• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Hiti

Skrifað 2010-05-11 · Börn

er ekki sjúkdómur heldur afleiðing.  
Sótthiti er óeðlilega hár líkamshiti.  Hiti er ekki sjúkdómur heldur afleiðing og í sumum tilfellum eina einkenni um að einhverskonar sýking á sér stað.  Þetta er eðlilegt ferli og ef hitinn er ekki óeðlilega hár þá getur hann verið gagnlegt fyrirbæri.  Það er ekki aðeins til að vara mann við að sýking eigi sér stað heldur gefur það til kynna að varnir líkamans séu virkar.  Hiti getur unnið með einstaklingnum gegn sýkingum til að öðlast bata á ný og er oft mikilvægur þáttur í vörn ónæmiskerfisins  gegn veirusýkingum.  En með óeðlilega háan hita eða með hita í kjölfar alvarlegs sjúkdóms skal sýna aðgát og þá hafa samband við lækni. 
Ef líkamshitinn er 37,5°C eða hærri getur það bent til sýkingar, en slík hækkun hita getur líka stafað af líkamlegri áreynslu.  Best er því að mæla sig að morgni áður en farið er að hreyfa sig.  Ungbörn hafa tilhneigingu til að hafa örlítið hærri hita á kvöldin og er það mjög eðlilegt og ekkert til að hafa áhyggjur af.


Mismunandi hitamæling.

Mismunur milli mæla:
Munnmæling  sé  37 ºC,
Endaþarmsmæling 37,5 ºC,
Holhandarmæling 36,5 ºC,

Hjá börnum er eðlilegur hiti oft hærri og sveiflóttari heldur en hjá fullorðnum. 

Venjulega er talað um að barn sé með hita ef:
Endaþarmsmæling sýnir hita yfir 38°C
Munnmæling er yfir 37,5 °C
Mæling í holhönd er yfir 37,2 °C

Eðlilegur líkamshiti er dálítið mismunandi eftir einstaklingum, en er yfirleitt stöðugur hjá hverjum fyrir sig.  Til að komast að því hver er eðlilegur líkamshiti skal mæla sig í nokkur skipti bæði kvölds og morgna í heilbrigðu ástandi.  Með munnmæli er eðlilegur líkamshiti karla á bilinu frá 35,8°C til 37,0°C en hjá konum frá 35,6 °C til 37,2°C.  Líkamshiti er að jafnaði 0,5°C hærri að kvöldi en að morgni.  Hiti mældur með munnmæli mælist yfirleitt lægri en með endaþarmsmæli. 

Holhandarmæling er yfirleitt ekki eins áreiðanleg.  Mælinn þarf að setja djúpt í handarkrikann í 10 mínútur og því ekki æskilegt fyrir lítil börn sem vilja hreyfa sig.

Ung börn fá oftar hita en fullorðnir. Ekki er óalgengt að börn fái 39-40°C hita ef þau kvefast eða fá einhverskonar pestar.  Gættu varkárni þegar þú mælir hita í barni.  Settu örlítið smyrsli á endann þannig að hann smjúgi betur inn, en gættu þess að setja hann ekki of djúpt eða aðeins um 1½  centimeter.  Kvikasilfursmæli skal halda í um 2 mínútur en stafrænn endaþarmsmælir sýnir hitastigið eftir um 30 sekúndur og gefur hljóðmerki þegar tíminn er liðinn.

Einnig eru til eyrnahitamælar sem sumum fellur vel að nota  en ekki er mælt með eyrnamælingu hjá börnum yngri en þriggja mánaða.  Mikilvægt er að eyrnamælirinn sé rétt notaður til að mark sé takandi á mælingunni en honum fylgja nákvæmar leiðbeiningar. 

Snuðmælar eru þægilegir og einfaldir í notkun, en þurfa að haldast í munninum í nokkrar mínútur til að fullnægjandi mæling fáist.  Því getur verið erfitt að treysta á þá fyrir mjög ung börn.    

Húð- og ennismælar eru settir á enni eða gagnaugu og gefa til kynna hvort barnið er með hita en gefur hins vegar ekki nákvæma niðurstöðu um hve hitinn er hár.


Heimilisráð,  hvað skal gera.

Þegar um háan hita er að ræða dettur okkur fyrst í hug að gera allt sem hægt er til að lækka hitann með hitalækkandi lyfjum, en það gæti aftur á móti hindrað bataferli einstaklingsins.  Hiti er eðlileg viðbrögð varnarkerfisins og hluti af lækningaferli líkamans gegn sýkingum. 

Talið er að hiti um og yfir 41°C (mælt í endaþarmi) gæti valdið barni skaða. 
Hitakrampar koma einkum fyrir hjá börnum yngri en 3 ára.  Hitakrampar standa oftast stutt og valda ekki heilaskaða eða öðrum skemmdum.  Þeir koma gjarnan í byrjun veikinda þannig að ekki er hægt að fyrirbyggja þá með hitalækkandi lyfjum.
Eðlilegt er að matarlist sé minni meðan einstaklingur er með hita, þannig að ekki er gott að láta troða ofan í sig mat meðan listaleysið er viðvarandi, en nauðsynlegt er að reyna að drekka vel.  Ef örlitið salt er sett út í drykkinn, getur það bundið vökvann aðeins lengur í líkamanum.  Gott er að vigta veikt barn daglega svo hægt sé að fylgjast með því hvort barnið er farið að ofþorna. Ef barn hefur misst um 5% eða meira af líkamsþunga sínu þarf að fara með það til læknis.

Gott er að strjúka líkamann með rökum klút og reyna að koma í veg fyrir að hrollur myndist af því að vera í rökum svitastorknum fatnaði. 

Ef sýkingin er kvef með slímmyndun skyldi ekki liggja mikið í rúminu, því þá er meiri hætta á að sýkingin fari í eyru eða afholur nefs (ennis- og kinnholur).  Ekki liggja í rúminu ef þú treystir þér til þess að vera á fótum og ekkert er því til fyrirstöðu að það sé í lagi.  En að öðru leiti þarf að fá góða hvíld og ekki skal reyna á sig meðan hitinn er viðvarandi.

Varast skal að ofklæða sig eða liggja pakkaður inn í heita sæng.  Æskilegt er að hafa gott loft í herberginu.  Varast að láta sér verða kalt eftir að verða hitalaus.  Varast skal miklar veðra- eða hitabreytingar.


 

Hefðbundnar meðferðir.

Þar sem hiti einn og sér gefur ekki nægilega ástæðu til að leita læknis þarf að vera vakandi fyrir einkennum sem bent gætu til alvarlegra undirliggjandi sýkinga. 

Leita skal til læknis:
Ef barn yngra en 3ja mánaða og fær háan hita.
Ef vart verður við hnakkastífleika.
Ef einstaklingur er óeðlilega slappur, erfitt að vekja hann eða hann er mjög ruglaður.
Ef einstaklingur er með hraða öndun eða öndunarerfiðleika.
Ef einstaklingur fær útbrot eða föla húð.
Ef einstaklingur hefur óþægindi eða sviða við þvaglát.
Ef einstaklingur er óeðlilega sljór samhliða því að vera illa haldinn.
Ef einstaklingur hvílist ekki eða líður mjög illa.
Ef um þrálátan hita er að ræða sem hefur ekki minnkað eftir nokkra daga.
Ef hitinn gengur niður eftir nokkra daga en blossar svo upp á ný.
Ef einstaklingur fær þurrk eða hefur misst meira en 5% af upphaflegri þyngd.
Ef þú ert óörugg og veist ekki hvað þú átt að gera.

Hita- og verkjastillandi lyf er hægt að fá í apótekum án lyfseðils en æskilegt er að fá faglega ráðgjöf hjá lyfjafræðingnum um val og notkun.  Gæta skal sérstaklega að fylgja leiðbeiningunum nákvæmlega um skammtastærðir. Svörun við hitalækkandi meðferð þ.e. ef hiti lækkar fljótt og einstaklingnum líður betur, er ekki öruggt að undirliggjandi sýking sé ekki til staðar og því þarf að fylgjast með einstaklingnum og gæta þess að fara vel með sig.

Hitalækkandi lyf innihalda paracetamol, íbúprófen, naproxen eða asetýlsalisýlsýru. 

Ekki skal nota Paratab (paracetamol) í óhófi og aðeins að nota lyfið ef hitinn hjá barninu fer yfir 38,5 gráður.  Forðast ætti að nota lyfið að staðaldri, því samkvæmt rannsókn sem gerð var á 200 þúsund börnum frá 31 landi kom fram að þau ungabörn sem fengið höfðu paracetamol á fyrstu æviárum sínum eru í 50% meiri áhættu um að þróa með sér astma þegar þau nálgast 6-7 ára aldurinn.  Líkurnar aukast í hlutfalli við aukna neyslu lyfsins.  Einnig getur það valdið útbrotum og bólgu í munni og hálsi.

Ekki gefa börnum yngri en 12 ára Íbúfen (íbúprófen).  Þetta lyf getur valdið útbrotum, höfuðverk og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir maga og þarma. 

EKKI gefa börnum og unglingum yngri en 18 ára Asperín (asetýlsalisýlsýru) við hita nema að ráðfæra þig við lækni.   Hugsanlegt að það tengist Reyes-heilkenni ef það er gefið börnum.  Reyes heilkenni er sjúkdómur sem getur haft áhrif á heila og lifur og gæti verið banvænn.  Forðast langtímanotkun fyrir aldraða vegna hættu á eitrunaráhrifum í meltingarvegi.


 

Hómópatalyf.

Hómópatalyf geta gefið frábæran árangur sem hitalækkandi, og í sumum tilfellum styrkt líkamann samhliða til að vinna gegn einkennum sýkingarinnar.  Remedíur eru  aukaverkanalausar og því óhætt að gefa þau einstaklingum á öllum aldri.  Gefa á 20-30 mínútna fresti og ætti að draga úr hitanum innan nokkurra klukkutíma.

Hér verða taldar upp algengustu hitaremedíurnar ásamt einkennum þeirra.  En þess utan eru fjölmargar remedíur sem henta vel ef einkenni eru önnur.  Því er gott að ráðfæra sig við reyndan hómópata við val á remedíum.

Belladonna  (200c):   er algengasta remedían þegar einkenni birtast skyndilega. Hitinn er hár en svitnar ekki.  Andlitið rautt, augun eru glansandi og sjáöldrin stór.  Ef um eyrnabólgu er að ræða getur eyrað verið rautt.  Slímhúð roðnar  og einstaklingur er allur heitur.  Óróleiki og jafnvel skapköst.  Höfuðverkur fylgir oft.  Hitinn mestur á nóttunni og gæti fylgt með skelfilegu óráði.  Einkenni geta komið skyndilega en farið jafn skyndilega.

Aconite  (200c):  er gott að gefa strax í upphafi.  Einkennin koma skyndilega og einstaklingur er kvíðinn og órólegur, sérstaklega eftir að hafa orðið kalt.  Biltir sér í svefni.  Húðin er þurr og heit og púlsinn hraður.  Munnþurrkur, þorsti og þurr hósti.   Hiti er hár, andlit rautt eða rautt og fölt til skiptis.  Augun rauð með samandregnum sjáöldrum.

Ferrum phos.:  er líka gefin í upphafi, ef hitinn er undir 38.5 ºC, en þessi einkenni koma smám saman og ekki eins ákaft og hjá Belladonnu eða Aconite.   Oft í byrjun hita eru kinnarnar bleikar, en andlit fölt. Fá eða engin önnur einkenni eru til staðar.  Ef engin af remedíunum virkar þá er oft sem þessi remedía gæti virkað.

Nux vomica:  þegar hitinn kemur fær einstaklingur mikinn kuldahroll.  Vill hafa sængina þétt að sér til að verða ekki kalt.  Hiti sem getur verið vegna aukaverkana af lyfjum gæti einnig verið vegna svefnleysis eða ofáts. Höfuðverkur, meltingarvandamál, harðlífi, niðurgangur eða hverslags meltingartruflanir getur verið til staðar. Líður illa á morgnana og í fersku lofti.

Pulsatilla:   er oftast notuð þegar um hrein einkenni um kvef eða eyrnasýkingu er að ræða, en einnig þó hitinn sé eina einkennið.  Kuldahrollur er í kjölfarið og verður því að vera undir ábreiðu, en líður illa í mjög heitu herbergi og er í þörf fyrir ferskt loft.  Einstaklingur er viðkvæmur og þarfnast umhyggju.   Lítill sem enginn þorsti.

Sulphur:   hiti samhliða niðurgangi með hitakófum.  Húðin getur orðið rauðleit og iljarnar heitar.  Svitnar mikið og oft illa lyktandi svita.  Mikill þorsti.

Gelsemium:    mikill sljóleiki og útlimir eru þungir.  Augun haldast varla opin. Vill bara fá að liggja í friði.  Svimi.  Kuldahrollur.  Enginn þorsti. 

Bryonia:   verkir og öll óþægindi versna við minnstu hreyfingu.   Mikill þurrkur og öll slímhúð virðist þurr.  Mikill þorsti.

Eupatorium perfoliatum:   mjög góð remedía vegna beinverkja. 

Samhliða ofantöldum remedíum þarf oft að hafa í huga að ef um undirliggjandi sýkingar er að ræða er þörf á remedíum sem vinna beint inn á þau einkenni.  Til dæmis ef um er að ræða lungnasýkingu, þvagfærasýkingu eða aðrar sýkingar sem þarf að hjálpa líkamanum til að takast á við.


 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).