurgangur, brjóstsviði, ógleði og magaverkir.
Járneitrun - Einkenni eitrunar koma einkum fram í magaverkjum, niðurgangi og blóði lituðum uppköstum, þá getur járn einnig horfið úr vefjum. - Járneitrun getur leitt til truflana í starfsemi hjarta og lifur.
Öll fæðubótarefni á að geyma þar sem börn ná ekki til. Þetta á sérstaklega við um járn þar sem mjög stórir skammtar geta verið banvænir börnum. Ef þau fá 2-10g af járni í einu getur það valdið banvænni eitrun.
Æskilegt er að inntaka járns sé í samráði við lækni þar sem blóðleysi getur einnig stafað af skorti B-12 eða B-6 vítamína.
Ráðlagðir dagsskammtar eru:
• Ungbörn 0-6 mánaða: 5 mg
• Börn 6 mánaða til 6 ára: 8 mg
• Börn 7-10 ára: 10 mg
• Karlar 11-18 ára: 12 mg
• Karlar eldri en 18 ára: 10 mg
• Konur 11-60 ára: 15 mg
• Konur 61 árs og eldri: 10 mg
• Þungaðar konur: 15 mg
• Konur með barn á brjósti: 15 mg
Járn í blóði getur orðið of mikið. Nýtingu járns úr fæðu er stjórnað þannig að hún uppfylli þarfirnar og er talið að hún ákvarðist af járnbirgðum líkamans, á einhvern óþekktan hátt. Ýmislegt getur þó haft áhrif á nýtingu járns úr fæðunni og má þar nefna að en C-vítamín eykur hana. Áhættuþættir eru við miklar blóðgjafir vegna sjúkdóma, of mikil inntaka og þeir sem hafa ættgengan sjúkdóm. Þessi sjúkdómur (hemochromatosis) veldur óeðlilega mikilli upptöku járns úr fæðunni. Þetta ástand kemur venjulega ekki í ljós fyrr en komið er á miðjan aldur, en getur hafa varað í mörg ár þar sem járni tekur langan tíma að safnast upp og valda einkennum, en því miður þá geta verið komnar skemmdir í líffæri. Líkaminn ræður ekki við þessa auknu nýtingu járnsins úr fæðunni þar sem engin góð útskilnaðarleið er til. Fyrstu einkenni geta verið sífelld þreyta, slappleiki og sykursýki. Húðin verður gráleit, bólgnir liðir með verkjum, tíðateppa, minnkuð kynhvöt og að lokum geta skemmdir í lifur og hjarta dregið sjúkling til dauða. Önnur einkenni geta verið ýmis geðræn vandamál, hárlos, kuldatilfinning og tíðar sýkingar. Hætta á krabbameini til dæmis í lifur.
Mikilvægt er að greina sjúkdóminn og hefja meðferð sem fyrst. Greina má ástand með blóðmælingum og lifrarsýni eða mergsýni, en einnig er komin á markað mæliaðferð til að finna hverjir eru með erfðagallann. Með því móti er hægt að greina sjúkdóminn fyrr en áður var hægt. Meðferð er aðallega fólgin í blóðtökum til að losa líkamann við járn. Sumir þola illa blóðtökur og má þá nota lyf (deferoxamíns) sem eykur útskilnað járns í þvagi, en talinn lakari kostur. Horfurnar eru góðar ef meðferðin hefst nógu fljótt.
Í þessum tilfellum má taka til athugunar:
Með því að neyta C-vítamínríkra ávaxta, ásamt korni og járnríku grænmeti auka járnupptöku líkamans.
En kaffi, te, trefjaefni, og fosfórprótín í eggjum minnka nýtingu járns.