Astmi
Alvarleiki sjúkdómsins er afar breytilegur
Alvarleiki sjúkdómsins er afar breytilegur og skiptist í vægan astma, meðalslæman astma, viðvarandi astma og slæman astma sem getur verið lífshættulegur. Einnig getur sjúkdómurinn verið breytilegur hjá hverjum einstaklingi miðað við hverskonar áreiti er á hverjum tíma.
Þegar ofnæmisviðbrögðin verða astmakennd stafar það af vöðvasamdrætti, slímmyndun eða bjúg og bólgubreytingum í lungnaberkjum. Það veldur síðan þrengslum í öndunarvegi sem orsakar andþyngsli, mæði, hósta, surgi, ýli eða soghljóðum við öndun. Bólga veldur vanvirkni í lungnaberkjum og einstaklingur verður viðkvæmari fyrir ýmsu áreiti. Astmi getur til dæmis versnað ef einstaklingur fær veirusýkingar í loftveg eins og kvef eða afholusýkingar.
Bólgubreytingar í lungum í langan tíma gætu valdið breytingum á lungnavef með óafturkræfum berkjuþrengingum, þar sem bólgufrumur geta losað boðefni sem valda örvefsmyndun í berkjum. Mikilvægt er að fyrirbyggja þessa örvefsmyndun með því að reyna að komast að orsökum astmans og fyrirbyggja langtíma vandamál.
Áreynsluastmi kemur yfirleitt fram eftir 6–8 mínútna áreynslu sem krefst aukinna loftskipta. Þetta er tímabundin þrenging í lungnaberkjum sem kemur í kjölfar líkamlegrar áreynslu en Þessir einstaklingar fá jafnvel engin astmaeinkenni undir öðrum kringumstæðum. Þessi einkenni eru oft eftir hlaup eða aðra áreynslu. Talið er að það dragi verulega úr einkennum við að anda aðeins með nefinu þar sem það getur dregið úr oföndun.
Orsakir asma
Þrátt fyrir velmegun, og að meðalaldur hafi hækkað umtalsvert að almenn heilsa sé betri, þá hafa ýmsir sjúkdómar aukist til muna. Nútíma þjóðfélag ætti að geta boðið upp á svo margt fyrir bætta heilsu, með bættum lífsgæðum, meira hreinlæti og ómældri þekkingu á þörfum líkamans. En því miður er á svo mörgum sviðum ýmis óæskileg áhrif gegn almennri heilsu í stað þess að bæta hana.
Mengun ýmiskonar eins og til dæmis; vaxandi svifryk, óæskileg efnasambönd í andrúmsloftinu og kolefnasambönd vegna bruna eldsneytis. Þetta getur valdið lungnaþembu og langvinnum berkjubólgum og er sérlega slæmt gagnvart astma og öðrum öndunarfærasjúkdómum. Í sveitum eru heymaurar, rykmaurar, og frjókorn stórt vandamál. Einnig eru ýmsar fæðuvörur mjög óæskilegar heilsu manna. Því miður eru einnig efni sem notuð eru í sumar bólusetningar sem geta valdið eyrnabólgum, exemi og asma.
Í gamla daga þegar berklarnir herjuðu sem mest, vissu allir að það gat verið slæmt að búa í húsnæði þar sem raki var í veggjum. Í dag er hugað að heilsuvandamálum af völdum myglusvepps.
Sjúklingar sem hafa tilhneigingu til ofnæmis mynda ofnæsiviðbrögð með því að mynda ofnæmismótefnið IgE á yfirborði mastfruma. Þegar einstaklingur kemst í nánd við þau efni sem hann hefur ofnæmi fyrir þá losa frumurnar frá sér boðefni sem valda ofnæmisviðbrögðum. Þessi viðbragðseinkenni eru meðal annars öndunarerfiðleikar, astmi, mæði, hósti, hnerrar eða nefstíflur, þyngsli fyrir brjósti og svefntruflanir vegna hósta og öndunarerfiðleika. Einnig kláði í nefi, hálsi eða augum og tárarennsli. Einstaklingsbundið er hve mörg af þessum einkennum eru í einu og stundum er ekki nema eitt þeirra. Ofnæmisvaldar eru meðal annars frjókorn, fiður, dýrafeldir, tóbaksreykur, ryk og sveppagró, ertandi loftmengun ásamt fleiri þáttum. Einnig eru sýkingar í öndunarvegi (t.d. bronkítis) ástæða astma og getur orðið þrálátt vandamál. Sveppasýking virðist geta valdið astma og er það vegna efnisins próteasi sem Candidasveppurinn framleiðir. Andlegt ástand eins og áhrif af mikilli streitu, kvíða, áhyggjum, reiði, leiða, geðshræringu eða líkamlegt álag getur stuðlað að öndunarerfiðleikum. Breytingar á hita- og rakastigi, veiru- eða bakteríusýkingar, ýmis efn (ryk, frjókorn, dýrahár o.fl.) í umhverfinu og sum lyf hafa áhrif á viðkvæmni í öndunarvegi.
Það sem veldur astma er bólgumyndun í öndunarveginum vegna áhrifa histamíns sem er efni í ónæmisfrumum (mastfrumum). Þessar ónæmisfrumur eru í ýmsum vefjum líkamans og þar með í öndunarveginum. Ónæmisfrumur innihalda einnig efni sem kallast leukotrín, en þau eru mun öflugri ofnæmisvaldar en histamínið. Astmasjúklingar mynda mikið magn af leukotrínum. Bólgueyðandi lyf eins og íbúfen og aspirín ýta undir framleiðslu leukótrínum. Svo er einnig með viss litarefni (til dæmis Tartraxine eða E-102) í lyfjum, vítamínum, matvörum og jafnvel astmalyfjum, en komið hefur í ljós að það veldur astma, sérstaklega hjá börnum. MSG (monosodium glutamate) er einnig astmavaldandi. Því meiri bólga því minni ertingu þarf til að valda samdrætti í öndunarvegi og því viðkvæmari er einstaklingurinn gagnvart áreiti eins og geðshræringum, breytingum á hitastigi og fleira.
Astmi er einn af þeim sjúkdómum sem geta myndast smátt og smátt og er þá í rauninni uppsafnaður vandi. Hann byrjar oft með síendurteknu kvefi og þar sem fólk lítur ekki á kvef sem alvarlegan sjúkdóm, getur liðið langur tími þar til eitthvað er gert í málunum. Kvefið getur þróast og orðið að bronkítis sem síðan þróast út í langvarandi asma. En í öðrum tilfellum gerist það á skömmum tíma eins og til dæmis sem afleiðing eftir öndunarfærasýkingar (t.d. flensu eða RS-veiru) sem verður oft lengri tíma lungnavandamál með astmaeinkennum. Bronkítis er bólga í lungnaberkjum sem er ýmist afleiðing veirusýkinga eða bakteríusýkingar. Ef um veirusýkingu er að ræða er ekki um marga valmöguleika að velja nema að gæta sín vel, fá góða hvíld og nóg að drekka. Einnig eru ýmis jurtaseiði og hómópatískar remedíur sem geta styrkt einstaklinginn og flýtt ferli sýkingarinnar. Ef um bakteríusýkingu er að ræða eru bæði ofangreindar lausnir ákjósanlegar, en einnig möguleikar á aðstoð hefðbundinna meðferða.
Er útbreiðsla astma ofmetin
Ekki er allt astmi sem hvæsir. Samkvæmt nýrri rannsókn er talið að um fjórðungur þeirra sem hafa greinst með asma, eru líklega ekki með sjúkdóminn. Rannsóknin bendir til þess að fjöldi fólks noti dýr astmalyf að óþörfu þar sem ekki er hugað nægilega vel að því hver orsökin er fyrir hvæsandi eða sullandi andardrætti. Skyndigreining um astma án nánari athugunar gerist of oft.
Í mörgum tilfellum er til dæmis um ofnæmi að ræða og meðan ekki er tekið á þeim vanda nýtast astmalyfin aðeins til að halda niðri einkennum en ekki til að taka á vandanum, sem orsakar viðvarandi vandamál og þar með langtíma lyfjanotkun.
Til dæmis eru mörgum ungum börnum hér á Íslandi ávísað berkjuvíkkandi lyfjum, innöndunarsterum og sýklalyfjum til inntöku vegna einkenna sem líkjast astmaeinkennum. Þessi börn fá jafnvel ítrekaða hitatoppa, sullandi soghljóð við öndun, mikla öndunarerfiðleika á nóttunni, mikinn vökva í eyrum og sífellda rennandi hornös. Orsökin getur verið mjólkurvörur sem eru afar slímmyndandi og mjög áberandi ofnæmisvaldur margra barna. Þegar þau hætta að nota mjólkurvörur um nokkurn tíma, hverfa oft einkennin. Einnig geta astmaeinkenni verið vegna þess að efra magaop hefur ekki náð eðlilegum þroska og magainnihald leiti upp vélindað og upp í munn. Börnum sem eiga við þau vandamál að stríða skyldi halda í uppréttri stöðu góða stund eftir gjöf.
Þegar fullorðnir einstaklingar fá skyndilega astmaeinkenni, er mikilvægt að rannsaka einstaklinginn og framkvæma öndunarmælingu áður en endanleg greining er gefin. Það geta verið þrengingar í loftvegi af ýmsum ástæðum, sem ekki tengjast astm. Til dæmis vegna ofnæmis, myglusvepps eða annarra umhverfisáhrifa, jafnvel vegna offitu, æxlismyndunar eða óeðlilegrar skjaldkirtilsstækkunar sem þrýstir barkanum saman.
Sjálfshjálp
Innöndun með nefi er mikil hjálp fyrir marga astmasjúklinga. Innöndun með nefi veldur því að loftið er hitað og rakamettað í nefholi áður en það fer niður í lungun. Einnig draga nefhárin úr ýmissi mengun sem annars fer beint niður í lungnaberkjur. Þegar einstaklingur mæðist og fer að anda með muninum fá lungnaberkjurnar það hlutverk. Slímhúðin
missir við það raka og þéttni salta í yfirborðsslími loftvegarins eykst. Hjá astmasjúklingum veldur þessi breyting örvun bólgufruma sem eru til staðar í slímhúð öndunarfæranna. Auðertanlegir sléttir vöðvar dragast saman og berkjurnar þrengjast. Hjá einstaklingi með áreynsluastma veldur þessi breyting varnarviðbrögðum hjá frumunum sem leiðir til aukinnar slímframleiðslu, bjúgs og auðertanleika tauga. Það veldur samdrætti sléttu vöðvanna og orsakar astmaeinkenni.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir neikvæðum áhrifum djúprar öndunar og er því gott að hafa í huga að reyna að lifa lífinu sem mest með lokaðan munninn. Óhóflegt át, óhófleg streita og hreyfingarleysi ýtir einnig ósjálfrátt undir djúpa öndun
Þegar um öra öndun er að ræða er nauðsynlegt að reyna að drekka nóg af vökva þar sem vökvi tapast við aukinn andardrátt. Vökvi getur einnig hjálpað til við að losa límkennt slím úr öndunarvegi.
Reglubundin hreyfing og þjálfun er mikilvæg fyrir bæði líkamlega sem andlega vellíðan og til að draga úr einkennum áreynsluastma. Sumir eiga það til að forðast hreyfingu til að koma í veg fyrir einkenni en það veldur oft slæmum vítahring þar sem þolið minnkar, líkamsstyrkur skerðist, og minni hreyfingu þarf til að astmaeinkenna verði vart.
Meðhöndlun
Oft ber sérfræðingum ekki saman um hvað er hollt fyrir okkur og hvað er óhollt. Einn daginn kemur upp nýr sannleikur sem ekki hafði hvarflaðaði að neinum, í stað þess sem á undan var. En það sem einn hópur vísindamanna sannar í dag er stundum fljótlega afsannað af öðrum hópi vísindamanna. Það er því ákaflega mikilvægt að nýta sína eigin heilbrigðu skynsemi í stað þess að treysta blint á að aðrir hafi vit fyrir manni.
Sama er hvort meðhöndlun er á vegum hefðbundinna lækna eða óhefðbundinna meðferðaraðila þá þarf að hafa í huga að ef sjúklingur svarar ekki meðferð, er hugsanlegt að sjúkdómsgreiningin sé röng. Þegar um er að ræða mikið slímrennsli úr nefi, vökva í eyrum með blautum surgandi andardrætti er nauðsynlegt að athuga hvað veldur, en ekki aðeins að reyna að meðhöndla afleiðingar og slím sem rennur sífellt niður í lungun. Candidasveppurinn getur valdið astma en því miður eru aukaverkanir steralyfja til innöndunar gegn astma meðal annars þruska sem er candidasveppasýking í munni. Sjúkdómar eins og til dæmis vélindabakflæði geta valdið bólgum í öndunarvegi og orsakað astmakennd einkenni. Þrálátar sýkingar í öndunarvegi þarf að meðhöndla því annars verða astmaeinkenni viðvarandi.
Val og notkun á réttri astmameðferð byggist á því að sjúklingur hafi innsæi í hvaða áreiti eða ofnæmisvakar koma einkennum af stað, hvað eykur einkennin og hvað gæti hjálpað þegar einkenni eru til staðar. Einnig gæti skipt máli hve lengi sjúkdómurinn hefur verið viðvarandi og hvað var um að vera áður eða þegar sjúkdómurinn gerði fyrst vart við sig. Ekki má heldur gleyma að heildarástand og andleg líðan einstaklingsins skiptir máli. Þetta getur verið afar breytilegt frá einum einstaklingi til annars og getur haft áhrif á hvers konar meðferð er líklegust til að ná árangri.
Með þetta til hliðsjónar geta meðferðaraðilar metið hvað hægt er að gera til að ná bata. Markmiðið á ekki að vera aðeins að halda sjúklingi einkennalausum á lágmarks lyfjameðferð heldur að vinna á orsökum og einkennum og ná fullum bata ef mögulegt er. Varðandi astma eru engar skyndilausnir, en Þegar um er að ræða einhverskonar ofnæmisvaka, er ástæða til þess að taka á þeim vanda til að varna óafturkvæmum afleiðingum.
Verulega slæmur astmi getur verið lífshættulegur en mikill hluti astmasjúklinga er sem betur fer með astma á því stigi að möguleikar eru á bata án þess að þörf sé á langtíma notkun á berkjuvíkkandi lyfjum eða innúðastera. Þrátt fyrir aukaverkanir af hefðbundnum lyfjum eru þau oft bráð nauðsynleg. Steralyf eru einstaklega góð lyf og bjarga mörgum mannslífum en langtímanotkun steralyfja (hvort sem er til inntöku, innúða eða útvortis notkunar) ætti ekki að eiga sér stað nema nauðsyn krefji.
Hómópatísk aðstoð
Þegar einstaklingur leitar til hómópata er ekki æskilegt að hætta í skyndi notkun þeirra lyfja sem einstaklingur hefur notað, heldur er meðferðin einstaklingsmiðuð og tekið á vandanum miðað við heildarmynd ástandsins. Ekki er um neina skyndilausn að ræða, en í mörgum tilvikum verður um varanlega lausn að ræða.
Gefa skal góðan tíma til að fara yfir allt sem einstaklingur getur gefið upplýsingar um. Sjúklingur þarf að hafa innsæi í hvaða áreiti eða ofnæmisvakar koma einkennum af stað, hvað eykur einkennin og hvað gæti hjálpað þegar einkenni eru til staðar. Einnig gæti skipt máli hvað var um að vera áður eða þegar sjúkdómurinn gerði fyrst vart við sig. Ekki má heldur gleyma heildarástandi og andlegri líðan einstaklingsins.
Hvernig er andardrátturinn og hvernig hljóð heyrast. Er mikið slím í brjóstholi og hve erfitt er að hósta því upp. Er ástandið verra á einhverjum tíma sólarhringsins. Hefur það áhrif á svefn , eða almenna lífshætti.
Fylgir því ógleði, uppköst eða hósti. Veldur ástandið óöryggi eða ótta.
Við meðhöndlun getur þurft að hafa alla þessa þætti í huga ásamt því að styrkja lungu og þau líffæri sem tengjast vandanum og létta á einkennum.
Nokkur dæmi um remedíur vegna astma, en þær geta einnig verið notaðar samhliða öðrum remedíum miðað við einkenni.
Arsenicum: er afar góð bráða-remedía þegar hræðsla grípur vegna þess hve erfitt er að ná andanum. Vaknar upp á nóttunni með öndunarerfiðleika. Þarf að sitja uppréttur því líðanin er verri við að liggja útaf.
Spongia: dæmigerður astmi með þurrum, másandi andardrætti og einstaklingur getur fengið köfnunartilfinningu. Andstuttur og líður verr við að liggja útaf. Mikil áreynsla við öndun með háværu flautandi hljóði eða surgi. Lítil sem engin slímmyndun en þurr, geltandi barkahósti. Öndunarvegur er þurr, ekkert slím og hæsi. heitan mat og drykk setjast upp og beygja sig fram.
Lobelia: er einnig góð remedía fyrir dæmigerðan astma með másandi andardrætti en hefur einnig herping fyrir brjósti. Asmi sem hefur ógleði og uppköst og jafnvel stingi um allan líkamann
Sambucus: Asmakast í svefni, vaknar upp kl. 3 að nóttu með köfnunartilfinningu og másandi andardrátt. Öndunarvegur eins og stíflaður þegar liggur útaf, en skánar ef sest upp og tekur andköf. Gæti líkst arsenicum en hefur ekki sömu hræðslutilfinninguna.
Pulsatilla: er oft hentug fyrir viðkvæma einstaklinga, grátgjarna en þurftafreka. Venjuleg asmaöndun en yfirleitt er slím neðarlega í öndunarvegi. Getur komið eftir að borða feitan mat/mjög kryddaðan mat. Byrjar oft á kvöldin.
Nat. Sulph.: Laus, blautur asmahósti. Sár verkur vinstra megin og við að draga andann djúpt. Grænleitt, mikið slím kemur. Getur byrjað kl. 4-5 á nóttunni eða á kvöldin. Lítuð betur við að liggja útaf.
Ant. Tart.: Hrygglandi slímhósti sem ekki næst að hósta upp. Mikið slím. Byrjar oft ef sjúklingur verður reiður eða pirraður. Verra við að liggja útaf. Lystalseysi og oft ógleði.
Ipecac: Hrygglandi másandi andardráttur með lausum hósta og hryggli í brjósti, sem ekki getur losnað upp. Slím er seigt og blóðlitað. Verri kl. 23 til 10 að morgni. Óglatt og kastar upp slími. Oft svefnvandamál og slefa mikið. Geltandi hósti.
Þetta eru bara nokkrar af helstu remedíunum sem geta komið til greina og það sem er svo gott við remedíur, er að þær eru aukaverkanalausar og má því taka þær án þess að hafa áhyggjur af slæmum langtímaáhrifum.
Matur og asmi
Algengt er að einstaklingar hafi óþol fyrir ýmiskonar fæðu og þar eru mjólkurvörur algengasti orsakavaldur sem veldur
einkennum sem líkjast astma. Mjólkin veldur mikilli slímmyndun í munni og nefkoki. Hjá ungum börnum sem ekki hafa vit á að hósta upp slíminu, eða að snýta sér þá lekur slímið ofan í lungnaberkjur og veldur sjóðandi og hvæsandi öndun sem sett er undir astmagreiningu og meðhöndlað sem slíkt. Raunhæf meðhöndlun er að sleppa allri mjólk og mjólkurvörum og virðist það oft gera kraftaverk. Það er ekki eins erfitt að sleppa mjólkurvörum eins og ætla mætti því það eru fjöldinn allur af drykkjum og annarri fæðu á markaðnum sem hægt er að nota í stað mjólkur.
Einnig geta aðrar fæðuvörur framkallað astmaeinkenni ef einstaklingur hefur óþol fyrir viðkomandi fæðutegundum.
Bætiefni
Alvarlega veikir sjúklingar á lyfjum ættu að ráðfæra sig við lækna áður en þeir fara að gera tilraunir með neyslu bætiefna.
C-vítamín er þekkt andoxunarefni sem styrkir ónæmiskerfið. Inntaka margra astmasjúklinga á C-vítamíni hefur sýnt verulegan bata sem einnig hafa komið fram við öndunarmælingar. Stórir skammtar af C-vítamíni til lengri tíma gætu haft áhrif og dregið úr histamínmagni í blóði og gæti því verið gott fyrir ofnæmissjúklinga.
E-vítamín hefur hamlandi áhrif á framleiðslu fruma á leukótrínum.
Rannsóknir hafa sýnt að börn sem borða fisk að minnsta kosti 2-4 í viku eru í mun minni hættu á að fá astma, en þau sem borða sjaldan fisk. Ómega-3 fitusýrur styrkja öndunarstarfsemi og viðbrögð öndunarvegarins við ofnæmisvöldum.
Flavóníðar hindra losun histmíns úr ofnæmisfrumunum og framleiðslu á leukótrínum. Kersitín er sérstaklega öflugur flavóníði sem er að finna í grænu tei, eplahýði, lauk, þrúgukjarnaþykkni (grape seed extract), furubarkarþykkni (pine bark extract) og í Ginkgo Biloba. Svo er einfaldlega hægt að kaupa kersitín töflur sem er öflugast.
Selen brýtur niður ensímið glútatíon peroxídasa, en þetta ensím hindrar framleiðslu og brýtur niður leukótrína.
Viðurkennd aðferð til lækningar á astma
Úkraínskur læknir, prófessor Pavlovich Buteyko, hefur unnið að ýmsum umfangsmiklum rannsóknum og meðal annars á astma. Niðurstaða þessara rannsókna virðast vera nokkuð sérkennileg en þeir sem hafa nýtt sér hana segja að hún hafi dregið úr þörf fyrir berkju lyf. Þar er talað um að anda grynnra, vera beinn í baki og andað skal í gegnum nefið.
Öndun er mjög viðkvæm efnaskipti milli frumna og umhverfis. Hún viðheldur eðlilegu magni af súrefni í líkamanum sem hún dregur að sér og viðheldur eðlilegu magni koltvíoxíði með því að anda því frá sér.
Koltvíxíð er hvati fyrir losun súrefnis úr blóðinu til frumnanna og því þarf að vera hæfilegt magn í líkamanum til þess að öndunarferlið fari óhindrað fram. Því á súrefnið erfiðara með að ná til frumnanna ef um skort á koltvíoxíði er að ræða en koltvíoxíðið myndast í frumum við brennslu súrefnis og næringarefna.
Menn hafa ekki áttað sig á tengslunum milli djúprar öndunar og versnandi heilsu. Því dýpra sem við öndum því verr nýtist súrefnið. Heilinn sendir boð um meir öndun þar sem hann upplifir súrefnisskort og þannig skapast vítahringur að anda meira en súrefnið nýtist verr og dregur úr myndun koltvíoxíðs. Þar sem koltvíoxíðskortur verður við of djúpa útöndun gerir líkaminn ráðstafanir. Hann tryggir sér nægt koltvíoxíð með því að loka fyrir losun þess.
Aðferðin er merkilega einföld og skilvirk og hjálpar einstaklingum smám saman að anda eðlilega, hreyfa sig í samræmi við andardráttinn og allir geta lært aðferðina. Mikilvægt er að anda í gegnum nefið og vera beinn í baki. Aðferðin hefur sýnt gagnsemi fyrir sjúklingana og eftir að stunda þetta um tíma getur það dregið verulega úr notkun bæði berkjuvíkkandi lyfja og innöndunarstera.