Sink / Zinc
Sink er snefilefni sem sérhver fruma í líkamanum þarfnast.
Hreint sink er blá-grár málmur. Sink er snefilefni sem sérhver fruma í líkamanum þarfnast og sem hundruð ferla reiða sig á. Sink hefur áhrif á fjölda mismunandi ensíma sem eru mikilvæg fyrir eðlilega skiptingu og starfsemi fruma.
Sink er nauðsynlegt til myndunar kjarnasýranna RNA og DNA og fyrir eðlilega starfsemi ýmissa hvata.
Sink tekur þátt í mörgum hvataferlum og hormónastarfsemi, ekki síst starfi kynhormóna. Það er mikilvægt fyrir
kynferðislegan þroska, heilbrigða kynhvöt og frjósemi bæði karla og kvenna. Sink er því mikilvægt á öllum þeim tímabilum sem líkaminn á við einhverjar hormónatengdar breytingar svo sem kynþroska, brjóstagjöf og meðgöngu. Einnig gegnir Sink mikilvægu hlutverki í allri tímgunarstarfsemi. Styður framleiðslu testosterons og annarra karlhormóna. Sink stuðlar að heilbrigðri starfsami blöðruhálskirtils og æxlunarfæra, framleiðslu sæðis og hreyfanleika þess. Gæti dregið úr stækkun blöðruhálskirtils en leita skal læknis við þannig vandamál.
Það er mikilvægt fyrir myndun og virkni margra ensíma sem virkja frumur sem gegna hlutverki við að viðhalda heilbrigðu ónæmiskerfi. Sink hefur lengi verið þekkt fyrir að draga úr sýkingarhættu og styðja endurbyggingu líkamans. Það hefur bólgueyðandi eiginleika. Það er einnig mikilvægt fyrir önnur ensím til að stuðla gagngert að heilbrigðu jafnvægi í líkamanum.
Sink tekur þátt í mörgum efnafræðilegum viðbrögðum heilans. Það er nauðsynlegt fyrir þroska og eðlilega starfsemi miðtaugakerfisins. Sink hefur áhrif á andlega heilsu, gleði og öndun, ásamt að því að styðja jafnvægi rauðra blóðkorna, hjarta og blóðþrýsting.
Sink er oft tekið með kopar, sem gegnir afgerandi hlutverki varðandi collagen – sem er prótein sem styrkir beinin og bandvefi.
Sink virðist bæta virkni A-vítamíns sem næringarefni við að stuðla að heilbrigði augna og hefur mikilvægt hlutverk í starfsemi sjónhimnu. Einnig getur sink dregið úr síendurtekinni hvarmabólgu.
Sink hefur áhrif á vefi og eðlilegan vöxt og er því nauðsynlegt fyrir húð og beinvöxt. Hefur áhrif á munn, tennur, þvagfæri og gæti hjálpað gegn eyrnasuði. Styður grósku átusára, og sára eftir meiðsli. Sink ásamt karótín, C-vítamíni og E-vítamíni geta dregið úr öldrun. Sink og kopar (samhliða) hafa áhrif á litarefni í hárinu og getur jafnvel hjálpað varðandi þunnt hár eða hármissi. Sink stuðlar að viðhaldi yfirborðshúðarinnar með því að stuðla að framleiðslu nauðsynlegrar fitusýru sem gæti jafnvel hjálpað vegna psoriasis, exems, rosacea, gyllinæð og eftir að hafa brennt sig.
Getur flýtt fyrir bata á kvefi, hálsbólgu og flensueinkennum. Sink er af mismunandi gerðum og virkar vel við mismunandi aðstæður. Velja þarf af kostgæfni það zink sem er í boði Því hlutfall af náttúrulegu sinki er mjög mismunandi milli tegunda.
Sink hefur áhrif á hungurstilfinningu og hefur áhrif á umbrot kolvetna, fitu og próteina í líkamanum, dregur úr ofáti, og styrkir meltingarveginn. Sink er í öllum líkamsvökvum og dregur úr slæmri líkamslykt eins og táfýlu og svitalykt
Við áhrif frá sinki sendir skjaldkirtillinn pikólinatsýru til meltingarfæranna. Pikólínatsýran gengur í efnasamband við sinkið og við það myndast efni sem auðveldar frásog meltingarfæranna og þar með sink úr fæðunni. Með aldrinum minnkar hæfileiki skjaldkirtilsins til að framleiða pikólínats og er talin aðal orsök sinkskorts hjá öldruðum. Bein tengsl virðist vera á framboði pikolinati og þess magns af sinki sem líkaminn getur nýtt sér. Ef skjaldkirtill er vanvirkur er gott að taka sink-pikólínat því þá kemur vanvirknin ekki eins að sök.
Sinkskortur verður meðal annars ef framleiðsla á pikólínatsýru er ábótavant vegna sjúkdóma, fæðingargalla eða skorti á vítamíni B-6.
Sinkskortur bælir ónæmiskerfið með því að draga úr virkni stóru átfrumanna, niftsækinna hvítkorna og drápsfrumanna. Einnig þarfnast líkaminn sinks til að framleiða og virkja eitilfrumur. Þar af leiðandi getur einstaklingur orðið kvef- og flensusæknari. Gelgjubólur hafa einnig verið raktar til lágs sinkmagns hjá unglingum.
Skortur lýsir sér oft í formi skerts bragð- og lyktarskyns, niðurgangi, minnkaðs viðnáms gegn sýkingum, hvítum blettum á nöglum, brothættum nöglum, þunnu hári eða hármissi. og að sár gróa hægt auk annarra húðvandamála. Einnig sem æðakölkun, svefn- og hegðunartruflanir, hárlos, flasa, getuleysi og minnisleysi. Sinkskortur einkennist einnig af líkamlegum seinþroska, getuleysi og seinkun á kynþroska. Sumir karlar eiga við blöðruhálskirtilsvandamál að stríða sem getur verið af sinkskorti.
Hætta er á sinkskorti hjá fólki með meltingarfærasjúkdóma eins og til dæmis sáraristil, Crohn’s eða með stutta þarma. Einnig ef fólk þjáist af vanfrásogsheilkennum, langvarandi niðurgangi, langvarandi lifrarsjúkdómum, langvarandi nýrnasjúkdómum, sykursýki, sigðkornablóðleysi og illkynja sjúkdómum. Alkahólistar eru einnig í hættur á sinkskorti þar sem etanól dregur úr frásogi sinks og eykur útskilnað á sinki með þvagi.
Gott væri fyrir grænmetisætur að láta baunir, korn og fræ spíra til að auka aðgengi að sinkinu ásamt því að borða súrdeigsbrauð.
Sink er yfirleitt nóg í brjóstamjólk fyrir börn fyrstu 6 mánuðina, en eftir það gæti farið að vera heldur lítið sinkinnihaldi fyrir barnið. Þá getur dregið úr vexti og líkamlegum þroska.
Sink er helst að finna í rauðu kjöti, lifur, fuglakjöti, eggjum, hveitikími, ölgeri, hnetum, fræjum, heilkorni, sojabaunum, kúabaunum, grænmeti, sjávarfangi, en lang mest er þó af sinki í ostrum.
Hafa ber í huga að ofskömmtun Sinks getur valdið ógleði, uppköstum, niðurgangi og haft neikvæð áhrif á ónæmiskerfið.
Sink eitt og sér hindrar frásog kopars þannig að hafa þarf það í huga við inntöku að halda réttu jafnvægi þar á milli.
Þeir sem nota þvagræsilyf skyldu láta fylgjast með þar sem þau losa sink úr líkamanum.
Ef þú ert að taka járn skaltu ekki taka sink fyrr en að minnsta kosti 2 klukkustundum síðar til að koma í veg fyrir frásogs vandamál. Þar sem sink getur minnkað frásog sýklalyfja (tetracyline, soxycyline og minocycline) skaltu heldur ekki taka sink fyrr en 2 stundum eftir inntöku sýklalyfjanna. Einnig getur sink dregið úr frásogi og virkni penicillamine sem er lyf notað fyrir liðagigtarsjúklinga og því skal heldur ekki taka sink innan 2 stunda frá inntöku þess.
Ráðlagðir dagsskammtar eru:
Ungbörn að hálfs árs aldri: 2 mg
Börn hálfs til 3 ára: 5 mg
Börn 4-6 ára: 6 mg
Börn 7-10 ára: 7 mg
Karlar 11-18 ára: 11 mg
Karlar 19 ára og eldri: 9 mg
Konur 11-18 ára: 9 mg
Konur 19 ára og eldri 7 mg
Þungaðar konur: 9 mg
Konur með barn á brjósti: 11 mg