Kóbalt / Cobalt.
Kóbalt (Co) er stökkur, skínandi, blá-grár málmur. Kóbalt er nauðsynlegt snefilefni sem virkjar coensímið cobalamin.
Kóbalt er nauðsynlegt snefilefni fyrir góða heilsu. Þó það hafi ekki mikla virkni eitt og sér þá er það grundvallaratriði fyrir B-12. Án Kóbalt þá væri B-12 ekki til staðar. Líkaminn notar B-12 í mörgum tilvikum, eins og til dæmis fyrir eðlilega
frumumyndun og þá sérstaklega rauðu blóðkornin. B-12 hjálpar C-vítamíni til að sinna sínu hlutverki og ótal margt annað.
Kóbalt er aðallega í rauðu blóðkornunum en einnig í minna magni í nýrum, lifur, brisi og milta.
Kóbalt er nauðsynlegur samvirkandi þáttur varðandi framleiðslu skjaldkirtilshormónsins þýroxín. Það hjálpar við myndun blóðrauða og stuðlar að heilbrigði rauðra blóðkorna.
Rannsóknir hafa gefið til kynna að Kóbalt stuðli að viðhaldi og uppbyggingu míelin slíðurs, eykur skilvirkni á flutningi glúkósa úr blóði í frumur líkamans og eykur samlögun járns í rauðum blóðkornum. Kóbalt örvar ýmis ensím líkamans og eðlilega virkni ýmissa fruma í líkamanum. 
Kóbalt finnst í mjólk, geitamjólk, apríkósum, þangi, grænu laufgrænmeti og öðru sjávar grænmeti. Einnig í skelfiski, ostrum, fiski, lifur, hnetur og rauðu kjöti. Nokkrar tegundir bjórs innihalda kóbalt.
Skortseinkenni geta verið meðal annars: meltingartruflanir, léleg blóðrás, síþreyta, þreyta, taugaskemmdir og hægur vöxtur. Einnig hættulegt blóðleysi (Pernicious blóðleysi), en einkenni þess eru þróttleysi og doði í handleggjum og fótleggjum, aum tunga, fölir gómar varir og tunga, blæðandi gómar, ógleði, lystarleysi, þyngdartap, jafnvægisvandamál, höfuðverkur, mynnisleysi og andleg óreiða.
Vegna lítils frásogs og mikils hlutfalls útskilnaðar Kóbalts er eiturverkun afar sjaldgæf. En ef um of mikla inntöku er að ræða getur Kóbalt valdið stækkun á skjaldkirtli. Einnig geta einkenni verið ógleði, uppköst, niðurgangur, húðútbrot og hitakóf.