• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Bakflæði ungra barna.

Skrifað 2010-04-06 · Börn

Gastro-oesophageal reflux disease  (GORD), 

Gastro-esophageal reflux  (GER)

  Fyrstu mánuðina geta þessi blessuðu börn verið óvær í lengri eða skemmri tímabil og ekkert virðist geta huggað þau.  Ástæður geta verið margar og ein af þeim getur verið bakflæði, en nýlega er farið að hafa í huga að bakflæði barna geti verið vandamál. 

                                                                                            Hvað er bakflæði ? 

Vélinda er rás eða pípa sem liggur frá hálsi og niður í maga.  Um þessa pípu fer fæðan frá munninum og niður í magann. Sterkur hringvöðvi er þar sem vélindað tengist maganum (efra magaop) og hindrar að magainnihaldið flæði til baka upp í vélindað, en það getur verið af mismunandi ástæðum.

Yfirleitt er ekki um vélindabakflæði að ræða ef barnið kastar upp í gusum heldur stafar það yfirleitt vegna samdráttar í þind eða kviðarvöðvum.

Bakflæði hjá ungabörnum er aðallega vegna þess að þessi hringvöðvi hefur ekki ennþá náð að þroskast.  Bakflæði mjög algengt og langflest læknast af sjálfu sér á fyrstu 18 mánuðunum.   Um 85% ungbarna hefur bakflæði og uppköst fyrstu vikur ævinnar og um fjórðungur barna fram til 6 mánaða. 

Vindgangur og uppþemba ásamt magakrampa geta einnig haft þau áhrif að fæða lekur aftur upp úr maga án þess að um vélindabakflæði (sjúkdóminn) sé að ræða.

Einkennin eru oft þau að mjólkin lekur upp úr börnunum þegar þau liggja.  Þegar þau fara að fá fasta fæðu og farin að sitja upprétt verður oft mikil breyting til hins betra.  Eftir það fer að verða raunhæft að rannsaka hvort vélindabakflæði (sjúkdómurinn) hrjái barnið, ef um er að ræða tíðari og meira viðvarandi einkenni brjóstsviða, kyngingartregðu og súrum uppgangi. 

Orsakir vélindabakflæðis geta verið:

• Vanþroski hringvöðva í magaopi milli vélinda og maga.
• Langvarandi slökun á hringvöðvanum.
• Aukinn kviðþrýstingur.
• Þaninn kviður.
• Kviðslit.
• Skertur hreyfanleiki vélinda.
• Meiri hætta hjá fyrirburum.
• Alvarleg tauga- eða heilavandamál (sem dæmi:  Heilalömun,  Down’s syndrome, Þroskaskerðing og Sandifer's syndrome).
• Meðfædd vélinda frávik.

Einkenni eru meðal annars: 

• Endurtekin uppgangur eða uppköst.
• Verkir í eftir hluta meltignarvegar og í kvið.  Veldur vilja ekki borða, vanlíðan eftir að borða, kyngingarerfiðleikum, hegðunarvandamálum og hægum þroska.
• Köfnunareinkenni, þegar uppgangur fer niður í öndunarveg.

Fylgikvillar geta verið:

• Vélindabólga (með herpings- eða örvefsmyndun, blóðugum uppgangi eða blóðleysi)
• Öndunarfæra vandamál (hósti, andnauð, endurtekin soghljóð við öndun, asmaeinkenni, lungnabólga).
• Næringar og hegðunarvandamál samfara þroskatruflun. 

Greining:

Í flestum tilvikum byggist þetta á sögu um áreynslulaus uppköst eftir máltíðir.  En ef sagan er ekki skýr eða einkennin alvarleg, þá er nauðsynlegt að gera nánari rannsóknir.  Er þá oft haft í huga þindarslit eða jafnvel ofvöxtur í sléttum vöðva í portþrengi (pylorus) sem veldur því að fæða fer ekki eðlilega niður í smáþarmana heldur skilar sér til baka upp í vélinda þegar maginn fyllist.  Í sumum tilfellum er kannað hvort um sýkingar sé að ræða í meltingarvegi eða þvagfærum.

Ef ekki greinist neitt af þessu, er ekki úr vegi að athuga hvort um mjólkuróþol (laktósa) sé að ræða, því einkenni geta verið svipuð. 

Almennar ráðstafanir:

• Fylgjast vel með barninu, þroska þess og líðan. 
• Ef um uppgang er að ræða, skal forðast að gefa barninu of mikið að borða í einu, heldur að gefa því oftar í minna magni. 
• Eftir brjóstagjöf er gott að halda því í uppréttri stellingu nokkra stund eftir gjöf.
• Varast allan hristing. 
• Þegar barnið er lagt útaf þú er betra að leggja það á vinstri hlið.
• Forðast ofþyngd barnanna, því þau eru þá í mun meiri hættu.
• Forðast að fatnaður þrengir að kvið.
• Þykk fæða flæðir síður upp í vélinda. 
• Hafa hærra undir höfði.

Sjálfshjálp fyrir foreldrið:

• Fyrst af öllu, ef þú ert með ungabarn með bakflæði eða vélindabakflæði þá ertu oft uppgefin bæði andlega og líkamlega. 
• Taktu þá inn Kali Phos vefjasalt 3-4 sinnum á dag.  Það styður við orkuna og hefur slakandi áhrif á andlegu hliðina.
• Gættu þess að borða sjálf reglulega og heilbrigða fæðu en forðast sykur og önnur óholl kolvetni.  Það er ekki bara nauðsynlegt fyrir sjálfa þig meðan þú ert með barn á brjósti heldur gefur þér orku til að takast á við erfitt tímabil.
• B-vítamín dregur úr andlegu álagi og því gott að huga að B-vítamínaukandi fæðuvali.
• Reyna að halda föstum reglum eins og hægt er.
• Gott ef hægt er að fá einhvern til að gæta barnsins einhverja stund til þess að geta brotið upp daginn eða fengið hvíld.

Hjálp fyrir barnið:

Til þess að kanna hvort um mjólkuróþol er að ræða og þú ert með barnið á brjósti, skaltu halda þig algerlega frá mjólkurmat í 3 vikur og sjá hvort það hefur einhver áhrif.  Ef barnið er á pela skaltu velja blöndu án lactosa í að minnsta kosti 3 vikur og sjá hvað það gerir. 

Um 80% ónæmiskerfisins á sér stað í meltingarveginum, er nauðsynlegt að reyna að hafa svo mikið jafnvægi sem mögulegt er á meltingunni og forðast alla lyfjanotkun ef mögulegt er. 

Hómópatísk meðferð fyrir börn með bakflæði:

Hómópatalyf hafa oft reynst mjög vel við bakflæði, magakrömpum og ýmsu óþoli.  Stundum nægir að kaupa remedíur og vefjasölt í apótekum eða í heilsubúðum.  En í öðrum tilvikum er gott að leita hómópata sem getur bæði gefið remedíur (hómópatalyf) í öðrum styrkleikum eða jafnvel útbúið blöndur sem geta verið mun áhrifaríkari.  Þar er þá ekki eingöngu farið út í einstök einkenni, heldur miðað við barnið í heild bæði andlega og líkamlega líðan þess.  

Þessar remedíur hafa ekki aukaverkanir í för með sér og hafa ekki neikvæð áhrif á þarmaflóruna né ónæmiskerfið.

Natrum Phos, vefjasalt (3 x dag).  Skal gefið í að minnsta kosti 4-6 vikur og ef einhver árangur næst skal halda áfram þar til öll einkenni eru horfin.  Hjálpar til við að jafna sýrumyndun í meltingarvegi og dregur úr súrum uppgangi.  Getur haft áhrif vegna mjólkuróþols með súrum uppgangi.  Skal gefið í að minnsta kosti 4-6 vikur og ef einhver árangur næst skal halda áfram þar til öll einkenni eru horfin.

Magnesium Phos, vefjasalt (3 x dag).  Það er stundum gott að leysa það upp í volgu vatni og gefa samhliða Natrum Phos vefjasaltinu.  Hefur áhrif á krampa og krampaverki. 

Aethusia (2-3 x dag).  Gefið þar til einkenni lagast.  Þetta er tilvalin remedía fyrir börn sem þola ekki brjóstamjólk og þjást af uppköstum, bakflæði eða vélindabakflæði. 

Phosphorus:  Gefið eftir mat áður en mjólkin hefur breyst og hitnað í maganum.  Einnig þegar byrja að kasta upp.  Undarlegt en þá líður þessum börnum betur af köldum drykkjum eða mat.

Lycopodium (2-3 x dag):  Gott að gefa börnum með vindgang, ólgu í maga og gætu verið uppþanin.  Eru oft verst milli kl. 4-8 síðdegis eð um kl. 2 á nóttunni.  Líður best að liggja á hægri hliðinni. 

Silicea(2-3 x dag):  Fyrir börn sem hafna brjóstinu.  Eftir að hafa drukkið kasta þau upp mjólkinni og þá er hún eins og ystingur, því þau geta ekki melt mjólkina. Verða fljótlega svöng aftur.  Ef barnið er á brjósti er jafnvel gott að gefa móðurinni Silicea í staðin fyrir að gefa það barninu.  

Kali Carb (2-3 x dag):  Ef börn hafa einkenni sem eru verri milli kl 2-4 á nóttunni og  eftir að borða.  Líður betur ef gengið eru um gólf með þau og halda þeim á hreyfingu.  Líður betur við að hnipra sig saman og við volga drykki.

Bryonia (samkvæmt þörfum við verkjum):   Bráða verkir og barnið vill helst ekki láta hreyfa sig.  Barnið er þyrst.  Dregur fæturna upp og ropar.  Tungan getur verið þakin hvítri eða brúnni skán í miðjunni.

Antimonium Crudum (2-3 x dag):  Ef tungan er með hvíta skán.  Kasta upp súrum uppgangi.  Uppbelgd.

Natrium carbonicum(2-3 x dag):   Brjóstsviði, uppþemba.  Súr uppgangur.  Krampakenndir verkir.  Hikstar oft.  Magi aumur viðkomu,  líður betur við að borða.

Valeriana (2-3 x dag):   Vindgangur og garnagaul.  Uppgangur ógeðslegur eins og fúl egg.  Brjóstsviði og bragðvondur vökvi kemur upp í munninn.  Þaninn kviður.  Krampakenndir verkir. 


Natrum Phos og Magnesíum Phos eru mjög góðar saman vegna bakflæðis.  Einnig má nota remedíu með einkennalýsingu sem hentar barninu samhliða vefjasöltunum.  Ekki skaðar að reyna að nota hómópatískar remedíur og ef einhver þeirra virkar ekki nægilega, þá sakar ekki að reyna einhverja aðra þar sem engar neikvæðar aukaverkanir eru í kjölfarið.


Hefðbundnar meðferðir:

Meðhöndlun barna virðist vera nokkuð breytileg en algengast er að beita lyfjameðferðum og má nefna hér nokkur atriði.  Meginmarkmið lyfjameðferð er til að draga úr magasýrum.

Cisapride (Prepulsid) er notað í langtímameðferð við bakflæði magasýru í vélinda.  Þetta lyf hraðar magatæmingu og eykur spennu í vöðvanum sem lokar efra magaopi (þ.e. milli vélinda og maga)..  Byggja greiningu á pH mælingu.

Ranitidine (Zantac) sem mælt er með í slæmum tilfellum og er notað við maga- og skeifugarnasárum.  Hefur þau áhrif að draga úr áhrifum histamíns en histamín er boðefni sem örvar magasýruframleiðslu. Hafi læknir ávísað lyfinu skaltu ekki hætta töku þess nema í samráði við hann. Einkenni sjúkdómsins geta versnað þegar töku lyfsins er hætt.  Algengar aukaverkanir geta verið höfuðverkur, svimi, þreyta, niðurgangur og útbrot.

Losec inniheldur einnig efni sem draga úr mundun á magasýrum og notað vegna bólgu í vélinda vegna bakflæðismagasýru.  Hindrar seyti magasýru úr sýrumundandi frumum.  Einkenni sjúkdómsins geta komið aftur þegar töku lyfsins er hætt.

Einnig hefur verið ávísað á börn allt niður í 4 mánaða lyfinu Lanzo.   Lanzo dregur úr myndun á magasýrum og er meðal annars notað við bólgu í vélinda vegna magasýru sem afleiðing bakflæðis.  Hindrar losun magasýra úr sýrumyndandi frumum og dregur því úr framleiðslu magasýra.  Einkenni geta komið aftur þegar töku lyfsins er hætt.  Algengar aukaverkanir eru höfuðverkur, svimi, kviðverkir, særindi í hálsi eða munni, munnþurrkur, niðurgangur eða hægðatregða og meltingartruflanir, ógleði, uppköst, þreyta, útbrot og kláði.  Þetta lyf er ekki ætlað börnum.

Hvað með þessi lyf ?

Rannsóknir hafa sýnt að sýrubindandi lyf geta innihaldið efni eins og t.d. alumíníumsölt og nýjar rannsóknir hafa sýnt fram á að þau hafi óæskileg áhrif á starfsemi heilans.  Losec dregur úr myndun magasýra og dregur úr áreiti, en til langs tíma dregur það úr þeirri vörn sem magasýrur veita gegn sýkingum.  Önnur langtímameðferðar lyf hafa verið notuð  eins og t.d. Prepulsid, Prestal og Saprít.  Þessi lyf hraða magatæmingu og auka spennu í vöðvanum sem lokar efra magaopi (þ.e. milli vélinda og maga).  En maginn hefur sannarlega hlutverki að gegna við meltingu fæðunnar.  Þá spyrjum við, hvaða áhrif hefur það til langs tíma ef ferlið er stytt og fæðan fer niður í þarmana án þess að fá eðlilegt meltingarferli ?

Vera skal vel vakandi fyrir því hvort um er að ræða nauðsynlegar lyfjagjafir eða ekki.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).