Tin / Stannum
Tin (Sn) silfurgljáandi, sveigjanlegur málmur.
Tin er snefilefni sem er fyrst og fremst nýtilegt úr mismunandi lífrænum efnum. Enn skortir mjög á rannsóknir á Tini sem bætiefni fyrir líkamann. Talið er að það geti haft áhrif á vöxt, og hárvöxt en það þarfnast enn frekari rannsókna.
Tin er í tengslum við Joð á sama hátt og Kalsíum er tengt við Magnesíum. Tin styður nýrnahettur á sama hátt og Joð styður við skjaldkirtil, en bæði Tin og Joð hafa áhrif á afköst hjartans. Tin og nýrnahettur stjórna vinstri hlið og Joð og skjaldkirtill stjórna hægri hlið.
Tin gæti haft áhrif til að draga úr þunglyndi og þreytu. Gæti aukið jákvætt skap, almenna vellíðan og orku. Gæti dregið úr verkjum, asma, höfuðverk og í sumum tilfellum svefnleysi.
Aftur á móti getur Tin ekki hjálpað til vegna þunglyndis ef ójafnvægi annarra efna er orsök vandans og svo er með ýmis önnur einkenni. Tin getur sérstaklega hjálpað þegar orsökin er truflun á starfsemi hjá nýrnahettum.
Tin er í litlu magni í nánast öllum ávöxtum og grænmeti. Innihaldið fer þó mikið eftir hve mikið Tinmagn er í jarðveginum. Þegar við neytum Tins úr matvælum frásogast það í litlu magni og fer út í blóðrásina. Aftur á móti skilum við því úr líkamanum með hægðum og þvagi á skömmum tíma og aðeins lítið magn verður viðvarandi í vefjum líkamans eins og til dæmis beinum.
Vegna þess hve Tin eyðist fljótt úr líkamanum veldur það yfirleitt ekki skaðlegum áhrifum. Hins vegar við aukna inntöku getur viðkomandi þjáðst af kviðverkjum, niðurgangi, ógleði, uppköstum, útbrotum á húð, blóðleysi, lifrar- og nýrnavandamálum.
Skortur tengist oft við þunglindi eða þreytu. Rannsóknir á dýrum hafa sýnt að skortur getur valdið vaxtatruflun, skertri virkni brjósta, heyrnartapi, og hárlosi.
Bráða áhrif eiturverkana er augn og húðerting, höfuðverkur, magaverkir, svitakóf, mæði, þvaglátsvandamál, veikindi og svimi.
Við mikla inntöku getur það valdið langtíma áhrifum. Langtímaáhrif eru þunglyndi, lifrarskemmdir, truflun ónæmiskerfisins, litningaskemmdir, skortur á rauðum blóðkornum og heilaskemmd (veldur reiði, svefntruflanir, gleymska og höfuðverkur.)