• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Uppskriftabók.

Skrifað 2010-04-07 · Börn

Leiðbeiningar og uppskriftir.

Allar mæður hafa áhuga að leggja sitt að mörkum til að byggja góðan grunn fyrir börnin sín til framtíðarinnar.  Þá hefur fæða töluvert að segja til að byggja upp góðan heilsufarslegan grunn.

Þegar börnin eru að byrja að borða fasta fæðu þá skortir oft þekkingu og  hugmundaauðgi hvað varðar rétt fæði og fjölbreytni í matargerðina.  Ungar mæður eru líka hálf óöruggar þegar kemur að því að vita hvað best er að gefa barninu og er þá mjög gott að hafa haldgóðar upplýsingar sem hægt er að fletta upp í.

Mig langar til að segja ykkur frá matreiðslubók sem er einmitt frábær til að gera þetta allt miklu auðveldara.  Hver og einn getur síðan nýtt sér upplýsingarnar sem best hentar.

Þetta er önnur útgáfa af bókinni  “Hvað á eg að gefa barninu mínu að borða?  ... og öll fjölskyldan nýtur góðs af!”  og er eftir Ebbu Guðný Guðmundsdóttur, kennara. 

 


Aftan á bókarkápu stendur meðal annars:

Bókin er leiðarvísir ætlaður foreldrum sem eru að byrja að gefa börnum sínum fasta fæðu.  Hér er að finna ýmsar ráðleggingar og svör við flestum spurningum foreldra sem langar að gefa barninu sínu næringarríkan og heilsusamlegan mat.  Bókin er einnig leiðarvísir fyrir þá sem langar að læra meira um hollt mataræði en vita ekki hvar þeir eiga að byrja.

Í bókinni má meðal annars finna ítarlegan viðmiðunarlista yfir hvenær börn mega byrja að borða vissar fæðutegundir, leiðbeiningar í meðhöndlun ávaxta og grænmetis ásamt fjölda mynda.  Einnig er þar að finna fjölmargar einfaldar og góðar uppskriftir að barnamat sem og uppskriftir að hollum mat fyrir alla fjölskylduna og fyrir barnaafmælin.

Bókin fæst svo í öllum bókaverslunum, Móðurást, Femin.is og heilsubúðum. 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).