• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Bakflæði og brjóstsviði.

Skrifað 2010-04-30 · Sjúkdómar

Saltsýra og meltingarhvatar brjóta niður fæðuna í  maganum og  veita vörn gegn sýkingum. 

  Bakflæði - Acid reflux - Gastro-oesophageal reflux - Gastroesophageal reflux (GER).

Líffæri sem bakflæðið tengist eru magi, efri hluti meltingarvegar, ásamt magamunna og hringvöðva efra magaops á milli maga og vélinda.  Einnig getur þindin átt sinn þátt í vandanum.

Vélinda er mjúk pípa eða rör, um það bil 25 til 27 cm langt,  sem liggur frá koki og niður í maga.  Þegar við borðum fer fæðan um þessa pípu, frá munni og niður í magann. Þar sem vélindað opnast inn í magann er kallað efra magaop. Þar er sterkur hringvöðvi sem virkar eins og loka í aðra áttina, hleypir fæðu niður en varnar því um leið að fæðan og magainnihald leki til baka.

Í maganum meltist fæðan með því að bæta í hana saltsýru og meltingarhvötum sem valda því að innihald magans verður eldsúrt og ertandi.


 
Hvað er bakflæði ?

Þegar hringvöðvinn starfar ekki eðlilega fer súr meltingarvökvinn upp í vélindað og getur við það valdið brjóstsviða (heartburn), nábít, óbragði í munni, uppþembu, hæsi, ræskingaþörf og næturhósta.    Það gerist vegna þess að slímhúð vélindans er ekki gerð til að þola súrt innihaldið frá maganum.   Ef ástandið er viðvarandi getur það valdið vélindabakflæði.  Talið að allt að 4-6 % þjóðarinnar þjáist af vélindabakflæði óháð kyni eða aldri, en virðist þó eykst fjöldinn eftir 40 ára aldurinn.  Þetta getur haft veruleg áhrif á lífsgæði fólks og valdið skertri starfsorku.


Hver er orsök bakflæðis ?

Ástæður geta verið mismunandi.  Í sumum tilfellum hefur hringvöðvinn ekki náð að þroskast eðlilega.  Hringvöðvinn gæti

hafa skemmst eða slappast af einhverjum ástæðum.  Eða einnig gæti verið um þindarslit að ræða.  Þindin er hvolflaga vöðvaskipting sem skilur brjósthol frá kviðarholi.  Við þindarslit getur hluti magans gúlpast upp í brjósthol en það getur aukið bakflæði upp í vélindað.

Ein ástæða þess að hringvöðvinn heldur ekki fullkomlega er sú, að ef sífellt er verið að borða mikið magn í einu og troðfylla magann, þá hefur það smám saman þau áhrif og hringvöðvinn slaknar.  Við áreynslu og við að beygja sig er ekki óeðlilegt að hringvöðvinn láti undan þrýstingnum og eitthvað magn ómeltrar fæðu fari upp í vélindað. Einnig getur offita og ístra þrýstir á magann og valdið því að magainnihald þrýstist upp í vélindað, og það gerist einnig á meðgöngu.   Auk þess valda hormónabreytingar á meðgöngu, slökun á hringvöðvanum.

Ýmis fæða eykur sýrumyndun í maga og aukast þá óþægindin.  Þar má nefna mikið kryddaður og bragðsterkur matur.  Feitur matur hægir aftur á móti á magatæmingu og er því fæðan lengur í maganum og það getur aukið vélindabakflæði.  Sum efni geta haft áhrif á hringvöðvann þannig að hann verður slappari og heldur þar af leiðandi fæðunni ekki sem skyldi.  Þar má nefna súkkulaði, piparmyntu, kaffi, áfengi og nikótín. 


Einkenni og afleiðingar

Algeng afleiðing þess að hringvöðvinn heldur ekki fullkomlega fæðu eða meltingarvökva, er brjóstsviði eða nábítur.  Hann lýsir sér sem bruna- sviðatilfinning undir bringubeini í brjóstholi sem liggur jafnvel upp í vélindað.  Nábítur getur valdið svo sárum brjóstverk að það minnir á hjartaverk, en hann leiðir þó ekki á sama hátt út í handleggi eða upp í kjálka eins og ef um hjartaverk væri að ræða.  Brjóstsviði getur komið við minnstu áreynslu, við að beygja sig eða lyfta einhverju þungu.  Þessi einkenni versna yfirleitt eftir máltíðir, við að beygja sig og einnig við að halla sér út af. 

Önnur einkenni geta verið ráðandi svo sem uppþemba, loftbelgingur, tíðir ropar, andfýla, hæsi, rám rödd, ræskingar, særindi í hálsi, verkir fyrir brjósti, glerungsskemmdir, þurr hósti einkum að næturlagi eða asmi.

Flestir verða aðallega varir við bakflæði á nóttunni, því við að liggja útaf og getur fæða og meltingarvökvi jafnvel flætt upp í munn og þaðan jafnvel ofan í öndunarveg.

Þessu fylgja iðulega svefnvandamál og hætta á að fæða sem runnið hefur upp í munn að nóttu til leiti ofan í öndunarveg og valdið öndunarfæravandamálum.  Einnig getur það haft áhrif á raddbönd þannig að röddin brestur.

Þeir sem fá ítrekað bakflæði geta fengið bólgur og skemmdir á slímhúð í vélinda, en við það versna óþægindin verulega. Langvarandi bólgur geta leitt til frumubreytinga sem í sumum tilfellum geta verið undanfari illkynja breytinga (krabbameins).

Ef um mjög alvarlegt bakflæði er að ræða getur viðkomandi átt við að stríða bólgur og sáramyndun í vélinda, blóðuppgang, blóðleysi, þreytu og fölva, hjartsláttartruflanir, öndunarerfiðleika og kvíða. Einnig á löngum tíma geta orðið öramyndanir sem þrengja vélindað og valdið kyngingarerfiðleikum.

Langvarandi bakflæði getu orsakað Barretts breytingar.  Þá myndast ný slímhúð í vélindanu, sem er líkari slímhúðinni í maganum eða þörmunum.  Talið er að þetta sé vörn líkamans fyrir frekari skaða af magasýrunum. 


Sjálfshjálp.

Ýmislegt er hægt að gera sjálfur til að bæta ástandið.  Forðast skal að neyta nokkurs í að minnsta kosti 3 klukkustundir áður en gengið er til náða á kvöldin.  Forðast skal feitan mat, mjólk, súkkulaði, piparmyntu, kaffi, sítrusávexti, tómatvörur, pipar, sterk krydd, gosþamb og áfengi.

Safi úr einni ferskri sítrónu í glas og fylla upp með volgu vatni.  Drukkið á hverjum morgni fyrir morgunmat.   15 mínútum fyrir hádegis- og kvöldmat skal drukkið 4 matskeiðar eplaedik í glasi fylltu upp með volgu vatni.  Einkenni fara á um 2 vikum, en halda skal áfram í nokkra mánuði til að ná bata.

Blanda 2-3 matskeiðum af lífrænu eplaediki í volgt vatn.  Blanda í það 1 teskeið af lífrænu hunangi og drukkið tvisvar á dag.  Þetta bragðast eins og gott te.  Ef ástandið er slæmt má auka skammtinn í 4 matskeiðar þrisvar sinnum á dag, en minnka svo aftur þegar ástandið batnar.

Einnig geta einkenni af völdum tiltekinna fæðutegunda verið einstaklingsbundin.  Þess vegna er ekki úr vegi að fara í fæðuóþolsmælingu til þess að fá nánari vitneskju um hvaða fæðu þú þolir og hvaða fæðu væri æskilegt að taka út af matseðlinum á meðan verið er að fá bót á vandamálinu.

Ekki borða sig það saddan að maginn fyllist.  Þegar maturinn fyllir magann slaknar tímabundið á hringvöðvanum upp í vélindað.  Auk þess örvar matur sýruframleiðslu magans og hjá sumu fólki má búast við að allar stórar máltíðir geti valdið brjóstsviða.  Ekki beygja sig niður eða leggjast útaf í góðan tíma eftir að matast. 

Gæta þess vel að melting sé eðlileg og hægðalosun sé daglega því hægðatregða getur aukið þrísting í kviðarholi og því verða meiri líkur á bakflæði.

Ekki reykja því reykingar veikja hringvöðvann. 

Streita getur haft áhrif á bakflæði.  Reyna að vinna á streitu á þann hátt sem hentar best.  Til dæmis hentar sumum að fara í jóga, öðrum hentar að fara í heilun, út að ganga eða hvað eina sem viðkomandi líður best með.  Hómópatískar meðferðir hafa hjálpað mikið í slíkum tilfellum, ekki bara varðandi streituna heldur einnig hvað varðar bakflæðið.

Ef um offitu er að ræða er nauðsynlegt að reyna að leggja af, því offita getur verið meðvirkandi þáttur í bakflæði.
Ekki ganga í of þröngum fötum, því til dæmis geta belti og þröng föt aukið þrýsting í kviðarholi sem ýtir undir bakflæði. 
Réttu úr þér, því að vera hokinn er slæmt fyrir þindina og eykur líkur á bakflæði.

Gott væri að hækka höfðalag rúmsins um 10 til 20 sentimetra og mætti þá reyna að setja kubba undir höfðagaflinn.  Ekki dugar að fá auka kodda því það hækkar bara höfuðið. 

Ýmis lyf erta vélindað og geta veikt hringvöðvann en giktarlyf eru algengust þeirra.  Ef um slíkt er að ræða skal ræða við lækni.

Má til með að minnast á gamalt húsráð við brjóstsviða en þá var notaður matarsódi (natron) hrærður út í vatni sem virkaði oft mjög vel.  Í matarsóda er natríumbíkarbónat, en það er efni sem binst sýru.  Þetta hjálpaði mörgum.  Það var yfirleitt ekki notað daglega nema þá um skemmri tíma, heldur var það aðeins notað þegar brjóstsviðinn gerði vart við sig.  Þó líkaminn frásogi eitthvað af matarsóda þá eru ekki miklar líkur á að það geti haft alvarleg áhrif á sýrustig blóðsins, því til þess þyrfti töluvert magn til að vera skaðlegt..


Hómópatískar meðferðir.

Brjóstsviði getur átt sér stað án þess að um slæmt bakflæði sé að ræða og eru hómópatískar remedíur yfirleitt árangursríkar og hjálpa mörgum.  Ef um er að ræða bakflæði samhliða brjóstsviða eru hómópatískar remedíur oft að skila góðum árangri.  Þá er bæði gefnar remedíur vegna brjóstsviðans og einnig til að hafa áhrif til að styrkingja magaopið sjálft.  Oft eru útbúnar blöndur sem henta viðkomandi og orka remedíanna er miðuð við viðkomandi einstakling.  Einnig stuðningur og fræðsla til að geta borið ábyrgð á eigin heilsu.  Þannig hefur náðst ótrúlega góður árangur á aukaverkanalausan hátt. 

Stundum þarf að breyta smávegis um lífsstíl og venjur en með smá aðstoð getur það alveg verið þess virði.  Hómópatísk lyf (remedíur) hafa reynst mörgum hjálpleg varðandi bakflæði, brjóstsviða og þau einkenni sem eru afleiðingar þess. 

Streita og andlegt álag getur valdið spennu í kviðarholi sem getur aukið bakflæði.  Hómópatískar remedíur eru sérlega góðar til að draga úr ýmiskonar streituáhrifum hvort sem er kvíðatilfinning, áhyggjur ýmiskonar, álag, sorgarferli, eða jafnvel að standa ekki undir eigin væntingum.  Þær eru aukaverkanalausar, veita manni tilfinningalegt jafnvægi og gera manni kleift að vinna úr málum af meiri einbeitni og yfirvegun.  En remedíur vegna streitu geta verið nokkuð mismunandi miðað við einstakling hvers konar ástand á sér stað.


Greining.

Greining byggist aðallega á sjúkdómssögu, röntgenmyndatöku og speglun.  Stundum eru gerðar mælingar á þrýstingi og sýrustigi í vélinda. 

Þegar röntgenmyndir eru teknar fær einstaklingurinn skuggaefni til inntöku og síðan eru myndirnar teknar. 

Við speglun fær einstaklingurinn kokdeyfingu og oft lyfjaforgjöf (kæruleysissprauta).  Notað er svipað tæki við speglunina eins og er notað við magaspeglun.  Hægt er þá að skoða slímhúðina, taka sýni og ef á þarf að halda er hægt að víkka út þrengingar. 

Við greiningu kemur í ljós hvort magaopið er ekki fært um að starfa eðlilega og ef um þindarslit er að ræða sem hefur áhrif á bakflæðið


Hefðbundnar meðferðir

Meðhöndlun virðist vera nokkuð breytileg og miðast þá við alvarleika ástandsins.

Lyf :     Algengast er þó að beita lyfjameðferðum.  Ef notast er við lyf sem fást án lyfseðils, er ráðlegt að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing áður.

Meginmarkmið flestra lyfjameðferða er til að draga úr magasýrum.  Mörg þessara lyfja eru gefin við maga- og skeifugarnarsárum og bólgu í vélinda vegna ertingar frá magasýru.  Tvennskonar meginflokka er um að ræða. Annars vegar histamínblokkara, sem eru lyf sem draga úr magasýrumyndun á þann hátt að hindra áhrif histamíns í maga. Histamín er efni sem örvar seyti magasýru.  Hins vegar eru það prótónpumpuhemlar, sem eru lyf sem hindra seyti magasýru úr sýrumyndandi frumum.  Með þessu er hægt að draga úr framleiðslu á magasýru, bæði í hvíld og hverskonar athafnir og draga um leið úr óþægindum vegna brjóstsviða.

Einnig eru lyf sem eingöngu eru notuð við bakflæði.  Þau myndar froðukennt lag sem flýtur ofan á magainnihaldinu og hindra að magasýra flæði upp í vélindað

Einnig  má nefna krampalosandi lyf, andkólínvirk lyf og lyf sem hraða magatæmingu.  Það eru lyf sem hafa andkólínvirk áhrif, en það þýðir að lyfin draga úr áhrifum boðefnisins asetýlkólíns, og hafa krampaleysandi verkun.  En þau geta haft þá aukaverkun að fá hraðan hjartslátt og munnþurrk.

Að lokum má nefna lyf sem hraða tæmingu magans.  Þau auka hreyfingar í vélinda og maga, veldur spennu á efra magaopi og með því koma í veg fyrir bakflæði frá maga upp í vélinda. 

Aðgerð:        Ef greining hefur leitt í ljós að ástæða er til að framkvæma aðgerð er í flestum tilfellum beitt holsjártækni (laparoscopy), en þó þarf í einstaka tilfellum að framkvæma holskurð.  Með holsjártækni eru gerð lítil göt á húðina þar sem tækjum er beitt í gegnum. 

 


Ef um þindarslit er að ræða er það lagfært.  En varðandi magaopið er losað um vélindað og efsta hluta magans og vélindað dregið um 1-3 sentimetra niður í kviðarholið.  Efsti hluti magans er eins og eyra í laginu og er sá hluti vafinn í kring um vélindað þannig að það verkar eins og sterkasti hringvöðvi til að fyrirbyggja frekara bakflæði.  Þegar maginn herpist, herpist einnig sá hluti sem vafinn var utan um vélindað og þéttir að hringvöðvanum í stað þess að kreista meltingarvökvann upp í vélindað.

  Ef allt gengur að óskum getur einstaklingur farið heim af sjúkra húsi eftir 2 daga, fara varlega fyrst á eftir og verið vinnufær eftir 2-3 vikur.

Hvað með þessi lyf og aðgerðir ?

Lyf.      Rannsóknir hafa sýnt að sýrubindandi lyf geta innihaldið efni eins og t.d. alumíníumsölt og nýjar rannsóknir hafa sýnt fram á að þau eru verulega taugaeitrandi fyrir líkamann og hafa óæskileg áhrif á starfsemi heilans.

Lyf sem draga úr myndun magasýra, til að minnka áreiti á slímhúðina upp í vélindað.  En það er tilgangur með því að líkaminn framleiðir magasýrur og meltingarensím.  Þau aðstoða við að brjóta niður fæðuna til þess að hægt sé að frásoga næringuna inn í líkamann og ef magasýrur eru ekki nægar þá fær líkaminn ekki þau næringarefni sem hann þarfnast.  Einnig til langs tíma ef dregið er úr myndun þessara sýra getur það dregið úr þeirri vörn sem magasýrur veita gegn sýkingum. 

Önnur langtímameðferðar lyf hafa verið notuð  eins og t.d. Prepulsid, Prestal og Saprít.  Þessi lyf hraða magatæmingu og auka spennu í vöðvanum sem lokar efra magaopi (þ.e. milli vélinda og maga).  En maginn hefur sannarlega hlutverki að gegna við meltingu fæðunnar.  Þá spyrjum við, hvaða áhrif hefur það til langs tíma ef ferlið er stytt og fæðan fer niður í þarmana án þess að fá eðlilegt meltingarferli?  Varað hefur verið við og bent á að sýna ýtrustu gætni varðandi lyfið Prepulsid, vegna þess að cisapride lengir QT bil og getur valdið hjartsláttaróreglu með hugsanlega alvarlegum afleiðingum.

Sjúklingar með háan blóðþrýsting og þungaðar konur ættu að varast reglulega notkun á sýrubindandi lyfjum sem innihalda töluvert magn af natríum. Mörg sýrubindandi lyf hafa að geyma mikinn sykur og sykursjúkir ættu að hafa það hugfast.

Vera skal vel vakandi fyrir því hvort um er að ræða nauðsynlegar lyfjagjafir eða ekki.

Aðgerðir:      Rannsóknir sýna að kviðsjártækni getur hjálpað 6-9 manns af hverjum 10 varðandi einkenni sem hafa verið viðvarandi.  En rannsóknir hafa ekki sannað að sú aðgerð viðhaldi lækningu til lengri tíma, og sumar rannsóknir hafa bent til að einkenni taki sig aftur upp innan fárra ára hjá mörgum einstaklingum.  Ef endurtaka þarf aðgerð er hún mun áhættumeiri í framkvæmd og mun minni líkur eru á að hún takist.  Eftir aðgerð hverfa yfirleitt flest einkenni sem fylgt hafa vélindabakflæðinu, en því miður hafa komið upp önnur ný vandamál, sem ekki er eins auðvelt að lagfæra.

Þessi vandamál eru aukinn vindgangur og uppþemba en einstaklingur getur ekki ropað.  Ef magi er pakkaður of hátt eða þétt, geta orðið kyngingarörðugleikar.  Vandamál geta komið upp ef vélinda rennur til þannig að hringvöðvinn fær ekki þann stuðning sem vafningurinn er ætlaður til.   Miklir erfiðleikar og vanlíðan fylgja því þegar einstaklingur fær gubbupest, matareitrun eða veikindi eftir áfengisneyslu þegar ekki er nokkur möguleiki á að kasta, en vafningurinn varnar því.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).