22 Flensa / Svínaflensa.
A(H1N1) Flensa / Svínaflensa
Margir hafa um þessar mundir áhyggjur af svokallaðri Svínaflensu eða á fræðimáli A(H1N1)v flensu, enda hefur mikið verið fjallað um hana í fjölmiðlum.
Ennþá er hún frekar “mild” hér á landi og er svipuð og þessi venjulega árlega inflúensa.
Við vonum að sjálfsögðu að það breytist ekki.
Það er ýmislegt sem fólk getur gert til að láta sér og sínu heimilisfólki líða betur ef það fær flensu.
Mikilvægast er að fá góða hvíld og nóg að drekka.
Þá eru ýmsa remedíur sem koma að góðum notum, allt eftir einkennum hvers einstaklings. Einnig eigum við Íslendingar ýmsar jurtir sem hafa verið notaðar í aldanna rás og virka vel.
Landlæknir er með síðuna www.influensa.is og þar koma fram eftirfarandi upplýsingar um A(H1N1)v flensuna/svínaflensuna:
Einkenni sýkingar
Algengustu einkennin eru skyndilegur hiti, hósti, hálssærindi, slappleiki, beinverkir og höfuðverkur. Einkennum frá meltingarfærum (ógleði, uppköst og/eða niðurgangur) hefur verið lýst.
Smitleiðir og smittími
Veiran smitast manna á milli með hósta og hnerra, smitlíkur eru mestar ef fjarlægð frá sjúklingi er minna en einn meter. Smit berst einnig í slímhúðir í munni, nefi og augum, með höndum sem hafa mengast frá höndum inflúensusjúklinga eða menguðu yfirborði í umhverfi þeirra. Inflúensusjúklingar eru mest smitandi í upphafi veikinda, en smithætta er að mestu leyti horfin sjö dögum eftir upphaf veikinda.
Tími frá smiti þar til fyrstu einkenni koma í ljós
Meðgöngutími veirunnar, þ.e. tími frá smiti til fyrstu einkenna er oftast 2 – 3 dagar en getur verið allt frá 1 – 7 daga.
Almenn meðferð
Ráðlegt er að hvíla sig vel og drekka ríkulega.
Nokkrar jurtir sem virka vel við flensu og öðrum vírussjúkdómum eru t.d. Hvönn, Fjallagrös og Engifer. Gott að búa til te úr þeim og drekka.
Í bókinni Íslenskar Lækningajurtir, eftir Arnbjörgu Lindu Jóhannsdóttur eru greinagóðar upplýsingar um hvernig hægt er að nota áðurnefndar jurtir og ýmsar fleiri gegn flensu, kvefi og ýmsu öðru.
Og síðan eru það remedíurnar sem hafa ávalt virkað vel þegar flensufaraldrar eru í gangi.
Áður en þú færð flensu eða þegar fyrstu einkenni koma í ljós:
Oscillococcinum: Sem forvörn við flensu eða við fyrstu merki þess að sé að verða veikur.
Influenzinum: Sem forvörn við flensu.
Aconite: Við fyrstu merki um flensu sem byrjar skyndilega með engum skýrum einkennum, þ.e. á fyrstu klukkustundunum.
Ferrum phos: Við fyrstu eða önnur einkenni flensu (þ.e. eftir fyrstu klukkutímana) og engin einkenni ennþá.
Tuberculinum Res eða Tuberculinum Avis er nauðsynlegt að gefa allan tímann ef um fugla- eða svínaflensu er að ræða sem leggjast á lungu.
Flensuremedíur:
Arsenicum: Kuldahrollur. Mjög mikið rennsli úr augum og nefi. Þorsti í litla sopa í einu. Líður verr í kulda en betur í hita. Líður þó ekki vel í hita ef er með höfuðverk. Pirraður og kvíðinn. Mikið þrekleysi
Babtisia: Byrjar skyndilega. Hár hiti, sviti, mikið þrekleysi. Verkir út um allt. Andlit dauflegt / rautt. Ákafur þorsti. Einkenni frá maga t.d uppköst, eða niðurgangur.
Bryonia: Byrjar smám saman. Mjög heitur og þurr. Verkir út um allan líkama. Verkja mikill hósti (orsakar höfuðverk). Mikið magn sjaldgæft (vegan kulda). Líður verr við minnstu hreyfingu. Líður betur við þrýsting. Einkenni fyrir brjósti. Vill fá að vera I friði og vera kyrr.
Eupatorium perfoliatum: Kuldi á bakinu. Skjálfti. Miklir verkir í útlimum og baki. Tilfinning eins og bein séu brotin. Springandi höfuðverkur. Verkir í augum. Þorsti í kalda drykki. Líður verr við minnstu hreyfingu.
Gelsemium: Flensu remedía nr. 1 varðandi flensur: Kemur smám saman. Heitt og kalt til skiptis. Skjálfta hrollur upp og niður bakið. Enginn sviti. Verkjar alls staðar. Vöðvaverkir, þyngsli og aumir vöðvar. Hnerrar. Sljór af höfuðverk. Þyngsli í höfði og augum. Sér tvöfalt. Enginn þorsti. Höfuðverkur verður betri við þvaglát. Líður betur við að fá ferskt loft og að svitna. Syfjaður, sinnulaus, sljór. Skjálfti í útlimum. Stífur í hálsliðum.
Mercurius solubilis: Hægfara kuldi. Þykkur, fúll, rammur, gulur / grænn útskilnaður. Nef bólgið, glansandi og aumt. Kvef leiðir upp í augu. Ákafur þorsti. Stöðugt hungur. Líður verr við öfgar á hitastigi. Líður betur við hóflegt hitastig og hvíld. Með sárum hálsi, aukið munnvatns rennsli, slæmt bragð í munni og munni og andfýla. Eirðarlaus.
Nux vomica: Hrollkalt og skelfur (sérstaklega. eftir að drekka). Verkir í baki og útlimum. Stíflað nef á nóttunni. Þorsti í heita drykki. Líður verr við minnstu hreyfingu og við kulda. Líður betur í hita. Einkenni frá maga. Sérstaklega pirraður.
Pyrogen: Hægfara kuldi & þyngsli í hjarta Hraður hjartsláttur & lágur hiti eða öfugt. Kuldi á baki / útlimum. Ákafir verkir í baki og útlimum Finnst hann vera lamin og marinn um allan líkamann. Finnst rúmið vera hart. Springandi höfuð-verkur. Enginn þorsti. Ákaflega eirðarlaus samhliða verkjunum og hrollinum
Rhus Toxicodendron: Hroll-kaldur. Eymsli og verkir í liðamótum og beinum. Rauður tungubroddur (þríhyrningur). Þyrstur. Líður verr við að vera kyrr, en einnig eð vera á hreyfingu. Líður betur að vera á hreyfingu og í hita. Eirðarlaus og ruglaður. Óttast að eitrað verði fyrir honum.
Eftir Flensuna vegna afleiðinga, þróttur lætur á sér standa:
China: Aukinn líkamlegur slappleiki með miklum svita og mögulega ofþornun.
Kali phosphoricum: Milt þunglyndi eftir flensuna.
Gelsemium: Slappleiki eftir flensuna með þyngsla tilfinningu sem hverfur ekki.
Influenzinum: Finnst eins og hann eða hún hafi ekki náð sér eftir flensuna – hefur ekki verið hress síðan
Með von um að þessar upplýsingar komi að góðum notum.
Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH