29 Laxerolía

Laxerolía (Castor oil) er jurtaolía unnin úr fræjum Castor jurtarinnar, sem á uppruna í hitabeltis loftslagi, eins og til dæmis frá Ethiopíu í Afríku. Mikið er ræktað af henni í Braselíu og Indlandi. Plönturnar geta orðið allt að 30-40 feta háar í sínu réttu heimkynnum, en þær geta einnig þrifist í kaldara loftslagi.
Suðumark hennar er 313° C (595 ° F) og þéttleiki hennar er 961 kg • m -3.

Í upprunalegri mynd er jurtin eitruð. Í framleiðsluferlinu eru eitruðu próteinin fjarlægð og í dag er laxerolía flokkuð af “The United States Food and Drug Administration (FDA)” sem almennt viðurkennt, öruggt og árangursríkt hægðalyf.
Laxerolía er bæði bragðlaus og lyktarlaus en varast skal sérstaklega að ofnota hana til inntöku.
Laxerolía er ótrúlega fjölhæf
Laxerolía er sterk og gangleg fyrir tímabundna hægðatregðu, eða til úthreinsunar fyrir skurðaðgerðir. En af því hún er svona olíukennd, finnst sumum erfitt að kyngja henni og þurfa jafnvel nokkrar tilraunir.
Laxerolía á auðvelt með að smjúga djúpt inn í húðina og því góð í smyrsl og ýmiskonar húðvörur, bæði til að mýkja hana og græða. Hún er ráðlögð vegna brjóstsviða, og við ormahreinsun. Góð fyrir liðagigt, verki í liðamótum, vöðvaverki og magaverk. Ricinoleic sýra er hluti laxerolíunnar sem hefur bólgueyðandi áhrif. Laxerolíubakstrar hafa hreinsandi áhrif einkum á sogæðakerfið.
Hún er mjög góð á ýmiskonar húðvandamál svo sem bruna, sólbruna, gyllinæð, sár og skrámur. Hún er mjög góð sem nuddolía. Hún hefur verið þekkt fyrir lækningu á unglingabólum og einnig hefur hún verið notuð til að fjarlægja stírur.
Bakstrar: Við kviðverkjum og vöðvaverkjum, útbrotum og sárum, er gott að nota laxerolíubakstra. Bleyta skal mjúkt bómullarstykki (t.d. bómullar-flónel) með ylvolgri laxerolíu þannig að það sé vel mettað án þess að leki úr. Leggja það á viðkomandi svæði og ofan á það skal leggja hitapoka eða annað heitt og láta það liggja við í 1 til 1 ½ klst. Eftir hverja notkun munt þú sennilega þurfa að bæta við laxerolíuna í stykkið. Milli notkunar er hægt að geyma það í plastpoka í kæli. Gæta þess að erfitt er að þvo olíuna úr þvotti og því gott að hafa plastpoka undir til að hlífa rúmfötum. Nota bakstra 3 daga í röð, taka þá hlé í 3 daga og síðan endurtaka.
Vörtur eru hvimleiðar, en ef laxerolía er nudduð vel á vörtur, geta þær horfið á nokkrum vikum. Það sama gildir um fæðingarbletti.
Það er ekki mælt með því að nota laxerolíu til að koma af stað fæðingu, þó það hafi verið gert í gamla daga. Er það vegna þeirra óþægilegu aukaverkana sem því fylgja. Meðal þekktra aukaverkana eru t.d. krampaverkir, niðurgangur, uppköst og þurrkur.
Laxerolía er sérlega góð til að bera á geirvörtur kvenna sem hafa barn á brjósti. Einnig gott að bera á nafla ungbarna ef hann grær seint.
Gott er að velgja laxerolíuna örlítið. Blanda hana 1 hluta á móti 2 hlutum af möndluolíu og bera vel á húðslit eftir barnsburð eða af öðrum ástæðum. Lofa olíunni að vera rúmlega 10 mínútur á húðinni áður en þvegið er af. Endurtaka daglega um einhvern tíma, en það fer eftir hve slæmt slitið er.
Fyrir þreytta fætur er gott að nudda vel af olíunni inn í fæturna og sofa síðan í háum sokkum sem halda ekki að fótleggjum. Einnig er gott á kvöldin að maka olíu á þurrar og sprungnar hendur og sofa í bómullarhönskum. Ef þú hefur stökkar og sprungnar neglur er gott að bera laxerolíu á þær og verða þær þá sterkar og gljáandi. Hún smýgur djúpt inn í naglaböndin, mýkir þau og kemur í veg fyrir sprungur.
Ef lítil börn hafa þunnt hár, er heillaráð að bera olíuna í hársvörðinn tvisvar í viku í langan tíma. Hárlos er staðreynd í lífi bæði karla og kvenna. Dæmigert vandamál tengt þessu ástandi er hægur hárvöxtur, hárin gránar, flasa og stökkt og þurrt hár. Einnig eitt af góðum ráðum til að meðhöndla hárlos er að bera olíuna í hársvörðinn.
Meðferð hárlos: Gott er að bera laxerolíuna beint í hársvörðinn og nudda vel ofan í hársrótina. Hita Laxerolíu í örbylgjuofni aðeins í nokkrar sekúndur
áður en borið er í hársvörðinn. Ekki nudda henni í sjálft hárið, því erfitt getur verið að þvo hana úr hárinu.
1. Vefjið vel handklæði eða klút um höfuðið og leyfðu laxerolíunni að vera í hársverðinum yfir nótt og skolaðu hana úr að morgni. Þetta er frábær djúpnæring. Endurtaktu þessa meðferð einu sinni í viku. Tekur þetta líklega um 6 til 7 skipti áður en verður vart við merkjanlegan árangur.
2. Einnig má setja olíuna í blautt hárið og þekja með baðhettu og leyfa olíunni að vera að minnsta kosti 15 mínútur áður en þvegið á venjubundin hátt. Endurtakið við hvern hárþvott um einhvern tíma.
Þynna olíu: Þar sem laxerolía er mjög þykk og erfitt að þvo hana úr hárinu, gæti verið gott að blanda hana þynnri olíum eins og möndlu- eða grapeseed olíu. Það þynnir olíuna og auðveldar þvottinn. Möndlu- eða rósmarín olía gæti bætt við góðri lykt í hárið.
Húðvandamál: Hún er góð til lækninga og oft notuð til að sefa húð með húðvandamál eins og exem eða psoriasis einnig fyrir þurra húð eða með kláða eða á öramyndanir. Gott sem rakakrem. Hita Laxerolíu í örbylgjuofni aðeins í nokkrar sekúndur og bera létt lag á húðina.
Góð fyrir sprungna olnboga. Borið á fyrir nóttina og vafið með klút að sokkum sem táin hefur verið klippt af. Þvo olnbogann varlega að morgni og má nudda svæðið létt með vikursteini.
Eins er gott að bera á augabrúnir og á augnhár fyrir svefninn jafnt fyrir börn sem fullorðna. Olían er styrkjandi og gerir bæði augabrúnirnar og augnhárin þéttari. Taktu burstann upp úr maskarahulstrinu og hreinsaðu það rækilega. Gakktu úr skugga um að það sé alls ekki snefill af maskara áður en þú notar hann til að bera olíuna á augnhárin. Ef þú átt tómt maskarahulstur, getur þú hreinsað það tryggilega þannig að hægt sé að nota það fyrir laxerolíuna. Aðeins borið á þunnt lag sem er þvegið af að morgni.
Varalitir sem innihalda laxerolíu eru taldir mjúkir og græðandi.
Gæta þarf þess vandlega að hita olíuna ekki of mikið – hún á að vera ylvolg þegar hún er notuð í bakstra eða borin á húðina.
Megi þetta koma ykkur að notum, og hjálpa ykkur að meta Laxerolíu að verðleikum
Bestu kveðjur
Sigrún Árnadóttir og Sigríður Bjarnadóttir
Hómópatar LCPH.