• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Breytingaskeið / Hitakóf

Skrifað 2010-09-01 · Heilsa

Breytingaskeiðinu fylgja einkenni sem eru mjög mismunandi hjá einstaklingum

 Breytingaskeið er tengt tímabili þegar hormónastarfsemi líkamans breytist.  Það má því líta á að breytingaskeið kvenna séu tvö en sem spegilmynd af hvort öðru.  Annað er gelgjuskeiðið þegar hormónastarfsemin vaknar til lífsins og síðan aftur þegar við verðum eldri og draga fer úr hormónaframleiðslu líkamans.  Einnig upplifa margar konur í svipað breytingarferli eftir veikindi, lyfjameðferðir eða líffærabrottnám.    Þetta geta verið átakamiklar breytingar með tilfinninga og líkamlegum sveiflum sem oft getur verið erfitt  að höndla.

Líta má á þessar breytingar frá tveimur sjónarhornum, annars vegar á neikvæmum nótum og hins vegar á jákvæðum nótum.

Ef við upplifum þetta ferli með neikvæðu viðhorfi getur hugarfarið valdið streitu, kvíða, þunglyndi og óöryggi.  Það getur síðan orsakað lágt sjálfsmat, einbeitingarskort, samskiptaörðugleika, minni kynhvöt og fleiri afleiðingar.  Tilfinningalega eiga sumar konur erfitt með að takast á við tilfinninguna um að  eldast og þetta er óneitanlega ábending um að svo sé.  Samhliða neikvæðu hugarfari er mun erfiðara að takast á við lífið og tilveruna.

En ef við á jákvæðan hátt höfum í huga að þetta er náttúrulegt, eða óumflíanlegt ferli og leyfum því að hafa sinn gang verður allt annað að takast á við lífið og tilveruna.  Það hjálpar okkur að takast á við andlegu tilfinningarnar og líkamlegu óþægindin.  Þó undir eðlilegum kringumstæðum ef heilsan er góð væri þetta merki um að við séum að eldast þá getur þetta verið upphafið að einu  besta og innihaldsríkasta tímabili ævinnar.    Það að eldast gefur okkur frelsi sem er ómetanlegt tækifæri til að njóta lífsins sem aldrei fyrr.  Þetta frelsi getur verið á svo marga mismunandi vegu, bara að vera vakandi á jákvæðan hátt og nýta hvert tækifæri.  Tíminn sem við sóum í neikvæðni kemur ekki aftur en nútíðin er til staðar og hver stund sem við notum með jákvæðu hugarfari gefur okkur meiri lífsfyllingu til framtíðar. 

Breytingaskeiðinu fylgja einkenni sem eru mjög mismunandi hjá einstaklingum og tímabilið er allt frá fáum mánuðum upp í  nokkur ár.  Sumar konur fara afar létt í gegnum þetta tímabil meðan aðrar upplifa annað hvort miklar andlegar breytingar, sumar líkamlegar og enn aðrar bæði andlega og líkamlegar.  Skapsveiflur eru tíðar og jafnvel þunglyndi.  Nauðsynlegt er því að vita hvað felst í þessum breytingum, hvað hægt er að gera sjálfur til að auðvelda sér ferlið bæði hvað varðar mataræði, lífsstíl og kynna sér hvaða möguleikar eru í boði til að gera tímabilið auðveldara.

Hitakóf er eitt af þeim einkennunum sem eru tíðræddust.  Um það bil 80% kvenna finna fyrir hitakófum á breytingaskeiðinu og getur það valdið óþægindum og vanlíðan.  Oft getur hjálpað til ef einstaklingur getur áttað sig á hvað setur hitakófin af stað.  Algengt er að stress eða álag framkalli hitakóf.


Sjálfshjálp

Byggðu upp jákvæðni og almenna gleði með lífið. 
Minnkaðu álag eins og hægt er og reyndu að skipuleggja þig þannig að ekki komi upp streituálag.
Gefðu þér tækifæri til að slaka á og kæla þig niður öðru hvoru.  Viftur koma sér oft vel.
Gott að hafa ískalt vatn við hendina til innri kælingar. 
Farðu í kalda sturtu fyrir svefninn. 
Hafðu bæði létta ábreiðu og hlýja sæng við rúmið til að geta skipt miðað við líðan.
Hafðu auka nátttreyju við hendina til að þurfa ekki að rjúka framúr til að leita eftir henni, það gæti truflað svefninn enn meira.
Sofðu í bómullarnáttfötum því auðveldara er að skipta um þau en að skipta um rúmföt.  
Notaðu rúmföt úr bómull en ekki gerviefnum. 
Klæðstu fatnaði úr bómull, hör eða rayon en forðastu gerviefni, ull eða silki og reyndu að hafa fatnað fleginn eða þannig að þú getir hneppt frá, en ekki alveg upp í háls.  
Minnkaðu hitann í húsnæðinu ef hægt er og sofðu með opinn glugga.
Forðastu heit böð og gufuböð því þau kalla fram hitakóf.
Hafðu matinn ekki sjóðandi heitann.
Mikið kryddaður matur getur framkallað hitakóf.
Koffín og áfengi geta kallað fram hitakóf og því betra að drekka róandi te.
Í verslunum er gott að staldra við í kælinum og gefa sér góðan tíma í fæðuval.

Lifnaðarhættir geta haft mikið að segja um hvernig okkur líður meðan þessar breytingum líkamans standa yfir:  

Hreyfing:   Góð dagleg hreyfing getur dregið úr hitakófum og hefur oft jákvæð áhrif á mörg einkenni sem eru samhliða tíðahvörfum.  Það getur hjálpað okkur að sofa betur og dregið úr þreytu.  Aukið heilsufar almennt.  Getur dregið úr geðsveiflum og aukið sjálfstraust.  Hreyfing hefur góð áhrif þegar kynlöngunin dofnar.

Streitulosun:    Eins og þjóðfélagið er í dag er streita mjög ríkjandi meðal almennings sem veldur spennu og álagi í daglegu lífi.  Þar sem streita og álag getur aukið hitakófin til muna getur eftirfarandi jafnvel hjálpað til að draga úr áhrifum streitunnar á líkamann:   Öndunar- og slökunaræfingar hafa hjálpað mörgum, en einnig má nefna nudd, sund, jóga, hugleiðslu og dáleiðslu. 

Breytt mataræði:  
Vatnsdrykkja er mjög mikilvæg.  Hún hjálpar mikið til við hreinsun líkamans, og getur auðveldað líkamsstarfsemi.

Kolvetni er aðalbrennsluefni líkamans sem notar kolvetnin sem orku.   Kolvetnin skiptast í einföld kolvetni og flókin kolvetni.  Einföldu kolvetnin eru að mestum hluta eingöngu hitaeiningar sem valda meiri sveiflum á blóðsykrinum og geta valdið aukinni fitusöfnun og meiri löngun í feitan og óhollan mat.  Sveiflur á blóðsykri geta ýtt undir hitakóf svo og óæskileg líkamsfita.  Því skyldi forðast kolvetni sem eru til dæmis í hvítum sykri, hvítu brauði, kexi, kökum, flögum, hvítum hrísgrjónum og hvítu pasta.

Sumar fæðutegundir og jurtalyf geta skilað árangri af því þær innihalda jurtaestrógen.  Til dæmis eru sojavörur taldar geta hjálpað konum á breytingaskeiði þar sem þær eru ríkar af estrógeni.  Ekki er þó öllum holt að fá aukalega estrógen í líkamann og því gott að ráðgast við lækni um það atriði. 


Hómópatía

Hómópatía hefur getað aðstoðað margar konur varðandi einkenni á breytingaskeiði og er sérlega góð fyrir þær konur sem ekki geta notað hormóna vegna krabbameins eða lifrarsjúkdóma. 

Einkenni geta verið huglæg, tilfinningaleg eða líkamleg og jafn misjöfn eins og konurnar eru margar.  En þar sem konur upplifa einkennin á svo misjafnan hátt skiptir miklu máli að val á remedíum sé svo nákvæmt sem kostur er þar sem meðferðin er einstaklingsbundin.  Er því gott að fara vel yfir listann og merkja við það sem einstaklingur telur lýsa best sínum einkennum áður en leitað er til hómópata.   Styrkleikinn þarf einnig að vera í samræmi við hverja konu fyrir sig.  Er því æskilegt að leita til hómópata til að auka líkur á að rétt remedía og styrkleiki sé valin.


Hér að neðan eru nokkrar af helstu hómópatísku remedíunum sem að hafa  
gagnast vel vegna mismunandi einkenna:

Aconite:  hefur hitakóf á kvöldin ásamt kvíða, taugaspennu og líkamlegri spennu sem eru algengir fylgikvillar á breytingaskeiði.

Amylenum Nitrosum:  Hitakófin koma mjög skyndilega og óvænt, með stíflu í höfði, hita sérstaklega í andliti með miklum svita, kvíða og hjartslætti og komi tilfinningasveifla til geta hitakófin breiðst út um allan líkamann.  Blóðflæði upp til höfuðsins og fram í andlit.  Verður að fá ferskt loft. 

Belladonna:    Hitakóf aðallega seinnipart dags.  Andlitið er sveitt, rautt og heitt ásamt mikilli svitaframleiðslu á kynfærasvæði. Þessi remedía getur verið hjálpleg ef að hitakóf á breytingaskeiði eru mjög skyndileg og mjög yfirgengileg.  Sláttar (púlserandi) einkenni koma fram einhversstaðar í líkamanum þó sérstaklega í höfðinu.  Stundum geta blæðingar verið mjög miklar og oft heitar.  Þó að konan sé að jafnaði í góðu tilfinningalegu jafnvægi gæti hún átt til að fá reiðiköst í höfuðverkjaköstum og/eða ef undir miklu álagi. Mígreni, blóðþrýstingsójafnvægi og löngun í sítrónur eða ávaxtasafa eru oft einkenni hjá þeim sem að þurfa þessa remedíu.

Bryonia:   Hitakóf, eins og volgu vatni sé hellt yfir allan líkamann.  Brjóstin geta verið heit og hörð.

Calcium Carb:   Hitakófin færast uppá við með heitum svita á andliti og höndum og þeim fylgja kvíði, hjartsláttur og kuldaköst.   Þessi remedía getur verið hjálpleg ef að kona hefur miklar blæðingar, mikinn nætursvita og hitakóf (þó hún sé frekar kaldfeng), og hefur fundið fyrir þyngdaraukningu á breytingaskeiðinu.  Fólk sem að þarf þessa remedíu er venjulega harðduglegt og ábyrgðarfullt, en samt frekar hægt til verka og þreytist auðveldlega.  Kvíðið fólk sem að á erfitt með að höndla mikið stress og álag.  Stífir liðir og krampar í fótum, ásamt löngun í egg og sætindi eru oft einkenni hjá þeim sem að þurfa þessa remedíu.

Cimicifuga:  (Remifemin = Black cohoch)  Hitakóf um hálfellefuleytið á kvöldin.   Jurt sem dregur úr einkennum tíðahvarfa eins og blæðingaróreglu og verkjum frá eggjastokkum og legi.   Dregur úr tilfinninga- taugaspennu og þunglyndi.

Folliculinum:   er talin hafa áhrif á mörg af þeim einkennum sem tengjast breytingaskeiðinu og undanfara þess.  Einkennin eru til dæmis:  blæðingaróregla, miklar blæðingar, hitakóf, nætursviti, ofvirkni, svimi og þreyta, þurrkur í leggöngum, viðkvæmni gagnvart hávaða eða snertingu og andlegt ójafnvægi.

Glonoinum:  Þessi remedía getur verið hjálpleg við yfirgengileg hitaköst með miklum roða á breytingaskeiði.  Blæðingar geta byrjað en stoppað svo fljótlega aftur, með hjartsláttartruflunum eða höfuðverki. Depurð og pirringur.   Einkenni geta ágerst ef konunni verður of heitt eða ef hún er of lengi úti í sól, einnig líður henni verr við að leggjast niður

Graphites:  Hitakóf aðallega í andlitinu sem er rautt og heitt.  Getur verið hjálpleg ef að kona er kulsæl, föl og finnur fyrir sljóleika ásamt því að eiga erfitt með einbeita sér.  Finnur fyrir þyngdaraukningu á meðan og á eftir breytingaskeiði.  Hitakóf og nætursviti er algengt.  Húðin oft mjög viðkvæma, springur oft og seytlar úr sprungum.  Er oft lengi að vakna á morgnana.

Ignatia:    Hitakóf aðallega að morgni til og finnst að hún muni svitna sem verður þó ekki nema á einstaka stað og það dregur úr þeirri tilfinningu við að borða. Kvíði fylgir hitakófum. Getur verið hjálpleg þegar kona upplifir miklar tilfinningasveiflur  á breytingaskeiði.  Mikil viðkvæmni, en á það til að dylja hvernig henni líður.  Er á varðbergi, fýlugjörn og hysterísk.  Fær óreglulegar blæðingar, höfuðverk, vöðvakrampa og túrverki/krampa.  Þyngsli yfir brjóstinu, andvarpar og geispar.  Fær skyndileg hláturs- og grátköst til skiptis.

Jaborandi:    Hitakóf og svitaköst.  Óþarfa sviti frá öllum hlutum líkamans, byrjar oft á enni og andliti en dreifist þaðan um allan líkamann.  Oft mikið á nóttunni.  Hitakóf, ógleði, munnvatnsmyndun og aukin svitamyndun.  Andleg þreyta eftir svitaköst.  Hjartsláttartruflanir.   Sláttarhöfuðverkur.  

Kali Brom:   Hitakóf eingöngu í andliti.  Mikill límkenndur sviti.

Kali Carb:   Hitakóf aðallega á kvöldin, nóttunni og eftir erfiði.  Roðinn færist upp á við. Svitnar aðallega á efri hluta líkamans bæði á nóttu sem degi. Aukinn hjartsláttur fylgir þessu.  Stundum súr lykt af svitanum og  stundum gul útferð.

Kreosotum:   Brunatilfinning inn- og útvortis, aðallega á mjaðmagrindarsvæði og kláði á skapabörmum.  Sviti en konunni léttir við að fara í volgt bað.  Pirringur og eirðarleysi og konan þarf mikla hreyfingu á kvöldin og jafnvel á nóttunni.

Lachesis:  Skyndileg hitakóf með klístruðum svita um miðjan daginn.  Þessu fylgir hiti og roði í andliti og oft brennandi verkir í höfði.  Hitakófunum fylgir oft sviti og þá helst vegna andlegs álags.   Kynfærin svitna mikið.  Þessi remedía getur verið hjálpleg við mikil hitakóf, með roða og jafnvel fjólubláum litbrigðum.  Hjartsláttur með þrýstings- og þrengslatilfinningu, jafnvel stíflutilfinningu.  Háls er sérstaklega viðkvæmur.  Þolir illa ef þrengir að hálsi eða mitti.  Talar mikið með miklum tilfinningum.  Oft afbrýðisöm og tortryggin.  Ein af sérstöku remedíunum fyrir breytingaskeið,  sérstaklega með depurð,  þunglyndi og  hjartsláttartruflanir samhliða hitakófum.

Lillium tigrinum:  Þessi remedía getur verið hjálpleg ef að kona er alltaf að flýta sér og upplifir sig alltaf á síðustu stundu.  Er kvíðin og tilfinningalega mjög viðkvæm.  Á það til að fá mjög mikil reiðiköst og fær fólk í kringum sig til að tipla á tánum.  Oft tilfinning um þrengsli yfir brjóstkassa.  Tilfinning eins og kynfæri þrýstist niður og  fær hana til að setjast og jafnvel krossleggja fætur.

Lycopodium:  Hitakófin færast upp eftir andlitinu  og svitinn er klístraður.   Ástandið er verst á kvöldin, í mannþröng eða í heitu herbergi. Svitinn lyktar illa.

Natrium muriaticum:  Oft þurrkur í leggöngum.  Á breytingaskeiðinu geta blæðingar verið óreglulegar með bakverkjum eða höfuðverkjum.  Mikil löngun í salt og líður verr í sólskini.   Þessi remedía getur verið hjálpleg ef að konan er fálát, dul og lokar allar tilfinningar inn í sér.  Getur verið um djúpa sorg að ræða.  Getur verið föst í gömlu, góðu tímunum og syrgir þann tíma.  Oft særð eða hefur orðið fyrir miklum vonbrigðum. 

Nux Vomica:    Hitakófin koma meðan konan borðar, eða við mikla hreyfingu og ógleði fylgir gjarnan með.  Mikill sviti í andlitinu og á kynfærum á kvöldin.  Kvíðin og áhyggjufull.

Phosphorus:   Hitakóf, eins og volgu vatni sé hellt yfir hana, svitinn er klístraður.  Svitinn aðallega framan á líkamanum á maga og brjósti en færist upp á við í andlitið. Kvíða- og reiðitilfinningar auka á einkennin.

Psorinum:   Hitakóf, eins og volgu vatni sé hellt yfir hana.  Svitinn færist upp á við, andlitið er rjótt og einkenni aðallega eftir kvöldmat.  Hitakófin trufla svefninn.

Pulsatilla:   Hitakóf eru aðallega í andliti um nætur.  Kulsækin líkamlega og meyr tilfinningalega.  Hjálpar oft ef að konan er mjög tilfinningarík og mild, tárast auðveldlega og skiptir oft skapi. Á mjög erfitt með að horfa á eftir börnunum úr fara að heiman.  Óöryggi við að eldast.  Sækist í eftirrétti og smjör, sem veldur oft  þyngdaraukningu.  Skapbreytingar, óreglulegar blæðingar, klígjugirni, heitt og kalt til skiptis og lítill þorsti.  Líður verr í þungu lofti og betri við opna glugga.

Sepia:   Hitakóf sem færast upp líkamann. Mikill illa lyktandi sviti aðallega eftir hádegi og fram á nótt. Getur verið hjálpleg ef blæðingar eru stundum seinar og litlar, en stundum mjög miklar.  Tilfinning eins og legið sé sigið.  Sækir í edik og súran mat.  Konur sem eru oft þreyttar og pirraðar, sérstaklega gagnvart eigin börnum og maka.  Fær orku við að dansa.

Staphysagria:  Gæti hjálpað ef konan er feimin og hlédræg, og með bældar tilfinningar.  Á breytingaskeiðinu getur hún orðið þunglynd eða jafnvel ofsareið. 

Sulphur:   Hitakóf á brjósti sem færist upp í andlitið aðallega á kvöldin, einnig um nætur og í mannþröng.  Þreyta fylgir í kjölfarið. Hjálpar vegna hitakófa á breytingaskeiðinu sem getu valdið því að vakna upp snemma morguns og hendir af sér sænginni.  Oft kvíðin, grætur og hefur áhyggjur af eigin heilsu.  Líður verr í hita.

Sulphur Acid:   Hitakóf í andliti með klístruðum svita aðallega á kvöldin, um nætur og eftir mikla hreyfingu.  Andlitið er rautt og svitnar sérstaklega ef konan borðar heitan mat.

Thuja:   Hjálpar oft ef konur hafa brúna bletti á líkamanum og hafa aukinn hárvöxtur.


Náttúrulegar aðferðir

Nýlegar kannanir sýna að lyf gera ekki alltaf gagn og geta jafnvel haft einhverjar aukaverkanir.  Besta leiðin til að yfirvinna hitakóf er því að gera það samkvæmt náttúrulegum leiðum ef það er möguleiki.  Hitakófin stafa yfirleitt vegna þess að estrógenmagn í blóðinu er að minnka.  En hafa ber í huga að hitastilling líkamans getur truflast vegna annarra þátta eins og vegna lyfjanotkunar, vegna slappleika, veikinda eða annarra ástæðna.  Þegar um náttúrulegar aðferðir er að ræða skal hafa í huga hvort einstaklingur hefur fengið brjóstakrabbamein og forðast þá þær jurtir og efni sem innihalda estrógen.  En að öðru leiti skyldu konur ávallt byrja á að reyna mildustu aðferðina til að vinna á einkennum tíðahvarfanna og ef það dugar ekki þá að leita annarra lausna.  Hægt er að velja um ýmsar aðferðir og mun hér verða taldar upp nokkrar þeirra. 

Kínverskar lækningar

Í gegnum tíðina hafa kínverskar lækningar innihaldið margskonar meðferðir við hitakófum.  Hitakófin geta verið svo margvísleg og Kínverjar vita að mismunandi lýsingar geta kallað eftir mismunandi meðferð.  Eftir ítarlega skoðun og ítarlega frásögn þína af öllum einkennum ákveður læknirinn hvað hentar best. 

Nálastungur hafa hjálpað mörgum konum, en líklega eru konurnar jafn margar sem ekki fá neina bót.

Ef hitakófin eru afleiðingar af skurðaðgerð eða lyfjameðferð er talið að jurtalyf geti dregið úr þeim. 

Jurtaseyðin (te) eru úr blöndu margs kyns jurta sem valdar eru að þínum persónulegu þörfum. Þessar jurtir eiga það sameiginlegt að í þeim er talið er vera plöntuestrógen sem í alda raðir hefur reynst áhrifaríkt við að meðhöndla hitakóf.   Meðal þessara jurta er dong quai, ginseng, kvöldvorrósarolía, lakkrísrót, rauð hindberjalauf, sarsaparilla, mynta, damiana, motherwort, chasteberry, slöngujurt og villt yam.  Þó þessi jurtalyf dragi úr hitakófum er talið varhugavert fyrir konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein að nota þau.  Best er því að nota þau með gát og ævinlega í samráði við lækni. Þeir sem stunda kínverskar lækningar vara einnig konur við að nota kínverskar jurtir upp á eigin spýtur til lækninga.

Grasalækningar

Fæðubótar- og náttúruvörur af ýmsu tagi eru nú fáanlegar.   Margar af þessum vörum eru ætlaðar konum á breytingaskeiði sem innihalda jurtaefni með væga kvenhormónaverkun.  Það sama gildir um sojavörur sem hafa til lengri tíma verið taldar góðar fyrir konur á breytingaskeyði vegna kvenhormónainnihalds.

Gott er því að leita til fagaðila eins og grasalækna sem geta gefið fagleg ráð. Grasalæknar gefa konum á breytingaskeiði jurtir sem innihalda estrogen- og prógesteronlíka hormóna.  Reyndar er Wild Yam eina jurtin sem inniheldur þessa prógesteronlíku hormóna þó margar jurtir innihaldi estrogenlíka hormóna.  Það tekur um þrjár vikur  fyrir jurtahormón að byrja að vinna.  Þau eru margfalt veikari en venjuleg hormón, en virka samt.   Samhliða er gott að minnka kaffidrykkju og nota róandi jurtir því breytingaskeið framkallar ofvirkni í líkamskerfinu.

Meðal þeirra er kínversk hvönn, dong quai, slöngujurt, munkapipar, maríustakkur, rauðsmári, lakkrísrót og salvía.  Munkapipar er afar góð við hormónasveiflum.  Salvían, rauðsmári, slöngujurt og vallhumall eru afar áhrifarík gegn hitakófum.  Dong Quai eykur virkni eggjastokka. 

Í jurtaapótakinu er seld sérstök jurtablanda sem heitir Embla og hefur hjálpað mörgum.

Oft er gott að nota þvagdrífandi jurtir og aðrar jurtir sem styrkja lifur og nýrnahettur.  Spánarkerfill styrkir innkirtla líkamans svo og lakkrísrót sem styrkir nýrnahetturnar.  Humall er bæði góður við hitakófum og svefntruflunum.  Rót túnfífilsins er lifrarstyrkjandi og bjúglosandi.  Hvítþyrnisber eru styrkjandi fyrir hjarta- og æðakerfi.  Ginseng, hjartafró, garðabrúða, hafrar, jónsmessurunni, hjólkróna og rósmarín styrkja taugakerfið.

Vítamín og bætiefni

Ekki er sannað að vítamín vinni beint gegn einkennum breytingaskeiðsins, en það getur gert mörgum gott og margar konur finna mun til hins betra. 

Möguleg not E-vítamíns er að draga úr hættu á hjartasjúkdómum og hugsanlega að minnka hættu á krabbameini.  Það hefur einnig verið notað við tíðahvarfaeinkennum svo sem hitakófum sem geta tengst meðferð við brjóstakrabbameini.  B6-vítamín  og Peridin-C (sem inniheldur andoxunarefni) getur hjálpað sumum konum.

Ef þessi vítamín hafa ekkert að segja þarf líklega eitthvað áhrifameira. 


Hefðbudnar aðferðir

Hefðbundnar lækningar hafa gjarnan aðstoðað konur á þann hátt að eins og sé um hrörnunarsjúkdóm sé að ræða.  Algengast er að ávísað sé á hormónameðferðir vegna minnkandi estrogensframleiðslu líkamans.  Það bælir reyndar eðlilegt ferli líkamsstarfsseminnar, en það er það sem margar konur sækjast eftir og telja að þær geti hægt á öldrunarferlinu um leið.  Einnig getur hormónameðferð hjálpað konum þegar þurrkur er í þvagrás og leggöngum sem veldur vandamálum.  Á sama tíma geta hormónameðferðir haft aukaverkanir eins og hjartasjúkdóma og truflanir á æðakerfi.   Í fjölskyldum þar sem greinst hafa  hormónatengd krabbameinstilfelli hafa með klínískum niðurstöðum fengist tengsl við aukna tíðni brjóstakrabbameins.

Sumum hefur gagnast lyf eins og Paratabs eða Panodil (verkjastillandi) og svo Benedryl (róandi) eða Koffinatín (sem er sjóveikilyf) og talið geti hjálpað við væg hitakóf.

Einnig hafa læknar ávísað á væg þunglyndislyf sem hafa haft þau áhrif að dregur úr streitu og andlegri vanlíðan og hjálpað konum að draga úr þeim hitakófum sem eru afleiðingar streitu.  Þar sem svefntruflanir virðast algengar, þá hafa læknar líka ávísað svefnlyfjum.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).