• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Frunsur / áblástur

Skrifað 2010-05-16 · Sjúkdómar

Hér munum við fjalla um frunsur (HSV-1) sem hafa aðallega áhrif í andliti.

 Frunsur eða áblástur (Herpes labialis) eru einkenni veirusýkingar sem er af herpesstofni (herpes simplex) og er skyld hlaupabóluveirunni.  Flestir smitast af þessari veiru í æsku þó hægt sé að smitast hvenær sem er á ævinni og ef einstaklingur smitast þá losnar hann aldrei við veiruna.  Talið er að um eða yfir 80% manna sé smitaður af þessari veiru og hafi myndað mótefni, en að eingöngu 20% fái útbrot.

Herpes simplex skiptist aðallega í tvo flokka.  Annar HSV-1 hefur áhrif á andliti, munn, augu og fleiri staði en það er sú tegund sem flestir þekkja.  Hinn HSV-2 hefur frekar áhrif á kynfæri og umhverfis þau og er talinn til kynsjúkdóma.  Hér munum við þó aðeins fjalla um HSV-1.
Herpesveira lifir í taugarótum en brýst fram í húðfrumur og veldur endurteknum útbrotum.  Veirurnar eru lengst af í dvala, en blossa upp við vissar aðstæður.  Sumir verða hennar aldrei varir, hjá öðrum brýst hún út með reglulegum hléum sem geta verið mislöng milli einstaklinga.  En einnig eru aðrir þar sem útbrotin blossa upp við kvef, lasleika, kulda, hita og líkamlega- eða tilfinningalega streitu.  Einnig vegna áhrifa frá sól, á gelgjuskeiði, í kringum tíðir kvenna eða bara einskær óheppni. 

Vírusinn fer inn um húð eða slímhúð og getur aðeins lifað á mannslíkama og berst frá einum einstakling til annars við beina snertingu.  Hann smitast aðallega meðan útbrotin eru viðvarandi við beina snertingu við frunsuútbrot, fingur sem hafa snert útbrot eða rakt handklæði eða þvottapoka sem einhver hefur þurrkað sér með.  Einnig hefur verið sýnt fram á að veiran getur lifað í baðvatni eða heitum potti, en deyr fljótlega eftir að þorna. 
Þegar herpesveiran brýst út þá sest hún að í húðfrumum og myndar þéttar blöðrur sem fyllast veirum, en þær geta orðið allt að 200 þúsund í hverri blöðru.  í upphafi þegar frunsan brýst fram getur vessinn sem kemur úr hverri blöðru innihaldið milljónir veira sem eru mjög smitandi.  Þær geta ýmist smitað sama einstakling á öðrum stað eða annan einstakling og því nauðsynlegt að sýna ýtrasta hreinlæti.

Herpes er ekki alvarlegur sjúkdómur fyrir flesta einstaklinga þó hann geti valdið leiðinda óþægindum.  Varnarkerfi líkamans myndar mótefni gegn veirunni sem mildar eða hindrar útbrot með öllu og ef varnarkerfi líkamans veikist eru meiri líkur á að veiran brjótist út. Herpesveiran getur valdið alvarlegum eða lífshættulegum sýkingum hjá nýburum eða sjúklingum með bælt ónæmiskerfi.


Einkenni 

Herpes-útbrot einkennast af þéttum vessafylltum blöðrum.  Þeir sem fá frunsur verða oft varir við kláða eða fiðring í einn sólarhring eða svo áður en útbrotin koma.  Síðan myndast þónokkrar litlar blöðrur umluktar rauðri húð með þrota.  Í fyrstu er hver blaðra fyllt tærum vökva, sem oft breytist í hvítan eða gulan graftarvessa.  Blöðrurnar springa eftir fáeina daga og mynda grunnt sár.  Hrúður myndast ofan á og sárið þornar.  Ný húð myndast og skilur sjaldan eftir sig ör.

Ekki skal hylja blöðrurnar með neinu sem haldið getur raka á svæðinu því best er að leyfa þeim að þorna sem fyrst.  Eðlilegt ferli frunsu getur varað í 1-2 vikur ef ekkert er að gert.

Hjá sumum einstaklingum sem fá frunsu í fyrsta sinn geta orðið varir við hita, vöðvaverki, höfuðverk og önnur einkenni veirusýkingar, en þessi einkenni gera yfirleitt ekki vart við sig nema bara þetta eina sinn. 

Dregið getur úr verkjum með því að kæla frunsuna með ísmola, sérstaklega í upphafi.


Smitvarnir

Herpesveirurnar sem eru í frunsunum geta smitað heilbrigða húð eða slímhimnu.  Sárið getur valdið smiti frá því það myndast og þar til það er orðið alveg þurrt.  Ef frunsa er snert eða klórað í hana geta fingurnir smitast, en smit getur einnig borist til annarra staða á líkamanum sem fingurnir snerta, svo sem nef, eyru, augu og fleiri staði.  Smitun getur einnig átt sér stað við kossa og aðra beina snertingu.  Jafnvel er hægt að smitast af röku handklæði eða þvottapoka sem einhver hefur notað. 

Því skal varast að snerta sýkt svæði og þvo skal hendur bæði áður og eftir að snerta sýkt svæði.  Varast líkamlega snertingu við aðra, forðast kossa og vera varkár þegar annast er um börn.  Ef frunsa kemur í sól er gott að bera sterka sólarvörn á varirnar.   Skipta skal um tannbursta eða sótthreinsa hann, því veiran getur tekið sér bólfestu í tannburstanum og smitað þig aftur.

Haldið útbrotum og svæðinu umhverfis hreinu og þurru.  Í sumum tilfellum gæti verið nauðsynlegt að setja umbúðir til varnar gegn óhreinindum og bakteríum, en það þarf þá að vera umbúðir sem halda ekki raka að frunsunni. 

 Nauðsynlegt er að sýna ýtrasta hreinlæti.  Þar sem herpesveiran getur verið hættuleg ungabörnum ætti enginn með frunsu að sinna þeim að ástæðulausu og þá að þvo hendur sínar mjög vel áður en komið er við þau.  Það sama á við um veikburða einstaklinga með veikt ónæmiskerfi.
Einnig skal sérstaklega gæta þess að nudda ekki augun til að eiga á hættu að bera vírusinn upp í augun.  Einkennin geta verið svipur venjulegri augnsýkingu, nema að þessu fylgja meiri verkir og getur haft áhrif á sjónina.   Þetta getur orðið alvarlegt ástand sem gæti valdið varanlegri skemmt og sjónskerðingu. 


Hómópatía

Ef þú átt tilhneigingu til að fá frunsur þá er gott að hafa remedíur meðferðis Þegar farið er í frí.  Hómópatar geta útbúið blöndur sem hafa breiðvirkari áhrif en ef aðeins er um eina remedíu að ræða og geta boðið upp á breytilega styrkleika miðað við hvern einstakling. 

Hómópatískar remedíur sem teknar eru strax og vart verður við að frunsur á byrjunarstigi, geta dáið í fæðingu.  En ef frunsa nær sér á strik, þá er hún bæði minni og fljótari að gróa ef notaðar eru remedíur.

Rhus tox er sérlega góð remedía vegna Herpes.  Frunsur geta brotist út hvar sem er á líkamanum en sérstaklega umhverfis varir eða í munnvikjum.  Útbrot eru rauð, þrútin með sviðaverkjum og kláða.  Litlar blöðrur í þyrpingu fylltar með gulleitum, vatnskenndum vökva.  Heitir bakstrar gætu létt á verkju  Samhliða getur einstaklingur fundið fyrir lasleikatilfinningu og eyrðarleysi.

Natrum Muriaticum  getur stundum stoppað frunsu í fæðingu ef remedían er tekin strax í upphafi, strax þegar vart verður við kláða.  Getur einnig hjálpað þegar frunsur eru rauðar og sárar í munnvikjum, í nösum, höku eða annarsstaðar í andliti.  Nat. mur. er góð remedía ef þú hefur tilhneigingu til að fá frunsu við streitu, í sól og eftir að fá kvef eða hita.  Blöðrur eins og perlur umhverfis varir sem innihalda tæran vökva.  Einkenni geta verið óþægilegri á daginn.  Varast skal salt á meðan.

Sepia  er nauðsynleg remedía fyrir bæði herpes í andliti eða kynfærum.  Ekki eru mörg einkenni sem hjálpa til að finna þessa remedíu.

Nitric Acid   getur verið góð í upphafi ef verkir eru sárir og stingandi og ef sárin hafa tilhneigingu til að springa og blæðir úr þeim.

Apis mellifica  þegar stingandi verkir koma þegar frunsan er að brjótast fram og svæðið er rautt og þrútið. 

Arsenicum  ef útbrotum fylgir mikill sviði.  Gæti liðið betur við heita bakstra.  Einstaklingur gæti fundir fyrir eyrðarleysi, þreytu og kvíðatilfinningu.

Hepar sulphuris calcareum   hentar vel ef einstaklingur er viðkvæmur gagnvart kulda,  kvefsækinn, með lélegt ónæmiskerfi. 

Graphites  þegar hunangslitaður, klístraður vökvi vessar úr frunsunni.  Frunsurnar eru stórar með töluverðum kláða.  Húðin fær hrúður sem springur.  Einstaklingur hefur önnur húðvandamál.

Mercurius solubilis  Fyrir börn sem slefa mikið og fá jafnvel hita.  Er hentug þegar sýking hefur komið í frunsur.  Virkar oft vel hjá andfúlum einstakling sem svitnar mikið á nóttunni.

Dulcamara  er oft hjálpleg ef frunsan kemur eftir að einstaklingur hefur orðið votur og fengið kvef. 


Önnur óhefðbundin ráð

Lysine  500mg tvisvar á dag.  Lysine er amínósýra sem hefur þann eiginleika að draga úr frásogi arginine og getur því bælt niður herpesvírusinn.  Fæða sem inniheldur ríkulegt magn af arginine skyldi forðast en það eru súkkulaði, hnetur og flest morgunkorn.  Eðlileg uppspretta lysine finnst í mjólkurafurðum, kartöflum og geri.

Hvítlaukspillur:  geta flýtt fyrir ferlinu.

Zinc sem styrkir ónæmiskerfið, hefur einnig sýnt að það getur hjálpað vörnum gegn herpes-vírusnum og flýtt fyrir ferli frunsuútbrota.  Zinc er ríkulegt í ostrum, sjávarfangi, eggjum, lifur, kjúklingum, kartöflum,  kalkún, sólblóma- og graskersfræjum.  En ef þú tekur meira en 30mg daglega í nokkra mánuði þarftu að fá aukinn skammt af kopar eða um 2mg á dag.  Ekki er æskilegt að nota lysine ef þú þjáist af hjartasjúkdómum eða ert með of hátt cholesterol eða þríglýseríð.  Það gæti t.d. hækkað cholesterolið enn frekar. 

St. Johns Wort er eitt af áhrifaríkustu en minnst þekktu mótefnunum gegn frunsum, en sem oftast er notað við vægum þunglyndiseinkennum.  Það hefur frábæra eiginleika gegn vírusum og aukaverkanir óverulegar nema ef það gæti aukið á ljósfælni í sól.

Grapefruit seed  hefur öfluga bakteríu- og veiruvörn.  Það má leggja það við frunsuna.  En ef frunsurnar koma ítrekað gæti ónæmiskerfið verið í þörf fyrir elderflower, astragalus eða lakkrísrót.

Elagen inniheldur virkt efni úr Asískri plöntu sem heitir Eleutherococcus senticosus. Hún er skyld ginseng of sögð styrkja ónæmiskerfi líkamans.
Calendullu tinctura flýtir fyrir grósku húðarinnar eftir að frunsan er orðin þurr.

Propolis  er trjákvoða sem inniheldur mikið af flavonoid sem er gott andoxunarefni.  Það hefur hjálpað til að létta á og stytta ferli frunsunnar.

Spirulina hefur hjálpað líkamanum gegn ýmsum vírusum og þar á meðal herpes sýkingu.

Lemon Balm  (Melissa officianalis) með því að bera á frunsuna hefur í sumum tilfellum flýtt fyrir ferlinu allt niður í 2-3 daga

Piparmintuolía  hefur sýnt sýkladrepandi áhrif á nokkrar tegundir sýkinga og þar á meðal á frunsur. 

Tea Tree Oil  hefur mögulega áhrif á ferlið ef borið á frunsuna.

Siberian Ginseng  hefur sýnt sig að draga úr virkni hjá frunsum og í sumum tilfellum valdið því að þær koma sjaldnar.  Alls ekki gefa börnum  eða einstaklingum með háan blóðþrýsting, kæfisvefn, þunguðum konum né konum með barn á brjósti.

Varasalva skyldi alls ekki nota þar sem hann hindrar þornun og getur gert illt verra. 


Hefðbundnar meðferðir 

Zinkpasta (Zinkoxid Delta) frunsulausn eða áburður getur aftur á móti þurrkað húðina.  Það getur dregið úr óþægindunum, en þegar sárið fer að gróa er gott að bera mýkjandi krem á svæðið.

Acíklóvír kemur í veg fyrir fjölgun herpes-veirunnar og innrás þeirra í húðfrumur þannig að sárið verður minna og grær fyrr.   Zovirax krem, Zovir og Veban innihalda öll þetta virka efni acíklóvír sem gæti gert gagn í upphafi sýkingar þegar fyrst verður vart fyrstu einkenna (æðaslátt, ertingu eða sviða), því eftir að blöðrur hafa myndast gera þú lítið gagn.  Zovir-kremið (5%) fæst án lyfseðils en er lyf sem aðeins fæst í apótekum. 

Vectavir krem inniheldur virka efnið pensíklóvír sem hefur svipaða verkun og acíklóvír en einnig er hægt að nota það eftir að blöðrur hafa myndast.   
Þegar miklar eða alvarlegar sýkingar eiga sér stað eru þessi lyf gefin í töfluformi eða í æð.  Zovir á ekki að nota á börn undir tveggja ára, nema samkvæmt læknisráði.  Aukaverkanir geta verið sviði eða stingur sem getur komið strax eftir að kremið er borið á, en líður fljótlega hjá.   Einnig getur myndast roði, sviði, þurrkur eða húðflögnun.  Ef aukaverkanir hverfa ekki fljótlega skal hafa samband við lækni eða lyfjafræðing.

Þrátt fyrir notkun þessara lyfja verður herpesveiran ávallt til staðar í taugarótunum og getur valdið frunsum hvenær sem er. 

Leita skal læknis ef:
• sárið grær óvenju seint.
• óþægindin taka sig upp aftur og aftur með stuttu millibili.
• gefin ráð koma ekki að gagni.
• einnig ef um aukaverkanir af kremum gera vart við sig.

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).