• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Mangan / Manganese

Skrifað 2010-04-11 · Bætiefni og vítamín

Mangan er snefilefni sem virkjar runu margra ensíma.

Mangan er gráhvítur málmur sem líkist járni.  Hann er harður og mjög stökkur, illa sambræðanlegur en oxast auðveldlega.

Mangan er snefilefni sem virkjar runu margra ensíma en ensím eru efni sem hraðar virkni hinna ýmsu efnaskipta og þar með talið ensímum sem taka þátt í jafnvægi blóðsykurs, orkuefnaskipta og styður starfsemi skjaldkirtilshormóns.  Þau stuðla að samtengingu kólesteróls og fitusýra í líkamanum.  Það binst ensímunum pyruvatkarboxýlasa og superoxíðdismutasa, en þau eiga hlut að kolvetnis- og fituefnabúskap efnaskiptanna með því að gera sindurefni óvirk.  
Virðist nauðsynlegt vegna eðlilegrar æxlunar og hjálpar til við myndun á móðurmjólk. 

Hefur áhrif á myndun taugaboðefnisins dópamín í heila.  Vinnur með 8-vítamínum til að stuðla að heilbrigðu taugakerfi, tilfinningalegu jafnvægi og vellíðan.  Einnig vinnur það vel með K-vítamíni vegna blóðstorknunar.

Nauðsynleg fyrir meltingarveg, þarmastarfsemi, og nýtingu matvæla. Styrkir heilbrigt ónæmiskerfi.  Nauðsynlegt  fyrir eðlilegan beinvöxt, endurnýjun fruma og stuðlar að myndun brjósks og liðpoka.

Mangan er í ríku mæli í grófu korni, óunnu korn, hnetum, baunum, fræjum, grænblaða grænmeti, avocado og ávöxtum.  Einnig í te og kaffi, eggjarauðum, skelfiski og mjólk.

Skortur þekkist ekki vegna mataræðis, en einkenni manganskorts eru megrun, útbrot, minnkuð blóðstorknun, breytingar á nöglum og hári.  (Mangan virðist hafa áhrif á taugakerfi dýra sem lýsir sér með krampa sem minnir á flogaveiki).

Einkenni of mikils mangans eru svipuð og einkenni Parkinsons-veiki með stífum vöðvum, skjálfta (verri þegar hvílst er) og hægar hreyfingar.  Mangan í andrúmslofti getur valdið geðrænum eiturverkunum, svokölluðu manganbrjálæði.

Mangan hefur þau áhrif á tetracyklín (flokk fúkkalyfja) að það minnkar upptöku þeirra um helming.  Sýrubindandi lyf, trefjar og til að mynda sútunarefni (sem er í tei) draga úr frásogi mangans frá meltingarvegi. Gæti milliverkað við lyf sem hafa áhrif á boðefnið dópamín, en það eru sum geðlyf og lyf við Parkinson’s sjúkdóm

Ráðlagðir dagsskammtar eru:

Ungabörn 0-6 mánaða: 0,3-0,6 mg
Ungabörn 6-12 mánaða: 0,6-1,0 mg
Börn 1-3 ára:  1,0-1,5 mg
Börn 4-6 ára:  1,5-2,0 mg
Börn  7-10 ára:   2,0-3,0 mg
Bæði kyn 10 ára og eldri: 2,0-5,0 mg

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).