Góð heilsa.
Góð heilsa er samspil líkamlegrar-, tilfinningalegrar-, andlegrar-, hugarfarslegrar heilsu og næmleika.
Orðið heilsa merkir að vera heill. En hvað er að vera heill ? Það er samspil margra þátta eins og líkamleg heilsa,
tilfinningaleg heilsa, andleg heilsa, hugarfarsleg heilsa og næmleiki. Allir þessir þættir eru jafn mikilvægir og geta haft mikil áhrif á hvorn annan.
Sem dæmi þá er hver einstaklingur eins og púsluspil þar sem hvert stykki skiptir jafn miklu máli til þess að myndin verði heil. Ekkert púsluspil er eins og þarf því að huga vel að hverjum þætti hvers einstaklings af alúð.
Líkamleg heilsa: Líkamleg heilsa er okkur tamt hugtak sem við höfum ekki tengt öðrum hugtökum. Bara að vera frískur. En það er ekki alveg svo einfalt því samspil allra þáttanna getur haft áhrif á líkamlegu heilsuna. Varðandi líkamlega heilsu, þurfum við sjálf að bera ábyrgð á hvað við gerum til að stuðla að sem bestum grunni til að byggja á. Við þörfnumst ferskrar og næringarríkrar fæðu. Nóg af heilnæmum vökva eins og hreinu vatni. Góður og nærandi svefn. Geta náð slökun andlega sem líkamlega. Hreyfing er mjög nauðsynleg. Heilbrigt viðhorf gagnvart kynlífi getur einnig haft mikið að segja. Forðast skal unna og tilbúna fæðu, sætuefna, ofnotkun lyfja, alkahóls, tóbaks og koffeins því það getur dregið úr líkamlegum þrótti.
Tilfinningaleg heilsa: Á síðari árum er farið að viðurkenna í mun meira mæli, mikilvægi tilfinninga á líkamlega heilsu manna. Við þurfum að hafa jákvæðan tilgang í lífinu. Við þurfum gott tilfinningalegt jafnvægi. Þörfnumst stuðnings, trausts og kærleika fjölskyldu og vina. Við þurfum að geta tjáð tilfinningar okkar. Þurfum að vera meðvituð um hvað eru neikvæðar og hvað eru jákvæðar tilfinningar og leyfa okkur að grípa sjálf inn í ferlið. Tilfinningalegt ójafnvægi eða áföll geta haft veruleg áhrif á líkamlega heilsu eins og sem dæmi veikindi eftir atvinnumissi, makamissi, sambandsslit, meðvirkni eða fjölskylduvandamál.
Andleg heilsa: Andleg heilsa og andlegt jafnvægi byggir oft að hafa jákvæðan tilgang í lífinu. Finnast sem tilheyra í lífinu, þekkja muninn á réttu og röngu og hafa löngun til að láta gott af sér leiða. Öfgaleysi og hófsemi á öllum sviðum styður andlega heilsu. Tilgangsleysi og ójafnvægi andlegrar heilsu getur leitt til þunglyndis, sem aftur getur haft veruleg áhrif á aðra heilsufarslega þætti.
Hugarfarsleg heilsa: Jákvætt hugarfar og viðhorf hefur mun meira að segja en margir gera sér grein fyrir. Utanaðkomandi áhrif geta haft mikil áhrif á hugarfarið eins og ef við leifum stöðugum neikvæðum hugsunum að magnast innra með okkur. Ef við erum stöðugt að horfa á neikvæðar myndir eða að vera í ofbeldisfullum tölvuleikjum. Ef við lifum stöðugt við neikvæðar hugsanir þá getur hugurinn orðið sjúkur og haft veruleg áhrif á líkamlega-, tilfinningalega og andlega heilsu. Við þurfum að þekkja og skilgreina þessar hugsanir til að geta agað hugann til að efla jákvæðar hugsanir, rökvísi, minni, jákvætt ímyndunarafl til að geta hreinsað hugann af áhyggjum og kvíða. Gott er að einbeita sér að jákvæðum hugsunum, njóta ánægjulegra stunda, hlusta á fallega tónlist, lesa góðar bækur og hafa í huga uppbyggjandi lífsviðhorf.
Næmleiki eða ónæmiskerfi: Þetta er hugtak sem notað er yfir hve móttækileg við erum gagnvart kvillum og sjúkdómum. Þetta getur verið mismunandi milli einstaklinga og fjölskyldna þar sem hvert okkar býr yfir mismunandi grunni og hver hefur sína veiku hlekki. Sumir hafa orðið fyrir áföllum, slysi eða alvarlegum sjúkdómum sem á einhvern hátt hefur haft áhrif á heilsufar okkar í heild. Þegar jafnvægi er á heilsu okkar í heild, er líklegra að við fáum ekki kvef, flensur eða aðrar umgangspestir. Eðlilegt er að veikjast 1-2 sinnum á ári og veikindi eru ekki alltaf neikvæð þar sem ónæmiskerfið styrkist við áreiti
Okkur er nauðsynlegt að læra að hlusta á líkamann og gera okkur grein fyrir hvað hann er að segja okkur. Það er ekki alltaf hrein tilviljun, þegar við veikjumst og hvernig við veikjumst. Líkaminn er oft á tíðum að gefa okkur skilaboð um að slaka á tilfinningalegu eða líkamlegu álagi, hvíla okkur og vinna okkur út úr aðstæðum. Stundum veikjumst við eftir áföll eða slæmar fréttir, vonbrigði eða sorg þar sem orka líkamans raskast og mótstaða hans minnkar. Einstaklingar sem eiga erfitt með að tjá tilfinningar eru jafnvel gjarnir á að fá frekar hálsbólgu en aðrir.
Heilsa barna og unglinga:
Börnum er mikilvægt að búa við andlegt jafnvægi. Togstreita innan heimilis getur haft varanlegri afleiðingar og börnunum
líður oft illa. Þau eru næm á líðan foreldra en vita ekki hvernig þau geta brugðist við til að gera allt gott. Viðbrögð þeirra geta verið óþekkt eða jafnvel að draga sig inn í skel til þess að vera ekki valdur að meiri vandamálum. Stöðugt áreiti á heimili hvort sem er andlegt eða líkamlegt eru niðurbrjótandi og getur síðar komið fram í óæskilegri uppreisn eða sem ævilöng andleg bæling.
Áföll úr æsku geta haft ævilangar afleiðingar tilfinningalegar sem og líkamlegar. Í æsku getur barn upplifað áföll sem þau kunna ekki að vinna úr. Þau geyma jafnvel upplifunina innra með sér og ræða það aldrei við aðra og fá þar af leiðandi ekki þann stuðning sem þeim er nauðsynlegur. Til dæmis getur það verið missir nákomins einstaklings, búið við einhverskonar ofbeldi og/eða alkahólisma, þurfa að alast upp meðal vandalausra, orðið fyrir einelti eða kynferðislegri misnotkun.
Þó börn eigi oft auðveldara með að vinna úr áföllum en fullorðnir, geta áföllin samt haft þær afleiðingar að heilsan getur bilað ef þau fá engan stuðning. Sum þessara barna enda sem öryrkjar á fullorðinsárum þar sem skilningur hefur ekki verið fyrir hendi varðandi rót vandans. Þar sem óhefðbundnar meðferðir byggja mikið á þessu heildræna meðferðarformi, hafa margir einstaklingar fengið þar góða aðstoð, þar sem einstaklingum er gefinn nægur tími til að tjá sig og fær einstaklingsmiðaða meðhöndlun.
Mikil vanlíðan og ótti getur gripið um sig sem börn eiga erfitt með að skilgreina, hvernig eða af hverju þeim líður illa. Það er einnig mismunandi hvernig börn bregðast við því sum reyna að láta sem minnst fyrir sér fara, sum nota afneitun, meðan önnur gera uppreisn og verða ofvirk og óþekk. Bæði hegðunarmunstrin geta verið merki um að eitthvað óeðlilegt geti verið á ferðum. Þá er nauðsynlegt að bregðast við á réttan hátt til að hjálpa barninu. Oft koma fram ýmis líkamleg vandamál sem aldrei eru tengd upphaflegri orsök og lausnin er oft að gefa lyf til að deyfa einkenni og afleiðingar. Sem dæmi eru algeng einkenni kvíðaköst, þunglyndi, magabólgur, meltingarvandamál, höfuðverkur, undirmiga, vöðvaverkir og offituvandamál. Athyglisbrestur og erfiðleikar í tengslamyndun. Í einstaka tilfellum geta komið upp sjálfsvígshugleiðingar.
Tilfinningar við óeðlilegar aðstæður:
Þegar einstaklingur upplifir ógnvekjandi aðstæður eða ógnun við líkamlegt eða tilfinningalegt heilbrigði, verður hann fyrir
áfalli. Alvarleg áföll eins og andlegt og líkamlegt ofbeldi hefur mun djúpstæðari áhrif þegar það tengist heimilinu eða einhverjum sem stendur manni næst. Hver og einn upplifir atburði á sinn einstaka hátt og afleiðingarnar geta orðið misjafnar.
Einstaklingar geta brugðist við á mismunandi vegu. Til dæmis bregðast sumir einstaklingar mjög fljótlega við með sorgar eða reiðiviðbrögðum, meðan aðrir einstaklingar bregðast við með afneitun. Afneitun eru varnarviðbrögð sem geta dregið úr sársaukanum sem atvikið veldur. Sum börn geta haldið í afneitunina langtímum saman og jafnvel farið inn í sinn eigin heim til að þurfa ekki að takast á við síendurtekin áföll.
Þegar aðstæður verða okkur ljósar brjótast fram ýmsar tilfinningar eins og sorg ótti, örvænting eða reiði. Hugsanir þjóta um hugann þannig að ekki er alltaf auðvelt að höndla þær og viðbrögðin eru ekki hjá neinum samkvæmt fyrirfram ákveðnu mynstri sem hægt er að meðhöndla með fyrirfram ákveðnum hætti.
Nauðsynlegt er að geta rætt málin við sína nánustu og fá þann stuðning sem mögulegt er. Þannig eru meiri líkur á að geta unnið sig út úr ástandinu á eðlilegan hátt. Ef af einhverjum ástæðum það er ekki fyrir hendi þá eru ýmis önnur ráð. Ýmsir aðilar veita aðstoð eins og aðilar á vegum heilsugæslustöðva, ráðgjöf Rauða krossinn og Félagsþjónusta kirkjunnar, Stígamót, ýmsir góðir sálfræðingar og margt gott stuðningsfólk.
Algeng afleiðing.
Við áfallastreitu sem er afleiðing alvarlegra áfalla er algengt að fólk þjáist af kvíðaröskun, svefnvandamálum, einbeitingarskorti, pirringi, reiðiköstum, meltingarvandamálum, höfuðverkjum, orkuleysi. Þetta geta verið eðlileg viðbrögð sem geta jafnað sig smám saman, en ef áföllin eru þess eðlis að einkennin eru viðvarandi er það kallað áfallaröskun og telst þá sjúkdómsástand sem getur varað árum saman eða ævilangt sé vandamálum þessara einstaklinga ekki sinnt.
Þá geta upphafleg einkenni undið upp á sig og orðið að mun alvarlegri vandamál eins og þunglyndi, síþreyta, vefjagigt, átröskun, offituvandamál, geðvefrænar raskanir og alkahólismi. Einnig eru algeng einkenni eins og hjartsláttaróregla, verkur fyrir hjarta, blóðþrýstingsvandamál, truflun í taugakerfi, sogæðakerfi og innkirtlastarfsemi. Ýmsar aðrar afleiðingar geta þróast með einstaklingnum sem draga úr lífsgæðum einstaklinga og geta jafnvel valdið örorku.
Heilbrigði nútímans.
Síðustu árin hefur vaknað meiri skilningur á að sálarástand einstaklinga getur haft afgerandi afleiðingar á líkamlegt heilbrigði. Þrátt fyrir að við erum mun upplýstari en áður og farin að gera okkur grein fyrir hve góð heilsa er dýrmæt þá hefur heilsu almennt hrakað og sjúklingum fjölgað með alvarlega sjúkdóma. Sjúklingar greinast mun yngri, með erfiðari sjúkdóma og með mun fleiri innlagnir á sjúkrahús. Þrátt fyrir að lyf séu lífsnauðsynleg í mörgum tilvikum þá eru lyf skelfilega ofnotuð og sum hver hafa verulega neikvæð áhrif á heilsu almennt. Þannig að heilbrigðiskerfið verður mun dýrara í rekstri en þyrfti að vera. Við lifum á upplýsingaöld og því ætti að vera auðvelt að sækja sér fróðleik um heilsu og sjúkdóma og upplýsingar hvað við getum gert sjálf. Að sjálfsögðu viljum við sjálf ráða hvað okkur er fyrir bestu
Einstaklingar geta haft áhrif á eigin heilsu með því að velja skynsama lífshætti og bera sjálfir ábyrgð á sínu lífi. Margir byrja þegar líkaminn er farinn að kvarta og taka nýjan lífsstíl með áhlaupi eða sem skyndilausn en gefast síðan upp og allt fer í fyrra horf. Eigin heilsa ætti að vera eitt af okkar helstu langtíma áhugamálum.
Hómópatía:
Hómópatía byggir á heildrænum hugmyndum þar sem góð heilsa er samspil líkamlegrar-, tilfinningalegrar-, andlegrar-,
hugarfarslegrar heilsu og næmleika. Allt þetta þarf að hafa í huga til þess að geta leyst vandamálin. Ekki dugar bara að sljóvga andleg eða líkamleg einkenni þannig að undir niðri séu óleyst vandamál sem halda áfram að vinna gegn heilbrigði og vellíðan til langs tíma.
Það þarf að hlusta vel á viðkomandi, taka alla þætti með til að fá heilsteypta mynd og gefa sér tíma til að aðstoða einstaklinginn við að finna þá heildrænu lausn sem gæti hjálpað. Þetta eru ekki skyndilausnir sem virka á einum sólarhring, en kemur mörgum á óvart hvað þetta getur gert mikið gagn til frambúðar.
Vegna áfalla eru ýmsar skyndiremedíur mjög gagnlegar og gott að eiga á hverju heimili. Blómadropar eru góðir eins og þeir fást í apótekum og heilsubúðum, en vegna andlegra tilfinninga eða áfalla eru remedíur betri í hærri pótensíu heldur en í 30c (sem fæst í búðum) og hægt að fá hjá hómópötum.
Rescue remedy: eru blómadropar sem gott er að eiga og eru frábærir eftir hvers konar andlega áföll, hræðslu eða slæmar fréttir.
Aconitum napellus: þegar einstaklingur verður kvíðinn, hræddur og hefur áhyggjur. Örvæntingarfullur og býst við hinu versta. Eirðarlaus með hástemmdar tilfinningar og býst við vandræðum eða hræddur við að deyja.
Arnica montana: er nauðsynleg fyrir hvers konar líkamlegt og andlegt áfall eða sjokk. Eftir ofbeldi eða líkamleg og andleg áföll. Hræðist snertingu.
Ignatia: er mikilvæg fyrir sorg og tilfinningalegt áfall. Veltir sér mikið upp úr áhyggjum og andvarpar mikið. Getur fengið krampakippi eftir áfall. Andleg og líkamleg uppgjöf eftir sorgarferli. Ástarsorg. Sjálfsásökun.
Gelsemium: afleiðing af sjokki eða hræðslu þegar einstaklingur er sljór, daufur og sinnulaus. Gæti fengið svima eða skjálfta. Vill vera í einrúmi. Kjarkleysi.
Lycopodium: vantar sjálfstraust. Pirraður og ergilegur heima fyrir. Stjórnsamur og dómharður.
Natrum Muriaticum: ef einstaklingur vill gráta í einrúmi og vill ekki huggun. Þungur, þreyttur og máttlaus. Ofurviðkvæmni gagnvart mörgu og reiðist gagnvart lítilræði. Hræddur við að verða særður tilfinningalega. Langrækinn.
Nux vomica: reiðist auðveldlega og pirrast. Hefur lítið umburðarlyndi. Áhyggjur af vinnunni og fjármálunum. Pirraður og skellir skuldinni á aðra, lokar á eigin gjörðir
Pulsatilla: er mjög góð þegar barn þarf að sjá á eftir einhverjum kærkomnum. Einstaklingur grætur mikið og þarfnast huggunar og skilnings. Sárnar auðveldlega.