• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Kísill / Silica / Silicon

Skrifað 2010-04-15 · Bætiefni og vítamín

Silica (Si) öðru nafni Kísill er algengt snefilefni.

Silica (Si) öðru nafni Kísill er algengt snefilefni sem er afar mikilvægt næringarefni fyrir heilbrigði fólks.  Það er eitt af nauðsynlegu næringarefnum líkamans til vaxtar og vilhalds, myndun fruma, örvar efnaskipti, styrkir alla bandvefi, örvar ónæmiskerfið, er bólgu- og sýklaeyðandi.

Talið er að hann geti unnið gegn hjartasjúkdómum.

Kísil er að finna  í flestum vefjum líkamans eins og til dæmis:  húð, æðum, brjóski, beinum, tönnum, sinum, nöglum og hári.  Einnig augum, kirtlum og líffærum og aðstoðar við að halda því öllu í góðu ásigkomulagi. 

Kísill eykur teygjanleika og þéttleika vefja og gegnir því hlutverki til að styrkja æðaveggi og þá sérstaklega slagæðaveggi og vinnur gegn æðakölkun.  Í vegg ósæðar finnst mikið magn af  kísil. 

Þar sem Kísill eykur teygjanleika og þéttleika vefja og slímhúðar vinnur hann vel fyrir fólk með æða- og lungnasjúkdóma, einnig fyrir fólk með vandamál tengd meltingarfærum (uppþembu, brjóstsviða, vindgang, harðlífi eða niðurgang og ekki síst magasár).  Gæti aðstoðað við meðhöndlun á liðagigt og öðrum brjósk vandamálum.

Kemur í veg fyrir áhrif af of miklu magni áls í líkamanum og getur því dregið úr hættu á Alzheimers sjúkdómnum.
 
Silica hefur einnig háhrif á myndun heilbrigðs beinvefs og kollagen sem er nokkurskonar límgjafi sem heldur líkamanum saman.  

Kísill er talinn vinna gegn beinþynningu og flýtir fyrir grósku eftir beinbrot.    Með aldrinum minnkar kísilmagnið í líkamanum sem getur stuðlað að ýmsum þáttum öldrunar og Því gæti verið jákvætt að fá aukalega Kísil samhliða fæðu til að draga úr hættunni á beinþynningu, æða og hjartasjúkdómum.  Gæti dregið úr hrukkumyndun.

Kísill vinnur best með D-vítamíni, Bór, Kalsíum, Magnesíum, Mangan og Kalíum.

Yfir helmingur af daglegri neyslu er úr vatni, en kísill er einnig í bjór, bönunum, heilkorni, rúsínum, sódavatni, papriku, agúrkum, jarðarberjum, sojabaunum, grænum baunum, hýðishrísgrjónum, alfalfa,  byggi,  rótargrænmeti, grænblaða grænmeti, hirsi, hörfum,  lauk, sólberjum og kvöldrósarolíu.  Klóelfting er einkar auðug af auðmeltanlegum kísil og er því notuð í silica bætiefnatöflur.

Rannsóknir sýna að yfirleitt fær fólk á milli 30-50 mg á dag úr fæðunni. 

Kísilskortur lýsir sér helst með hármissi, lélegum vexti nagla, beinþynningu,  tannrotnun og slagæðahersli.

Talið er að ekki megi neyta kísildíoxíð (kísils) sem fæðubótarefni í eins miklu mæli eins og úr fæðu.  En eff vart hefur verið við skort og Kísill tekinn aukalega þarf yfirleitt að taka það í 6 til 7 vikur áður en marktækur árangur næst.

Langvarandi notkun eða mjög stórir skammtar geta valdið óafturkræfum nýrnaskaða, sérstaklega hjá fólki sem er veilt fyrir í nýrum og hjarta.  Fólk sem er bjúgsækið skyldi ekki taka kísil aukalega.

Konur sem eru barnshafandi eða með barn á brjósti og börn ættu ekki að taka aukalega  kísil heldur láta nægja það sem fæst úr fæðunni, þar sem rannsóknir hafa ekki sýnt fram á hvaða magn er öruggt vegna aukaverkana fyrir þennan hóp.

Hættulegt er að anda að sér kísilryki, því það getur valdið bandvefsaukningu og krabbameini í lungum. 

Fjöldi misvísandi upplýsinga um þetta steinefni veldur því að æskilegt er að sýna varúð, eða leita ráða hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).