• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Mólýbeden / Molybdenum

Skrifað 2010-04-13 · Bætiefni og vítamín

Mólýbden er snefilefni sem binst mörgum ensímum

Mólýbden er silfurhvítur, gríðarlega harður málmur. 

Mólýbden er snefilefni sem binst mörgum ensímum og er innbyggt í nokkur ensím sem eru mikilvæg fyrir brennisteins-  og þvagsýruefnaskiptin.  Mólýbden er hluti af ensímunum xanthine oxidarse (sem tekur þátt í þvagsýru myndun), aldehýð oxidasa (sem er hvati við oxun aldehýðs), sulfite oxidasa  og nauðsynlegt til framleiðslu margra ensíma. Mólýbden er líka í B-12-vítamíni.

Mólýbden er snefilefni sem líkaminn safnar í flesta vefi líkamans að meðtöldum heila, lifur, milta lungum, nýrum, tönnum, beinum og húð.  Það er mikilvægt því það hjálpar  líkamanum að framleiða ensímið xanthine oxidasa, sem hjálpar líkamanum að nýta varabirgðir járns og til brenna fitu. Án Mólýsden, getur líkaminn ekki vaxið og þroskast eðlilega.

Frumur þurfa Mólýbden til að geta unnið almennilega.  Það hjálpar líkamanum að berjast gegn nitrosamines sem tengt hefur verið við þróun krabbameins og gæti verndað gegn maga- og vélindakrabbameini.  Hjálpar til við að halda blóðsykri í jafnvægi.  Ekki síst er talið að þetta snefilefni geti hjálpar í baráttunni gegn tannskemmdum.

Kemur í veg fyrir blóðleysi, eflir vellíðan og stutt við jafnvægi kvenhormóna sem stjórna fyrirtíðaspennu.
Áætlað er að um það bil níu milligrömm af Mólýbdeni sé í fullorðnum manni.  90% af því Mólýbdeni sem inn í líkamann kemur er tekið upp í smáþörmunum.  Það frásogast auðveldlega og hreinsast einnig auðveldlega gegnum nýrun.

Ekki er vitað nákvæmlega hve mikið magn er í líkamanum né hve mikil dagsþörfin er fyrir Mólýbden, en líklega er ráðlagður skammtur fyrir þá sem eru 11 ára og eldri um 50-400 míkrógrömm á dag.

Mólýbden er að finna í dökkgrænu grænmeti, mjólk, lifur, nýrum, léttmjólk, baunum, hrísgrjónum, korni og steinefnaríku kranavatni. Raunverulegt magn af mólýbdeni í korni, og grænmeti fer eftir því magni sem er í jarðveginum sem það er ræktað í, en fólk fær yfirleitt nóg magn úr fæðunni.

Flestir fá nóg Mólýbden í fæðunni en samt getur orðið vart Mólýbdenskorts í einstaka tilfellum ef nærst er of lengi á skyndibitafæði. 
Mólýbden skortur getur leitt til blóðleysis og valdið skertum súrefnisflutningi til vefja. Getur valdið þreytu, pirringi og óreglulegum hjartslætti.  Skorturinn gæti einnig orsakað minna magn af þvagi sem myndast í líkamanum og einnig dregið úr oxunarhlutfalli fitusýra.  Vandamál með munn, góma og sjón.  Hjá körlum geta einkenni falist í getuleysi.

Skortur á Mólýbden getur valdið krabbameini, vegna þess að Mólýbden er nauðsynlegt til að brjóta niður efni eins og til dæmis salt af brennisteinssýrlingi í líkamanum og ef það vantar  geta ýmis óæskileg efni safnast upp og valdið skaða. 

Einkennin geta komið fram sem meðvitundartruflanir, einnig sem unglingabólur, tann rotnun, exem, ofnæmi, blóðleysi, þvagsýrugigt, asmi, lifrarbólga, getuleysi, lifrarskemmd, candida, offita, þunglyndi, kulvísi, sykursýki.

Mjög sjaldgæfur efnaskiptasjúkdómur getur líka valdið Mólýbdenskorti.  Þá vantar þann þátt í efnaskiptin sem setur Mólýbden inn í ensímin.  Fólk með þennan sjúkdóm verður þroskaheft.

Of mikið magn af Mólýbden getur valdið koparskorti og blóðleysi.   Eiturverkanir eru sjaldgæfar, en einkenni geta falið í sér stífleika og bólgur í liðum, niðurgangur og blóðleysi.  Einkennin geta líkst einkennum þvagsýrugigtar en það geta verið bólgin liðamót með miklum verkjum.  Einnig geta eiturverkanir verið stöðnun á vexti barna. 

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).