• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Joð / Iodine / Iodide

Skrifað 2010-04-07 · Bætiefni og vítamín

Joð er snefilefni sem hefur áhrif á myndun tyroxín.

Joð er stálgrátt, fast efni sem glampar á.  Joð er geislavirkt efni og í loftkenndu formi er það fjólublátt. 

Joð er snefilefni sem hefur mikilvægu hlutverki að gegna við myndum skjaldkirtilshormónsins tyroxín.   Í líkama mannsins eru um 20-40 mg af joði en þriðjung þess er að finna í skjaldkirtlinum.   Þörfin fyrir joð er mikilvægt en í afskaplega litlu magni og telst til örnæringarefna.

Áður en lyf við skjaldkirtilstruflunum komu á markað var joð eina efnið sem gefið var við slíku.

Joð er mikilvægt efni í hormónum skjaldkirtilsins (T3 og T4 ).  Skjaldkirtillinn er í barkanum en skortur á joði getur valdið stækkun hans og verður þá til ástand sem kallast struma.

Joð sem hluti af hormónum skjaldkirtilsins, tekur þátt í að stýra efnaskiptum líkamans og halda utan um orkubúskapinn.  Til dæmis í lífefnafræðilegri virkni sem myndar orku og efnasambönd sem viðhalda frumum og vefjum líkamans.

Hormónar gegna miðilvægu hlutverki varðandi endurnýjun á frumum og vefjum líkamans. Skjaldkirtilshormón stjórna vexti og starfsemi vöðva og taugakerfis.  Nauðsynlegt er að efnaskiptin séu góð og sérstaklega skiptir það miklu máli fyrir fóstur og börn því þau þurfa orku og vaxtarefni fyrir líkamlegan og andlegan þroska.

Rannsóknir hafa sýnt að járn hefur hamlandi áhrif á estrogen í brjóstvefjum. Tvennskonar fæðubótarefni af joði eru fáanleg:  Annað er Iodine sem virðist vinna betur varðandi áhrif estrógens í brjóstvöðvum, en Iodide hefur aftur á móti meiri áhrif á starfsemi skjaldkirtilsins.

Joð hefur lengi verið notað sem slímlosandi efni í hóstamixtúrur. Einnig drepur joð bakteríur, enda blandað aman við útvortisupplausnir sem eru ætlaðar til sótthreinsunar.

Joð hjálpar til við að brenna fituforða vegna áhrifa joðs á orkubúskap líkamans. Getur einnig varnað gegn áhrifum geislavirkni.

Langflestir fá dagsþörf sína fyrir joð úr matnum.  Joðmagn ýmissa fæðutegunda fer  eftir fóðri dýranna og jarðveginum sem plönturnar eru ræktaðar í.  Hér á Íslandi er til dæmis mjólk tiltölulega joðrík vegna nálægðar kúnna við sjó og sjávarloftið.

Roskið fólk getur þurft að bæta sér upp joðskort sem stafar af minni matarlyst og þar með minni joðneyslu.
Mest af joði er í fiski (bæði ferskum og þurrkuðum), skelfiski, þurrkuðum sölvum og þara.  Einnig í sjávarsalti, mjólkurvörum, baunum, hnetum, brauði, kjöti, eggjum, og grænmeri.  Í mörgum löndum er joði bætt í borðsalt.

Í raun eru tvö lífsnauðsynleg næringarefni að finna í fiskafurðum umfram það sem er í annarri fæðu, en það eru joð og D-vítamín. 

Joð í mat rýrnar við upphitun.  Það minnkar um fimmtung við glóðarsteikingu og steikingu.  En um 60% við suðu.

Joðskortur veldur röskun á skjaldkirtlinum og getur valdið sjúkdómi sem kallast spiklopi eða hypothyroidismus.  Skortur lýsir sér til dæmis sem skjaldkirtilsbólga. Einkennin eru aukin þyngd,  þreyta, framtaksleysi, minnisleysi, kulvísi, hægðatregða, þurrt gróft hár, hárlos, þurr þykk húð, fölvi, bólgin slímhúð í munni, hæsi (bjúgur á raddböndum), persónubreytingar, þunglyndi.  Einnig sem blóðleysi, hækkað kólesteról, minnkað blóðflæði til eyrna, nefs, fingra og táa, náladoði í höndum og fótum.  Einnig sem heyrnaskerðing, augnbólga, hægur hjartsláttur, vöðvastífni og verkir, síþreyta, skert ónæmiskerfi,  of mikil estrógenframleiðsla og tíðatruflanir.

Börn sem fá skajldkirtilsbólgu geta orðið þroskaheft og dvergvaxin (kretínismi)

Of mikið joð  getur hindrað hormónamyndun í skjaldkirtlinum.  Einkennin geta verið þau sömu og fylgja joðskorti. 
Aukaverkanir af stórum skömmtum af joði eru útbrot, höfuðverkur og járnbragð í munni. Með aukinni joðneyslu hefur viðkvæmt fólk fengið bólur á húð en þær hverfa um leið og joðneyslu er hætt.

Varast  skal að taka of stóra skammta af joði, því það getur dregið úr eðlilegri virkni skjaldkirtilsins.  Ráðlegt er að forðast stóra skammta af náttúrulækningaklyfjum og fæðubótarefnum sem innihalda mikið af joði.  Of mikið af joði getur verið hættulegt þunguðum konum og þeim sem hafa barn á brjósti, því of  mikið af joði getur minnkað virkni skjaldkirtilsins í barninu.

Lyf sem innihalda mikið joð, s.s. amíódarón (hjartalyf), geta valdið joðeitrun ef tekin eru aukalega fæðubótarefni með miklu joði.   Sjúklingar í lyfjameðferð við skjaldkirtilstruflunum ættu ekki að taka joð aukalega

Ráðlagðir dagskammtar:

• Ungabörn  0-6 mánaða  40 mcg
• Ungabörn  6-12 mánaða  50 mcg
• Börn   1-3  ára   70 mcg
• Börn   4-6  ára   90 mcg
• Börn   7-10 ára  120 mcg
• Karlar 10 ára og eldri  150 mcg
• Konur 10 ára og eldri  150 mcg
• Konur á meðgöngu  175 mcg
• Konur með barn á brjósti 200 mcg

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).