Selen
Selen er snefilefni sem m.a. fyrirbyggir að fjölómettaðar fitusýrur í frumum og frumuhimnum oxist eða þráni.
Selen finnst í litlu magni í öllum vefjum líkamans að undanskildu fituvefjum. Það gegnir hlutverki mikilvægra andoxunarefna og er nauðsynlegur hluti ensímsins glutatíonperoxíðasa en það kemur í veg fyrir frumuskaða.
Selen er samvirkt E-vítamíni og saman hjálpa þau meðal annars við framleiðslu mótefna og til að viðhalda heilbrigði hjarta og lifrar.
Selen hefur mikilvægt hlutverk varðandi ýmis efnaskipti líkamans og tengist meðal annars skjaldkirtlinum og hjálpar til við myndun skjaldkirtilshormóna.
Selen er nauðsynlegt starfsemi briskirtilsins og fyrir teygjanleika vefja. Það styrkir ónæmiskerfið með því að koma í veg fyrir myndun sindurefna sem vinna skemmdir á frumum líkamans.
Selen hefur verið rannsakað í tengslum við krabbamein í blöðruhálskirtli og benda þær til þess að hjá sumum karlmönnum geti aukið magn af seleni dregið úr líkum á blöðruhálskrabbameini.
Selen er nauðsynlegt öllum lífverum og vinna þær það meðal annars úr sólarljósi og fæðu.
Selenskortur getur haft áhrif á virkni skjaldkirtilsins. Einnig getur það leitt til Keshan-sjúkdómsins sem er hjartasjúkdómur, sérstaklega hjá börnum og konum á barneignaaldri.
Einkenni selenskorts lýsa sér með þreytu og minna úthaldi, hækkun á kólesteróli, ýmsum hjarta- og vöðvasjúkdómum, lifrarsjúkdómum, ófrjósemi, hækkaðri tíðni krabbameins og skertu ónæmi gegn sjúkdómum og sýkingum.
Bestu selengjafarnir eru fiskur, sjávarfang, laxi, túnfiskur, þari og innmatur eins og lifur og nýru.
Þar sem jarðvegur hér á landi er tiltölulega selenríkur, finnst selen einnig í vatni og í fæðutegundum eins og til dæmis smjöri, kjöti, eggjum og kjúklingum, ölgeri, hveitikími og klíði, sólblómafræjum, valhnetum, rúsínum, sveppum, ýmsu grænmeti, lauk, hvítlauk, tómötum, spergilkáli og spínati.
Selenmagn í jarðvegi er afar mismunandi og því erfitt að segja til um seleninnihald í matvælum. Ef jarðvegurinn er snauður af selen þá getur það valdið selenskorti hjá fólki sem nærist á matvælum ræktuðum á þessu svæði sem í raun ættu að innihalda nægilegt magn af selen. En eins og frma kom hér á undan er jarðvegur hér á Íslandi talinn tiltölulega selenríkur.
Mikil vinnsla matvæla eru gagnvirk seleni.
Of mikið magn af Selen getur truflað joðnýtingu. Einnig í of miklu magni er selen skaðlegt og getur valdið ógleði, uppköstum, magaverkjum, breytingu á húð, hárlosi, losi á nöglum og þreytu. Í versta falli getur ofskömmtun selens leitt til dauða.
Ráðlagðir dagsskammtar eru mældir í míkrógrömmum (µg):
Ungbörn 0-6 mánaða: 10 µg
Ungbörn 6-12 mánaða: 15 µg
Börn 1-3 ára: 20 µg
Börn 4-6 ára: 25 µg
Börn 7-10 ára: 30 µg
Karlar 11-14 ára: 40 µg
Karlar 15 ára og eldri: 50 µg
Konur 11 ára og eldri: 40 µg
Þungaðar konur: 55 µg
Konur með barn á brjósti: 55 µg