Hægðatregða / Latur ristill
Til að viðhalda góðri heilsu þá er æskilegt að hafa hægðir daglega. Ekki er þó skaðlegt heilsunni þó það komi fyrir að hafa hægðir aðeins annan hvern dag. Samt sem áður ef það gerist oft að einstaklingur hafi óreglulegar hægðir er það merki um að þarmahreyfingar eru of hægar af einhverjum orsökum eða að einhver stífla hafi myndast í þörmunum.
Hægðatregða getur stafað af slæmu mataræði, af of litlu vökvamagni, af of lítilli hreyfingu eða vegna annara truflana í meltingarvegi. Afleiðingar geta valdið sjúkdómum sem geta orðið alvarlegir.
Þetta ástand getur gert vart við sig hjá öllum jafnt börnum sem fullorðnum. Hægðatregða er þegar hægðir skila sér ekki átakalaust eða þær eru með margra daga millibili. Hægðir geta verið harðar sem erfitt er að losna við en oft eru þær eins og lambaspörð, kúlur eða kögglar sem virðast koma niður ein og ein eða nokkrar í einu. Þetta virðist ganga þannig fyrir sig oft á dag án þess að geta endanlega tæmt sig. Einnig geta hægðir verið þéttar og miklar um sig þannig að húðin springur við endaþarmsopið og Því getur fylgt töluverður sársauki.
Hægðatregða er í flestum tilfellum ekki hættuleg, en ef um langvarandi hægðatregðu er að ræða getur það haft áhrif á starfsemi þarmaflórunnar með ýmsum afleiðingum. Um 10% einstaklinga hafa ekki hægðir daglega og sumir sjaldnar. Þó daglegar hægðir séu viss mælikvarði, þá getur þurft að hafa í huga hve lengi fæðan er að fara gegnum meltingarveginn frá því hans er neytt og þar til hann skilar sér aftur. Eðlilegur tími er um 18 tímar og hjá Vesturlandabúum tekur það jafnvel enn lengri tíma. Sumir telja það geta ýtt undir aukna tíðni ristilkrabbameins hjá Vesturlandabúum.
Ef ekki gengur að mýkja hægðirnar með tiltækum ráðum, gæti það verið merki um annan undirliggjandi sjúkdóm og ástæða til að leita til læknis. Einnig ef hægðir eru blóðugar og það lagast ekki við bættar hægðir, skal tafarlaust leita til læknis.
Einkenni:
Kviðverkir. Þrýstingur í kvið. Vindverkir. Uppþemba eða fyrirferð í meltingarvegi. Magaverkir sem leiða aftur í bak.
Strjálar hægðir. Þurrar harðar hægðir. Mikið eða óeðlilega lítið rúmmál hægða. Tilfinning eins og ekki hafi alveg losað sig.
Sársauki við endaþarmsop þegar einstaklingur hefur hægðir. Bólgur í endaþarmi vegna álags. Blóð í hægðum.
Orkuleysi. Höfuðverkur. Minnkuð matarlyst. Almenn vanlíðan.
Orsök:
Að neytt er of lítils magns af trefjum eða rangra trefja.
Trefjaríkt fæði gerir ekki það gagn sem talað eru um nema að drekka nægilega mikið af vökva samhliða.
Of lítil vökvamagn til að mýkja hægðirnar nægilega.
Kyrrseta og hreyfingarleysi, en það dregur úr þarmahreyfingum.
Ójafnvægi í þarmaflóru sem getur stafað af ýmsum ástæðum.
Tilfinningalegt álag eða streita af einhverjum toga.
Einstaklingur gefur sér ekki nægan tíma til að sinna sjálfum sér á réttan hátt.
Breyting sem verður á starfsemi meltingarfæranna á meðgöngu getur leitt til harðlífis og hægðatregðu.
Möguleiki á að skjaldkirtillinn starfi of hægt og efnaskiptin séu því hægari.
Sjúkdómar eins og lagvinnur nýrnasjúkdómur eða krabbamein í ristli eða endaþarmi.
Afleiðingar:
Ef blæðir úr endaþarmi þá hefur líklega komið sprunga í endaþarminn sem er saklaust en getur verið óþægilegt.
Gyllinæð er leiðinda fylgikvilli. Það er eins og kúla sem skagar út ofan við endaþarminn sem getur valdið miklum óþægindum sem getur blætt úr.
Þrálátir magaverkir og uppþemba. Samhliða magaverkjum geta verið bakverkir.
Slæmir ristilkrampar. Ristilpokar samhliða sýkingarhættu.
Þarmatotubólga sem veldur því að þarmatoturnar ná ekki að frásoga næringarefnin úr fæðunni.
Svefnörðugleikar. Mígreni. Bjúgur.
Kviðslit vegna mikils þrýstings við hægðir
Leg- eða endaþarmssig
Gigt af ýmsum toga.
Hrörnunarsjúkdómar í meltingarvegi og jafnvel öllum líkamanum.
Krabbamein.
Við hægðatregðu getur saur safnast upp í meltingarveginum. Það getur leitt til bakteríu-, sveppa eða veirusýkingar. Sýkingar geta valdið myndun eiturefna sem geta valdið bjúgmyndun og skemmdum í meltingarvegi og jafnvel öðrum vefjum líkamans. Við þær aðstæður geta sníkjudýr einnig tekið sér bólfestu í líkamanum.
Ráðleggingar:
Hafa ber í huga að þetta eru leiðbeiningar sem koma ekki í stað þess sem sérfræðingar greina eða ráðleggja.
Sum lyf geta valdið hægðatregðu og þarf þá að gera ráðstafanir í þeim tilvikum. Dæmi um lyf sem valda hægðatregðu eru atropin, kalsíumblokkarar, betablokkarar, þrísýkilísk þunglyndislyf, morfínlík efni, parkódín (kódein), járnlyf og lyf sem binda magasýrur.
Mikilvægt er að borða reglulega og velja vel allt sem við borðum. Misjafnt er hvernig einstaklingar bregðast við fæðutegundum. Sumir geta borðað næstum hvað sem er án þess að finna fyrir óþægindum, en aðrir eru afar næmir fyrir hvað þeir borða. Sumir einstaklingar finna fyrir áhrifum samdægurs, en aðrir verða ekki varir við breytingar fyrr en eftir einn til tvo daga.
Ýmsir borða ekki nægar trefjar þar sem þeir hræðast uppþembu. Þegar uppþemba á sér stað, er oft um óþol að ræða sem ástæða er að athuga nánar þar sem óþolið þarf ekki að vera fyrir öllum trefjum. Mjög algengt er að einstaklingar hafi óþol fyrir hveiti og þá einnig heilhveiti.
Einnig gæti verið um glútenóþol að ræða sem er þegar einstaklingur hefur óþol fyrir eggjahvítuefni sem er að finna í ýmsum korntegundum, en lang flestir hafa aðeins óþol fyrir hveitinu sjálfu. Meira að segja þó spelt sé hveititegund, þá eru margir sem finna ekki til óþæginda af því þó venjulegt hveitið valdi miklum óþægindum.
Glútenóþol (Celiac disease, Celiac sprue) getur verið krónískur meltingar- eða þarmasjúkdómur. Sjúkdómurinn getur verið arfgengur og einstaklingar geta fengið það hvenær sem er ævinnar. Glútenóþol er greint ýmist með blóðprufum eða með sýnatöku úr slímhúð í smáþörmum. Algengast er að það komi fram þegar barnið byrjar að borða fasta fæðu, sérstaklega ef meltingarvegurinn er ekki fullþroskaður. Einnig ef einstaklingur verður fyrir andlegu eða líkamlegu áfalli, við þungun, eftir matareitrun eða annað sem veikir þarmaflóruna.
Vökvi leysir upp massa sem annars gæti leitt til erfiðra hægða. Súrir ávaxtasafar eins og appelsínu- og sítrónusafar eru árangursríkari en vatn af því að safarnir hafa hærra sýrustig en vatnið.
Korn frásogast ekki úr þörmunum en dregur í sig vökva. Því er nauðsynlegt að drekka vel af vökva sem veldur því að hægðir verða mýkri og umfang þeirra verður meira. Þegar hægðir verða meiri um sig hefur það hvetjandi áhrif á ósjálfráðu viðbrögð þarmahreyfinganna sem flytja hægðirnar gegnum meltingarveginn.
Gróft brauð en forðast hveiti og heilhveiti. Trefjarík fæða eins og gróft korn, grænmeti og ávexti sem innihalda visst magn af grófmeti en ávextir þó í mun minna magni. Með þessu er nauðsynlegt að drekka vel af vökva til að ná tilætluðum árangri, því trefjar án vökva geta valdið hægðatregðu.
Volgt vatn m/ sítrónusneið fyrst að morgni á fastandi maga hefur hjálpað mörgum. Einnig gott að drekka vatn, maltöl, sveskjusafa, ávaxtasafa, jurtate eða aðra heita drykki að morgni dags. Kaffibolli að morgni hefur áhrif hjá mörgum en koffíndrykki skal þó drekka í hófi því koffín á það til að mynda hægðatregðu.
Þurrkaðir ávextir eins og sveskjur, apríkósur og döðlur er mjög gott snakk og gott að skera í litla bita til að leyfa börnum að þjálfa fingrahreyfingar þegar tínt er upp í sig. Sveskjugrautur, eða sveskju- og plómusafi er fljótlegt og þægilegt.
Fræ og hnetur er gott fyrir meltingu. Gott er að mala saman hörfræ, sólblómafræ, möndlur (með hýði) og hnetur sem gott er að strá út á AB-mjólk. Einnig er gott að láta hörfræ standa í vatni yfir nótt og drekka vökvann morguninn eftir en einnig gott að mala fræin og borða. Hörfræarolía fæst í heilsubúðum.
Sumum reynist aloverasafinn (alverusafi) hafa áhrif og hefur verið þekktur um aldir fyrir góða virkni.
Til eru trefjar í hylkjum líka, Colon care eða HUSK, sem fást í heilsubúðum og í apótekum. Gæta skal sérstaklega vel að drekka vel af vökva með þessum trefjum því annars getur það aðeins aukið á hægðatregðuna.
Magnesíum er mjög hjálplegt þar sem það hefur örvandi áhrif á þarmaveggi og þarmahreyfingar.
Husk er náttúrulyf. Nauðsynlegt er að gæta mjög vel að hvernig inntaka skal vera til þess að ná tilætluðum árangri. Ef það er ekki gert gæti ástandið jafnvel versnað. Husk er hægt að nýta sér, hvort sem er að herða eða mýkja hægðir með því að stjórna vökvamagninu sem drukkið er samhliða
Hreyfa sig reglulega því hreyfing hefur áhrif á starfsemi þarmanna.
Ef haldið er í sér þá geta hægðir orðið harðar og þurrar. Reyna að hafa hægðir reglulega, helst á fyrsta klukkutíma eftir morgunmat. Gott er þá að sitja rólegur á klósettinu í um það bil 10 mínútur hvort sem þú hefur hægðir eða ekki.
Börn:
Sérstakur kafli um hægðavandamál barna er undir "Fróðleikur - Börn"
Forðast:
Ef einstaklingur á tilhneigingu til að fá hægðatregðu skal forðast kex, brauð og kökur, sérstaklega úr hveiti, en margir þola heilhveitið engu betur.
Mjólkurmatur hefur stemmandi áhrif og þá sérstaklega hjá börnum.
Hrísgrjón, epli, bláberjasúpa, ostur og egg geta myndað hægðatregðu.
Forðast skal stólpípur nema nauðsyn beri til.
Og forðist skal hægðalyf að óþörfu.
Hómópatía:
Hómópatía hefur hjálpað mörgum einstaklingum varðandi meltingarvandamál, en það er þá í góðri samvinnu viðkomandi einstaklings og hómópatans.
Stundum virka ekki ofangreind ráð og getur orsökin oft verið stress af einhverjum toga. Þar sem taugakerfið stjórnar vöðvahreyfingum meltingarkerfisins getur álag eða önnur streita valdið truflun á eðlilegu ferli. Meira að segja verða ferðamenn oft varir við hægðatregðu þar til komið er heim á ný. Hómópatían lítur á einstaklinginn sem eina heild og tekur alla þætti með í mat á meðhöndlun.
Eftirfarandi remedíur eru aðeins örfáar tilgreindar af fjölda remedía sem miðast við hvernig hægðatregðan getur lýst sér. Þessar remedíur eru góðar bæði fyrir börn og fullorðna. Hægt er að kaupa þær í Skipholtsapóteki og heilsubúðum en þar fást Þær aðeins í styrkleika 30c.
Alumina: Einstaklingur er þreyttur og orkulaus. Þarmahreyfingar virðast hægar, hægðir lengi að skila sér gegnum meltingarveginn. Erfitt getur verið að losna við hægðir og jafnvel erfitt að losna við mjúkar hægðir. Hægðirnar eru venjulega harðar, þurrar og koma í kúlum eða kögglum. Endaþarmur getur verið þurr og aumur. Kartöflur geta haft stemmandi áhrif hjá þessum einstaklingum.
Bryonia: Stórar, harðar, þurrar hægðir sem erfitt er að þrýsta út. Tungan er oft með hvíta skán. Einstaklingur getur verið pirraður og vill vera í friði. Líður verr við minnstu hreyfingu. Ljósfælinn. Oft þyrstur og vill hafa drykkina kalda.
Calcarea Carb: Oft er súr lykt af þessum einstaklingum, svitanum og hægðunum. Einstaklingurinn er daufur og þróttlaus. Hann sækir í egg (frekar linsoðin), brauð, ís, sætindi og salt. Mjólk getur valdið hægðatregðu hjá þessum einstaklingum.
Lycopodium: Hægðatregða þegar endaþarmsopið herpist saman og ekki hægt að losa hægðir. Erfitt að hafa hægðir á ferðalögum eða á ókunnum stað. Hægðir harðar, erfiðar og lítið í einu. Eymsli í endaþarmi.
Nux vomica: Finnst alltaf vera þörf fyrir að kúka, og þrátt fyrir að fara á klósettið þá er eins og að geti ekki klárað. Hægðatregða myndast oft eftir að hafa verið á lyfjum, eftir að hafa verið undir andlegu álagi, eða jafnvel eftir ofát. Vont að láta fötin þrengja í mittið. Oft fylgir ógleði og jafnvel uppköst. Brjóstsviði, uppþemba, vindgangur og höfuðverkur geta fylgt ástandinu.
Opium: Þrálátar hægðir, harðar litlar kúlur og dökkar á litinn. Verkir í endaþarmi.
Silicea: Hægðir virðast vera að skila sér en fara aftur upp í endaþarminn. Hægðir geta verið í hörðum kögglum sem valda sviða og óþægindum í endaþarmi. Endaþarmur getur sprungið við átökin. Oft mjög erfitt að hafa hægðir og börn neita iðulega að kúka. Ef börn eru orðin hrædd við að hafa hægðir þarf oft að gefa þeim einhverja aðra remedíu samhliða sem getur slakað á hræðslunni. Kulsæknir einstaklingar, en finnst samt betra að drekka kalda drykki.
Hægðalyf:
Hægt er að fá hægðalyf án lyfseðils í apóteki til að mýkja hægðir. Hægt að fá lyf sem auka þarmahreyfingar eða samsett hægðalyf, eða hægðalyf sem sett eru upp í endaþarm.
Lyf sem auka vatnsinnihald hægða, t.d. Sorbitól og Laktúlósa. Séu þessi lyf tekin inn tekur það venjulega nokkra daga að hafa áhrif. Lyf eins og Toilax, Microlax, Dulcolax eru lyf með hraðari verkun. Athugið að þessi lyf á aldrei að nota nema vissa sé fyrir því að hægðatregða stafi ekki af völdum sjúkdóms sem stíflar meltingarveginn. Kynnið ykkur vel þessi lyf í Lyfjubókinni og leitið eftir ráðleggingum lyfjafræðings. Ætið skal leita læknis ef hægðatregða er af óþekktum orsökum eða er viðvarandi.
Ýmis hægðalyf unnin úr plöntum geta leitt til rýrnunar á vöðvum í meltingarvegi við langtíma notkun og þar af leiðandi haft óæskileg áhrif til lengdar. Dæmi um slíkt lyf er Senokot. Ætíð skal leita læknis ef hægðatregða er af óþekktum orsökum eða er viðvarandi.