• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

ESSIAC / Tea of Life

Skrifað 2010-05-18 · Mataræði

Einstök jurtablandi fyrir ónæmiskerfi líkamans.

 Essiac, Flor Essence, Tea of Life, Herbal Essence, Vitalitea. 

Essiac te er sérvalið fæðubótarefni sem yfirleitt er notað fyrir fólk með krabbamein, sykursýki, króníska verki, háan blóðþrýsting, hátt kólesteról, lupus, húðvandamál eins og bólur og psoríasis.  Einnig fyrir mörg önnur vandamál eins og eyrnasuð, liðagigt eða liðbólgur.  Notað til úthreinsunar.  Má gefa hundum, köttum og öðrum heimilisdýrum.  Varast skal ofnotkun.

Árið 1922 var hjúkrunarkona sem hét Rene Caisse frá Ontario í Canada sem heyrði frá sjúklingi af þessari jurtablöndu.  Sjúklingurinn sagðist hafa verið með brjóstakrabbamein en fengið bata með því að drekka Indverskt jurtate sem þróað var af töfralækninum Ojibwa.  Hún vildi einnig halda því fram að blandan hafi læknað magakrabbamein hjá frænku hennar.  1924 opnaði Caisse klínik og byrjaði að bjóða krabbameinssjúklingum jurtablönduna Essiac, en nafnið er hennar eigið eftirnafn stafað afturábak.  Þá voru aðeins 4 jurtir í blöndunni og engar vísindalegar rannsóknir lágu fyrir um áhrifin þegar hún lést árið 1977.

Nútíma rannsóknir og þróun í náttúrulækningum hefur aukið þekkingu á jurtum og eðli þeirra.  Skilningur á virkni þeirra fyrir líkamsstarfsemi og ónæmiskerfið er mun meiri en áður. 

Essíac jurtablandan hefur bætt heilsu margra vegna uppbyggjandi áhrifa á frumur líkamans og styrkjandi áhrifa á ónæmiskerfið.  Ónæmiskerfið er það sem vinnur með okkur að vörnum gegn sjúkleika og annarra raskana í líkamanum. 

Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á Essiacblöndunni og á þeim sem hafa notað hana, hafa leitt í ljós að hún hefur hjálpað varðandi krabbamein af ýmsum toga og eftirmeðferðir sem eru til dæmis  geislun og lyfjameðferðir.  Einnig hefur sýnt sig að þetta hefur hjálpað eyðnisjúklingum og þeir sem þjáðst hafa af síþreytu, sykursýki, MS og Lupus hafa margir hverjir fengið bót að einhverju eða öllu leyti.  Alzheimer’s sjúklingar hafa margir sagt að það gat stöðvað ýmislegt neikvætt ferli.


Essiac jurtablandan

Essiac er einstök jurtablanda fyrir ónæmiskerfi líkamans og betra heilsufar.  Efnisþættir þessara jurta hafa einstök áhrif á ónæmiskerfi líkamans.  Hún stuðlar einnig að endurnýjun fruma og styrkir vefi og húð. 

Erlendis hefur þessi blanda verið þekkt með 4 til 8 jurtum sem eru:  Græðisúra (Sheep’s Sorrel), Búrblaðka eða Krókalappa (Burdock Root), Tröllasúra (Turkey Rhubarb Root) og  Regnálms börkur (Slippery Elm).  Einnig Brunnperla (Water cress), Heilagur þistill (Carduus benedictus) og Rauðsmári (Red clover).

Þessar blöndur eru viðurkenndar sem einstakar blöndur til að byggja upp ónæmiskerfið.  Þær eiga að styrkja líkamann gegn krabbameinsmyndun og að vinna á krabbameini ef það hefur myndast, styrkja eðlilega starfsemi skjaldkirtilsins,  koma jafnvægi á bris og lækna kvef.  Mjög góð lifrarhreinsun og styrkir lifrarstarfsemi.  Rannsóknir hafa sýnt að þessar jurtir vinna sérlega vel saman til að auka jafnvægi milli líkamsþátta,  varna þess að eiturefni setjist að í líkamanum og eru blóðhreinsandi. 

Íslenska Essiacið er betra að því leiti að hún er blönduð úr tíu jurtum og margar þeirra eru íslenskar jurtir úr íslensku heilnæmu umhverfi.  Þessar jurtir eru:  Græðisúra (Sheep’s Sorrel), Búrblaðka eða Krókalappa (Burdock Root), Tröllasúra (Turkey Rhubarb Root), Regnálms börkur (Slippery Elm), Fjallagrös (Iceland Moss), Vallhumall (Yarrow), Rauðsmári (Red clover), Þari (Sea Kelp), Heilagur þistill (Carduus benedictus) og Brunnperla (Water cress)


Niðurstöður rannsókna:

Við rannsóknir á Essiac hefur eftirfarandi komið fram;

Það breytir fitu og sykri í orku og jafnar því kólesterólmagn líkamans.  Það minnkar líkur á að fita hlaðist á æðaveggi.  Einnig minnka líkur að fita hlaðist á lifur, hjarta og nýru.  Essiac er blóðhreinsandi.

Styrkir vefi, líffæri og vöðva.  Styrkir og eykur sveigjanleika himna í liðamótum, beinum, lungum og eitlum.  Vinnur gegn streitu og streituskemmdum.  Auðveldar myndun lecitins í lifur, og umbreytir í myelin sem er efni sem verndar og umlykur taugaenda.  Flýtir fyrir grósku sára með nýmundun fruma á skemmdum svæðum.

Viðheldur bættum efnaskiptum og betri næringu fruma líkamans.  Eykur næringu til heila og taugakerfisins.  Eykur framleiðslu rauðra blóðkorna og styrkir þau.  Eykur virkni vefja og vökvaupptöku þeirra.  Eykur súrefnisupptöku líkamans meðal annars með auknu súrefni í stoðfrumum.  Eykur virkni briskirtils og milta við meiri virkni insúlíns.

Hreinsar öndunarfærin með aukinni slímlosun.  Losar og fjarlægir uppsöfnuð eiturefni úr líkamanum eins og úr eitlum, beinmergi, blöðru, fitu og líffærum sem vinna að næringu líkamans.  Varnar því að eiturefni geti borist til heila.  Minnkar álag á lifur með því að umbreyta eitruðum fituefnum og gera þau vatnsuppleysanleg og þannig að þau geti skolast út gegnum nýrun. 

Eykur framleiðslu mótefna í til dæmis sogæðum og T-frumum í hóstarkirtli.  Varnar og mögulega eyðir myndun illkynja æxla og hnúta.
Hjálpar mögulega að minnka og fjarlægja þungmálma sem sest hafa í vefi líkamans og þá helst við liðamót og minnka þannig stífni og hita í liðamótum.  Auðveldar losun efna og gerir þau óvirk í þvagi.  Jafnar efna- og oxalic sýrustreymi til nýrna.  Minnkar þannig líkur á myndun nýrnasteina í nýrum, gallblöðru og þvagrás. 

Minnkar sársauka og eykur matarlyst og jafnar orku en með því eykst vellíðan. Eyðir sníkjudýrum í meltingarvegi.  Myndar mótvægi og hreinsar eiturvirkni frá kvikasilfri, áli og blýi.  Verndar gegn neikvæðum árhrifum af rontgen og annarri geislun.


 Innihald Essiac:  

Búrblaðka (Krókalappa) (Arctium lappa - Burdock Root) hefur verið notuð um aldir víða um heim sem græðijurt.  Hún er af þistilætt og eru fræin, ræturnar og ungir stilkar vel æt.  Ræturnar eru um 2 ½ cm en geta orðið um meters langar. Þær eru aðallega notaðar til lækninga.  Þær innihalda B-complex og E-vítamín ásamt potassium, phosphorous, chromium, cobalt, járn, magnesíum, silicon, zinc og sodium. Búrblaðka stuðlar að vexti og nýmyndun heilbrigðra fruma.  Er ein af bestu blóðhreinsijurtunum.  Styrkir gallblöðru, nýrun og er bjúglosandi.  Stuðlar að heilbrigðu jafnvægi blóðsykurs.  Kínverjar hafa lengi talið Búrblöðku styrkja lungu og lifur.  Að hún styrki meltingu og veitir stuðning við hreinsun eiturefna úr líkamanum með þvagi eða út um húðina.  Sumir halda því fram að hún geti hjálpað varðandi liðagigt.   Hún er bakteríudrepandi og hefur verið notur við bólur og sveppasýkingar.    Er góð sem fæðubót.

Græðisúra (Rumex acetosella  – Rumex acelosa - Sheep’s Sorrel) en hefur ýmis önnur heiti eins og field sorrel, red top sorrel, sour grass and dog eared sorrel.    Hún inniheldur mikið af vítamínunum A, B-complex, C, D, K, P, U og E.  Af stein- og snefilefnainnihaldi er mest af kalsíum, járni, kísil, magnesíum, brennisteini, zinki, mangan, joð og kopar. Einnig inniheldur hún mikið af beta karoteni, blaðgrænu og citric, malic, oxalic, barkar og tartaric sýrum. Öll þessi efni eru mikilvæg fyrir starfsemi eitla líkamans. Einnig styrkja þessi efni flutning súrefnis um líkamann.   Krabbameinsfrumur drepast til dæmis við snertingu við súrefni. Í Evrópu, Asíu og Norður Ameríku hefur græðisúra verið notuð vegna krabbameins og talið hafa áhrif til að minnka æxli.  Græðisúra er bólgueyðandi, kælandi, þvag- og hægðalosandi og áður fyrr notuð við skyrbjúg. Græðisúran stuðlar að jafnvægi í meltingarfærum og stoðvefjum. Inniheldur efnisþætti sem jafna raka og næringu húðar.    Dregur úr ýmsum hrörnunarsjúkdómum. Stundum hefur fólki sem hafa tilhneigingu til að mynda nýrnasteina verið varað við þessari jurt.  Ekki skal geyma jurtina þurrkaða í meira en ár því þá fer hún að tapa næringu.  Engar vísindalegar rannsóknir hafa þó verið gerðar á Græðisúru.

Fjallagrös (Cetraria islandica  -  Iceland Moss) eru mjög nærandi.  Þau eru rík af bakteríueyðandi efnum og slímeyðandi efnum eins og likenín.  Einnig mjög rík af flestum steinefnum og sérstaklega rík af járn- kalíumsöltum. Þau eru græðandi og góð við öllum sárum og bólgum til dæmis í meltingarvegi og öndunarfærum. Þau draga úr ertingu frá magasýrum og græða sára slímhúð. Góð gegn exemi og þurrum hósta.

Vallhumall (Achillea millefolium  -  Yarrow) inniheldur ilmolíur (essential oils) sem í eru meðal annars kíneol, ásúlen, júgenol, tújón, pínen, og kamfóra. Hann er sérstaklega góður fyrir útæðakerfi og lækkar blóðþrýsting.  Hann er einnig svitadrífandi, róandi, verkja- og krampastillandi, ríkur af barkarsýrum og ísóvaleriansýrum.  Hann inniheldur salisilötur, kólín, aspargin og sykrunga. Vallhumall er græðandi, barkandi, blóðhreinsandi og æðavíkkandi.  Vallhumall er þekktur fyrir að örva blóðstorknun, vinnur gegn bólgum og hefur verið notaður við liðagigt.  Góður gegn exemi og öðrum útbrotum.  Sérlega góð kvennajurt vegna verkja í legi og á breytingaskeiði.  Góður fyrir meltingarvandamál og þvagfærasýkingar.  Notaður viðflensu, kvefi og hita.  Gott að setja hann út í sjóðandi vatn og anda að sér gufunni við astma og heymæði.

Tröllasúra (Rheum palamatum  -  Turkey Rhubarb Root).  Þessi rót hefur verið notuð víða um heim til lækninga um aldir. Hún inniheldur vítamínin A, B, C og P en einnig kalsíum kopar, joð, járn, magnesíum, mangan, fosföt, kísil, súlföt og zink. Rótin er styrkjandi, hreinsandi fyrir líffærin og hefur bætandi áhrif á gall. Hefur sérstaklega hreinsandi og græðandi áhrif fyrir lifur og gall.  Hreinsar eitrandi efni sem hafa sest í ristil. Tröllasúran stuðlar að bættri heilsu og vellíðan, betra jafnvægi blóðflæðis og meltingarfæra auk þess að stuðla að jafnvægi í iðraflóru.  Gæti valdið niðurgangi og því ekki ráðlegt í miklu magni.  Rene Caisse vildi kaupa Tröllasúruna frá Kína eða Tíbet því þaðan var hún virkari og ekki eins bitur á bragðið. 

Regnálms börkur (Ulmus fulva  -  Slippery Elm) getur orðið 60 feta hátt og börkur stofnsins er brúnn, en börkur greinanna er ljós, en ljósi börkurinn hefur læknandi eiginleika.  Hann inniheldur mikið kalsíum, magnesium og vítamínin A, B, C, K og P.  Auk þess er hátt innihald af græðandi efnum, slímefnum, mjölva, sykrum, fenóli, gallic- og barkarsýrum. Í berkinum er í minna magni kromium, selenium, zink, kísill, fosföt og járn. Regnálmsbörkur er orkumikill en samt róandi bæði andlega og líkamlega.  Hann er mýkjandi og sérstaklega græðandi, sótthreinsandi og fjarlægir eiturefni. Hann er góður við innvortis sárum eins og  særindum í meltingarvegi, vélinda og maga. Styrkir líffæri og slímhúð sérstaklega í maga og lungum. Efnisþættir Regnálmsbarkar jafna einnig sýrustig meltingarfæra, sem annars gæti valdið meltingaróþægindum.  Talið hafa bæði sýkla- og bakteríudrepandi eiginleika ásamt því að vera eiturefnalosandi.  Hjálpar bata eftir að skera sig, brenna sig og við ýmis sár.  Talið blása nýju lífi í allan líkamann.  Möguleiki á ofnæmisviðbrögðum en ekki alvarlegum nema hjá þunguðum konum.

Þari (Laminaria digitalis  -  Fucus Vesiculosus  –  Sea Kelp) inniheldur öll stein- og snefilefni sem uppleyst er í sjónum og eru nauðsynleg lífverum til vaxtar og viðhalds. Hann inniheldur lífsnauðsynleg efnasambönd eins og  vítamín, amínósýrur, prótein og önnur lífvirk efnasambönd.  Meðal virku efnanna má nefna slímefni, mannitól, fúkósterin, fúkósantin, sísantin og ilmolíur (essential oils). Þarinn er nærandi, blóðhreinsandi, örvar skjaldkirtil og þar með efnaskipti líkamans. Gott við innvortis bólgum og fyrir þá sem þjást af stöðugri þreytu og slappleika.  Talin góð við gallsótt, niðurgangi, kveisu, gigt, tæringu, brjóstveiki, lystarleysi, ógleði, sjóveiki, ófrjósemi, kyndeyfð, skyrbjúg og sem hægðalyf.  Bætir óróleika barna og eykur námsgetu.
Heilagur Þistill (Cnicus benedictus -  Carduus benedictus) hefur um aldir verið notaður til lækninga.  Í Heilögum Þistli eru vítamínin A, B, C, E, og P. Einnig er töluvert magn er af krómi, kóbalti, járni, magnesíum, fosfötum, kalí, kísil, zinki og kalki, kopar, mangan og selen.  Besta efnið í þistlinum er Unulín sem hefur mesta lækningaþáttinn og styrkir helstu líffærin en sérstaklega lifur, milta og briskirtil. Í rótinni eru til dæmis efni sem stuðla að hreinsun slæmra efna úr blóðrásinni, jafnframt því að styrkja öndunarfærin, eitla, blóðrás og þvagrás.  Einnig er þessi efnasamsetning vökvalosandi, losar út eiturefni, dregur úr álagi á lifur og bætir meltinguna.  Líklegt er að efnisþættir þessir komi í veg fyrir sýkingar í þvagrás, lifur og gallblöðru. Hann er bólgueyðandi og varnar gigtarbólgu, liðagigt og settaugabólgu.

Rauðsmári (Trifolium pratense  -  Red clover) er uppspretta margra næringarefna eins og kalk, króm, magnesíum, níasín, fosfót, kalíum, þíamín og C-vítamín.  Hann inniheldur virk efni eins og salisýlsýru, sykrunga og sykrur auk kúmaríns.  Hann er uppspretta af isoflavone sem er estrógenlíkt efni og gæti haft áhrif gegn beinþynningu. Hann er græðandi, hressandi, blóðhreinsand og þvagdrífandi. Góður við hósta og losar um slím til dæmis í öndunarfærum. Talið að geti verndað gegn hjartasjúkdómum og haft blóðþynnandi áhrif sem varðveitir gegn blóðtappamyndun.  Hann hefur reynst vel við exem og sóríasis. Hefur verið notaður gegn krabbameini, sérstaklega í brjóstum og eggjastokkum.  Er notaður í smyrsli við húðkrabba, exem og önnur útbrot.

Brunnperla (Nasturtium officinale  -  Water cress)  er rík af vítamínum, sérstaklega C, joði, járni, fosfötum og öðrum steinefnum. Inniheldur mikið af nærandi olíuefnum.  Talin vinna gegn kvefi og bronkítis.  Eins góð fyrir sjúklinga ábatavegi til að hressa sig við.  Blöðin eru bragðmikil og beisk með töluverðum piparkeim.  Auðvelt að sá honum sjálfur og nota til matargerðar. 


 Aukaverkanir: 

Þekkt eru einkenni aukaverkana af Essiac ýmist vegna langtímanotkunar eða vegna hreinsunar.  Þetta gerist sjaldan og yfirleitt ekki hættulegt, en það þarf að vera vakandi fyrir því til að ekki verði um alvarlegar afleiðingar.

Einkennin geta verið: niðurgangur eða harðlífi, ógleði eða uppköst og lasleikatilfinning. Tíð þvaglátsþörf. Bólga í eitlum. Húðroði eða alvarleg ofnæmisviðbrögð.   Minnkandi blóðsykur og lágt potassiummagn í blóði. 

Fólk sem hefur tilhneigingu til að mynda nýrnasteina varað við græðisúru. 

Fólki með nýrna eða lifrarvandamál er algerlega ráðlagt frá Essiac því það inniheldur efni sem heitir oxalates sem getur valdið lifrar- og nýrnaskaða.  Talið að Essiac gæti blokkerað lifrarensímið cytochrome p450 sem veldur að lyf geta verið lengur virk í líkamanum og því þarf að hafa samráð við lækni ef er á lyfjum.

Þar sem Essiac er mild hreinsunarblanda sem veldur hreinsun eiturefna úr líkamanum.  En samhliða hreinsuninni kemur stundum óþægilegur höfuðverkur.

Ófrískar konur ættu alls ekki að nota Essiac því það gæti valdið fósturláti.


Notkun:

Ef keyptar eru tilbúnar blöndur standa leiðbeiningar yfirleitt á umbúðunum sem æskilegt er að fylgja eða leita ráðgjafar. 

Ef jurtir eru týndar og blandað saman heima er ráðlagt að taka seyði 1–2 á dag. Taka tveim tímum fyrir eða tveim tímum eftir máltíð.  Árangursríkast ef tekið er á fastandi maga, strax á morgnana og svo á kvöldin fyrir svefn.  Gott að nota eins og te í heitu vatni, um ½ bolla (60mg) í hvert sinn. 
Hægt er að kaupa þessar blöndur í hylkjum fyrir þá sem ekki geta sætt sig við bragðið og ekki er úr vegi að útbúa tinktúrur þannig að ekki þurfi nema í dropatali. 

Hómópatar geta einnig blandað þessa blöndu og þá í þeim styrkleika sem hentar fyrir hvern einstakling með minni áhættu aukaverkana.

Leiðbeiningar frá Sunnanvindum sem meðal annarra selja Essiac te:

En jurtirnar í Esíak Islandia blöndunni eru vottaðar lífrænt ræktaðar og villtar jurtir.  Þær eru ekki í útrýmingarhættu og tíndar við rétt skilyrði. 

Gott er að  hafa eftirfarandi áhöld og fara svona að, við lögun jurtaseyðisins.

• 3 lítra pottur,  úr ryðfríu stáli, úr hitaþolnu gleri eða emileraður alls ekki nota pott úr áli.
• Mælikanna úr gleri. 
• Netsía úr stáli, 'V'  laga er best.
• Matartrekt úr stáli eða gleri.
• Stór hrærisleif úr tré eða gleri.
• Látið renna 3 lítra af vatni í pottin, vatnið úr krananum er oftast best.
• Eftir að suða er komin upp,  látið jurtirnar í pottinn, 30 grömm af jurtum í 3 lítra, gefa um 2.7 lítra af seyði. Þetta magn dugar einstaklingi  tæpa  mánuð.
• Minnkið hitann, látið lokið á pottinn og sjóðið rólega í 10 mínútur.
• Takið pottin af hellunni, og hrærið jurtaseyðið vel.
• Setjið nú lokið á pottinn og látið standa, t.d. yfir nótt ef soðið er að kveldi,  á hellunni og kólna rólega í næstu 12 tímana.
• Hitið nú aftur þar til suðan rétt kemur upp, hrærið ekki og látið standa þar til suða hættir. Þegar jurtaseyðið hefur kólnað nægjanlega hellið þá úr pottinum gegnum síuna og í glerkönnuna eða beint á flöskurnar.
• Glerflöskur, þarf að sótthreinsa með sjóðandi vatni fyrir notkun.
• Munið að sótthreinsa flöskutappana líka. Kælið flöskurnar lítillega eftir sótthreinsun.
• Hellið á flöskurnar, skrúfið tappann á og látið kólna áður en sett er í kalda geymslu eða í kæliskápinn, látið flöskurnar standa uppréttar.
• Geymið seyðið, eftir að það kólnar, alltaf í kæli. Má þó alls ekki frjósa.

Magn og inntaka
• Oftast er örlítið set á flöskubotninum, hristið upp í flöskunni.
• Látið ½  bolla (50ml) af seyðinu í bolla með heitu vatni.
• Takið inn tvisvar á dag, á fastandi maga, t.d. snemma á morgnanna  og  fyrir svefn.
• Neytið ekki matar né drykkjar í a.m.k. eina klukkustund eftir inntöku seyðis.


 Styrking ónæmiskerfisins:

Hlusta ber á líkama sinn, því enginn veit betur en maður sjálfur hvort starfsemin er eðlileg eða ekki.  Við fylgjumst með bílnum okkar og förum með hann á verkstæði ef einhver torkennilega hljóð fara að heyrast.  Af hverju ekki að huga að líkamanum ef eitthvað óeðlilegt er að gerast. Ýmis góð ráð eru jafnan gefin til að viðhalda heilbrigði og bæta vellíðan. 

Og því rétt að lokum er ekki úr vegi að láta fylgja nokkur heilræði samhliða neyslu á ESSIAC.

Stunda einhverskonar góða slökun, hugleiðslu eða yoga. Góður svefn og hvíld er okkur öllum nauðsynlegur.

Næring hefur mikið að segja og að hafa meltingu í góðu lagi.  Fæða skyldi vera holl og næringarrík, en hvað er einstaklingum hollt og gott getur verið nokkuð breytilegt miðað við hvern einstakling.  Sumum er nóg að hugsa bara um að borða hollan mat, en öðrum er mikilvægt að fara um tíma eftir því sem líkaminn segir þó sleppa þurfi ýmsu sem gott þykir um tíma.  Heilbrigt einstaklingsmiðað mataræði bætir efnaskipti líkamans sem stuðlar að lagfæringu á því sem aflaga hefur farið. 

Gott er að drekka 3-5 glös af vatni daglega til að stuðla að losun eiturefni og úrgangs úr líkamanum.  Einnig þarf líkaminn vökva til að varna þornun.
Unnin matvæli sem innihalda aukaefni, bragðefni, rotvarnarefni, gerviefni og litarefni ættu allir að forðast.

Vítamín, steinefni og snefilefni eru okkur nauðsynleg en allt þarf að vera í jafnvægi svo það vinni rétt fyrir líkamann til að viðhalda heilbrigðu ónæmiskerfi.

Hreyfing er okkur nauðsynleg, en það er einstaklingsbundið hvað hentar hverjum og einum.  Gönguferðir eru mjög góðar og þá ekki bara einhverjar kraftgöngur.   Sund og hjólreiðar hafa einnig talist til heilbrigðra hreyfinga ásamt fjölmörgu öðru.

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).